Morgunblaðið - 14.10.1966, Qupperneq 7
Föstudagur 14 okt. 1966
MORGUNBLADIÐ
7
„Sonur og dóttiru
rugla Finna
í Huvudstadsbladet, sem
gefið er út í Helsingfors, rák-
umst við á klausu í Dagbók
þeirra, sem snertir íslenzkar
nafngiftir, og þeim koma mjög
spánskt fyrir sjónir. Við tök-
um okkur það bessaleyfi að
snara klausu þessari á ís-
lenzku.
„Hann kom þjótandi inn á
ritstjórnina til okkar, og
virtist vera í góðu skapi og
geislaði af kátínu.
— Má ég spyrja þig um
mál eitt, sagði hann, og með
yfirlæti og kæruleysi, leit
hann á borðið mitt, hlaðið
verkefnum. Á þvílíkum stund
um kemst maður ekki hjá
því að segja: Já og láta fólk-
ið syngja versið til enda.
— Hugsaðu þér bara að
þú sért að taka á móti gestum
á hóteli. Einhver hringir og
pantar herbergi fyrir 4. og
þetta voru útlendingar. Ertu
með?
Sannarlega hafði maður
þessi ekki mikið álit á gáfum
mínum, en að það væri
svona lítið ,hafði ég ekki nald
ið. Jú, jú, ég er með.
— Svo koma hinir 4 á hót-
elið og leggja fram vegabréf
sín á bórðið hjá þér. Hótel-
vörðurinn blaðar í þeim, og
lítur síðan á fólkið hneyksl-
aður og vantrúaður, og 'egir:
„Hvernig getur á því staðið,
að þér ætlið ykkur eitt og
sama herbergið, og heitið öll
mismunandi nöfnum?“
— Myndir þú hafa látið
þau hafa herbergið?
Venjulega leyfir maður sér
ekki að trufla sögu þess, sem
er að segja okkur tíðindi, en
með hliðsjón af þessu“ ertu
ú %v'
' í QA |
3 h y/
með“ hafði haft áhrif.
— Já, ég hefði látið þau
hafa herbergið. Þetta hafa aug
sýnilega verið Islendingar.
Þetta forðaði vandræðum.
Svo ræddum við nánar þetta
flókna nafnakerfi á IslandL
Tökum nú t.d. þessa hótel-
fjölskyldu til nánari athug-
unar. Húsbóndinn á heimil-
inu getur borið nafnið Sig-
urður Þorsteinsson. Kona hans
hét Ólöf Hannesdóttir. Sonur
þeirra hefur fengið nafn henn
ar að fornafni og heitir Ólaf-
ur, en vegna þess að faðirinn
heitir Sigurður að fornafni
er eftirnafn hans Sigurðsson.
Og svo er það dóttirin. Hún
heitir því norræna nafni Ingi-
björg að fornafni, en fær sva
að eftirnafni nafn föðurins,
Sigurðardóttir. Fjögra manna
fjölskylda, og heita öll mis-
munandi nöfnum. Hvernig
hægt er á íslandi að vita hver
verður framvegis mikil gáta.
íslandssérfræðingurinn hélt
áfram að segja frá skemmti-
legheitum. Ef nú þessi Ingi-
björg Sígurðardóttir giftist út
lending, kastar hún með gleði
nafni föður síns á öskuhaug-
inn, og tekur upp nafn manns
síns. Og samt er litið á hana
sem jafngóðan íslending eftir.
En —, ef t.d. Finni flytur
til Islands og óskar eftir að
verða íslenzkur ríkisborgari,
verður hann að fá sér nýtt
nafn. Hann verður að taka
upp fornafn föður síns og
bæta við það „son“. Efraim
Nyponblom, fær ekki lengur
að nota sitt blóm, heldur verð
ur hann skírður upp á nýtt
Efraim Alexandersson, vegna
þess að faðir hans hét Alexand
er. Og þar með er hann týnd-
ur og tröllum gefin fyrir hin-
um Norðurlöndunum.
Clementine.
Mikið lifandis ósköp og skelf-
ing var veðrið gott í gær, og
svona ætti eiginlega að vera upp
á hvern einasta dag. Ég flaug
út á Álftanes, kom þar að einu
herlegu húsi niður við Bessa-
staðatjörn, þar sem allt angaði
af náttúrufegurð, svo vítt sem
varð séð, og það sást þar eigin-
lega um heima alla.
Og ég var í ósköp góðu skapi,
þegar ég flaug yfir Gálgahraun
aftur til höfuðborgarinnar, og
þá hitti ég manninn í Vogum,
sem söng við raust.
Storkurinn: Ekki er að sjá, að
þú gangir með verðbólgu í radd-
böndunum, maður minn?
Maðurinn á Vogunum: Nei,
svo sannarlega ekki. Ég var að
horfa á okkar þjóðlega sjónvarp
í gærkvöldi, og það var nú al-
deilis notandi, þótt sitthvað megi
auðvitað að öllu finna, og frétta-
myndin frá strandinu sýnir,
hvers sjónvarpið muni verða
megnugt í framtíðinni. Og svo
höfum við þá eignast nýja sjón-
varpsstjörnu, þar sem er heilla
karlinn hann Ási í Bæ. Svona
eiga menn að koma fram í
sjónvarpi, hiklaust og ófeimið,
og syngja sitt vers út af fullum
krafti. Mætti segja mér, að við-
lagið verði sungið af fjölda
manns næstu daga, en það var
svona, ef mig misminnir ekki:
„Hann átti þennan undrahatt,
egta mexicanahatt.
Ég ofaná hann í dóti datt
um daginn, það er satt“.
Skilaðu þakklæti til þeirra í
sjónvarpinu, en láttu fylgja, að
við viljum meira af íslenzku
efni.
Ég skal gera það, sagði stork-
ur, og máski fáum við þá Ása
í Bæ aftur, hann gæti komið
stundum í stað fiskabúrsins,
sem sumum finnst koma of oít,
og með það flaug hann upp á
eitt háhýsanna í Heimunum, se:m
kynda með svartoliu, og það
ættu fleiri háhýsanna að gera,
þar til við erum komnir í sam-
band við Hengilinn með lúta-
veituna.
f RÉTTIR
Hvítabandið heldur fund mánu
daginn 17. okt. í Aðalstræti 12.
Kl. 8:30. Myndasýning. — Kaffi
— Stjórnin.
Kvenfélag Ásprestakalls held-
ur fund í Safnaðarheimilinu Sól-
heimum 13. mánudagskv. 17. okt.
kl. 8:30. Frú Sigríður Gunnars-
dóttir, forstöðukona Tízkuskólans
verður gestur fundarins og sýnir
handsnyrtingu. Stjórnin.
Kvenfélag Keflavíkur
Munið basarinn í Tjarnarlundi
kl. 3. sunnudaginn 30. okt.
Slysavarnarkonur í Keflavík
og Njarðvíkum. Fundur verður
haldinn í Æskulýðshúsinu þrið.ju
daginn 18. okt. kl. 9. Áríðandi
mál á dagskrá.
Kvenskátar. Seniorar, Svann-
ar, Mömmuklúbbur og fleiri.
Munið fundinn í félagsheimili
kvenskáta að Hallveigarstöðum
mánudaginn 17. okt. kl. 8:30.
Fundarefni: Frásögn með lit-
myndum frá fundi norrænna
kvenskátaforingja í Finnlandi.
Litmyndasýning frá landsmótinu.
Svannar sjá um kaffið.
Styrktarfélag lamaðra og fatl-
aðra, kvennadeildin. Tilsögn í
föndri þriðjudaginn 18. okt. kl.
4. síðdegis að Sjafnargötu 14.
Kvenréttindafélag íslands held
ur fyrsta fund vetrarins á Hverf-
isgötu 21, þriðjudaginn 18. okt.
Fundarefni: Vetrarstarfið að
Hallveigarstöðum, og tillögur frá
fulltrúaráðsfundi.
K.F.XJ.M. og K. í Hafnarfirði
Hlutaveltan verður laugardag-
inn kl. 5. í húsi félaganna.
Dýrfirðingáfélagið í Reykja-
vík. Fyrsta spilakvöldið verður
í Átthagasal Hótel Sögu í kvöld
kl. 8:30.
Hlutavelta og kaffisala Hún-
vetningafélagsins verður sunnu-
daginn 16. október að Laufásveg
25. Þær sem vilja aðstoða gjöri
svo vel að hringja í eftirtaldar
konur: Guðrúnu í síma 36137
Ólöfu 22995 og Þórhildi 30112.
Kvenfélag Neskirkju heldur
fund miðvikudaginn 19. okt. kl.
8.30 í Félagsheimilinu. Skemmti-
atriði. Kaffi. Stjórnin.
Hveragerði. Kristilegar sam-
komur í barnaskólanum, hvern
föstudag kl. 8:30 í október. Allir
velkomnir. Calvin Cessellman og
John Holm.
Kvenfélag Háteigssóknar:
Hinn árlegi basar Kvenfélags
Háteigssóknar, verður haldinn
mánudaginn 7. nóvember n.k. í
„GUTTÓ“ eins og venjulega og
hefst kl .2 e.h. Félagskonur og
aðrir velunnarar kvenfélagsins,
eru beðnir að koma gjöfum til:
Láru Böðvarsdóttur, Barmahlíð
54, Vilheelmínu Vilhelmsdóttur,
Stigahlíð 4, Sólveigar Jónsdótt-
ur ,Stórholti 17, Maríu Hálfdánar
dóttur, Barmahlíð 36, Línu Grön-
dal, Flókagötu 58 og Laufeyjar
Guðjónsdóttur, Safamýri 34.
Nefndin.
Kvenfélag Keflavíkur heldur
basar sunnudaginn 30. okt. í
Tjarnarlundi kl. 3. Félagskonur
komi munum til eftirtaldra; Re-
bekka Friðbjarnard., Heiðavegi
21, Lovísa Þorgilsdóttir, Sóltúni
8, Svanhvít Sigurjónsdóttir, Sól-
vallagötu 40, Kristjana Jakobs-
dóttir, Smáratúni 5, Guðmunda
Sumarliðad., Hólabraut 7, Pálm-
fríður Albertsdóttir, Heiðarveg
12, Jónína Ingólfsdóttir, Háholt 9
og Hrefna Gunnlaugsdóttir, Vest
urgötu 11.
íbúð óskast Óskum eftir að fá leigða 2—3 herbergja íbúð. Uppl. í síma 19326 9—11 f. h. og eftir kl. 5. s. d. Hús til sölu Lítið hús til sölu og flutn- ings. Þarf viðgerðar við. Tilvalið sem sumarbústað- ur. Uppl. í síma 15830 eftir kl. 7 á kvöldin.
Keflavík — Suðurnes Nýkomið norsk glervara, búsáhöld, stakir bollar. Stapafell, sími 1730. Vantar trésmið á trésmíðaverkstæði. Út- vegun á húsnæði fylgir. Uppl. óskast sendar bréf- lega til Guðmundar Jóns- sonar, Höfn, Hornafirði.
Keflavík — Suðurnes Pinotex fúavarnarefni, bíl- þvottakústar, útdregnar kappastangir, krómrör í klæðaskápa og fleira. Stapafell, sími 1730. Keflavík Til sölu tveggja manna svefnsófi og 4 armstólar. Selst mjög ódýrt. Uppl. i síma 1488.
Sniðkennsla Kenni að sníða og taka mál Námskeið hefst um miðjan nóvember. Nánari uppl. í síma 17149. Indíana Guð- laugsdóttir, Njálsgötu 49. Fótaaðgerðir med. orthop. Erica Pétursson Víðimel 43. — Sími 12801.
Stúlka óskar eftir skrifstofustarfi frá kl. 9-12. Stúdentspróf, málakunn- átta, vélritun. Uppl. í síma 35124. Dregið hefur verið í happdrætti U.M.F. Geisla í Óslandshlíð í Skagafjarð- arsýslu. Vinningurinn, kyn bótahestur, kom á miða nr. 32.
Þýzkur rafmagnstæknifræðingur, 26 ára, óskar eftir starfi, talar ensku. Umsækjandi hefur fengizt við sjónvarps störf og unnið við rafeinda- og vökvastýrð sjálfv. kerfi. Einnig unnið við sterk- straumstækni. Tilb. merkt „Tæknifræðingur — 4899“ sendist Mbl. Leiguíbúð óskast Tæknifræðing, sem er að koma frá námi í atvinnu, vantar 3—4 herb. íbúð. Til gr. gæti komið vinna við málningu, flísalögn o. fl. á nýrri íbúð. Tilb sendist Mbl f. þriðjud., merkt „Tækni- fræðingur — 4893“. Stúdína óskar eftir starfi sem hún getur stundað sam hliða háskólanámi. Margt kemur til greina. Tilboð sendist Mbl. fyrir þriðjud. merkt „Stúdína —4898“.
TÆKIFÆRISKAUP Vetrarkápur með stórum skinnkraga, margir litir, verð kr. 2200,-. Svampfóðr- aðar kápur á kr. 1800,- og 2000,-. Ullarpils, ensk, kr. 300,-. Laufið Laugavegi 2.
Hótel Hveragerði vantar afgreiðslustúlku, má hafa með sér barn, helzt á skólaaldri, einnig karl eða konu til benzínafgr. Upp- lagt fyrir fatlað. Uppl. i síma 30078.
Húsbyggjendur Tek að mér uppsetningu á innréttingum, einnig stand- setningu á gömlu sem nýju. Set í hurðir og tvöfalt gler. Upplýsingar í síma 31471 eftir kþ 19 á kvöldin. Geymið auglýsinguna. Herbergi Ungur reglusamur maður óskar eftir herbergi, helzt forstofuherbergi í Rvík, Kópav., Hafnarf. eða nágr. Tilb. sendist til afgr. Mbl., merkt „Herbergi — 4894“ fyrir þriðjudag.
Námskeið Myndlista- og handiðaskólans Nokkrir nemendu'- geta enn komist að í: 1. Undirbúningsnámskeið í teiknun fyrir nemendur menntaskólans og stúdenta til undirbúnings tækni náms (arkitekiur, verkfræði). Kennt þriðjudaga og föstudaga kj. 8—10,15 síðd. 2. Fjarvíddarteiknun. Kennt mánudaga og fimmtu- daga kl. 8—10,15 síðdegis. Umsóknir berist skrifstofu skólans, Skipholti 1, sem fyrst — (sími 19821). SKÓLASTJÓRI.
AUKAVINNA
ÓSKAST
Ungur maður sem vinnur vakfa-
vinnu, óskar eftir kvöldvinnu
aðra hverja viku. Talar ágœta
ensku og er með bílpróf. Margt
kemur til greina. Uppl. í síma
36867 frá kl. 6-8 nœstu daga.