Morgunblaðið - 15.10.1966, Blaðsíða 2
2
NORGU N BLAÐIÐ
Laugardagur 15. okt. 1966
Veturii opnar sýningu
á fertugsafmæli sínu
Þarf að biðja guð um gott veður,
svo crð Listamannaskálinn leki ekki
VETURLIÐI Gunnarsson listmál-
ari opnar í dag kl. 8. sýningu í
Listamannaskálanum í Reykja-
vík. Sýnir hann þar milli 40 og
50 olíumálverk. Sýningin verður
opnuð fyrir almenning á sunnu-
dag kl. 2, og verður svo daglega
opin frá kl. 2—10 í eina viku.
Við hittum Veturliða úti í
Listamannaskála í gær, þar sem
hann var í óðaönn að hengja upp
myndir sínar.
„Þetta eru myndir frá ýmsum
árum“, sagði Veturliði" en þó
er þetta engin yfirlitssýning. En
nú er bara að ekki rigni, því
að skálinn er sannast sagna bág-
ssssisíáí
Vetuiliði Gunnarsson.
borinn, og ég hef haft svo mikið
að gera að undanförnu, að mér
hefur ekki gefist tóm til að
biðja guð um gott veður. Ætli
ég verði ekki að biðja einhvern
-•bænheitan mann að biðja fyrir
mig í þetta sinn. Annars er ég
á förum til Portúgals, þar er
sól og hiti, og „prísarnir" allir
aðrir til að fá í sig og á. —
Já, þessar myndir eru margar
frá sjávarsíðunni, ekki svo mik-
ið um, að þær séu frá sama
þorpinu, ég tek svona eitt og eitt
hús úr nokkrum og slæ þessu
saman upp á jafnvægið. Svo er
þarna mynd frá Dimmuborgum,
þar sem ég villtist í aftanhúm-
inu. Þarn.. eru líka myndir af
fjörugrjóti og káli og hvað það
nú heitir, allt saman.
Annars verð ég 40 ára í dag,
en það er nú auðvitað leyndar-
mál, og ég verð að heiman, eins
og sagt er, því að ég 'verð hérna
niður í skála allan daginn.
„Bara að rigni nú ekki“
Og svo héldum við út frá lita-
dýrðinni í skálanum, og óskum
Veturliða til hamingju með sýn-
inguna og afmælið með gömlu
kveðjunni: „Allt er fertugum
fært“. — Fr. S.
Sfœrsta sending sprengi-
efnis tii landsins í gœr
Notkun sprengiefnis vex Ört hér,
vegna fjölda stórframkvæmda
í GÆRDAG kom til Þorláks-
hafnar m.s. Solfjord, norskt skip
með nær 200 smál. af sprengi
efni til Búrfellsvirkjunar, Sunda
hafnar, svo og til annarra verk-
taka. Er sprengiefnið flutt hing-
að til lands frá fyrirtækinu
Norsk Sprængstofindustri A. S.
Osló. Tekur lestun sprengiefn-
isins tvo daga, en það verður
flutt í sprengjubirgðageymslu
sem nýlega hefur verið byggð
á Hólmsheiði fyrir norðan Geit-
háls. Var í gærkveldi unnið að
því að flytja nokkurn hluta
sprengiefnisins á ákvörðunar-
stað undir ströngu eftirliti lög-
reglumanna, sem fylgdu bíla-
lestunum eftir. Þetta mun vera
stærsta sending af sprengiefni
sem komið hefur til landsins í
einu.
Eins og kunnugt er er nú að
rísa upp mikið íbúðahverfi í
Breiðholtslandi. Undanfarin ár
hafa á því svæði verið staðsett-
ar sprengiefnageymslur, en
vegna sprengihættu er óhjá-
kvæmilegt að flytja þær. Hefur
nú verið afmarkað landsvæði
Vera3egar skemsndir
ó Herðnbreið
fyrir nýjar sprengiefnageymsl-
ur og er það á Hólmsheiði, eins
og fyrr greinir frá. Þar hefur
þegar verið reist ein slík geymsla
fyrir þetta sprengiefni, sem nú
er verið að flytja, og var hún
reist af fyrirtækinu Ólafur
Gíslason og Co., sem hefur sölu-
umboð hér á landi fyrir Norsk
Sprængstofindustri.
Að því er Tómas Pétursson
hjá Ólafi Gíslasyni og Co. upp-
lýsti í gær, hefur notkun sprengi
efnis hérlendaukizt mjög ört
á undanförnum árum, þar sem
I þær miklu framkvæmdir, sem
I eiga sér nú stað hér þurfa mörg
hundruð smálestir af sprengieim
og má þar nefna Búrfelsvirkjun
og Sundahöfn. Tómas sagði enn-
fremur að yfirleitt væri notkun
sprengiefnis í hraðri aukningu á
íslandi, og væri það því nauð-
synlegt, að komið væri upp til-
hlýðilegum geymslum með
fyllsta örygisútbúnaði sam-
kvæmt ströngum kröfum.
MORGUNBLAÐIÐ hafði í gær
samband við Guðjón Teitsson,
forstjóra Skipaútgerðar ríkisins
og spurðist fyrir um skemmd-
irnar á Herðubreið. Sagði Guð-
jón svo frá:
M.s. Herðubreið var tekin í
slipp hér í Reykjavík í gær og
hafa komið í ljós verulegar
skemmdir á botni skipsins frá
Engin vínþurrð
um borð í Balfica
segir fararstjóri Karlakórsins
Hópurinn kom til Yalfa í gær
MORGUNBLAÐIÐ átti í gær
stutt símtal við Ragnar Ing-
ólfsson, formann Karlakórs
Reykjavíkur, en hann var þá
staddur í Yalta á Krímskaga
í Sovétríkjunum. Kom Baltica
þangað um hádegið með ís-
lenzka ferðafólkið, sem var að
fara í land til að skoða borg-
ina. Sagði Ragnar að þar væri
22—24 stiga hiti og ákafiega
fagurt veður.
Ragnar sagði að ferðin hefði
hingað til gengið prýðilega.
íslenzka ferðafólkið hefði ferð
azt mikið í landi og einkum
verið hrifið af Beirut í Liban
on og Istambul í Tyrklandi.
Hiti hafi verið mikxll, mest
um 40 stig í Cairo. Farþegar
hafi unað sér vel á skipinu,
dansað sé á hverju kvöldi og
á daginn legið í sólinni og
notuð sundlaugin. Sjóveiki
hafi gert vart við sig fyrst,
en menn síðan sjóast.
Aðspurður hvort vínbirgð-
ir hafi þrotið um borð, svar-
aði Ragnar að það sé alrangt.
Coca Cola hafi gengið til
þurrðar, en ekki áfengið. Það
sé einhver misskilningur, ef
það sé sagt.
í gær átti Karlakór Reykja-
víkur að halda sína fyrstu
söngskemmtun í ferðinni, í
Yalta og syngja svo aftur eftir
tvo daga í Odessa.
Að lokum sagði Ragnar að
öllum liði vel um borð. Einn
maður hefði verið lagður veik
ur á land á Möltu. Aðrir far-
þegar séu allir með, og sendi
þeir sínar beztu kveðjur heim.
afturstefni og fram undir mitt
skip.
Ekki er á þessu stigi ljóst
hvort undirstöður véla hafa
raskazt, en það verður kannað
þegar þéttisteypa undir þrýsti-
legu hefir verið fjarlægð og
búið er að koma skipinu í rétta,
fasta stöðu í slippnum.
Fyrirlestrar
í Hóskóknum
Prófessor N. F. Bisgaard, vara
rektor Tækniskóla Danmerkur
heldur fyrirlestra á vegum Há-
skóla íslands þriðjudag 18. okt.
og fimmtudag 20. okt. í L
kennslustofu.
Þriðjudagur 18. okt kl. 17.15:
Bygningsingeniörernes nye
studieplan ved Danmarks tekn-
iske Höjskole.
Fimmtudagur 20. okt. kl. 17.15:
Rumklimatiske problemer i
nutidigt byggeri.
Leiðrétfing
í FRÁSÖGN Mbl. í gær af
ræðu Bjarna Benediktssonar á
Alþingi sl. fimmtudag misrituð-
ust tvær tölur í einni setmngu.
Rétt er hún þannig: „En á siðu
21 er hækkun á framfærsluvísi- |
tölu á sama tíma 59% og ef ein- '
ungis er tekin vísitala neyzlu-
vöru er það 63% hækkun." 1
Slúdentar!
iCosið er í tðag
frá kl. 13 - 19
í skrifstofu
Slúdentaráðs
II. hæð e: áskóSa
Islauds
VELJUM VÖKU
Framhaldsstofnfundur sam-
vinnufélagsins Borg í Borgar-
nesi var haldinn sunnudaginn
9. ok. sl. Var þá endanlega
gengið frá stofnun félagsins
og kjörin stjórn og gengið
frá samþykktum.
Meðfylgjandi mynd er áf
framkvæmdastjóra og stjórn
fyrirtækisins.
í aftari röð er talið frá
vinstri: Magnús Böðvarsson
bóndi, Hrútsstöðum, Dala-
sýslu; Sverrir Sigurjónsson
framkvæmdastjóri félagsins;
Björn Arason, kennari, Borg-
arnesi, varformaður félags-
ins; Kristófer Þorgeirsson,
garðyrkjumaður, Laugalandi
í varastjórn félagsins; Páll
Pálsson, bóndi Borg, Mikla-
holtshreppi, ritári félagsins;
Jón Guðmundsson bóndi, Bónd
hól; Valdemar Ásmundsson
bifreiðaeftirlitsmaður, Borg-
arnesi og Þorsteinn Sigurðs-
son bóndi Brúarreykjum,
stjórnarformaður félagsins.
Á myndina vantar Björn
Þorsteinsson bónda, Hurða-
baki, og Björn Markússon
frkvstj. Borgarnesi, en hann
er í varastjórn.
Ljósm. Hörður Jóhannesson.
Hloa!
böfaðdverka
í FYRRAKVÖLD laust fyrir kl.
22 varð harður árekstur á Aust-
urvegi á Selfossi gegnt húsinu
nr. 8. Fólksbíll kom vestan að
og sveigði heim að húsinu, en í
sama mund kom annar fólks-
bíll austan að og skullu bílarmr
saman all harkalega. Ökumaður-
inn á bílnum, er vestan að kom,
var Hans Ólafsson, 66 ára að
aldri. Kastaðist hann út úr bif-
reið sinni og hlaut talsveröan
höfuðáverka. Var hann fyrst
fluttur í sjúkrahúsið á Selfossi,
en í gær var hann fluttur i
Landakotsspítala.
Aðrir slösuðust ekki við árekst
ur þennan, en skemmdir uröu
miklar á bílunum.
í GÆR var hér NA-átt og víð
ast gola eða kaldi. Bjartviðri
var um vestur og suðurhluta
landsins, en dálítil él á ann-
esjunum fyrir norðan og á
NA-landi. Hiti var rétt ofan i
við frostmark síðdegis norðan ?
lands, en í kring um 5 stiga I
hiti á Suðurlandi. )