Morgunblaðið - 15.10.1966, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 15.10.1966, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Laugardaefur 15 okt. 1966 UNGUR og ábyggilegur piltur getur fengið vinnu nú þegar, við afgreiðslustörf og akstur. Upplýsingar í síma 13893 og 13024. 12—14 ára telpa óskast til að gæta 2ja ára barns í Austurbænum, nokkra tíma eftir hádegi. Uppl. í síma 10696. íbúð óskast Fullorðin kona óskar eftir tveggja herbergja íbúð, sem fyrst. Uppl. í síma 22150. Ung stúlka óskar eftir léttri skrifstofu- vinnu. Upplýsingar í sima 32265. Renault 1962 Til sölu vel með farinn Renault Dauphine, ekinn 38 þús. km. Verð 45 þús. Upplýsingar í síma 30163. Ung barnlaus hjón sem vinna bæði úti óska eftir 1 til 2 herbergja íbúð. Reglusemi áskilin. Upplýsingar í síma 41799. Rösk afgreiðslustúlka með góða framkomu óskast strax hálfan daginn í vefn- aðarvöruverzlu. Uppl. í síma 11433 kl. 5—7 í dag og á morgun. Til sölu vegna brottfarar rúm, borð stofuborð og píanóbekkur. Hreinn rókokó-stíll, allt mjög ódýrt. Sími 34466 milli kl. 18 og 20 í dag. Miðstöðvarketill 2%—3 ferm. með spíral óskast. Uppl. í síma 32648 Píanó til sölu Nokkur þýzk og dönsk uppgerð píanó til sölu. Hljóðfæraverkstæðið Laugavegi 28, 2. hæð, kl. 10—12. Til leigu ný tveggja herbergja íbúð. Ársfyrirframgreiðsla. Sími 36973 eftir hádegi í dag, laugardag. Dodge Weapon Reo Studebaker varahlutir til sölu. Einnig jeppakerra. Sími 40304. Flygill til sölu Flygill til sölu, stærð 1,50 m. Skipti á góðu píanói geta komið til greina. Upp- lýsingar í síma 16326. Til sölu Sem ný A.C.M.E. Conquest þvottavél með suðu og þeytivindu. Uppl. í síma 36845. Aðstoðarstúlka óskast á tannlækningastofu við Miðbæinn frá kl. 1—6. Tilb. merkt „Miðbær 4360“ send- ist afgr. Mbl. fyrir þriðju- dagskvöld. Messur á morgun Keflavíkurkirkja. í dag messar séra Björn Jónsson í Bústaða- prestakalli í Reykjavík, og hefst messa í Réttarholtsskóla kl. 11. árdegis. Kór úr Keflavíkurprestakalli syngur við messuna. Dómkirkjan Messa kl. 11. Ferming. Sera Jón Auðuns. Messa kL 5. Séra Óskar J. Þorláksson. Hveragerðisprestakall Messa í Strandarkirkju kl. 5. Séra Sigurður K.G. Sigurðs- son. Háskólakapelian Klassísk messa kl. 2. Séra Arngrímur Jónsson þjónar fyrir altari. Tómas Sveins- son stud. theol. prédikar. Stórólfshvoll Messa kl. 2. Séra Stefán Lárusson. Fíladelfía Reykjavík Guðsþjónusta kl. 8. Ásmund ur Eiríksson. Fíladelfía Keflavík Guðsþjónusta kl. 4. e.h. Har aldur Guðjónsson. Elliheimilið Grund Guðsþjónusta með altaris- göngu kl. 10 árdegis. Ólafur Ólafsson prédikar. Heimilis- prestur. Langholtsprestakall Fermingarguðsþjónustur kl. 10:30. Séra Árelíus Nielsson kl. 13:30, Séra Sig. Haukur Guðjónsson. Fríkirkjan í Reykjavík Messa kl. 2. Sr. Þorsteinn Björnsson. Keflavíkurflugvöllur Barnaguðsþjónusta í Græn- ási kl. 10:30. Séra Ásgeir Ingi bergsson. Garðasókn Barnasamkoma í skólasaln- um kl. 10:30 f.h. Æskulýðs- þjónusta í Garðakirkju kl. 2. e.h. Bíll fer frá barnaskólan- um kl. 1:30. Bragi Friðnks- son. Bústaðaprestakall Barnasamkoma í Réttar- holtsskóla kl. 10. Guðsþjón- usta kl. 11. Séra Björn Jóns- son prédikar, og kór úr Keflavíkurprestakalli syng- ur. Séra Ólafur Skúlason. Reynivallaprestakall Messa að Reynivöllum kl. 2. Séra Kristján Bjarnason. Háteigskirkja Messa kl. 2. Séra Jón Þor- varðsson. Hafnarfjarðarkirkja Messa kl. 2. Séra Garðar Þorsteinsson. Ú tskálaprestakall Messa að Hvalsnesi kl. 2. Séra Sigurður Guðmundsson prófastur, Grenjaðarstað, messar. Séra Guðmundur Guð mundsson. Mosfellsprestakall Barnamessa í samkomu- húsinu í Árbæjarhverfi kl. 11 og barnamessa að Lága- felli kl. 2. Séra Bjarni Sig- urðsson. Laugarneskirkja Messa kl. 2. Barnaguðs- þjónusta kl. 10. Séra Garðar Svavarsson. Ásprestakall Barnaguðsþjónusta kl. 11 í Laugarásbíói. Messa í Laug- arneskirkju kl. 5. Séra Grím- ur Grímsson. Grensásprestakall Breiðagerðisskóli. Barna- samkoma kl. 10:30. Messa kl. 2 séra Felix Ólafsson. Hallgrímskirkja Barnasamkoma kl. 10. Syst- ir Unnur Halldórsdóttir. Messa kl. 11. Séra Jón Bjarman messar. Dr. Jakob Jónsson. Kópavogskirkja Messa kl. 2. Séra Gunnar Árnason. Grindavíkurkirkja Messa kl. 2. Séra Jón Árni Sigurðsson. Fríkirkjan í Reykjavík Messa kl. 2. Sr. Þorsteinn Björnsson. Neskirkja Barnasamkoma kl. 10:30. Messa kl. 2. Séra Jón Thor- arensen. 65 ára varð í gær 14. okt. Árni Jónsson frá FosSi, Ásgarðs vegi 16. Húsavík. Kristbjörn Bjarnason fyrrver- andi sundlaugavörður er 70 ára í dag. Hann dvelst á Hrafnistu. í dag verða gefin saman í hjónaband í kirkju Óháða safn- aðarins af séra Emil Björnssyni i ungfrú Anna Kristinsdóttir hár- greiðslukona Vesturvaliagötu 2 og Halldór Guðmundsson tækni fræðinemi Kaplaskjólsvegi 27. Heimili brúðhjónanna verður fyrst um sinn að Vesturvalla- götu 2. í dag verða gefin saman í hjónaband af séra Garðari Þor- steinssyni prófasti Ásdís Valde- marsdóttir og Þór Gunnarsson sparisjóðsgjaldkeri, Arnarhrauni 29, Hafnarfirði. í dag verða gefin saman í hjónaband í Dómkirkjunni af séra Jóni Auðuns ungfrú Ásta Eyjólfsdóttir og Lárus Berg hús gagnasm.m. Heimihð verður að Njarðargötu 47. Gefin verða saman í hjóna- band af séra Jóni Auðuns á morgun, sunnudag, ungfrú Hólm fríður Gunnarsdóttir, Sólvalla- götu 4 og Georg Hauksson verzl- unarmaður Skólastræti 5. Heim- ili þeirra verður að Freyjugötu Nýlega opinberuðu tiúlofun sína Eygló Bogadóttir, Drápu- hlíð 21. og Þorsteinn E. Einar- arsson, Skálagerði 11. VÍSUKORN Betra væri að hefðir haft hert um tungurætur. Þú sem alltaf illan kjaft opinn gjalla lætur. Ingþór Sigurbjörnsson. 36. Gefin verða saman í Dómkirkj unni í dag af séra Jóni Auðuns, ungfrú Ragna Lára Ragnarsdótt- ir íþróttakennari og Brynjólfur Björnsson verzlunarmaður. Heim ili þeirra verður í Sólheimum 3. Spakmœli dagsins Heimurinn er í hættu, meðan allir ráðast á aðra, án þess að athuga sjálfa sig og sín verð- mæti. — Sókrates. Kröftug bæn réttláts manns megn- ar mikið (Jak. S,16>. í dag er laugardagur 15. október og er það 288 dagur ársins 1966. Rftri lifa 77 dagar. Árdegisháflæði kl. 6:47. Síðdegisháflæði kl. 19:07. Orð lifsins svara I sima 10000. Upplýsingar um læknapjón- ustu í borginnj gefnar í sím- svara Læknafélags Reykjavíkur, Síminn er 18883. Slysavarðstofan í Heilsuvernd- arstöðinni. Opin allan sólarhring inn — aðeins móttaka slasaðra — simi: 2-12-30. Kvöldvakt í lyfjabúðum í Reykjavík vikuna 15. okt. til 20. okt. er í Vesturbæjarapóteki og Lyfjabúðinni Iðunni. Næturlæknir í Hafnarfirði. Helgarvarzla laugardag til mánudagsmorguns 22. okt. til 24. okt. Ársæll Jónsson, sími 50745 og 50245. Næturlæknir í Keflavík 14. þm. er Guðjón Klemenzson sími 1567, 15—16 þm. er Kjartan Ólafsson sími 1700. 17—18 þm. er Arn- björn Ólafsson sími 1840, 19—20 þm. er Guðjón Klemenzson sími 1567. Apótek Keflavíkur er opið 9—7 laugardag kl. 9—2 helgidaga kl. 1—3. Hafnarfjarðarapótek og Kópa- vogsapótek eru opin alla daga frá kl. 9 — 7 nema laugardaga frá kl. 9 — 2, helga daga frá kl. 2 — 4. Framvegis verðiar teklð á móti þelm, er gefa vilia blóð i Blóðbankann, sem hér segir: Mánudaga, þriðjudaga, hmmtudaga og föstudaga frá kl *—11 f.h. og 2—4 e.h. MIÐVIKUDAGA frá kl. 2—8 e.h. Uaugardaga frá kl. 9—11 Á morgun skemmta í fyrsta sinn í Víkingasalnum hinir frægu spænsku songkraftar Los Vaide- mosa. Þetta er sex manna hópur, fjórir karlsöngvarar og ein söngkona ásamt mjög skemmtilegum látbragðsdansara. Hingað koma Los Valldemosa frá Evrópu, þar sem þau hafa víða komið síðasta mánuð, einkum í sjónvarpsþáttum, til dæmis í sí ðustu viku í einum vinsælasta sjónvarpsþætti Svía, „Hylands Hörna“. Einnig hafa þau skemmt á frægum skemmtistöðum, t.d. Kystens Perle og Ambassador í Kaupmannahöfn. Á sumrin skemmta Los Valldemosa á sínum eigin næturklúbb á Maliorca, sem heitir Tagomago, og kannast ma rgir íslendingar við þau þaðan. Fyrir fimm árum skemmtu Los Valldemosa hér í Reykjavík við mjög góðar undirtektir, en síðan hefur þeim vaxið mikill frami af sjónvarpsþáttum, hljómplötum og á betri næturklúbbum í Evrópu. Hér skemmta Los Vaaldemosa til 25. október, en halda síðan í sjónvarps- og hljómleikaför til Afríku. f(h. Sérslok athygli skal vakin á mið- vikudögum, vegna kvöldtimans. Bilanasimi Rafmagnsveitu Reykja- víkur á skrifstofutima 18222. Nætur- og helgidagavarzla 18230. Reykjavíkurdeild A.A.-samtakanna Fundir alla miðvikudaga kl. 21 Óð- insgötu 7, efstu hæð. □ GIMLI 596610177 — FrL sá NÆST bezti Þorvaldur á Eyri kom eitt sinn til Halldórs kaupmanns í Vík. Halldór bauð Þorvaldi ekki strax inn, en ræddi vi’ð hann úti á hlaðinu. Þá segir Þorvaldur: „Gerðu svo vel og gakktu inn, Halldór minn ,og láttu eins og þú sért heima hjá þér.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.