Morgunblaðið - 15.10.1966, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 15.10.1966, Blaðsíða 3
Laugardagur 15. okt. 1966 MOkGUNBLAÐIB 3 f GÆR var tekin formlega í notkun hin nýja bygging Raunvísindastofnunar Há- skóla íslands. Meðal gesta við opnunina voru mennta- málaráðherra, Gylfi Þ. Gíslason, James Penfield, sendiherra Bandaríkjanna á íslandi, prófessorar og aðrir gestir. Prófessor Magnús Magn- ússon, framkvstj. Raunvís- indastofnunarinnar, bauð gesti velkomna og gaf síð- an rektor Háskólans, pró- fessor Ármanni Snævarr, orðið. Skýrði rektor frá upphafi málsins og helztu framkvæmd um. Árið 1961 var skipuð nefnd 6 sérfræðimga til að kanna og undirbúa stofnun sérstakrar Raunvisindadeild- Háskólarektor flytur ræðu. — Standandi frá vinstri, Gylfi Þ. Gíslason, menntamálaráðherra, James K. Penfield, sendiherra, og Magnús Magnússon, prófessor. Raunvísindastofnun Háskóla Islands formlega tekin í notkun ingarnefnd í desember 1962. Formaður hennar var próf. Þorbjörn Sigurgeirsson, en aðrir nefndarmenn Jóhannes Zöega, Guðmundur Guð- mundsson, tryggingarfræðing- ur, próf. Loftur Þorsteinsson og Steingrímur Jónsson. Lagði rektor áherzlu á að nefndin hefði leyst af hendi geysi- mikið starf af mikilli alúð. Ráðnir voru tveir arkitektar, þeir Sigvaldi Tordarson og Skarphéðinn Jóhannsson, en eftir lát Sigvalda annaðist Skarphéðinn öll teiknistörf. f lok ræðunnar þakkaði menntamálaráðherra stuðning hans við málið. Próf. Þorbjörn Sigurgeirs- son, formaður byggingarnefnd ar tók næstur til máls og lýsti framkvæmdum. Húsið er 544 fermetrar að grunnfleti, tvær hæðir og kjallari. í kjallara hefur nú starfað á annað ár rafreiknistofnun háskólans. Á fyrstu hæð eru rannsóknarstofur efna- og eðlisfræðideilda og 9 smærri stofur fyrir sérfræðinga. Á annarri hæð eru skrifstofur, fundarherbergi, sameiginleg kaffistofa og 15 stofur fyrir sérfræðistörf. Byggingarkostnaður nemur nú um 20 milljónum króna, og áætla’ður kostnaður til að ljúka framkvæmdum er 700 þús. kr. Lauk formaður máli sínu með því að afhenda rektor bygginguna fyrir hönd há- skólaráðs. Rektor þakkaði og afhenti nýskipuðum framkvæmda- stjóra, próf. Magnúsi Magnús- syni, bygginguna til yfirráða. Flutti hann stutt ávarp og skýrði m.a. frá forstöðumönn- um einstakra deilda, en þeir eru próf. Leifur Ásgeirsson fyrir Stærðfræðideild, próf. Þorbjörn Sigurgeirsson fyrir Eðlisfræðideild, próf. Stein- grímur Baldursson fyrir Efna- fræðideild og dr. Þorsteinn Sæmundsson fyrir Jarðeðlis- deild. Að lokum flutti mennta- málaráðherra stutt ávarp, en sfðan var gestum boðið að skoða húsakynnin. ar og byggingar yfir starf- semi hennar. Skilaði nefndin áliti síðia þess árs. Á hálfrar aldar afmæli háskólans af- henti sendiherra Bandaríkj- anna á Íslaíldi stórgjöf frá Bandaríkjastjórn til bygging- ar húsnæðis yfir starfsemi Raunvísindastofnunarinnar. — Nam gjöfin 5 milljónum íslenzkra króna, og sagði rektor að sú gjöf hefði riðið baggamuninn um að fram- kvæmdir hófust. Bað rektor sendiherrann að flytja Banda- ríkjastjórn alúðarþakkir. Eftir nokkrar umræ'ður og ráðagerðir, var skipuð bygg- Rektor afhendir próf. Magnúsi Magnússyni, framkvæmda- stjóra Raunvísindastofnunarinnar, bygginguna til yfirráða. STAKSTEIM Höggvið í sama knérunn Ríkisútvarpið flutti enn sið- astliðinn miðvikudag fréttaauka starfsmanns síns sem staddur er í Peking, og var fréttaauki þessi ekki siður en hinn fyrri, sem Mbl. hefur þegar gert að umtalsefni, rík- isútvarpinu til lítils sæmdar- auka. 1 fréttaauka þessum upp- lýsti þessi útvarpsstarfsmaður að engin átök væru meðal for- ustumanna kínverskra kommún- ista, og að fréttir erlendra frétta ritara þar í landi um slíkt fengju ekki staðist. Nú ætti það að vísu að vera fróðlegt að hlýða á fiVsögn Is- lendings, sem staddur er í Kina um atburðina þar í landi, en því miður hefur sá útvarpsstarfs- maður, sem til slíkrar ferðar hefur valizt, greinilega blindazt, væntanlega af góðum móttök- um gestgjafa sinna, og lætur frá sér fara fullyrðingar í út- sendingum sinum til islands, sem ' engan veginn fá staðizt. íslendingar vilja gjarnan heyra sannar fregnir frá Kína, en þeir hljóta að efast um sann- lciksgildi þess, sem þessi út- varpsstarfsmaður lætur sér um munn fara, þegar það brýtur algerlega í bága við það sem viðurkenndar fréttastofnanir, ekki aðeins í vestri, heldur einn ig í austri i Sovétrikjunum, láta l frá sér fara, ekki sízt þegar það er haft í huga að þessar frétta- stofnanir hafa auðvitaö miklu viðtækari sambönd og betri að- stöðu til þess að fylgjast með því sem í Kína gerizt heldur en íslendingur, sem þar kemur til stuttrar dvalar í boði stjórnar- valdanna. Fjárlögin Timinn ræðir enn í gær um fjárlögin og stagast áfram á fullyrðingum, sem Mbl. hefur þegar hrakið. Hækkun fjárlag- anna vex blaðinu sérstaklega í augum, og fer það þó í þeim efn ! um ranglega með staðreyndir, þar sem sú bækkun nemur um | 700 miljónum en ekki 850 milj- * ónum, oins og Timinn heldur stöðugt fram. Útgjaldahækkun fjárlaganna frá fjárlögum yfir- standandi árs er því um 18%. Nú vill Morgunblaðið beina því til málgagns Framsóknarflokks- ins að það taki til athugunar | f járlög í fjáry’/álaráðherratíð Eysteins Jónssonar og athugi hækkun á þeim á milli ára. Ekki er ólíklegt að Framsóknarmál- gagnið komist þá að þeirri nið- . urstöðu, að hækkanir á fjárhig- Flotinn í FYRRADAG og fyrrinótt var gott veður á miðunum allt fram til miðnættis, en þá tók að bræla og skipin voru komin flest í var eða í höfn í gær. Er blaðið hafði samband við Dalatanga í gær- kvöldi voru enn 5—6 vindstig í Norðfjarðardýpinu, en þar var leitarskipið Hafþór þá. Rúss- neskt móðurskip var komið upp undir landið út af Dalatanga. Rússneski flotinn færist nú nær landinu. í gærmorgun höfðu 55 skip tilkynnt um afla alls 4.117 tonn. Skipin, sem aflann fengu voru: Siglfirðingur S1 200 lestir Kópur VE 25 — Ól. Friðbertsson 1S 80 — Jörundur II RE 40 — í höfn Arnfirðineur RE 90 Sig. Jónsson SU 45 — Hoffell STJ 60 — Reykjaborg RE 110 — Vigri GK / 120 — Helga Guðmundsd. BA 90 — Jörundur JIl RE 270 — Gullberg NS 70 — Faxi GK 160 Árni Geir KE 50 Ögri RE 20 — Sólrún IS 40 — Guðbjörg 1S ■ 75 — Höfrungur II AK 120 — Runólfur SH 30 — Sigurbjörg OF 110 — Iinber Ólafsson II GK 130 — Guðbjörg GK 35 — Sóley IS 30 — Sig. Bjarnason EA 30 — Ingvar Guðjónsson, SK 140 Jón Garðar GK 110 Lómur KE 100 Hannes Hafstcin EA 110 Búðaklettur GK 70 Jóns Finnsson GK 65 Heimir SU . 50 Ásþór RE 60 Halikon VE 70 Garðar GK 60 Guðmunrtur Péturs IS 100 Ásbjörn RE 60 Skírnir AK 75 Héðinn ÞH 110 Auðunn GK 30 Örn RE 50 Hólmanes SU 170 Seley SU 120 Pétur Sigurðsson RE 40 Hilmir II IS 40 Helga Bjórg HU 40 Valafell SH 40 Vonin KE 40 Náttfari ÞH 65 Akurey RE 20 Anna SI 20 Hafþór RE 35 — Þorleifur OF 87 — Ársæll Sigurðsson GK 30 — Snæfugl SU 110 — Bjarmi TI EA 30 — í STUTTU \ IÁLI Washington. , BANDARÍKJAMENN hafa orðið að fresta að skjóta á loft fjar- skiptahnetti ,sem á að vera stað- settur yfir Kyrrahafi, til 26. okt. Þetta veldur því, að ekki verður hægt að nota hnöttinn til fjar- skipta frá Monilla-ráðstefnunni um Vietnam, sem fram á að fara nú um miðjan mánuðinn. Nýju Delhi. — Tveir menn biðu bana og margir særðust er lög- reglan skaut á hópgöngumenn í Dehra Dun í N-Indlandi í gær. Voru flestir hópgöngumanna stúdentar og annað skólafólk. um milli ára í fjármálaráðherra tíð Eysteins Jónssonar, séu ekkl minni en þær, sem nú liafa orð- ið hlutfallslega. Hins vegar hafa auðvitað allar tölur breytzt mikið í þjóðfélaginu vegna verð lagsþróunarinnar, og þess vegna eru þær tölur, sem um er að ræða nú auðvitað miklu hærrl en þá. Þar til í gær hafði Tim- inn haldið því fram, að framlög til .verklegra framkvæmda á fjárlögunum hefðu minnkað, en sér nú sitt óvænna, og viður- kennir að um 50 milljón króna hækkun er að ræða á framlög- um til verklegra framkvæmda. Hann telur þá hækkun hins vegar harla litla. I því sam- bandi er ástæða til þess að spyrja Framsóknarmenn hvort þeir geri sér ekki grein fyrir nauðsyn þess að hafa hemil á framkvæmdum rikisins, miðað yið það þensluástand, sem nú ríkir. Vilja þeir t.d. að fram- kvæmdir ríkisins taki vinnuafl frá atvinnuvegunum?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.