Morgunblaðið - 15.10.1966, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 15.10.1966, Blaðsíða 8
8 MORCUNBLAÐIÐ LaugardaEfur 15. okt. 1966 FRÁ ALÞINGI Ný mál á Alþingi AUK þelrra stjórnarfrv., sem lögð hafa verið fram á fyrstu dögum Alþingis og Mbl. hefur hefur þegar getið um, hefur ríkisstjórnin lagt fram frv. um breytingu á lögum um lax- og silungsveiði. Er það samhljóða frv., sem lagt var fram á síðasta Aíþingi en varð ekki útrætt. Þá hefur stjórnin lagt fram frv. um heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að ábyrgjast lán fyrir Flug- félag íslands hf. vegna kaupa félagsins á farþegaþotu. Oerir frv. ráð fyrir, að sé lánveitandi opinber erlend lánsstofnun megi ábyrgð ríkissjóðs vera sjálfskuld- arábyrgð, en um nokkurt skeið hafa þær einungis verið svo- nefndar einfaldar ábyrgðir. Mun Flugfélagið eiga kost á láni hjá Export-Import bankanum í Was- hington til þessara flugvéla- kaupa. Ennfremur hefur verið lagt fram stjórnarfrumvarp um stað- festingu á bráðabirgðalögum um lánsábyrgð vegna kaupa á síldar flutningaskipi svo og frv. um inn heimtu gjalda með viðauka og er þar um að ræða framlengingu á þvi sem nú er. 6 mál lögð fram af þing- mönnum Framsóknarflokksins. Þingmenn Framsóknarflokks- ins hafa lagt fram tvö lagafrv. og fjórar þingsályktunartillögur. Frv. eru um breytinagr á vega- lögum og umferðarlögum, en þingsályktunartillögurnar um endurskoðun laga um jarðakaup ríkisins, um endurkaup Seðla- bankans á framleiðslu- og hrá- efnavíxlum iðnaðarins, um að framfylgt verði lögum um það hlutverk Seðlahankans að tryggja atvinnuvegunum hæfi- legt lánsfé, og um athugun á breyttri héraðsdómaskipan. Frumvarp kommúnista um húsnæðismál. Þrír þingmenn kommúnista hafa flutt frv. um breytingu á lögum um Húsnæðismálastofnun ríkisins, þar sem gert er ráð fyrir að niður verði felld vísitölubind- ing húsnæðislána. Gunnar í Fornahvammi á rjúpnaveiðum. Gott útlit með rjúpnaveiði BLAÐIÐ átti í gærkvöldi tal við Gunnar Guðmundsson, bónda og rjúpnaskyttu í Fornahvammi, og spurðist fyrir um útlitið með rjúpna- veiðarnar. Hann kvað feikna hug vera í mönnum og voru þegar komnir til hans milli 30 og 40 rjúpnaskyttur til gistingar og fleiri voru vænt- anlegir í dag upp eftir. Fyrir tæpri viku var Arnþór Garðarsson, fuglafræðingur, á fertS í Fornahvammi og leit eftir STOFNFUNDUR samtaka sveit- arfélaga i Austfjarðakjördæmi var haldinn í Neskaupstað dag- ana 8. og 9. október s.l. Þar var rætt um sameiningu sveitarfé- laga. Var einkum fjallað um möguleika á breytingum hreppa- marka og sýsiumarka á Austur- landi og framtíðarskipan sveit- arstjórnarumdæma í fjórðungn'- um. Erindi héldu þeir Unnar Stefánssor. viðskiptafræðingur og Bjarni Þórðarson bæjarstjóri, en þeir eiga báðir sæti í Sam- einingarnefnd sveitarfélaga. Fundurinn kaus fimm menn í nefnd til að ræða málið milli funda og varð nefndin sammála um að gera tillögu að svofelldri ályktun. Var hún einróma sam- þykkt: .Stofnfundur Samtaka sveitar- rjúpu. Sagði hann að útlitið væri hvað bezt á landinu í fjöli- unum kringum Fornahvamm af því sem hann hafði skoðað, en fyrir norðan mun mikið af ung- um hafa farizt í áhlaupinu, sem gerði þar í júní í sumar. Gunnar sagði áð þeir hefðu verið í göngum síðastliðinn mið- vikudag, fimmtudag og föstudag og hefði hann þá verið efstur í Snjófjöllunum. Kvaðst hann hafa séð mikið af fugli. Sama hefðu aðrir þeir er efstir gengu haft að segja. Ekkert var þá af rjúpu niðri á móunum, öll uppi í grjóti, enda þá gott veður. í félaga á Austurlandi, haldinn í Naskaupstað 8. og 9. október 1966, lýsir stuðningi við hug- myndina um stækkun sveitarfé- laga og telur tímabæra þá at- hugun, sem nú fer fram í „Sam- einingarneínd sveitarfélaga", stjórnskipaðri. Fundurinn telur þó fráleitt að sameina núver- andi sveitarféiög með valdboði, heldur verði það að gerast með fullu samþykki viðkomandi aðila. Fundurinn telur eðlilegt, vegna gerbreyttra samgangna og þjóðfélagshátta, að taka til end- urskoðunar núgildandi laga- ákvæði um héraðsstjórn, með það fyrir augum, að núverandi kjördæmi verði gerð að héraðs- stjórnarumdæmum með meira sjálfsforraði og fjárráðum en sýslufélögm haía nú.“ fyrrinótt snjóaði í fjöll þar efra og er nú mjög skörp snjórönd um miðjar hlíðar. Rjúpan held- ur sig í röndinni kvölds og morgna, a.m.k. meðan frost er, en færir sig nokkru ofar á dag- inn. Gunnar á von á fjórum mönn- um frá Noregi í næstu viku og munu þeir dveljaist hér í eina viku eingöngu til þess að skjóta rjúpu. Dvölin í Fornahvammi kostar 600—700 kr. yfir sólarhringinn með veiðileyfi. Fer kostnaður eftir því hve mikið menn eru nesta'ðir. Perusala Lions- manna í Kefia- vík LIONSKLÚBBUR Keflavíkur hefir sína árlegu ljósaperusölu í dag. Láonsfélagar hefja peru- söluna eftir hádegi í dag og munu þeir heimsækja hvert hús í Keflavík og nágrenni. Perusala þessi er gerð til ágóða fyrir margvíslega líknar- starfsemi, sem klúbburinn beitir sér fyrir. í fyrra var ágóða perusölunnar varið til kaupa á sjónprófunartækjum fyrir skól- ana í Keflavík og nágrenni og segulbandstæki fyrir blinda, svo og til jólagjafa til vistmanna á elliheimilinu og sjúkrahúsinu. Perusala Lionsfélaganna hefir gengið mjög vel undanfarið og verður svo vonandi enn. VHja stœkkun sveitarfélaga Sunnlendingar Breyttur brottfarartími frá Reykjavík í Rangár- vallasýslu á leiðum Jónasar Guðmundssonar. Frá 15. okt. verður farið klukkutíma fyrr en venju- lega, eða kl. 17,30 (hálf-sex), alla virka daga. Laugardaga kl. 13.00 (eitt) — Annar timi óbreyttur. Jónas Guðmundsson. Járnsmíðavélar Til sölu tveir rennibekkir, rafsuðuvélar, Argo suðu tæki, bandsóg, hefill o. fl. vélar og verkfæri. — Upplýsingar í smiðjunni að Laugarvegi 71, sími 11849 á laugardag og sunnudag milli kl 1—3. Rofmognstæhnifræðingur óskast til starfa. — Upplýsingar hjá deildarstjóra veitukerfisdeildar, Hafnarhúsinu, 4. hæð. Rafmagnsveita Reykjavíkur. Volkswagen eigendur Ncímslceið sem veitir tilsögn í viðgerðum á smá gang truflunum svo og almennrí meðferð bíls- ins verður haldið í Ökukennslunni s.f„ Vesturgötu 3, og hefst það þriðjud. 18. þ.m. Kynnist bílnum vðar og verið fær um að framkvæma smá viðgerðir, svo sem: skipta um kerti, platínur, viftureim. benzíndælu, háspennukefli, þurrkublöð o. s. frv. Upplýsingar í símum 19896, 21772 og 34590 á kvöldin. Kona óskast til heimilisaðstoðar, hluta dags á lítið heimili í Austurborginni. — Allar heimilisvélar og herbergi með sérinngangi. — Skrifið í póstnólf 491 fyrir 25. október nk., merkt: „Hjálparhelia'*. STÚLKA vön vélritun óskast. — Upplýsingar í síma 15977. Skrifstofustúlku vantar nú þegar á sýsluskrifstofuna á Biönduósi. Sýslumaður Húnavatnssýslu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.