Morgunblaðið - 15.10.1966, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 15.10.1966, Blaðsíða 5
Laugardagur 13 oM. 1966 MORCUNBLAÐIÐ 5 Alfredo Campoli segist í ágúst s.l. hafa lokið hljóm- leikaför um heim allan, sem hafi verið 4. heimsreisa sín. Ég spyr hann hvar hann hafi spilað og hann svarar: — í Egyptalandi, Indlandi, Malasíu, Hong Kong, Ástralíu, Nýja Sjálandi og Japan. Ég spyr hann um móttök- urnar á hinum ýmsu stöðum, og hann kveður þær víðast hafa verið mjög góðar. Og ekki kveður hann neinn mun vera á að spila í ólíkum lönd- um, nema hvað loftslagið hái honum sumsstaðar. í Japan, merkilegust. Ég kalla hana Dragonitti Stradiwarius, og er hún 25000 punda virði (3 milljónir ísl. króna). Stradi- warius smíðaði fiðlu þessa um aldamótin 1700 og af um 530 fiðlum sem nú eru til eftir hann er þessi talin vera ein af 10 beztu. Dragonitti, sem var frægur kontrabassaleikari, átti síðan fiðluna lengi og það var þá sem fiðlusnillingurinn heimsfrægi Paganini vildi kaupa hana. En Dragonitti vildi aldrei selja honum fiðl- una. Aftur á móti fékk Pagan- ini hana stundum lánaða og Geymir Stradivarius- inn til elliaranna Rætt við fiðlusnillingirm Alfredo Campoli, sem hlotið hefur verðlaun fyrir fiðluleik, kvikmyndagerð og leikni i að spila bridge HANN situr í djúpum hæg- indastól í herberginu sínu á Hótel Sögu, föðurlegur mið- aldra maður. Hann býður mig velkomna á sinn fund og er því auðsjáanlega vanur að tala við blaðamenn, því hann lætur strax móðan mása. — Landið ykkar er fallegt, segir fiðlusnillingurinn Al- fredo Campoli, sem kominn er til Islands til að leika ein- leik með sinfóníuhljómsveit- inni. — Ég kom s.l. sunnu- dagskvöld og er feginn að hafa komið þetta snemma, bætir hann við. — Það hefur verið gaman að eyða hér frí- stundum, Ég hef komið á svo fallega staði hér, einn þótti mér sérstaklega fallegur, — það er það, sem er stórt vatn. — Þingvellir? — Já, Þingvellir. Og það var svo gott veður, og ég tók margar myndir, og svo hef ég komið í eitt þorp, þar sem heita vatnið gýs upp hér og þar. — Hveragerði? — Já, alveg rétt, Hvera- gerði heitir það. Og fiðlusnillingurinn held- ur áfram að tala, ég þarf einskis að spyrja. — Ef flugvélarnar ykkar væru dálítið þægilegri, mundi ég koma oftar. Það fór hálf illa um mig á leiðinni, mér fannst allt svo þröngt, — en það er nú kannski bara af því ég er dálítið feitur, segir Campoli og brosir. Ég hef heyrt eitthvað um að þið séuð að fá betri og hraðfleygari vélar, ætli ég heimsæki ykkur ekki þá, bætir hann við. segir hann þá, — var sérlega gaman að spila. Japanir hafa eins og ég, mestan áhuga á klassískum verkum t.d. Bach og Beethoven, svo við áttum einkar vel saman, ég og jap- anska þjóðin. í Indlandi spil- aði ég undir berum himni, sem mér fannst sérstaklega unaðslegt. Eins og aðrir erlendir lista menn, sem spilað hafa með Sinfóníuhljómsveit íslands hælir Campoli bæði hljóm- sveitinni og hljómsveitarstjór anum, sem hann segir vera fyrsta flokks. — Ég hef heyrt að þér hafið verið undrabarn, hr. Campoli? — Já, það er vist, en það er langt síðan, segir fiðlu- snillingurinn hæversklega. Alfredo Campoli fæddist í Róm, sonur kónsertmeistara í hljómsveit Santa Cecilia og konu hans, sem var mikilhæf dramatísk sópransöngkona í byrjun þessarar aldar. Hann var undrabarn og hlaut snemma mörg gullvérðlaun og silfurpeninga. 13 ára gamall var hann beðinn um að hætta alveg þátttöku á alþjóðlegum samkeppnisvettvangi, því að honum var alltaf sigurinn vís. — Hvenær fluttust þér til Englands? — Þegar ég var fimm ára var móðir mín ráðin til að syngja í Covent Garden í London í 2 ár, og fluttumst við þá þangað foreldrar minir og ég. Við ílengdumst í London og fengum seinna enskan borg ararétt. Og Campoli heldur áfram: — Ég á margar fiðlur, allar eru þær góðar, en þó er ein því er það að 3 heimsfrægir menn hafa haft hana með höndum. — Spilið þér oft á þessa fiðlu? — Nei, það kemur sjaldan fyrir, ég geymi hana í banka. Ég hef hana ekki heima af því að ég er að spara. Það er dýrt að tryggja. Með því að geyma hana í banka kostar hún mig ekki nema 15 shill- inga á viku. En ef ég geymdi hana heima kostaði hún mig 5 pund á viku. Fiðlan, sem ég er með hérna heitir Rocca og er mjög góð. Hún er að vísu bara 2000 punda virði (420000 ísl. kr.), en mjög hljómfögur. — Að hvaða leyti er Stradi- variusfiðlan sérstaklega góð? — Gæði hennar liggja í verðmætinu. Sú fiðla eru mín ellilaun. Ég fæ engin önnur og Campoli brosir. — Hver erú yðar áhugamál, hr. Campoli? — Þau eru einkum tvö. Ég spila gjarnan bridge og svo hef ég gaman af að taka ljós- myndir og kvikmyndir. Á ís- landi er ég búin að taka 70 ijósmyndir. — Ég hef tvisvar komið til Rússlands ’56 og '58. Um þær reisur mínar gerði ég kvik- mynd í litum og fléttaði inn í hana tónlist eftir rússnesk tónskáld. Fyrir þá mynd fél-’ ég sérstaka viðurkenningu Englandi, fyrir beztu myr gerða 1959, af enskum áhuga- manni um kvikmyndagerð. Og þá er samtalið úti við manninn, sem hefur hlotið fjölda gullverðlauna og silfur peninga fyrir fiðluleik, kvik- myndagerð og leikni í að spila bridge. — s.ó.l. Fiðlusnillingurinn Alfredo Campoli. IVIót norrænvta hagfræðinga FJÁRMAGN til efnahagslegrar ummyndunar í smærri iðnaðar- löndum, var aðalviðfangsefni 19. Helsinki daagna 25.—27. ágúst. Rædd voru hin margvíslegu vandamál ummyndunar atvinnu- lífs, byggðar og samfélagshátta, sem eru samfara iðnvæðingu og öðrum hagvexti. Mótið sóttu um 400 þátttakendur frá sex hag- fræðafélögum, þ.e. einu í hverju Norðurlandanna nema Finnlandi, þar sem félögin eru tvö, finnsku mæiandi- og sænskumælandi manna. Stóðu finnsku félögin fyr ir mótinu af myndarskap og rausn. Göran Stjernschantz, bankastjóri var aðalstjórnandi mótsins. Erik Lundberg prófessor í Stokkhólmi flutti inngangserindi mótsins um samhengið milli efna hagslegrar ummyndunar og hag- vaxtar og helztu jafnvægisvanda 'b'n, sem upp koma í því sam- i. Lagði hann sérstaka á- u á að meta aðstöðu hinna jiiri þjóða í þeirri tækniþró- un, sem ,nú á sér stað. Jörgen H. Gelting, prófessor í Árósum, flutti erindi um þýð- ingu hinna ýmsu fjáröflunarleiða og hlutverk fjármagnsmarkaðar ins. Johan Melander, bankastjóri í Osló fjallaði um þýðingu hins alþjóðlega fjármagnsmarkaðs fyr ir ummyndunarþróun hinna smærri iðnaðarlanda. Dr. Lars Nabseth frá Stokkhólmi ræddi um möguleikana á að hafa áhrif á skiptingu fjármagnsins milli atvinnugreina og landshluta 1 samræmi við stefnu hins opin- ebra í efnahagsmálum. Loka- erindið flutti Nils Meinander prófessor í Helsinki, þar sem hann leitaðist við að draga við- fangsefni ráðstefnunnar saman 1 heildarmynd. Eftir hvert erindi fóru fram almennar umræður. Fyrirlestrar og umræður móts- ins koma bráðlega út í bókar- formi. Mót norrænu hagfræðafélag- anna eiga rúmlega hundrað ára sögu að baki sér, hófust með móti í Gautaborg árið 1963. Undanfar ið hafa þau verið haldin á þriggja ára fresti. Formaður Nationalökonomisk Forening í Danmörku, Kristian Möller, bankastjóri, bauð til næsta móts í Kaupmannahöfn árið 1969. Hag fræðafélag íslands, eða fyrirrenn arar þess, félög hagfræðinga og viðskiptafræðinga, hefur enn ekki staðið fyrir norrænu móti, en hefur átt’fulltrúa á mótunum. Fulltrúar þess að þessu sinni voru Ólafur Björnsson prófessor og Bjarni B. Jónsson, deildar- stjóri, formaður Hagfræðafélags- ins. Frá Hagfræðafélagi tslands. ATHUGIÐ! Þegar miðað er við útbreiðslu er langtum ódýrara að auglýsa í Morgunblaöinu en öðrum blöðum. Abyggilegur maður óskar eftir atvinnu. Margt kemur til greina. Tilboð, merkt: „Strax — 4909“ sendist afgr. Mbl. fyrir 18. þ. m. Bezt ú aug'ýsa í Morgunbiaðinu Mötunevti — Söluskálar — Veitingastofur Til sölu: 1. Sænskt hitaborð, mjög vandað. 2. Amerísk kaffikanna með termostatív, tekur 10 gallon. 3. 24 stólar, mjög fallegir. 4. 9 borð. — 5. Ýmis áhöld til veitingareksturs. Upplýsingar í símum 52209 eða 19683.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.