Morgunblaðið - 15.10.1966, Blaðsíða 4
4
MORCUNBLAÐIÐ
Laugatdaerir 15. okt. 1966
>*
BILALEICAN
FERÐ
SÍMI 34406
SENDU M
*
IMAGIMÚSAR
SKIPHOITI21 SÍMAR 21190
éftirlokun simi 40381
SÍMI1-44-44
\muim
Hverfisgötu 103.
Haggjalð 300
og 3 kr. ekinn km.
Benzín innifalið.
Sími eftir lokun 31160.
LITLA
bílaleigon
Ingólfsstræti 11.
Sólarhringsgjald kr. 300,00
Kr. 2,50 ekinn kílómeter.
Benzin innifalið í Ieigugjaldi
Sími 14970
Bífreiðaleigan legferð
Sími 23900.
Sólarhringsgjald kr. 300,00.
Kr. 3,00 pr. km.
BÍLALEIGAN
VAKUR
Sundlaugaveg 12. Sími 35135.
CÍLALEP S/A
CONSUL CORTINA
Sími 10586.
BÍLALEIGA H A R Ð A R
Sími 1426 — Keflavík.
LækkaS verð.
Malflutningsskrifstoia
JON N. SIGLRÖSSON
Simi 14934 ~ Laugavefij 10
B O S C H
Háspennukefli
Brœðurnir Ormsson
Lagmula 9- — Sinu 36820.
ÍT Stanpasteinn
Ökumaður skrifar:
„Ég átti leið um Hvalfjörð
um helgina og sá mér til skelf-
ingar, að okkar ágaeti Staupa-
steinn er áð falli kominn. Ég
veit í rauninni ekki hver ætti
að taka að sér að bjarga þess-
um gagnmerka steini, en vafa-
laust mundi Vegagerðin hafa
aðstöðu til þess að steypa und-
ir hann og forða frá falli. Viltu
ekki koma þessu á framfæri,
Velvakandi góður. Hvalfjörður
yrði fátækari, ef Staupasteinn
hyrfi okku/.
Ökumaður".
■Jr Ódæðisverk
Faðir skrifar:
„Kæri Velvakandi",
Blöðin hafa sagt frá óhugn-
anlegum atburði. Fullorðinn
maður svívirti fimm ára stúlku.
Þetta er eitt hið ógeðslegasta
athæfi, sem greint er frá á
prenti. Einstaklingur, sem skrif
ar þér þréf, hefur engan rétt
til að krefjast eins eða neins
í nafni almennings. En ég er
þess samt fullviss, að ég mæli
fyrir munn margra, mjög
margra — og þó einkum for-
eldra, er ég krefst þess, að
að þær ráðstafanir verði gerð-
ar, sem skjóta mönnum bein-
línis skelk í bringu: Að allir
landsmenn fái að vita nafn
þessa manns, að blöðin birti
af honum mynd öðrum til við-
vörunar. Spurningin er hvort
fórna eigi einum til þess að
bjarga öðrum. Mín skoðun er
sú, áð fyllilega sé réttlætanlegt
aað „fórna“ þessum ódæðis-
manni til þess að jarga öðrum
stúlkubörnum, sýna mönnum
fram á, hvílíkar afleiðingar því
líkt ódæði hefur í för með sér
fyrir þann seka. Við foreldrar
látum stjórnarvöldin ekki í
friði fyrr en þau taka þetta
mál mjög alvarlegum tökum.
Sem betur fer gerist þetta og
annað eins ekki oft hér hjá
okkur, samt of oft. Og við un-
um því ekki, að ódæðismenn-
irnir verði sveipaðir einhveiri
hulu.
Faðir“.
Nokkur orð um
hornin
Borgfirðingur skrifar:
Horn af vatni, horn af mjólk,
horn af brennivíni,
hneyksla vart þáð heiðursfólk
sem hefir rófu og trýnL
Þeim er nálgast meira mynd
manns í kristnum dómi,
finnst þau líkjast flónsku og
synd
er fíflum einum sómL
Jeg sem ekki hefi horn,
heldur ekki rófu
(og hata „illra hóta norn“)
held jeg kjósi prófu.
Þess þarf naumast að getaa,
að hjer er átt við sýnishornin.
Ekkert er athugavert við sýnis
horn skraddarans (enda mikið
skraddarans pund), sem hann
klippir af dúkunum sínum, svo
að eftir þeim geti prófastur-
inr. (eða hreppstjórinn) valið
sjer efni í föt; en þegar lækn-
inum er sent sýnishorn af þvagi
sjúklingsins, þá er minni hugs-
un alveg nóg boðið, eða öllu
heldur, henni er ofboðið, enda
er mjer tamast að hugsa á ís-
lenzku, en „á íslenzku er ekki
unnt að segja vitleysu", er haft
eftir Courmont, og var rjett
mælt. Sumir menn komast svo
nálægt sáluhjálparveginum að
í slíkum tilfellum (þessu breyt
ir þú í tilvik ef þú vilt gera
þig merkilegan eins og háskola
flón) tala þeir um prufu. En
segðu mjer, hversvegna má
þetta ekki heita prófa? Þreif-
aðu nú aftur fyrir þig og
athugaðu hvort þú ert kannski
(jeg hefi sjaldan heyrt að
margt skemmtilegt gæti skeð)
með rófu, eins og kötturinn sem
situr þarna úti á veggnum.
Jeg hefi annars verið því van
astur (segja og) rita sýnL enda
er nú málverk til sýnis — ja
hvar? í Kjarvalshúsinu? Lengi
hafði ég gert þetta án fyrir-
myndar, en veitti því svo
athygli, að þannig ritaði Gísli
Magnússon, sem kunni betur
móðurmál sitt en jeg og þú.
En nú mun þjer þykja nóg kom
ið.
Borgfirðingur".
★ Boeing
í innanhússblaði Flugfélags-
ins, „Faxafréttum“, segir ný-
lega, að nú hafi samtals 404
flugvélar af Fokker Friend-
ship gerð verifð seldar. Þar af
hafa 178 verið framleiddar í
Bandaríkjunum, hinar í Hol-
landi. Ennfremur segir í blað-
inu:
Meira en helmingur farþega
þota í flugi á áætlunarleiðum
(þær upplýsinar ná ekki til
Sovétríkjanna) eru framleiddar
í Boeing verksmiðjunum. Sam
kvæmt sölu- og framleiðslu-
lista Boeing 16. september s. 1.
hafa þá verið pantaðar og seld
ar þotur sem hér segir:
707/720 653 þotur. Þar af 517
afgreiddar til flugfélaga. Boe-
ing 727; seldar 536. Afgreiddar
306. Að auki hafa verið pant-
aðar 110 þotur af gerðinni Boe
ing 737, en fyrsta þota af
þeirri gerð mun fljúga innan
skamms. Ennfremur hafa ver-
ið pantaðar 53 risaþotur af
gerðinni Boeing 747. Alls seld-
ust 1352 þotur. Auk þeirra þota
sem seldar hafa verið flugfélög
um, eru allmargar, sem leig’ðar
hafa verið öðrum aðilum.. Full
smíðaðar þotur af gerðunum
707/720 og Boeing 727 voru 16.
september samtals 845 og sam-
anlagður flugtími í arðbæru
flugi var hátt á áttundu millj.
ón flugstunda.
■Jr Danslögin
Maður nokkur hringdi vegna
bréfs, sem birtist hér í dálk-
unum — um danslög útvarps-
ins og Heiðar Ástvaldsson. „Ég
er þeirrar skoðunar að val dans
laga á sunnudagskvöldum far-
ist Heiðari vel úr hendi og mér
er líka kunnugt um að þess
eru dæmi, að fólk dansi eftir
þeim í heimahúsum“, sagði
hann. Þá bað maðurinn Vel-
vakanda að koma því á fram-
færi við útvarp og sjónvarp,
að tími væri kominn til að þess
ar tvær stofnanir (rekstrarlega
er þetta víst ein og sama stófn
unin) kæmu sér upp eigin dans
hljómsveit — á sama hátt og
þegar hefur verið stofnuð og
starfrækt alllengi simfoniu-
hljómsveit. Benti hann á, að
erlendis tíðkaðist það mjög 1
sjónvarps- og útvarpsstöðvar
hefðu eigin danshljómsveitir.
Er þessu hér með komið á fram
færi við rétta aðila.
Bréfaskipti
Velvakanda hefur borizt bréf
frá pilti í Englandi. Hann er
að læra íslenzku og kann þeg-
ar furðu mikíð. Vill hann kom
ast í bréfasamhand við pilt eða
stúlku á aldrinum 12-15 ára og
skrifa á íslenzku. Áhugamál
hans eru einkum tungumála-
nám og garðyrkja, en hann get
ur hins vegar skrifað um allt
milli himins og jarðar. Nafn og
heimilisfang:
Ian W. White
College House
St. Heker
Jersey Ct
United Kingdom
Áhugasamur frímerkjasafn-
ari í Noregi víll komast í bréfa
samband og eiga frímerkja-
skipti við íslendinga:
Olle-Johnny Isnes
Boks 1,
Sarpsborg, Norge
ÍT Mjólkurhyrnur
Ellefu ára yngismær skrifar
okkur:
„Kæri Velvakandi,
Hvernig stendur á því, að i
dag 13. okt. keypti ég mjólkur-
hyrnu sem stóð á 14., en í gær
keypti ég líka mjólk en'þá stóð
á hyrnunni 13. Nú spyr ég: Er
þetta mjólk síðan 13. sept?
Kvartandi“.
Lánveitingar
Lífeyrissjóður verzlunarmanna
í næsta mánuði mun stjórn Lífeyrissjóðs verzlun-
armanna veita íbúðalán til sjóðsfélaga. Eyðublöð
fyrir umsóknir liggja frammi í skrifstofu sjóðsins og
skal umsóknum skila til skrifstofunnar, Bankastræti
5 eða í pósthólf nr. 93 fyrir 31. okt nk.
Með umsóknunum skal fylgja:
a) Veðbókarvottorð þar sem tilgreindur er eignar-
hluti (hundraðshluti) í fasteign.
b) Bnmabótavottorð eða teikning, ef h'is er í
smíðum.
Eldri umsóknir þarf að endurnýja.
Nauðsynlegt er að umsóknir séu skílmerkilega út-
fylltar og umbeðin gögn fylgi, eila má búast við, að
umsóknin fái ekki afgreiðslu.
Stjórn Lífeyrissjóðs vcrzlunarmanan.
SÖNGMENN
Okkur vantar nokkra góða söngmenn.
Upplýsingar í síma 2-44-50 næstu \irka daga.
Karlakórinn Fóstbræður