Morgunblaðið - 15.10.1966, Síða 7
Laugardajjur 15. okt. 19&6
MORGUNBLAÐIÐ
7
Krummi krúnkar úti
Hrafninn
Tóki kaliar
á nafna
smn
OG hér koma svo nýjustu frétt-
ir af honum Tóka, hrafninum,
scm heima á uppi í Kjós. Kann
dafnar þar vel étur fisk og
hausa, sem þeir í Fiskhöllinni
hafa látið hann hafa annað slag-
ið. Eftir að fór að skyggja, hef-
nr það komið í Ijós að Tóki er
mjög reglusamur fugl, því að
kl. 6 á kvöldin fer liann inn í
kofann sinn og sezt þar á prik
og sefur svefni réttlátra til morg
uns.
Hann er svolitið stríðinn, og
á það til að stela ýmsum hlut-
um, eins og t.d. um daginn, þá
tók hann vasahnif og hulstur
framan af myndavél, flaug með
það hátt til hlíða, og lét elta sig
góða stund. Færði sig um set,
10 metra í einu, en að lokum
gafst hann upp og afhenti góssið.
Um daginn -var slátrað belju
á ^enum, og þá komst nú Tóki
í feitt. Mörinn er að verða hans
uppáhaldsfæða, og hér til hliðar
má sjá hann með einn bitann.
I>egar honum er gefið matar-
stykki, er það venja hans að
fljúga með það á brott, fela það
í holu eða bak við steina, og
breiða blóm og gras yfir, jafn-
vel sölnuð grös eru betri en
ekki, og hann gerir það mjög
Hrafninn Tóki hjálpar fóstra sinum við smiðar. (Myndirnar
eru teknar á sjálfvirka Cannon-myndavél).
vandlega. Stundum hjálpaði
hann í haust við, að taka upp
kartöflur og gulrætur, og hefur
hann augsýnlega gaman að þeirri
iðju.
Svo virðist hann hafa pen-
ingavit. f>egar honum eru gefnir
smáaurar, 10 eyringar og 25 eyr-
ingar, tekur hann þá í kokið og
flýgur rakleitt að kofaræfli úti
í túninu, og stingur þeim þar
undir einn bitann. Þar er hans
Sparisjóður.
Svo varð það um daginn, að
hann ætlaði að hjálpa fóstra sín-
um við smíðar, eins og sjá má
á myndinni hér við. En ekki
tókst betur til en það, að hann
felldi sögina niður af kassanum,
og varð dauðskelkaður við há-
vaðann. Og ekki fleiri sögur af
Tóka að sinni. Fr. S.
Þarna hefur Tóki komizt í feitt. Mörbiti úr belju er hnossgæti.
FRÉTTIR
Safnaðar samkoma kl. 2.
Æskulýðsfélag Bústaðasóknar.
cldri deild. Aðalfundur félagsins
verður í Réttarholsskólanum
mánudagskvöld kL 8:30. Stjórn-
in.
Kvenfélag Laugarnessóknar
minnir á saumafundinn mánu-
daginn 17. okt. kl. 8:30. Stjórnin.
K.F.U.M. og K. Hafnarfirði
Hlutavelta í dag, laugardag,
kl. 5. Ekkert happdrætti. Enginn
núll. Sunnudagur. Sunnudaga-
skóli kl. 10:30. öll börn vel-
komin. Kl. 8:30 Almenn sam-
koma Benedikt Arkelsson cand.
theol. talar.
Kvenfélag Langholtssafnaðar
beldur basar 12. nóvember. Kon-
ur, nú er kominn tími til að fara
að hannyrða eða safna til að
sýna einu sinni enn, hvað við
getum. Konur í basarnefnd, haf-
ið vinsamlega samband við: Vil-
helmína Biering, sími 34064, Odd-
rún Elíasdóttir, simi 34041 og
Sólveig Magnúsdóttir síma 34599.
Bræðrafélag Nessóknar
Fundur verður á vegum fé-
lagsins, í Félagsheimili Neskirkju
þriðjudaginn 18. okt. n.k., og
hefst kL 20:30. Séra Frank M.
Halldórsson segir ferðasögu, og
*ýnir myndir úr ferðinni til
Biblíulandanna síðastL vor.
Allir velkomnir. — Stjórnin.
Kristilegar samkomur á Bæna
staðnum Fálkagötu 10. sunnudag
kl. 16. Sunnudagaskóli kl. 11.
Almenn samkoma kl. 4. Bæna-
stund alla virka daga kl. 7. e.m.
Allir velkomnir.
Á sunnudag, sunnudagaskóli
kl. 10:30, almenn samkoma kl.
8:30. Verið velkomin.
Sunnudagaskóli K.F.U.M. og
K. í Reykjavík og Hafnarfirði
hefjast kl. 10:30 í húsum félag-
anna. öll börn eru hjartanlega
velkomin.
Fíladelfía Reykjavík
Sunnudagaskóli hvern sunnu-
dag kl. 10:30 á þessum stöðum:
Hátúni 2 og Herjólfsgötu 8.
Hafnarfirði. Öll börn hjartanlega
velkomin.
Iljálpræðisherinn
I dag og í morgun barnasam-
komur kl. 18:00. Sunnudaga-
skólinn kl. 14:00. Samkomur
sunnudag kl. 11:00 og kl. 20:30.
Majór Oskar stjórnar og talar
kl. 20:30. Mánudag kl. 16:00.
Heimilasambandið. Þú ert ávallt
velkominn á samkomur Hjálp-
ræðishersins.
Séra Arngrímur Jónsson er
fluttur að Álftamýri 41, sími
30570.
Húsmæðraorlof Kópavogs.
Myndakvöldið verður í Félags-
heimilinu þriðjudaginn 18. okt.
kl. 8:30. Orlofsnefndin.
Kirkjunefnd kvenna Dómkirkj
unnar. Fundur í kirkjunni þriðju-
daginn 18. okt. kl. 3. Takið með
basarmuni. Stjórnin.
Bridgefélag Reykjavíkur byrj-
ar vetrarstarfsemi sína þriðjudag-
inn 19. okt. kl. 8. í Domus Medica
Egilsgötu 3. 1. hæð, með tvímenn-
ingskeppni. öllum heimil þátt-
taka. — Stjórnin.
Fíladelfia Reykjavík. Sunnu-
dag 16. þm. hefur Fíladelfíu-
söfnuðurinn útvarpsguðsþjón-
ustu kl. 4:30. Vakningarsamkoma
að Hátúni 2. kl. 8. Ræðumenn:
Jóhann Pálsson og Haraldur Guð
jónsson. Fjölbreyttur söngur:
Einsöngur: Hafliði Guðjónsson.
K.F.U.M. og K. í Hafnarfirði
Hlutaveltan verður laugardag-
inn kl. 5. í húsi félaganna.
Hlutavelta og kaffisala Hún-
vetningafélagsins verður sunnu-
daginn 16. október að Laufásveg
25. Þær sem vilja aðstoða gjöri
svo vel að hringja í eftirtaldar
konur: Guðrúnu í síma 36137
Ólöfu 22995 og Þórhildi 30112.
X- Gengið x-
Reykjavík 13. október 1966.
Kaup Sala
1 Sterlingspund 119,88 120,18
1 Bandar. dollar 42,95 43,06
1 Kanndadollar 30,80 39,91
100 Dajkskar krónur 622,30 623,90
100 Norskar krónur 600,64 602,18
100 Sæ-nisikair krónur 830,46 832,60
100 Fmsk mörk 1.335,30 1.338.72
100 Fr. frankar 868,95 871,19
100 Belg. frankar 85,93 86,15
100 Svissn. frankar 990,50 993,05
100 Gyllini 1.186,44 1.186,50
100 Tékkn. kr. 506,40 598,00
100 v-pyzk mörk 1.076,44 1.079,20
100 Austurr. sch. 166.18 166,60
100 Pesetar 71,60 71,80
Barnagæzla
Ég tek ungbörn í gæzlu frá
kl. 8—1. Sími 60006, Fagri-
bær 9,
Til sölu
hálfuppgerður Ford ’55
station, til sýnis á bifreiða-
verkstæðinu Bjarki, Trönu-
hrauni 1. Sími 50876, selst
ódýrt.
Stúlka vön vélritun
og bókhaldi óskar eftir
aukavinnu. Tilboð merkt
„Aukavinna 4361“ sendist
afgr. MbL
Efnalaugin Lindin
Hreinsum samdægurs.
EFNALAUGIN LLNDIN
Skúlagötu 5.
Góð bílastæði.
Keflavík — Atvinna
Aðstoðarstúlka óskast á
ljósmyndastofu, helzt vön.
Ljósmyndastofa
Suðurnesja
Túng. 22, Keflav. Sími 1890.
Tapazt hefur kvenúr
Finnandi vinsamlegast skili
þvi á lögreglustöðina. —
Fundarlaun.
Skoda 440
árgerð 1957, til sölu, ódýrt.
Upplýsingar í síma 34282.
Skrifstofustúka óskar
eftir góðri vinnu % daginn.
Hefur unnið 1 ár á skrifst.
Er með gott gagnfræðapróf
og vön vélritun. Tilb. með
kaupkjörum sendist blað-
inu, merkt „4904“.
TÆKIFÆRISKAUP
Vetrarkápur með stórum
skinnkraga, margir litir,
verð kr. 2200,-. Svampfóðr-
aðar kápur á kr. 1800,- og
2000,-. Ullarpils, ensk, kr.
300,-. Laufið Laugavegi 2.
Húsgagnasmíði
Ungur maður óskar eftir að
komast sem nemi 1 hús-
gagnasmíðL Tilboð sendist
afgr. Mbl. merkt „Hús-
gagnasmíði — 4757“.
Blý
Kaupum blý hæsta verði.
Málmsteypa Ámunda Sig-
urðssonar, Skipholti 23. —
Sími 16812.
Keflavík — Suðurnes
Nýkomið norsk glervara,
búsáhöld, stakir bollar.
Stapafell, sími 1730.
Keflavík — Suðurnes
Pinotex fúavarnarefni, bíl-
þvottakústar, útdregnar
kappastangir, krómrör í
klæðaskápa og fleira.
Stapafell, sími 1730.
Óskum eftir
2—3 herbergja íbúð nálægt
Mjólkurstöðinni. G æ t u m
veitt einhverja heimilis-
hjálp. Erum 2 fullorðnar
stúlkur. Uppl. í síma 37842.
Vélahreingerning
handhreingerning
Þörf, sími 20836.
Hafnarfjörður
Stúlka óskar eftir atvinnu
hálfan daginn, vön af-
greiðslu og skrifstofustörf-
um. Upplýsingar í síma
37618.
Ungur, reglusamur piltur
með góða enskukunnáttu
óskar eftir afgreiðslu- eða
skrifstofuvinnu úti á landL
Tilboð sendist Mbl. merkt
„8001“.
Kona
vön enskum og þýzkum
bréfaskiptum óskar eftir
atvinnu frá 1—5 e. h. Margt
kemur til greina. Tilboð
merkt,, Reykjavík — Kópa-
vogur — 4902“.
Keflavík — Suðurnes
Sjálfvirku Zanussi þvotta-
vélarnar komnar aftur. —
Zanussi ísskápar, allar
stærðir. Hagkv. greiðsluskil
málar. Hörður Jóhannsson.
Sími 1978, Keflavík.
Húsmæðraskóli í Khöfn,
stofnsettur 1906, heldur 6
mán. námskeið fyrir ungar
stúlkur þ. 1/11 1966. Heima
vistarskóli. — Skólaskýrsla
sendist til Husassistentern-
es Fagskole, Fensmarks-
gade 65, Kþbenhavn.
Vil kaupa
Heildsölu- eða smásöluverzl.
Þeir, sem vildu sinna þessu, sendi tilboð
til afgr. Mbl. fyrir miðvikudag 19. okt.,
merkt: „4363“.
IMámskeið
Myndlista- og handíðaskólans
Nokkrir nemendur geta enn komist að í:
1. Undirbúningsnámskeið í teiknun fyrir nemendur
menntaskólans og stúdenta tii undirbúnings tækni
náms (arkitektur, verkfræði).
Kennt þnðjudaga og föstudaga kJ. 8—10,15 síðd.
2. Fjarvíddarteiknun. Kennt mánudaga og fimmtu-
daga kl. 8—10,15 síðdegis.
Umsóknir berist skrifstofu skólans, Skipholti 1, sem
fyrst — (sími 19821).
SKÓLASTJÓRI.