Morgunblaðið - 15.10.1966, Qupperneq 12
12
MORCU N BLAÐIÐ
Laugardagur 15. okt. 1966
Fyrirlestur fyrrv. bandarisks sendiherra / Tjarnarbúð i dag:
Skuldbindingar Banda-
ríkjamanna í SA-Asíu
STÚDENTAFÉLAG Reykja-
víkur gengst fyrir almennum
fundi í Tjarnarbúð í dag. Þar
mun Júlíus C. Holmes fyrrv.
bandarískur sendiherra flytja
fyrirlestur um efni, sem verið
hefur mjög ofarlega á baugi að
undanförnu, þe. „Skuldbinding-
ar Bandaríkjanna í Suðaustur
Asíu“, og mun því fjalla ekki
hvað sízt um Vietnam. Fundur-
inn verður haldinn eins og að
ofan segir í Tjarnarbúð fniðri)
í dag og hefst kl. 2 eftir hádegi.
Holmes sendiherra er fædd-
ur í Kansas 1899. Hann hefur
að baki sér langan og umfangs-
mikinn feril í utanríkisþjónustu
lands síns eða allt frá árinu
1925. Hann hefur gegnt þar
ihörgum embættum bæði í JEv-
rópu og Asíu, en þar var hann
m.a. sendiherra íJandaríkjanna
í íran á árunum 1961-1965.
Holmes hefur fyrir skömmu
■lokið öðru ferðalagi sínu á þessu
ári til Vietnams á vegum stjórn
ar sinnar, en hann var þar á
ferð á tímabilinu apríl-maí og
nú síðast í júlí-ágúst. Hann er
því mjög vel kunnugur af eigin
raun ástandinu þar og því sem
þar er að gerast.
Bla&burðarfólk
vantar í eftirtalin hverfi:
Tjarnargötu Sörlaskiól
Lynghagi Laugaveg — neðri
Miðbær Hverfísg. frá 4—62
F ossvogsblettur
Talið við afgreiðsluna suni 22480.
----- -------------------------------:—s.
Ekki of sterk...Ekki of létt...
YICEROY gefur bragöið rétt
tllLLl
■mi/ai
Reykið allar helzlu filter tegundirnar og pe'rmunið
finna, affsumareru of sterkar og bragðast eins og
Bngino filter se—aörar eru of Iéttar, pví allt bra<'
Sfast ur reyknum og eyTJifeggur ahægju yðar
Viceroy. með sínum djúpofna filter, gefur yðL
fe'tta bragðið.
Bragðið sem miljónir manna lofa-kemur fra'
VICEROYsIze
©
ÍWÖO WWWN ót WILUAMSON TUUACCU CUiU’OUAXlUN LOUISV1L.LK, KfiMUCKY, ULLA.
Julius C. Holmes
í viðtali við blaðamenn skýrði
Holmes frá stefnu stjórnar sinn-
ar í Vietnam og hvernig unn-
ið væri að framkvæmd henn-
ar. Þar skýrði hann m.a. frá
þeim veigamikla þætti barátt-
unnar geg kommúnistum, þar
sem væri uppbyggingarstarfið í
landinu. Þessi starfsemi, sem
nefnist önnur víglínan (The
Second Front), væri fyrst og
fremst fólgin í því að reisa það
úr rústum, sem eyðilagzt hefði
í styrjöldinni, svo sem skóla,
sjúkrahús o.s.frv. Einn mikil-
vægasti þáttur þessarar starf-
semi væri ekki hvað sízt að
skapa flóttafólki frá yfirráða-
svæðum kommúnista lífsskilyrði
þar aftur, þegar þessi svæði
hefðu unnizt úr greipum komm-
únista að nýju. Á þessu sviði
hefði náðst afar mikill árang-
ur og nefna mætti, að á sl. ári
hefðu m.a. verið byggðar 10.000
skólastofur í landinu.
Um þennan þátt baráttunnar
væri furðu hljótt í blöðum og
útvarpi, en hann væri þó for-
senda þess að sigur ynnist. Það
væri hins vegar hernaðaraðgerð
irnar, sem mest væri rætt og
ritað um. Fyrir fyrrgreindum
þætti baráttunnar í Vietnam sem
og öðru, er Vietnam og ástandið
í þessum heimshluta varðar
mun Holmes sendiherra gera
grein fyrir í fyrirlestri sínum í
Tjarnarbúð í dag. Að fyrirlestr-
inum loknum mun hann svara
fyrirspurnum.
För Podgornys til
Austurríkis Irestuð
Vínarborg, Moskvu, 10. okt.
NTB.
• Frá því var skýrt í dag, að
Nikolai Podgorny, forseti Sovét-
ríkjanna hefði orðið að fresta
fyrirhugaðri ferð sinni til Aust-
urríkis, þar sem hann hefði
skyndilega ofkælzt og lagzt sjúk-
ur. Sagt var jafnframt, að hann
mundi fara jafnskjótt og hann
kæmist á fætur aftur.
Ferðar þessarar hefur verið
beðið með nokkurri eftirvænt-
ingu. Átti Podgorny að koma til
Vínarborgar í dag, mánudag —
fyrstur sovézkra leiðtoga eftir
stríð — og með honum 21 árs
dóttir hans Natalia, og 40 manna
sendinefnd. Fyrirhugað var að
hann dveldist heila viku í Aust-
urríki og ræddi margvísleg og
mi-kilvæg málefni. Meðal ann-
ars var búizt við, að rædd yrði
ósk Austurríkismanna um að
gerast aðilar að Efnahagsbanda-
laginu — en stjórn Sovétríkj-
anna hefur til þessa verið alger-
lega andvíg því og talið brot á
sjálfstæðissáttmálanum, þar sem
bannað er hvers konar sam-
band Þýzkalands og Austur-
ríkis.
Líklegt er og talið, að stjórn
Austurríkis ræði við Podgorny
um austurríska borgara, sem
enn eru í Sovétríkjunum —
flestir í fangelsum. Meira en
90.000 austurrískir borgarar
hafa horfið í Sovétríkjunum —
en kvennanefnd nokkur hefur
komizt yfir sönnunargögn fyrir
því, að a.m.k. 150 austurrískir
menn séu enn á lífi í sovézkum
fangabúðum. Dæmi er sagt af
bónda einum austurrískum, sem
kom heim fyrir nokkru, eftir 21
árs fjarveru. Fjölskyldu hans
hafði ekki tekizt að fá neinar
upplýsingar um hann í Sovét-
ríkjunum og löngu talið hann af.
Kona hans giftist aftur fyrir
nokkrum árum.
Aðalfundur
Grímu
AÐALFUNDUR Leikfélagsins
Grímu var haldinn sunnudaginn
25. september s.l.
Tvö leikrit voru sviðsett hjá
félaginu á síðastliðnu leikári,
„Fando og Lis“ eftir Arrabal og
„Amalia“ eftir Odd Björnsson.
í vetur mun félagið reka æfinga
miðstöð fyrir leikara og fólk út-
skrifað úr leiklistarskólum þar
sem kennsla fer fram í ballett
(plastik), látbragðsleik og skylm
ingum. Mun þessi starfsemi hefj
ast nú með október.
Rætt var um húsnæðisvanda-
mál Grímu, en Tjarnarbær, sem
verið hefur samastaður félagsins
frá upphafi mun senn verða að
víkja fyrir nýjum byggingum.
Ný stjórn var kosin og skipa
hana nú: Brynja Benediktsdóttir
sem er formaður; Þórhildur Þor-
leifsdóttir; Jón Júlíusson; Jó-
hanna Norðfjörð; Oddur Björns-
son.
(Frá stjórn Grímu).
Sdelmann
KOPARFITTINGS
KOPARRÖR
HVERGIMEIRA
ORVAL
ooflSKa
Laugavegi 178, sími 38000.