Morgunblaðið - 15.10.1966, Síða 27
Laugardagur 15. oM. 1966
MORCUNBLAÐIÐ
27
Stjörnubíó sýnir þessa dagana bráðsmellna gamanmynd sem
heitir „Kátir félagar“. Sagt er að myndin sé tilvalin til þess
að koma öllum í gott skap. Myndin er norsk og aðalhlutverk
í höndum Carsten Winger, Gisle Straume og Arne Lie.
Hægt er aö tryggja
síldarnætur í sjó
VEGNA hins sífclldu veiðar-
færatjón, sem um hefir verið
getið að undanförnu, svo sem að
skip hafa misst síldarnætur,
sem horfið hafa með öllu, snéri
blaðið sér til Helga Oddssonar
forstjóra trygingarfyrirtækisins
Vörður- Trygging hf., en það er
eina fyrirtækið hér á landi sem
tekur að sér trygingar á veið-
arfærum í sjó.
Fyrirtækið hefir nú annazt
tryggingar þessar í tvö ár.
Tryggingar sem þessar eru mjög
dýrar, enda er áhættan við að
Framsýniitg
á morgnn
N.K. sunnudag þann 16. þ.m.
verður frumsýning í Lindarbæ
á leikritinu „Næst skal ég syngja
fyrir þig“, eftir enska höfund-
inn James Saunders. Þetta er
fyrsta frumsýningin hjá Þjóð-
leikhúsinu í Lindarbæ á þessu
ieikári, en Þjóðleikhúsið mun
sýna þar að minnsta kosti þrjú
leikrit í vetur.
„Næst skal ég syngja fyrir
þig“, er nútíma leikur og hefur
víða hlotið mjög góða dóma.
Höfundur leiksins James Saund
ers er efnafræðingur að mennt
Myndin er af leikstjóranum
Kevin Palmer
og hefur starfað sem kennari.
Þekktustu leikrit hans munu
vera þetta leikrit, sem nú verð-
ur sýnt í Lindarbæ, og leikrit-
ið „A scent of flowers."
Leikstjóri er Kevin Palmer,
en Una Collins, gerir leilrmynd-
ir. Leikendur eru Ævar Kvarán
Gunnar Eyjólfsson, Sverrir Guð
mundsson, Anna Herskind og
Sigurður Skúlason.
Rétt er að benda á það, að það
eru engir fastir frumsýningar-
gestir í Lindarbæ og er öllum
heimilt að panta þau sæti, sem
þeir kjósa helzt að vera x á
frumsýningu í Lindarbæ,
fryggja veiðarfæri, sem eru í
notkun, mjög mikil. Fram til
þessa hefir tjón orðið svo mikið
á tryggðum veiðarfærum að
tryggingin hefur ekki verið hag
stæð fyrir endurtryggjendur Staf
ar þetta einnig af því hve tiltölu
lega fáir tryggja enn veiðarfæri
sín, en ef svo færi, að trygging-
ar á veiðarfærum í sjó yrðu al-
gengar væri hægt að gera trygg
ingarnar mun ódýrari.
Margir telja óþarfa að tryggia
veiðarfærin yfir sumarið, þegar
gert er ráð fyrir góðum veðr-
um, enda hækka tryggingarið-
gjöld um 50% eftir 1. oktober á
haustin. Af öllum síldveiðiflot-
anum hafa um 70 bátar síldar-
næturnar tryggðar. Sem kunn-
ugt er eru þau veiðarfæri miög
dýr og kostar nótin um og yfir
eina milljón króna. Sé nótin
fryggð fyrir öllu þ.e. bruna og
hvers konar skaða um borð svo
og algeru tapi t.d. ef skipið ferst
og auk þess er nótin tryggð í
sjó, þá er kostnaðurinn við trygg
inguna sem svarar 80 þús. krón
um frá því síldarvertíð hefst í
júníbyrjun og fram til áramóta.
Þegar í upphafi fékk trygg-
ingafélagið Vörður-Trygging hf.
á sig þrjú stórtjón og blés ekki
byrlega framan af. þessar trygg
ingar virðast einkar nauðsynleg-
ar fiskiskipaflota okkar.
Skipin í höín
vegnn brælu
Eskifirði, 14. október.
HEr liggja nú allmörg síldveiði-
skip. Nokkur þeirra komu hing-
að með afla og bíða löndunar,
en önnur komu hingað inn vegna
brælu á miðunum, en skipin hafa
verið að veiðum í Reyðarfjarða
dýpi.
Þróarrými hjá báðum síldar-
bræðslunum er þrotið og allar
þrær fullar. Er landað í þær
jafnóðum og úr þeim er tekið.
— Gunnar.
— Leítab á telpu
Framhald af bls. 28
þarna leið um, og fann hún þá
litlu telpuna buxnalausa. Ekki
gat litla telpan gefið skýra lýs-
ingu á manninum, en sagði að
hann hefði hvorki verið „karl
né strákur“, og telur rannsóknar-
lögreglan að hér sé því um ungan
mann að ræða. Varðandi klæða-
burð sagði stúlkan, að hann hefði
verið í dökkblárri stunginni
nælonúlpu, bláum vinnubuxum
og svörtum támjóum skóm. Hann
var og með handtösku, ljósbláa
og hvíta að lit.
Samkvæmt frásögn litlu stúlk-
unnar mun maðurinn eitthvað
hafa leitað á hana, en sennilega
orðið fyrir einhverri truflun, þar
sem hann fékk vilja sínum ekki
framgegnt.
Að því er rannsóknarlögreglan
tjáði Mbl. í gær leitar hún enn
að manni, sem tælt hefur litlar
telpur upp í bifreið sína, ekið
með þær út fyrir bæinn, og leit-
að á þær, en ekki þykir sannað
að hér sé um sama mannin að
ræða.
Kristján Sigurðsson hjá rann-
sóknarlögreglunni, sem hefur
með rannsókn þessa máls að gera
ásamt Eggert Bjarnasyni, upp-
lýsti Mbl. um að alltaf öðru
hverju væri að berast kvartanir
um áþekka atburði, jafnvel núna
síðustu daga. Eggert Bjarnason
sagði að mjög erfitt væri að fást
við rannsókn mála sem þessa, þar
sem börnin gætu ekki gefið nema
ákaflega óglögga lýsingu á mönn
unum, bæði hvað aldur og útlit
snerti. Á hinn bóginn yrði hvert
hálmstrá við uppljóstrun þessara
mála gripið, og einskis látið ó-
freistað að hafa upp á mönnum
þeim, sem hér koma við sögu,
sem fyrst. Af þessum atburðum
má sjá, að full ástæða er fyrir
foreldra að brýna fyrir litlum
dætrum sínum að stíga ekki upp
í bifreiðir, bjóði ókunnugir þeim
ökuferð, né láta ókunna menn
tæla sig á einn eða annan hátt
með góðmeti eða peningum.
- STÚDENTAH
Framhald af bls. 28.
Lista Vöku skipa eftirtaldir
stúdentar:
Eggert Hauksson stud. oecon.
Þórarinn Sveinsson stud. med.
Bogi f. Nilsson stud. jur.
Katrín Fjeldsted stud. med.
Páll Þórðarson stud. jur.
Gísli Viggóson stud. polyt.
Sigríður Valdimarsd. stud. theol.
Jón G. Friðjónsson stud. philol.
Jóhannes M. Gunnars. stud. med
Georg Ólafsson stúd. oecon.
Reynir Geirsson stud. med.
Guðjón Guðjónsson stud. theol.
Þórður Harðarson stud. med.
Ásgeir Thoroddsen stud. jur.
Eins og að framan greinir fer
kosning fram í dag milli kl.
1-7 e.h. og kosið verður í her-
bergi stúdentaráðs á annarri hæð
Háskóláns.
Stúdentar eru hvattir til að
neyta atkvæðisréttar síns og
styðja A-LISTA VÖKU.
— Þýzkalandsmál
Framh. af bls. 1
að koma til, áður en um samein
ingu gæti orðið að ræða.
Ekki liggja fyrir áreiðanlegar
fréttir um viðræður þeirra
Brandts og Abrasimovs. Brandt
hefur ekki látíð hafa annað eftir
sér opinberlega, en að viðræð-
urnar hafi farið vinsamlega fram.
Hins vegar ságði talsmaður sósíal
demókrata í V-Berlín í dag, að
viðræðurnar hefðu verið svo
þýðingarmiklar, að ekki væri
hægt að skýra frá einstökum at-
riðum nú.
„Loksins hefur hins vegar fund
izt viðræðugrundvöllur við sov-
ézka ráðamenn", sagði hann. „Þó
munu frekari viðræður, sem leitt
gætu til lausnar geta tekið langan
tíma, og við verðum að reikna
með óvæntum erfiðleikum".
Orðrómur er uppi um það í
V-Berlín, að Abrasimov hafi sagt
að hann (og þá væntanlega þeir,
sem hann talar fyrir), hafi áhuga
á stefnu sósíaldemókrata til þátt
töku V-Þjóðverja í kjarnorku-
vörnum, þ.e., að Bonnstjórnin
skuli hafa neitunarvald, en ekki
beinan aðgang að kjarnorkuvopn
um (Vesturlanda).
Þá er einnig haft á orði í V-
Berlín, að sendiherrann hafi ósk
að frekari vitneskju um ummæli
varaformanns sósíaldemókrata
Herberts Wehners, um útlitið
fyrir efnahagssamstarfi ríkjanna
þýzku.
Opinberir starfsmenn í Berlín
segja, að allt bendi til þess að
sovézkir ráðamenn hafi haft
mikinn áhuga á því að hitta
Brandt að máli, því að þeir hafi
þegar í stað gengið að þeim þrem
ur skilyrðum, sem hann setti
fyrir því að halda til A-Berlínar.
Þó hafi skilyrði þessi valdið A
Þjóðverjum vandræðum.
Skilyrðin voru þau, að Abrasi
mov skyldi í embætti erindreka
Sovétríkjanna (hákommissars)
ekki sendiherra, bjóða sér til
hádegisverðar. A-þýzkir landa-
mæraverðir skyldu ekki skipta
sér af komu Brandts, og engir
a-þýzkir embættismenn fengju
að vera viðstaddir.
Washington, 14 .október
— NTB.
George Brown, utanríkisráð-
herra Breta, átti í dag viðræður
í Washington við Johnson,
Bandaríkjaforseta. M.a. var rætt
um Vietnam, og sagði Brown að
loknum viðræðunum, að þær
hefðu farið mjög, vinsamlega
fram.
Aðalfnrsdur Sfálf stæðis
félags Eskiffarðar
Eskifirði, 14- okt.
AÐALFUNDUR Sjálfstæðisfé-
lags Eskifjarðar var haldinn
fimmtudaginn 13. okt. í Valhöil
á Eskifirði. Á fundinum voru
kjörnir fulltrúar í fulltrúaráð
Sjálfstæðisfélaganna í Suður-
Múlasýslu og Kjördæmisráð
Austurlandskjördæmis.
Fráfarandi formaður félagsins
Axel V. Túliníus sýslumaður
baðst undan endurkjöri og var
honum þakkað mikið og gott
starf í þágu flokksins og félags-
ins á undanförnum árum.
í stjórn voru kjörnir: Guð-
mundur A .Auðbjörnsson mál-
arameistari formaður og með-
stjórnendur frú Herdís Hermóðs
dóttir, Ingólfur Fr. Hallgríms-
son forstjóri, Karl Símonarson
vélsmíðameistari og Gunnar St.
Wedholm, skrifstofumaður.
— Fréttaritari.
— Rússafloti
Framhald af bls. 28.
en þeir tala saman á bylgium,
sem eru skammt frá þeim, er
íslenzku skipin nota.
Menn hér um slóðir vilja fá
síldarleitarskip til að kanna síld-
armagnið, þar sem Rússarnir eru
og vænta þess að skip komi
eftir helgina.
Löndun gengur hér vel úr þeim
skipum, sem hingað koma og
tekur ekki nema 3 stundir að
tæma skipið. Öll síld er nú
brædd.
- SÖLVHÖJ
varpsstjóri danska útvarpsins
1961 og menntamálaráðherra
Danmerkur 1964. Er hann ann-
ar tveggja ráðherra í dönsku
ríkisstjórninni, sem ekki eiga
sæti á þingi.
Árið 1952 kvæntist hann konu
sinni, Ruth, sem er eins og áð-
ur er getið af íslenzku bergi
brotin í föðurætt, dóttir Halldórs
læknis sonár Niels Finsens.
Dansk-íslenzka félagið var
stofað í Kaupmannahöfn 1916
og á því 50 ára afmæli um þess-
ar mundir. Formaður' félagsins
hér dr. Friðrik Einarsson lækn-
ir en formaður Danmerkur-
deildar félagsins er Meulen-
gracht prófessor.
ISTUTTU MÁLI
Moskvu, 14. október. — NTB
Á næstunni kemur út bók í
Moskvu, þar sem margir hátt-
settir menn innan sovézka hers-
ins ræða um sókn Þjóðverja að
Moskvu í síðari heimsstyrjöld
inni. „Baráttan um Moskvu'
heitir bókin, og kemur þar m.a.
fram, að Jósef Stalín óttaðist
mjög um tíma, að Moskva myndi
falla Þjóðverjum í hendur ,
— Geimstöð
Framh. af bls. 1
hafa getið sér til, að þrjár megin
ástæður geti til þess legið, að svo
hljótt hefur verið um sovézkar
geimrannsóknir undanfarið:
1. Að Sovétríkin séu að spara
fé, og vilji ekki endurtaka til-
ratxnir, sem áður hafa verið.gerð-
ar.
2. Sovézkir ráðamenn telji
geimvísindaafrek ekki hafa sama
áróðursgildi og áður.
3. Tekin hafi verið um það
ákvörðun að bíða, þar til hægt
væri að gera tilraun, sem vekti
meiri athygli en nokkur önnur
tilraun til þessa.
Vitað er, að sovézkir vísinda-
mehn hafa fengið margvíslega
þekkingu frá Bandaríkjunum, en
þar hafa verið birtar upplýsing-
ar um árangur af „Gemini“-
ferðunum, sem farnar hafa verið
undanfarið. Þá er einnig vitað,
að sovézkir vísindamenn hafa í
seinni tíð gert margar tilraunir
á Kyrrahafi með mjög öflugar
eldflaugar.
Það þykir einnig renna stoðum
undir þá kenningu, að fyrir dyr-
um standi meiriháttar tilraun í
Sovétríkjunum, að sovézkur vís-
indamaður, sem nú situr geim-
vísindaráðstefnuna í Madrid, á
Spáni, lét eftir sér hafa í dag,
að „undirbúningi að nýrri, meiri
háttar tilraun miðaði vel“. Ekki
vildi vísindamaðurinn, prófessor
Oleg G. Gazenko, gefa neinar
frekari upplýsingar.
Gazenko viðhafði þessi um-
mæli á blaðamannafundi í Mad-
rid í dag, og sagði þá m.a.: „Það
er ekki rétt að Sovétríkin hafi
ekkert aðhafzt á sviði geimvís-
inda síðustu 19 mánuði. Sérhver
tilraun á sér langan aðdraganda,
og næsta tilraun okkar hefur
krafizt mikils undirbúnings. Ég
er mjög bjartsýnn um framtíð
sovézkra geimrannsókna“.
— Kennedy
Framh. af bls. 1
ur, bróðir Kennedys, fyrrum
Bandaríkjaforseta, hefði ver-
ið myrtur.
Orðrómur þessi barst til
Evrópu, og fengu bandarísk
sendiráð þar margar fyrir-
spurnir í dag.
Að því er bezt er vitað, er
Robert Kennedy við mjög
góða heilsu. Því hefur verið
neitað, að tilraun hafi verið
gerð til »ð ráða hann af dög-
um.
— Vinlandskortið
Framh. af bls. 1
dögum hér í að reyna a®
mennta hann, en okkur varð
ekkert ágengt".
„Þér teljið þá að hann hafi
ekki beitt vísindalegum að-
ferðum?“
„Nei, Nei, það er ekki
hægt að segja að skynsam-
lega sé farið að hlutunum".
„Musmanno minnist á, að
ef hægt sé að falsa skjöl hljóti
að vera hægt að falsa orma-
holur á bókfelli, og hafa heið-
urinn af Kólumbusi".
Er hér var komið sögu
skellti Marston uppúr.
„Segir hann það! Ég held
nú raunar að hann sé ekki
trúverðug heimild á því sviði,
ef satt skal segja. Ég læt mig
hann raunar engu varða.
Hann er hreinlega uppskafn-
ingur, sem er að reyna að
vekja á sér eftirtekt í blöð-
-um. Það er raunar eina áhuga
mál hans í lífinu. Ég get ekki
tekið neitt, sem hann segir, al-
varlega. Hann hefur ekki
beitt neinum vísindalegum
aðferðum, og ég sé raunar
enga ástæðu til þess að við
veitum honum athygli",
sagði Marston að lokum.
Bonn
AUSTUR-ÞÝZKA stjórnin lét í
dag óvænt lausan 29 ára gamlan
Breta, Arthur Wilbrahm, sem var
dæmdur í fjögurra ára fangelsi
í nóvember s.l. ár fyrir að hafa
aðstoðað a-þýzka fióttamenn vest
ur fyrir múrinn.