Morgunblaðið - 19.10.1966, Page 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 19. okt. 1966
Bjarni Benediktsson og Sigurður Nordal skoða Skarðsbók í
ráðherrabústaðnum í gær.
— Komin heim
Framh. af bls. 1
Hér á eftir fara ræður
þeirra af þessu tilefni, en
á öðrum stað í blaðinu í
dag er rakin stuttlega saga
bókarinnar og ýmislegt
sem henni er viðkomandi.
Speglar örlög íslendinga í
sex aldir.
Jóhannes Nordal Seðla-
bankastjóri komst svo að
orði:
Hæstvirtur menntamálaráð-
herra. Hinn 7. desember á sl.
ári var yður frá því skýrt,
að hið forna íslenzka handrit
Codex Scardensis eða Skarðs
bók hefði verið keypt fyrir
hönd íslenzku bankanna á upp
boði í London nokkrum dög-
um áður. Var yður þá einnig
tilkynnt, að bankarnir vildu
færa bók þessa íslenzku þjóð
inni að gjöf, en afhendingin
mundi fara fram, eftir að við
gerð á handritinu væri lokið.
Fyrirsjáanlegt var, að slík við
gerð mundi taka nokkum
tíma, enda þurfti bókin veru
Iegrar viðgerðar við, en vér
töldum æskilegt, að til hennar
yrði vandað, svo sem kostur
væri á, og ekkert til sparað.
Tónleikar
skólafólks
í DAG kl. 14 hefst D-flokkur tón
leika Sifnóníuhljómsveitar ís-
lands, sem ætlaSur er skólafólki
á aldrinum 16—21 árs. Seld hef-
«r verið áskrift á þessa tónleika,
en lausir miðar verða einnig til
sölu við innganginn í Háskóla-
bíói. Á þessum fyrstu tónleikum
D-flokksins verða eingöngu flutt
verk frá 16. til 18. aidar, þ.e.a.s.
frá þeim tíma listssögunnar, sem
kallast endurreisnar og barokk-
tímabilin. Þannig er ætlunin að
þræða tónlistarsöguna alit fram á
vorra tíma, og er þett.a því gullið
tækifæri fyrir skólafólk að kynn
ast af eigin raun ýmsu, sem ann
ars væru dauðir bókstafir í mann
kynssögúbókum.
Varð það að ráði, að leitað
var til eins þekktasta manns
á þessu sviði, Boger Powell í
Petersfield á Englandi, eu
hann hefur bundið mörg dýr
mæt handrit fyrir söfn á Bret
landseyjum. Xók hann að sér
að gera við bókina og binda
hana með það fyrir augum, að
frágangur yrði svo fagur og
vandaður sem auðið væri. Að
ráði Powells var sú leið farin,
að ný kálfsskinnsblöð voru
sett á milli hinna gömlu skinn
blaða, en með því taldi hann
að bezt mætti tryggja hvort
tveggja í senn, fagurt útlit og
hina öruggustu varðveizlu
hins gamla handrits. Eftir að
gert hafði verið við skinn-
blöðin, svo sem kostur var,
var bókin bundin í ljóst svíns
leður með mahognispjöldum,
og um hana búið í kassa úr
rósaviði. Er það von vor, að
þessi frágangur allur geti orð
ið til fyrirmyndar og hvatn-
ingar varðandi meðferð ís-
lenzkra handrita í framtíð-
inni.
Það varð til þess að flýta
verulega fyrir þessu verki, að
frú Vigdís Björnsdóttir, sem
unnið hefur að viðgerð hand
rita á vegum Þjóðskjalasafns
og Landsbókasafns, gat tekið
að sér að vinna að viðgerð
Skarðsbókar undir forsjá
Á tónleikunum í dag verða
fluttír „Madrigalar" eftir Monte-
verdi, þáttur úr d-moll sembaló
konsert Eachs, en einleikari á
sembaló verður Gunther Breest.
Guðmundur Jónsson mun syngja
tvær aríur eftir Handel og Björn
Ólafsson mun leíka fiðlukonsert
eftir Vivaldi. Stjórnandi verður
Ragnar Biörnsson.
E-flokkurinn hefst á morgun.
Það eru tónleikai fyrir börn frá
6—12 ára aldurs. Sala áskriftar-
skírteina á þessa tónleika hefur
verið svo mikil framar vonum,
að ekki var hægt að anna eftir
spurninni. Þess vegna hefur það
ráð verið tekið, að bæta við enn
einu sinni endurtekningu þessara
tónleika nk þriðjudag, 25. okt.,
kl. 14,30 í Háskólabíói. Sala á-
skriftarskírteina, til þeirra barna
sem frá hafa orðið að hverfa er
þegar hafin í Ríkisútvarpinu.
Roger Powells. Veittu söfnin
henni leyfi til þessa verks
með fullum launum, en bank
arnir greiddu annan kostnað
af því. Vonumst vér til, að sú
mikilvæga reynsla, sem Vig-
dís hefur fengið í þessu verki,
megi bera góðan ávöxt í starfi
hennar í framtíðinni að við-
gerð íslenzkra handrita.
Jafnframt því að þakka Vig
dísi og Roger Powell fyrir
þessi störf þeirra, vil ég nota
tækifærið til þess að færa
Eiríki Benedikz, sendiráðu-
naut, sérstakar þakkir, en
hann hefur orðið til ómetna-
legrar aðstoðar í máli þessu
öllu. Hefur hann verið með
í ráðum frá upphafi, bæði
um kaup Skarðsbókar, við-
gerð hennar og bank, og nú
síðast tók hann að sér að gæta
hennar á ferðinni frá London
til Reykjavíkur.
Hæstvirtur menntamálaráð-
herra, oss er það mikil gleði,
að nú skuli að því komið, að
Skarðsbók fái varanlegan bú-
stað á íslandi á ný. Saga þess
arar miklu skinnbókar spegl
ar örlög fslendinga í sex
hundruð ár. Þótt hún væri
varðveitt á grónasta höfð-
ingjasetri landsins, Skarði á
Skarðsströnd um langan ald
ur, eftir að önnur handrit
voru horfin til útlanda, fór
svo að lokum að hún slysað-
ist úr landi, með atvikum, sem
enn eru ókunn, snemma á 19.
öldinni, síðasta skinnbókin,
sem íslendingar áttu.
Og nú hafa örlögin hagað
til svo til, að hún hefur orð-
ið fyrsta handritið, sem kemst
í hendur fslendinga aftur.
Gleði vor yfir því getur verið
óblandin vegna þess, sem
framundan er: endurheimt ís-
lenzku handritanna frá Kaup
mannahöfn.
Ég get því beðið yður að
taka við þessari gjöf bank-
anna með þeirri ósk, að hún
reynist fyrsti boðberi þess, að
fsland verði miðstöð nor-
rænna handritarannsókna“.
Ein fegursta og merkasta
skinnbókin.
Þá tók til máls Gylfi Þ.
Gislason og mælti hann á
þessa lei:
„Með innilegri gleði veiti
ég fyrir hönd íslenzku þjóð-
arinnar viðtöku einni fegurstu
og merkustu skinnbók, sem
skráð hefur verið á fslandi,
Skarðsbók. Ég flyt gefendum,
íslenzkum bönkum, einlægar
þakkir íslendinga og einkum
þó Seðlabanka fslands, sem
hafði forystu um þessa gjöf.
Eftir aldalanga vist í öðrum
löndum er þetta mikla rit,
listaverk að efni og formi,
komið aftur til þess lands,
þar sem það var skráð, í hend
ur þeirrar þjóðar, sem skóp
það. Megi það verða til þess
að styrkja íslenzkt þjóðemi
og efla islenzka menningu.
Ég fel Handritastofnun fs-
lands þessa þjóðareign til
varðveizlu. Skarðsbók mun
verða til sýnis í húsakynnum
Þjóðminjasafnsins um næstu
helgi“.
Aðalfundur
Eyverjar, félag ungra Sjálf-
stæðismanna í Vestmannaeyjum
hélt aðalfund sinn 8. okt. sl.
Formaður félagsins Guðaaund
ur Karlsson flutti skýrslu stjórn
ar. Starf félagsins á starfsárinu
hafði staðið með blóma. Hafði
starfið einkum verið þróttmikið
í sambandi við starfið í bæjar-
stjórnarkosningunum, m. a. hafði
félagið þá gefið út myndskreytt
blað. Þá hafði stjórnin staðið að
ýmsum skemmtunum á vegum
félagsins, og fjárhagur þess því
góður.
I stjórn voru kosnir: Guð-
mundur Karlsson, formaður, og
meðstjórnendur Arnar Sigmunds
son, Kjartan Úlfarsson, Júlíus
Magnússon, Kristmann Karlsson
og Jóhann Guðmundsson.
7/7 sölu
Ný einstaklingsíbúð við
Kleppsveg. Sameign full-
gerð.
Nýleg 2ja herb. íbúð við Ás-
braut.
Nýleg 2ja herb. íbúð, 72 ferm.
við Kleppsveg.
3ja herb. íbúð í kjallara við
Skipasund.
4ra herb. íbúð á efstu hæð við
Þorfinnsgötu. Þrjú svefnher
bergi og góð stofa.
4ra herb. íbúð á 1. hæð við
Skipasund.
4ra herb. íbúð á 1. hæð við
Nökkvavog.
4ra herb. íbúð á 1. hæð við
Njörvasund. Sérinngangur.
Bílskúr.
4ra herb. endaíbúð á 4. hæð
við Álfheima.
4ra herb. íbúð á 1. hæð við
Langholtsveg.
Einbýlishús í Smáíbúðahverfi.
Fjögur svefnherb. Bílskúr.
Parhús, fjögur svefnherbergi
við Hlíðaveg.
Nýbyggingar í Kópavogi, 2ja
til 6 herb. íbúðir, ásamt bíl-
skúrum. Ennfremur einbýlis
hús, og keðjuhús (parhús).
Selst fokhelt og lengra kom
ið. Teikningar á skrifstof-
unni.
FASTEIGNAS ALAII
HÚS&EIGNIR
BANKASTRÆTI £
Símar 16637 og 18828.
Tilkynning
Allt rjúpnadráp í Laugardals-
hreppi, Árnessýslu, er strang-
lega bannað öllum óviðkom-
andi, bæði í byggð og afrétti.
Laugarvatni 17.10 1966.
Hreppstjóri.
Þorsteinn Júlíusson
héraðsdómslögmaður
Laugav 22 (inng. Klapparstíg)
Simi 14045 - Viðtalstimi 2—5.
Ingi Ingimundarson
hæstarettarlómað ur
Klapparstíg 26 IV hæð
Sími 21753.
4ra herb. vönduð íbúð við
Njörvasund. Bílskúr.
4ra herb. íbúð við Ásvalla-
götu.
2ja herb. íbúð við Baldurs-
götu.
Raðhús, tilbúið undir tréverk
við Sæviðarsund. Hagstætt
verð.
Raðhús á mjög góðum stað
í Kópavogi.
Fokheld 130 ferm. hæð við
Kópavogsbraut.
Hef kaupendur að góðum eign
um í borginni og nágrenni.
GÍSLI G ISLEIFSSON
hæstaréttarlögmaður.
JÓN L. BJARNASON
FASTEIGNAVIÐSKIPTI
Hverfisgötu 18.
Simar 14150 og 14160
Kvöldsími 40960.
7/7 sölu m.a.
2ja herb. íbúð við Haðarstíg.
Útb. kr. 250 þús.
2ja herb. íbúð við Lokastíg.
3ja herb. íbúð við Skipasund.
Bílskúr.
3ja herb. íbúð við Álfheima.
Sérhiti, sérinngangur.
4ra herb. íbúð við Sól’heima.
4ra herb. íbúð við Stóragerði.
4ra herb. risíbúð í Smáíbúða-
hverfi. Verð kr. 700 þús.
Útborgun kr. kr. 350 þús.
Kópavogur
Úrval af íbúðum og einbýlis-
húsum.
Nýtt verzlunarhúsnæði á góð-
um stað.
Hafnarfjörður
Einbýlishús og íbúðir.
Steini) Jfínsson hdl.
lögfræðistofa — fasteignasala
KirkjuhvolL
Símar 19090 og 14951.
Heimasími sölumanns 16515.
4ra herb. íbúð
um 100 ferm. á 1. hæð við Kleppsveg til sölu. Eitt
herb. í risi fylgir, teppi fylgja. Útb. aðeins 500 þús.
Nýja fasteignasalan
Laugavegi 12 — Sími 24300
Félagsheimili
Kópavogs
Höfum 100 og 120 manna sali fyrir hvers konar
mannfagnaði. — Ijölbreytt úrval veitinga.
Sími 41391 og 41616.
FÉLAGSHEIMILI KÓPAVOGS.
Diesil rafstöð
Til sölu er ný 12—15 kílówatta rafstöð, selst mjög
ódýrt. — Upplýsingar í síma 11976 og 12668, Akur-
eyrL