Morgunblaðið - 19.10.1966, Side 11
Miðvikudagur 19 okt. 119<?!>
MORGUNBLADIÐ
tl
— Leikdómur
Pramháld áf bis. 17.
arins, , hugkvæmni hans og
dirfska, skilningur hans á leik-
húsinu og tengslum þess við
manQlífið, gera hinn litla kjarna
verksins í meira lagi hugstæðan.
Hann hleður utan á sig æ víð-
tækari merkingu og skírskotar
til áhorfandans me'ð sífellt nær-
göngulli hætti, unz hann stendur
í rauninni í sporum leikaranna
og spyr sömu spurninga — án
þess að fá svör. Hann er ein-
ungis frj órri reynslu ríkarL
James Saunders hefur verið í
læri hjá Pirandello og öðrum
þeim framúrmönnum í nútímaleik
ritun, sem leitast við að leysa
upp hefðbundin form leiksviðs-
ins og brúa bilið milli lífsins og
listarinnar, milli leikhúsgesta jg
leikenda. í þessu skyni beitir
hann ýmsum brögðum, sem sum
hver eru í billegasta lagi og til
þess eins fallin að vekja hlátur
áhorfenda eða ganga fram af
þeim. Ræða Lísu um frjálsar
ástir, svo dæmi sé tekið, kann
eð ofbjóða brezkum góðborgur-
um, en hún sætir litlum tíðind-
um á íslandi. En þar sem höf-
undi er fuil aivara nær hann
máttugum áhrifum, ekki sízt
með leiknum i-nnan leiksins í
eeinna þætti þar sem „leikarinn"
og einbúinn renna saman og
vekja þá tvíræ'ðu tilfinningu, að
leikur og líf séu sama tóbakið,
hvort tveggja kunni að vera sjón-
hverfing.
Leikritið vekur sem sagt marg-
ar spurningar, en svarar fám. I»að
er sjálf andrá sköpunarinnar eða
túlkunarinnar á sviðinu sem
skiptir höfundinn mestu máli:
það sem er að gerast og hvernig
það gerist. í vissum skilningi lif-
ir hvert atvik leiksins sjálfstæðu
iífi, án tillits til þess sem á und-
an er gengið eða á eftir kemur.
í því samhengi eru naktar stað-
reyndir og dauðir hlutir látnir
tala sínu skýra og þó margræða
máli. Myndirnar, sem leikararnir
draga upp í einræðum sínum, eru
fágætlega áþreifanlegar og öðlast
næstum sjálfstætt gildi, og á það
ekki sízt víð um lýsingar Rús.
Þær hríslast um taugar áhorf-
andans, umlykja han.n éins og
þvöl þoka, þar til töfrarnir rofna
og nýtt atvik, ný stemning tekur
við. í heild orkaði sýningin á
mig eins og ljóð, þar sem mynd-
ir og líkingar hláðast upp og
magna hver aðra, án þess mað-
ur geri sér fulla grein fyrir merk
ingu einstakra atriða.
Saunders er maður orðsins,
leikur sér með orð og hugtök
eins og sjónhverfingamaður. Á-
• deilan er honum rík í huga, hann
hæðist óspart að mannlífinu og
mannfólkinu, fordómum þess og
skammsýni, em bak við háðið
skynjar maður kviku viðkvæmra
tilfinninga. Framar öðru er hann
þó „málaæi“ í orðum: það eru
myndirnar í verki hans sem eink
um greypast í minniinguna.
Persónusköpunin 1 „Næst skal
ég syngjá fyrir þig“ er einföld og
skýr. Hér er í rauninni einungis
um að ræ’ða tilteknar manngerð-
ir: hinn skapandi listamann
(leikstjórann) sem á þann draum
æðstan að koma reglu á náttúr-
una og ljá mannlífinu merkingu;
lærdómsmanninn sem lætur sér
nægja að henda á lofti hugtök og
skilgreiningar, dýrkar efann ef-
ans vegna, en er laus við sálar-
kveljandi spurningar; túlkand-
ann sem vill komast inn í hlut-
verk sitt og skila því þannig að
það veki samúð og skilning; og
loks tvær venjulegar, áhyggju-
lausar manneskjur sem lifa fyrir
líðandi stund og gera sér enga
rellu út af æðri sjónarmiðum eða
dýpri merkingu. Mörkin milli
þessara manngerða, eins og þeim
er raðað upp hér, eru oft óglögg,
enda er höfundurinn sífellt að
brjóta sínar eigin leikreglur og
rugla áhorfendur í ríminu.
Kevin Palmer hefur sett þenn
an viðsjárverða og vandasama
sjónleik á svfð af stakri alúð og
mikilli hugkvæmni, þannig að
hvert smáatriði virðist vera þaul
hugsað, enda fátt um dauða
kafla í sýningunni. Og það sem
meira er, hann hefur náð
þeim tökum á leikendum, að þeir
skila því sem þeir eiga til.
Ævar Kvaran var ótvírætt
maður kvöldsins í hlutverki ein-
búans. Var unun að sjá hvernig
hann skilaði þessu erfiða verk-
efni. Raddbeiting hans, svip-
brigði og látbragð allt lagðist á
eitt um að skapa persónu sem
tók huga manns allan.
Fast á hæla Ævari kom Gunn-
ar Eyjólfsson í hlutverki „leik-
stjórans", Rús. Náði hann einnig
öruggum tökum á vandasömu
vfðfangsefni, og er sérstök á-
stæða til að geta meðferðar hans
á löngum uppmálandi köflum,
sem hann flutti af þvílíkri
kynngi og hnitmiðaðri ögun, að
myndirnar bókstaflega lifnuðu
fyrir sjónum leikhúsgesta.
Sigurður Skúlason lék hlut-
verk Dusts, „lærdómsmannsins“,
og gerði undragóða hluti þegar
þess er gætt að hann hljóp inn
í hlutverkið með tíu daga fyrir-
vara. Hann er enn við leiknám,
og gætti að sjálfsögðu hjá hon-
Gunnar Eyjólfsson (Rús) og Ævar Kvaran (einbúinn) i seinna
þættL
Jockey
NÆRFÖTIN eru þekkt um allan
heim fyrir snið og gæði.
N Ý SENDING KOMIN.
H ERRADEILD
Laugavegi — Pósthússtræti.
um nokkurs viðvaningsbrags í
limabuiði og framsögn, en í
heild skilaði hann hlutverkinu
með sóma og átti oft mjög góða
spretti. Texti hans var erfiður
og furðulegt hve vel hann komst
frá honum. Hér er á ferðinni
mikið efni, ef nokkuð má ráða
af þessari frumraun.
Sverrir Guðmundsson og Anna
Herskind léku minni hlutverk,
sem þó gera miklar kröfur. Mér
fannst þau bæði standa ság bet-
ur á lokaæfingu en á frumsýn-
ingu, og má vera að taugaóstyrk
ur hafi staðið þeim fyrir þrifum
á sunnudagskvöldið. Sverrir lék
Meff af miklu fjöri, en skemmdi
túlkunina með óðagoti sem ó-
nýtti margar góðar setningar og
dró úr áhrifum margra skemmti
legra leikbragða. Anna lék Lisu
af kankvísi og talsverðu öryggi,
en hún virtist ekki vera fylli-
lega í essinu sínu á sunnudags-
kvöldið, leikur hennar var þving
aðri og tilþrifaminni en á loka-
æfingu.
Una Collins gerði snjalla leik
mynd, sem var eins fábrotin og
verða mátti, en mjög í anda
leiksins.
Oddur Björnsson þýddi leik-
ritið á munntamt mál (nema
hvað hann ofnotaði hjálparsögn-
in „munu") og hefur
það ekki verið neitt áhlaupa-
verk, því textinn er víða mesta
torf og mikið um hugtök sem
íslenzkan á blátt, áfram engin
orð yfir. Hefur Oddur valið þá
sjálfsögðu leið að halda orðum
frumtextans í íslenzkri mynd
þar sem engin brúkleg íslenzk
orð var að finna. í öðrum til-
vikum hefur hann gripið til orða
sem eru lítt kunn og ekki á-
rennileg, eins og þegar hann þýð
ir „identity" með „samsemd“.
En hvað á að gera?
Sýningunni var vel tekið og
leikendur lengi hylltir og inni-
lega að lokum.
Sigurður A. Magnússon.
uö auglýstng
i utbreiddasta blaðinu
borgar sig bezt.
Dansskemmtun
fyrir starfsmenn Véltækni h.f. bæði nýja og gamla
verður haldin í Tjarnarbúð uppi föstudaginn 21.
okt. kl. 9 e.h.
Skemmtinefndin.
Tilboð óskast
í að lagfæra lóð við Túngötu 14 (Hallveigarstaðir).
Útboðsgagna skal vitja á Teiknistofu Skarphéðins
Jóhannssonar Laugarásvegi 71.
NOKKRA DUGLEGA
sendisveina vantar
í nokkra daga. Þurfa að hafa reiðhjól eða skelli-
nöðru. — Upplýsingar á skrifstofunni sími 17100.
HAPPDRÆTTI SJÁLFSTÆDISFLOKKSINS.
Dömur
Hin margeftirspurðu rúmteppi
og púðar nvkomin.
Stuttir og síðir greiðlusloppar.
Frottesloppar. — Nýtt úrval
alls konar gjafavara.
Hjá Báru
Austurstræti 14.
rOLABIS HF. AUGLÝSIR
Norskar og þýzkar eldhúsinnréttingar. GAGGENAU
raftæki. Skozk góifteppi.
FYRIR VERZLANIR.
Alls konar innréttingar
skipuiagðar af erlendum
sérfræðingum.
Leitið tilboða.
Pol ris hf.
Hafnarstræti 8
Simi 21085.