Morgunblaðið - 19.10.1966, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 19.10.1966, Blaðsíða 31
Miðvikudagur 19. okt. 198® MORGUNBLAÐID 31 Verður óperusöng- flokkur stofnaöur? Mbl. hefur haft af því söngstjóra. Mun söngflokkur- spurnir, að fyrirhugað sé að inn nú vera að leita að hent- stofna hér á landi óperusöng- ugu húsnæði, en hlutaðeig- flokk. Stendur að honum endur vörðust allra frétta, er margt af okkar þekktasta söng Mbl. reyndi að afla sér nán- fóiki^ og hefur Mbl. m.a heyrt ari u lýsi a um þetta( þar nefnda í þvi sambandi ' . , , . , Magnús Jónsson óperusöngv- sem mahð væn ekkl komið ara og Ragnar Björnsson, á lokastig. Mesti hiti, sem mælzt hefur, í Námaskarði J*AB kom fram í samtali er, Mbl átti við Isleif Jónsson verk fræðing hjá jarðborunardeild Raforkumálastjóra, að nýlokið er að bora eftir heitu vatni í Náma skarði. Gaf sú borun mjög góðan árangur — þar var borað niður á 680 metra dýpi, en á 650 metra dýpi mældist 260 stiga hiti. Er það mesti hiti, sem mögu- legt er að mæla hér, og mesti hiti, sem fundizt hefur norðan- lands. Áður hefur sami hiti mælzt á Nesjavöllum í Grafningi en þar var borað fyrir Hita- veitu Reykjavíkur. Enn hefur ekki verið mælt hve holan í Námaskarði gefur mikið magn af vatni. Nú er unnið að því að flytja borinn, sem þarna var að verki, til Húsavíkur þar sem borað verður eftir heitu vatni fyrir bæinn. Borcað eftir heitu vatni í Bolungavík Bolungarvík 18. okt. | Hingað voru að koma starfs- menn Raforkumálaskrifstofunn- ar með jarðbor en ætlunin er að bora eftir heitu vatni í Syðri- ] dal. Þessi bor á að geta borað , niður á 300 m. Undanfarið hefur borið á vatns leysi í þorpinu, en nú hefur ís- húsfélagið hér á staðnum hag- nýtt sér komu borsins og fengið hann til þess að bora eftir köldu vatni við Aðalstræti. Byrjaði hann að bora í morgun, og er búist við að fljótlega verði komið niður á æð. Hallur. ísleifur Jónsson verkfr. hjá Raf orkumálastj órn tjáði Mbl. að þarna í Bolungarvík hefðu fyrir nokkrum árum verið gerðar til- raunaboranir og hefðu hitamæl- ingar þar borið það góðan árang Dauðadóms kraf izt yfir Súbandríó Djakarta, 18. október. AP. VIÐ réttarhöld yfir Súbandríó, fyrrum utanríkisráðherra Indó- nesíu í dag, krafðist ákærandi dauðadóms yfir sakborningnum. Súbandríó flutti í gær varnar- ræðu, en rétturinn neitaði að taka hana til greina . Súbandríó var viðstaddur málsflutningin, sem tók aðeins rúma klst. en hefur venjulega tekið 5-6 klst. Hann er ákærður fyrir landráð, svikaferli og að- stoð við kommúnista við undir- búning uppreisnarinnar fyrir ári. Búist er við að dómur falli á fimmtudag, en i dag er gert ráð fyrir að Súbandríó flytji aðra varnarræðu. ur að ástæða væri til þess að rannsaka heita vatnið þar betur. Hann sagði. að óráðið væri hve langt yrði farið niður, en bjóst við að það yrðu um 150—200 metrar. Borinn kemur frá Akur- eyri, þar sem leitað hefur verið að köldu vatni fyrir Akureyrar bæ. í STUTTU MÁLI NewYork.— Makaríos erkibiskup á Kýpur kom til New York í gær. Mun hann dveljast þar í borginni í einn dag áður en hann heldur för sinni áfram til S-Ameríku. Erkibiskupinn ræddi við U Thant framkvæmdastjóra S.Þ. á þriðju dag. Helzta umræðuefni þeirra var viðræður grísku og tyrkn- esku stjórnarinnar um lausn Kýpurdeilunnar. Kýpurstjórn hefur fyrir sitt leiti samþykkt þessar viðræður en jafnframt gert það fyllilega ljóst að Kýpur búar muni sjálfir taka ákvörðun um lausn málsins Rangoon.— Sex stúdentar frá Burma, sem stundað hafa nám í Peking komu heim i gær. Sögðu þeir frétta- mönnum að kennarar þeirra hefðu tilkynnt þeim að þeir hefðu engann tíma til að stunda kennslustörf vegna starfa í samb andi við menningarbyltinguna. Sögðu stúdentarnir að allt benti til þess að æðri menntastofnun um í Kína yrði lokað í eitt ár meðan á byltingunni stæði. Sögðu þeir að samræma ætti kennsluna kenning Maos. ATHUGIÐ! Þegar miðað er við útbreiðslu er langtum ódýrara að auglýsa í Morgunblaðinu en öðrum blöðum. í GÆRMORGUN varð það sl að piltur á vélhjóli lenti á 1 reið á gatnamótum Lindagötu Klapparstígs með þeim afleiði: um að hann kastaðist af vélhj< inu, og meiddist lítilsháttar. V pilturinn, Þórður Þórðarsc Faxabraut 49 í Keflavík flutt í Slysavarðstofuna, þar sem g< var að meiðslum hans. — Fjárlagaræðan Framhald af bls. 1 þeim löndum er hafa tekið slíkt kerfi upp og starfaði nú nefnd við úrvinnslu þeirra. í lok ræðu sinnar gerði ráð- herra hina alvarlegu þróun efna hagsmála síðustu vikna að um- talsefni og sagði þá m.a.: „Ríkissjórnin hefur að sínu leyti viljað stuðia að nauðsyn- legri veiðstöðvun með því að auka svo niðurgreiðslur á vöru- verði, að ekki yrði um neina hækkun að ræða á landbúnaðar- vörum nú í haust. Er þetta auðið vegna góðrar fjárhagsafkomu rík issjóðs, en að sjálfsögðu alger- lega háð því skilyrði að ekki verði um nýjar óviðráðanlegar hækkanir að ræða. Vafalaust verður því haldið fiam að ein- hverjum að i því sé lítið samræmi að afnema niðurgreiðslur í vor en auka niðurgreiðslur í haust. Slíkar ásakanir skipta litlu máli, ef tekst að r.á því marki, sem að er stefnt, að stöðva verðbólguna enda fullt samræmi í því að lækka niðurgreiðslur við hækk andi verðlag framleiðslunnar en grípa til aukinna niðurgreiðslna, ef framieiðslan fær ekki um stundarsakir risið undir aukn- um tilkostnaði". Fyrri hluti fjárlagaræðu Magn úsar Jónssonar birtist í blaðinu í dag og síðari hluti á morgun. Að lokinni ræðu ráðherra tók Halldór E. Sigurðsson (F) til máls, og gerði hækkun fjárlaga fyrst a’ð umtalsefni. Sagði hann hækkun fjárlaga nú nema svip- aðri upphæð og niðurstöðutölur fjárlaga í heild hefðu verið fyrir 7 árum. Þá sagði hann, að ekki hefði skort á fögur fyrirheit hjá núverandi stjórnarflokkum er þeir tóku við völdum. Lofað hefði verið sparnaði og hagræð- ingu á flestum sviðum og væru þau loforð lítt í samræmi við það er kæmi fram í fjárlagafrumvarp inu nú. Rikisstjórnin hefði ekki tileinkað sér þekkingu á fjár- málum ríkisins og þyrfti þá eng an að undrast það heljarstökk sem tekið væri með fjárlögum nú. Eyðsla og útþensla væri alls ráðandi í þessu frumvarpi og hefði þar orðið mikil aukning frá síðasta fjárlagafrumvarpi. Hinsvegar stæði ekki á því að dregið væri úr opinberum fram- kvæmdum, þrátt fyrir óteljandi aðkalíandi vandamál á því sviði svo sem hafnargerð, skólabygg- ingar vegamál og fl. Ekki væri stefnufestu fyrir að fara hjá rík- isstjórninni í fjármálum, enda væri nú komið áð vegamótum velgengni og vandræða, svo að notuð væri orð forsætisráðherra. Enginn vissi hvort sú stefna er í dag væri boðuð entist fram í næsta mánuð. Hefði ríkisstjórn- in ekki við neinn annan að sak- ast en sjálfa sig nú er vandræðin steðjuðu að. Birgir Finnson (A) sagði að með valdatöku núverandi ríkis- stjórnar hefði verið tekin upp sú Lík Sigurðar Theodórssonar fundið SKÖMMU fyrír helgina fannst lík Sigurðar Theodóssonar, en hann hvarf eftir dansleik á Birkimel á Barðaströnd í sumar, en mikil árangurslaus leit var þá gerð af. Það var gangnamaður, sem gekk fram á líkið Sigurðar fjalli milli Arnarbýlisdals og Móru- dals. Á þessu svæði leituðu í sumar leitarflokkar, svo og þyrla og leitarflugvél, en án árangurs. í sumar hefur alltaf öðru hvoru farið fram leit af Sigurði heitn- um, og hefur þá aðallega verið gengið með fjöru, því að talið var að Sigurður heitinn hefði farið í sjóinn eða í Geitá, og borizt til sjávar með henni. Kunnugir gizka á að Sigurður hafi ætlað að ganga frá sam- komustaðnum á Barðaströnd yfir til Tálknafjarðar, þar sem hann bjó hjá kunningjafólki sínu. [ grundvallarstefna þegar fjárlög v^ru afgreidd, áð þar næðu endar saman — og hefði það markmið náðst að afgreiða fjárlögin halla- laus. Oft hefði það verið svo að ríkissjóður hefði staðið of höll- um fæti þegar þurft hefði að veita atvinnuvegum aðstoð, vegna tilfallandi ástæðna. Nú gæti ríkissjóður hinsvegar tekið á sig á byrði er leiddi af hækk- un landbúnaðarafurða og þannig létt af aðsteðjandi kostnaði af atvinnuvegunum, og væri nú þegar augljóst að þessar ráðstaf anir hefðu mælzt vel fyrir hjá almenningi. Augsýnileg hætta steðjaði nú að, ef verðbólga héldi áfram, en miklu væri hægt að bjarga ef fylgt væri ráðum ríkis- stjórnarinnar. Þá vitnaði Birgir Finnsson'í skýrslu Efnahagsstofn unarinnar til Hagráðs og sagði að þar kæmi m.a. fram að síðan 1960 hefði vöxtur þjóðarfram- leiðslunnar verið 5,5% að meðal- tali og vöxtur þjóðartekna rúm- lega 7%. Væri augljóst af þeim staðreyndum er fælust í skýrsl- unni að launþegar hefðu að fullu haldið því hagstæða hlutfalli er þeir hefðu náð 1960. Geir Gunnarsson (K) sagði að ekki hefði verið um að ræða neinar launabætur fyrir verka- lýðinn á undanförnum árum, ef til hefði komið kauphækkun hefðu þær óðar verið teknar aft- ur með verðlagshækkunum og auk þess sem sköttum hefði ver- ið komið fyrir á þann hátt að stærstu fjölskyldurnar yrðu að greiða mest. Innheimta ríkis- sjóðs kæmi til með að hækka um 850 millj. kr., á næsta ári, en síð- an væri talað um það fjálglega af hálfu ríkisstjórnarinnar, að ekki mætti hækka kaup laun- þeganna nú. Sagði Geir að verk- anir viðreisnarstefnunnar væru nú að koma fram, sem samdrátt- London, 18. október. AP. WILSON forsætisráðherra Bret- lands sætti á þingfundi í dag harðri gagnrýni af hálfu flokks- manna sinna og thaldsmanna, fyrir meðhöndlun hans á Rhódes iumálinu. íhaldsmenn réðust á hann fyrir ákvörðun hans um að Ieggja málið fyrir Sameinuðu þjóðirnar, verði lausn ekki fund in fyrir nóvemberlok. Þingmenn Verkamannaflokksins gagn- rýndu hann fyrir að beita ekki valdi gegn uppreisnarseggjun- um. Þetta var fyrsti fundurinn í brezku Neðri málstofunni að loknu 9 vikna sumarleyfi þing- manna. Var þegar í upphafi fundar ljóst að þingmenn beggja flokka stefndu að því að koma af stað deilum. Andrew Faulds þingmáður Verkamannaflokks- ins sagði: „Ef Bretland setur ekki tímatakmörk, sem binda endi á valdaferil hinnar ölöglegj stjórnar í Rhódesíu getið þér pakkað brezka samveldinu sam- an, fleygt því til helv .... Þingmaður íhaldsflokksins spurði: „Hvers vegna hafið þér breytt skoðun yðar á því að Bretland beri ábyrgð á Rhódesíu og ákveðið að leggja málið fyrir SÞ?“ Þessu svaraði Wilson: „Ég hef alltaf sagt, að meðan Bretland ur og hrun atvinnuvegana, þrátt fyrir góðæri síðustu ára, sem boðið hefðu upp á tækifæri sem aldrei hefðu boðizt fyrr. Áhugi ríkisstjórnarinnar á stöðvun verð bólgunnar væri ekki nýr, hann kæmi upp í hvert sinn sem fram undan væri kjarasamningar, en næðu síðan aldrei lengra, en til þess dags, er þeim væri lokið. Magnús Jónsson fjármálaráð- herra svaraði nokkrum orð- um gagnrýni stjórnarandstöð- unar, og sagði hana verka hljómlíka og oft áður á þeim sjö árum er þeir hefðu verið í stjórnarandstöðu. Benti hann á prósentuhækkun fjárlaga í tíð vinstri stjórnarinnar og hækkunina nú og sagði eftir þann samanburð að greinilegt væri að ekki væri hækkun fjár- laga neitt einsdæmi. Hann sagði það fróðlegt ef stjórnarandstæð ingar sem bentu óspart á hin miklu útgjöld ríkissjóðs, vildu með rökum benda á eitthvað er þeir vildu fella niður fjárgreiðslu til. Ræddi ráðherra síðan um verðbólguna og orsakir hennar jafnframt því sem hann svaraði einstökum atriðum er fram höfðu komið hjá stjórnarandstæðingum Má td. nefna að varið hefði verið meiru fé til vegamála nú en fyrr og sönnuðu dæmin það augljóslega. Mætti til nefna Reykj anesbraut, Strákagöng, Múlaveg og fl. Að lokum sagði ráðherra að áframhald þess blómaskeiðs fram fara og velmegunar er ríkt hefði síðustu 5 ár væri háð því að nú yrði valin stefna raunsæis og samstarfs. Það væri álit sitt að þjóðin hefði trú á þeirri stefriu. Enginn þyrfti að fórna neinu ef rétt væri á mr.luro haldið, held- ur aðeins nema staðar um stund og búa sig betur undir næstu sóknarlotu <il aukinnar velmeg- unar. beri ábyrgð á Rhódesíu, sé það mál sem snertir allan heim“. Wilson samþykkti á fundi þjóðhöfðingja samvaldisland- anna í sl. mánuði, að gefa Ian Smith frest fram í nóvemberlok til að leggja niður völd, annars mun Bretland fara þess á leit við Öryggisráð SÞ um að það fyrirskipi ströng efnahagshöft á Rhódesíu. KastaHist út úr bílnum vi5 árekstui^inn HARÐUR ÁREKSTUR varS | gærmorgun á gatnainótum Háa- leitisbrautar og Miklubrautar. _ Þar lentu saraan fólksbifreiðarn ar R-5039, sem var á leið eftir Miklubraut og G-2966. sem var á leið norðui Háaleitisbraut, og fór út á gatnamótin. Við áreksturinn kastaðist öku- maður síðarnefndu bifreiðarinn- ar út úr henni handleggsbrotnaði og hlaut höfuðhögg. Var hann fluttur í Slysavarðstofuna, og þaðan í Landakot, en mun ekki vera alvariega siasaður. Báðar bifreiðarnar voru óökufærar eft- ir árekstminn. Maðurinn minn BÖÐVAR MAGNÚSSON Laugarvatni, andaðist í Landsspítalanum aðfaranótt þriðjudagsins 18. október. Ingunn Eyjólfsdóttir. Wilson gagnrýndur fyrir Rhodesíumálið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.