Morgunblaðið - 19.10.1966, Síða 32

Morgunblaðið - 19.10.1966, Síða 32
Helmingi útbreiddara en nokkurt annað íslenzkt blað Langstærsta og íjölbreyttasta blað landsins 239. tbl. — Miðvikudagur 19. október 196G Leit skyldi hef ja ■ er telpan f annst í GÆHKVFIjDI um kl. 7 voru björgunarsveitin Ingólfur og Hjálparsveit skáta í Reykjavík kallaðar út til þess að leita að átta ára stúlku, sem ekkert hafði spurzt til síðan kl. 11 um morg uninn. En í þann mund, sem leit átti að fara að hefjast kom telp- an í leitirnar. Hafði hún verið hjá vinafólki allan daginn, en ekkert látið frá sér heyra. Hafði hún ekki komið heim í hádegisverð. Við athugun —-----—---—-----------<& Drengir handteknir -vegna þjófnaðar ÞRÍR drengir í Hafnarfirði, á aldrinum 10—12 ára hafa verið handsamaðir af lögreglunni þar í bæ fyrir peninga- og vörustuld. Samanlagt verðmæti þýfsins er 15—20 þúsund krónur. Hafa drengirnir beitt ýmsum brögðum í sambandi við þjófnað ina; stolið úr fötum fólks á vinnu stöðum, eða tveir þeirra beint athygli verzlunarfólks að sér meðan hinn þriðji hefur farið inn á skrifstofu verzlunanna og stolið peningum þar. kom í ljós að hún hafði ekki held ur farið í skólann eftir hádegið. Var þá farið að óttast um hana. IMý gerð eld- J spýtnau mbúða ÁÐur EN langt um líður mun 'Áfengis- og tóbaksverzlun rík1 isins hefja sölu á eldspýtum í nýjum pakkningum. Er um að ræða svonefnd eldspýtna- bréf. Er ekki vafi á að margir munu fagna þessari nýbreytni þar sem kvartað hefur verið yfir að eldspýtustokkar þeir, er nú eru á markaðinum væru of stórir til að hafa í vasa. Á bréfin mun verða límdur aug lýsingarm'ði og fær Geðvernd íslands ágóða þann er af þeim fæst. Eins og kunnugt er kom fyrsta síldin síðan 1962 til Skagastrandar sl. miðvikudag. Það var síld- arfluttningaskipið Vestberg, sem kom með síldina af Austf jarðarmiðum. Myndin sýnir hvar unn- ið er, að löndun síldarinnar. (Ljósm. Mbl. Þ.J.). Háskólahátíð fyrsta vetrardag HÁSKÓLAHÁTÍÐ verður hald- in fyrsta vetrardag. laugardag 22. okt., kl. 2 e.h. í Háskólabíói. Þar leikur strengjahljómsveit undir forystu Björns Ólafssonar. Háskólarektor, prófessor Ármann Snævarr flytur ræðu. Forseti heimspekideildar afhendir pró- fessor Sigurði Nordal doktors- bréf. Kór háskólastúdenta syng- ur stúdenf ali g undir stjórn Jóns Þórarinssonar tónskálds. Háskóla rektor áva>'par nýstúdenta, og veita þeir viðtöku háskólaborg- arabréfum. Einn úr hópi nýstúd enta flytur stutt ávarp. Háskólastúdentar og háskóla- menntaðir menn eru velkomnir á háskólahátíðina, svo og foreldr ar nýstúdenta. Skarðsbókar þarf að gæta sem ungbarns Verður uð venjust loitslugsbreytingunni ar mann MORGUNBLAÐIÐ átti í gær kvöldi tal við prófessor Ein- Ólaf Sveinsson, forstöðu- Handritastofnunar ís- lands, og notaði tækifærið til að óska honum til hamingju með heimkomu Skarðsbókar. Gleði prófessors Einars Ólafs lýsti sér skýrt við athöfnina í gær, er hann leit dýrgripinn á borðinu í ráðherrabústaðnum. Virtist blaðamanni Morgunblaðs ins sem prófessorinn viknaði, eins og faðirinn sem heimtir glat aða soninn aftur. Prófessor Einar Ólafur sagði í gærkvöldi, að ekki mætti spyrja sig um hvar Skarðsbók yr'ði varð veitt á næstunni, utan hvað hún verður til sýnis almenningi í Þjóðmynjasafninu. Hann sagði hinsvegar að Roger Powell, sá sem sá um frágang handritsins og band, hefði ritað með því mjög nákvæmt bréf um alla með ferð bókarinnar og að reglur þær væru líkar því sem um ung barn væri að ræða. Bókin þarf að samlagast loftlagsbreyting- unni og verður að fara með hana samkvæmt því og stunda hana daglega, sem um ungbarn væri, þar til er hún hefir að fullu fundfð sig heima á ný. „Reglurnar eru nákvæmar og eitt er fullvist. Við munum fara nákvæmlega eftir þeim“, sagði prófessorinn. Prófessorinn sagði, að snilling urinn Roger PoweLl væri viður- kenndur sem einn bezti hand- verksmaður um meðferð hand- rita og gamalla bóka. Hefði hon um verið falið að fjalla um dýr- mætustu handrit, sem til eru á Bretlandi og hefði- Skarðsbók ekki getað lent í betri höndum. Dýrir smá peningar f FJÁRLA.GARÆÐU sinni í gærkvöld drap fjármálaráð- herra, Magnús Jónsson, á það að myntsláttur væri ekki sér lega mikill búhnvkkur fyrir ríkissjóð. Sagði hann að það kostaði nú 22 aura að gera einseyring, 53 aura að gera 5 eyring, 22 aura að gera 10 eyr ing og 30 aura að gera 25 eyr- ing. -$>' Lögregluþjónn rnðinn n Seltjnrnnrnes Seltjarnaneshreppur hefur ráð ið fastan lögregluþján til starfa í hreppnum. Er það hinn kunni lögreglumaður Lárus Salamons- son, sem ráðinn hefur verið til þessa starfs og mun hann hafa Endurbygging Hafnarfjarðar- vegar í einum áfanga ? Kostnaður við þessar framkvæmdir áætfaðar 70 millj. kr. UNDANFARTí) hefur verið unn- ið að fullnaðargerð teikninga og verklýsinga varðandi endurbygg- ingu Hafnarfjarðarvegar í gegn- Kona fyrir bél ÞAÐ SLYS vsrð snemma í gær- morgun að eldri kona, Guðrún Halldórsdcttir, til heimilis að Framnesvegi 57 varð fyrir bif- reið á Hofsvallagötu, skammt sunnan við gatnamót Hringbraut ar. Var hún flutt í Slysavarðstof una, en óttast var að hún kynni að hafa brotnað. um Kópavog. Er gert ráð fyrír að þegar þeim undirbúningi lýkur, verði verkinu ráðstafað til verk- taka, og verkið jafnvel unnið í einum áfanga. Eru framkvæmdir við veginn áætlaðar um 70 milljónir króna með öllu, sem til heyrir. Mun Kópavogsbær greiða að sínum hluta til þessara fram- kvæmda af því fé, sem fellur í hlut hans rú rikissjóði sam- kvæmt vegalögum, og einnig af framlagi úr ríkissjóði til verk- efna, sem talin er brýn þörf á. Frá þessu er greint í Vogum, blaði Sjálfstæðismanna í Kópa- vogi, og segir þar ennfremúr, að veginn eigi að undirbyggja í sex akreinar, en í fyrstu sé gert ráð fyrir slitlagi á aðeins 4 þeirra. Ennfremur er gert ráð fyrir að Kársnesbraut fari undir brú á Hafnarfjarðarvegi, og tengist hon um frá norðri til suðurs. Göngu- brú á að verða undir Hafnar- fjarðarveg á miðsvæðinu, en staðsetning hennar verður háð skipulagi svæðisins. Digranesveg- ur verður lagður yfir Hafnar- fjarðarveg á brú, og tengist hon- um bæði frá norðri og suðri og til norðurs og suðurs. Hlíðarveg- ur á að tengjast Hafnarfjarðar- vegi einhliða frá suðri til norð- urs, og er þá miðað við hægri handar umferð. aðsetur í húsnæði í sveitastjórnar skrifstofum hreppsins. Sigurgeir Sigurðsson, sveita- stjóri, tjáði Mbl. að höfuðástæðan fyrir þessari ráðningu væri úti- vist barna, en ætlunin væri að reyna að koma þeim málum í gott horf. Sagði Sigurgeir að þessi ráðning væri aðeins byrjun in, en hreppurinn vænti mikils af henni. Uppselt á tverina barna tónleika Sinfóníunnar Þau gleðilegu tíðindi hafa gerzt að uppselt er á tvenna barnatónleika Sinfóníuhljóm- sveitarinnar, sem haldnir verða á fimmtudaginn fyrir 7—12 ára börn kl. 10.30 og 14.30. 1 dag eru tónleikar fyrir framhalds- skólafólk í Háskólabíói, og hefjast þeir kl. 14. Ekki mun þátttakan á þeim vera eins glæsi leg og á þeim fyrrnefndu. Vilja gefa jörð til hjálpar afvega- leiddum í gær kom á ritstjórnarskrif- stofu Mbl. bóndi með auglýsingu þess efnis að það væru hjón sem vildu gefa jörð á góðum stað til kristilegs félagsskapar, sem vildi sýna trú sína í verki með því, að starfrækja á henni heimili fyrir unga eða gamla sem villzt hafa af leið, og eru hjálpar þurfi. Jörðin losnar úr ábúðs á vori komanda. Á jörðinni eru íbúðarhús með hæðum og kjallara, en gólfflötur er 120 ferm. Einnig er fjós og hlaða fyrir 20 kýr, en í hloð- unni er súgþurrkun og súr- heysgryfja. Þá er fjárhús fyrir 120 fjár ásamt hlöðu og súrheys- gryfju. Tún er allt véltæKs ug engjar framræstar. Þau félög sem áhuga hafa á þessu eru beðin um að senua umsóknir sínar á ritstjórn Mbl. fyrir 1. nóv. merkt: „Ritstjorar- kærleikur". ÞAÐ slys varð í gærkveldi á gatnamótum Stórholts og Þver- holts, að fullorðin maður varð fyrir bifreið. Hann var fluttur í Slysavarðstofuna, þar sem gert var að meiðslum hans.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.