Morgunblaðið - 03.12.1966, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 03.12.1966, Blaðsíða 4
4 MORCUNBLAÐIÐ i^augardagur 3. des. 1966 BÍLALEICAN FERÐ SfMI 34406 Daggjöld kr. 300,00 og kr. 2,50 á ekinn km. SENDUM MAGMÚSAR SKIPHOLTI 21 SIMAR 2)190 eH'rlokuhíimi 40381 tiH' 1-44-44 \miam Hverfisgötu 103. Daggjald 300 og 3 kr. ekinn km. Benzín innifalið. Sími eftir lokun 31100. LITLA bílaleigan Ingólfsstræti 11. Sólarhringsgjald kr. 300,00 Kr. 3,00 ekinn kílómeter. Benzín innifalið í leigugjaldi Sími 14970 BÍIALEIGAIM VAKUR Sundlauraveg 12. Simi 35135. Eftir lokun 34936 og 36217. BÍLALEIGA S/A CONSUL CORTINA Sími 10586. R&UÐARÁRSTÍ6 31 SlM I 22 0 22' Hnseigendafélag Reykjavíkur Skrifstofa á Bergstaðastr. lla. Sími 15659. Opið kl. 5—7 alla virka daga nema laugardaga. FjaSiir, fjaðrablóð, hljóðkútar púströr o.fl. varahlutir i margar gerðir bifreiða. Bílavörubúðin FJÖÐRIN Laugavegl 168. — Sími 24180. A.E.G. HARÞURRKUR, 2 gerðir. BRAUÐRISTAR, 2 geröir. KAFFIKVARNIR STRAUJÁRN Br. Ormsson hf. Lágmúla 9. i/ Æskan Hann Grímur Engilberts, ritstjóri Æskunnar, leit inn til mín í vikunni. I»að er alltaf jafngaman að hitta Grím og rabba við hann, jafnkátur og skemmtilegur og hann er. Ef Grímur væri ekki alltaf jafnung ur færist honum ekki ritstjórn barnablaðsins eins vel úr hendi og raun ber vitni. „Æsk- an“ er sameiginlegt áhugamál okkar, því Velvakandi er einn þeirra fjölmörgu, sem haldið hafa tryggð við þetta rit síð- an það skemmti okkur og fræddi í æsku. Og alltaf var beðið með mikilli eftirvænt- ingu eftir næsta balði, ekki sízt jólablaðinu. í>að var langt- um þýðingarmeira en öll önn- ur tölublöð Æskunnar, því þeg ar það barst var því stungið upp í skáp — og við fengum það ekki í hendur fyrr en á sjálf um jólunum. >að var ekk- ert erfitt að sætta sig við þetta þótt blaðið væri eftirsóknar- vert. Reglur voru reglur og það hvarflaði ekki að neinum að brjóta þær. Eftir á fannst okkur lika mun skemmtilegra að fá blaðið á jólunum i stað þess að lesa það fyrir jól. it Stærsta tímariHð En þetta var útúrdúr. Grímur kom í heimsókn — og ég byrjaði eins og oft áður — þegar við hittumst — á að kvarta: „Grímur, mér finnst enn ekki nógu mikið af ævintýrum í Æskunni. Eða er ég orðion svona gamall“, bætti ég við — „hafa börnin ekki lengur gam- an af gamaldags ævintýrum um prinsessur og bóndasyni?" „Jú, það er eitt gott og gam- alt í jólablaðinu, sem kemur út eftir nokkra daga“ — og hann dró upp kápuna, sem búið var að prenta, með mynd af hressi legum jólasveini. Og Grímur- lofaði að atihuga, hvort ekki væri hægt að fjölga ævintýr- unum. Hann sagði mér líka (og það voru öllu meiri fréttir) að upplag Æskunnar hefði stór aukizt að undanförnu og af jólablaðinu yrðu prentuð fjórt án þúsund eintök. Efast ég ekki um, að Æskan er þar með orðið stærsta tímarit landsins. ic Fékk þakkir Og sjálfsagt yrði það enn stærra, ef allir fengju Æskuna, sem hana vildu. Það er fyrst og fremst vegna hugsunarleys- is margra foreldra, að Æskan kemur ekki á heimilið, enda sagði Grímur, að maður, sem að undanförnu hefði safnað áskriftum í Reykjavík, hefði fengið miklar þakkir frá for- eldrum fyrir að hafa-látið sjá sig: „Þetta er eitt af því, sem við höfum alltaf ætlað okkur að gera, en einhvern veginn hefur það farizt fyrir,“ sagði fólkið um leið og það gerðist áskrifendur. it Gamall kunningi Grimur var með stóra tösku og ég spurði hann hvort hann gengi með marga ár- ganga á sér. Nei, e'kki viidi hann viðurkenna það. Hann opnaði skjóðu sína og dró upp litla bók og laglega. Þarna var kominn gamall vinur frá bernskuárum, „Kisubörnin kátu“ eftir Walt Disney. Æsk- an gefur þessa bók út núna fyrir jólin og það er fjórða útgáfan. Þetta er ein af þeim bókum, sem foreldrar verða að lesa aftur og aftur fyrir born sín — þangað til þau kunna textann utan að og fara að leið rétta lesarann, ef hann reynir að „stytta sér ieið“ við lestur- inn. Aðra bók var Grímur með og mér sýndist hún ekki siðrL „Ævintýri barnanna" heitir hún og hefur að geyma öll gömlu og góðu ævintýrin í sam þjöppuðu formi. Þegar ég tala um þau gömlu og góðu á ég t.d. við Rauðhettu, Geiturnar þrjár, Sætabrauðsdrenginn, Ljóta andarungann, Litlu gulu hænuna, Unga litla, Ljónið og músina^ — svo eitthvað sé nefnt. í hókinni eru fjölmarg- ar litmyndir og rebbarnir, bangsarnir og mýsnar eru þar öll í sparifötunum. it í forystusveit Grímur dró enn eina bók upp úr skjóðu sinni, „Gaukur verður hetja“, eftir Hannes J. Magnússon, sem á undanförn- um árum hefur bæði skrifað og þýtt fjöimargar barna- og unglingabækur, sem hlotið hafa miklar vinsældir. Og ég hef séð góða dóma í blöðun- um um þessa síðustu. Hannes er einn af þeim, sem unnið hafa fyrir börnin af lifandi áhuga og elju — og hann er reyndar í forystusveit í þeim efnum. Á Akureyri hefur hann í fjölmörg ár ritstýrt barna- biaðinu „Vorið", sem ekki er jafnþekkt sér syðra og Æskan, enda mun yngra. En fyrir norð an, vestan og austan er „Vor- ið“ þekkt og vinsælt. if- Heimili og skóli Enn merkara er þó hans ágæta starf að útgáfu ritsins „Heimili og skólL" sem mér vitanlega er eina hérlenda rit- ið, sem fjallar um uppeldis- mál, samvinnu heimilis og skóla og hlutverk foreldranna sem uppalenda. Það vill svo til, að ég var ekki alls fyrir löngu að greiða fyrsta áiskriftar gjald mitt að „HekniU og skóla". Eftir stutt kynni mín af blaðinu langar mig helzt til að segja að þetta blað hafi allir foreldrar gagn og ánægju af að lesa. A.m.k. þeir, sem hugleiða raunverulega hin ýmsu vandamál uppeldisins en sætta sig ekki við að allt fljóti á meðan ekki sökkvi. Það ger- ir enginn, sem vill telja sig hugsandi mann — og telur mik ils virði að sinna börnunum frá upphafL Þess eru því miður allt of mörg dæmi, að foreldr- ar ætli sér að byrja að ala upp börn sín, þegar það er orðið of seint. it „Hvað á ég að gera?“ Ég get ekki lokið frá- sögninni af fundum okkar Gríms án þess að minnast á nýjan bókaflokk „Föndurbæk- ur Æskunnar". Af þeim eru komnair tvær, sú fyrri um pappamuni, hin síðari um papp írsvinnu. Ég held, að slíxar bækur ættu að vera í boka- skápi hverrar barnafjölskyldu. Það er svo þægilegt að grípa til þeirra, þegar þetta hversdags- lega tóm myndast — og spurt er: „Hvað á ég að gera?“ Mörg börn ráða fram úr slíku af sjáifsdáðum með örlítilli að- stoð foreldra, en önnur biðja oft um leiðbeiningar og hug- myndir um það, hvernig verja eigi tómstundunum. Ekki sízt þegar illa viðrar og ekki er hægt að vera útL eða, þegar sletzt hefur upp á vinskapinn hjá börnun-um — og eitthvað kemur í veg fyrir að þá stund- ina er ekki hægt að leika við bezta vininn eða vinkonuna. Verst af öllu er að láta börn og unglinga sitja auðum hönd- um. Þau verða eirðarlaus og eiga erfitt með að festa hug- ann við viðfangsefnin, sem að jafnaði er nauðsynlegt að sinna. Þetta er eitt af stórum. vandamálum samtíðaiinnar. Þessvegna getur verið gott að eiga eitt og annað í kistu- handraðanum, verkefni, sem koma á óvart, en eru þrosk- andi og róandi. Ekki veitir af í öllum ys og þys nútímans. Velvakanda berast oft bréf um óknytti og skemmdarvarga — og allt, sem miður fer. Færri hafa Skrifað jákvæðar hugvekjur um uppeldismálin. Þeir, sem hafa eitthvað að segja — og vilja tala um þá hlið málanna — ættu að taka sér penna í hönd. Öll slík bréf birti ég með glöðu geðL if Fjölbreytt blað P.s. Þegar ég fór að fletta síðustu Æskunni eftir að ég skrifaði þennan pistil, sá eg, að Grímur var hafður fyrir rangri sök að þessu sinni. Hér er Hrói höttur, Buffalo BiU og David Copperfield. Svo er hér íslenzkt ævintýri eftir Hildi Ingu auk annars og mjóg fjölbreytts efnis. Já, og Robin- son Krúsó í myndum, fram- haldssaga. Nei, hér ættu allir að finna ævintýri fyrir sig. Og Bjössi bolla er alltaf ágætur. Bifreiðakaupendur Höfum tU sölu notaðar bifreiðir. Hagstæð kjör, skipti möguleg. RAMBLER-umboðið: Jón Loftsson hf. Hringbraut 121. — Sími 10-600. CHRYSLER-umboðið: Vokull hf. Hringbraut 121. — Sími 10-606. Aðalfundur Knattspyrnufélags Reykjavíkur verður haldinn fimmtudaginn 8. desember nk. og hefst kl. 20,30 í félagsheimilinu. FUNDAREFNI: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórn K. R. Hjúkrunarkona að Hjúkrunardeild Hrafnistu. Upplýsingar í síma 36380 og eftir kl. 4 í síma 37739.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.