Morgunblaðið - 18.12.1966, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 18. des. 1966
Siguiður Haukur Guðjónsson skriíar um
BARNA- OG UNGLINGABÆKUR
Borry og
smyglorinn
Höfundur: Uno Modin
Þýðandi: Sigrún Guðjóns-
dóttir.
y Útgefandi: isafoldarprent-
/ smiðja h.f.
ÞAÐ dylst engum, eftir lestur
þessarar bókar, að höfundur
kann að segja frá, án þess að
hvíla athygli lesandans nokkru
sinni. Hér er þó langt í frá um
merkilegt skáldverk að ræða,
heldur mikiu fremur reyfara
(Ktlaðan t.þ.a. stytta tíma þeirra,
sem lesa sig í svefn. Höfundur
notar tvær kenndir mannsins,
vináttuna til loðinna dýra og
hina duldu þrá mannsins t.þ.a.
brjótast undan oiki samfélagsins,
t.þ.a. vefja úr þeiim þráð sögunn-
ar. Nolokuð er þetta fast gert,
-því erfitt er að greina á mil'li,
ovo mjög gerir hann hundinuim.
Barry, menndkan og manninn,
Pétur, dýrslegan.
Barry, Sankti-Bernharðshund-
ur, elzt um með munkum í
Alpafjöllum J»ar er hann þjálf-
aður til þjónustu við vegviUta
ferðamenn. Ungur vinnur hann
athyglisverða dáð, bjargar
manni frá bráðum bana. Gisti-
vináttu munkanna láunar, sá er
bjargað er, svo sem hann er
maður til; lýgur tU um nafn
sitt; stelur lífgjafa sínum, Barry;
strýkur síðan án þakkarorða.
Tekur Pétur, svo nefnist skálk-
urinn, að þjálfa hundinn til
smyglstarfa í landamærahéraði.
Hundurinn lendir þar í mörgum
raunum en sigrar þær aUar, svo
sem aðalsöguhetju reyfara sæm-
ir. í annað sinn á Pétur hund-
inum Uf sitt að launa, er græðgi
hans hefir att honum sjálfum
og Barry 1 fífldjarft tafl við
tollverði landsins.
Nokkrir menn eru nefndir tdl
sögunnar, svona til uppfyl'lingar
fremur en kynningar.
Vissulega mun ungu fólki
þyfcja saga þessi skemmtileg,
það er hún vissulega, en langt
í frá uppbyggileg. E.t.v. þörfn-
umst við svona bóka til hvíld-
ar frá þurrum námsbókum.
Þýðingin er vel af hendi leyist.
Þýðandinn . hefir auðsjáanlega
gott vald á málinu, er orðmarg-
ur ag verður þýðingin við það
safamikil og fersk.
Villur eru nófckrar, en sára-
fáar, sem efcki liggja ljósar fyrir
og af þeim sökum meinlausar.
Prentun og frágangur bókar-
innar er góður og útgefanda til
sóma. Spá mín er því sú, að
Barry verði vinur margra um
jólin.
Lotto í
ólótogötu
Höfundur: Astrid Lindgren.
Þýðandi: Eirikur Sigurðsson
Teikningar: Ilor Wikland
Bókaútgáfan Fróði.
Offsetprent h.f.
Þetta er lítil, en snotur bók,
ætluð yngstu lesendunum. Lotta
fimm ára kríli, vaknar önug
morgun einn, og þar eð hún er
skynsöm stúlka, gerist framhald
sögunnar, er nær yfir einn dag,
mjög svo kátlegt. Pullorðnir láta
efcki bjóða sér hvað sem er, það
hafði lífið kennt Lottu, og álykt-
un hennar var sú, að það ættu
þeir heldur efcki að gera, er
fimm ára aldri hefðu náð. Er
henni tókst ekki að beygja móð-
ur sína undir vilja sinn, hélt
hún að heiman og fór heldur
klæðlítil. Sagan greinir nú frá
því, er Lotta tekur íbúð á leigu
og á hvern hátt hún býr um sig.
En það er erfitt að vera stór
og sjálfstæð heilan dag, þegar
aldurinn er efcki hærri, svo
skjótt dregur til sætta.
Bókin er skemmtilega rituð og
hlýtur að verða mörgu barninu
til afþreyingar, þar eð höfundur
virtist eiga einkarlétt með að
setja sig í þeirra spor.
Teikningar í bókinni eru af-
bragðs góðar og hjálpa ungum
lesendum, t.þ.a. gera sér efni
sögunnar ljóst.
Þýðingin er góð og málið lip-
urt. Frágangur bókarinnar er
prýðis góður og útgefanda til
sóma.
Prentvillur sárafáar.
Niourstaðan verður því: Mjög
eiguleg bók fyrir hina yngstu.
Ævintýri
barnannn
Myndir: Feodor Rojankovsky
Þýðandi: Þórir S. Guð-
mundsson.
Bókaútgáfa Æskunnar.
Prentun mynda: Aktietrykk
eriet í Stavanger.
Prentun texta: Oddi h.f.
Bókin er árt efa ein skemmti-
legasta barnabók, er ég hefi séð.
Strax við fyrstu kynni laðar
hún til lestrar, því veldur hug-
kvæmni teiknarans og hve drátt-
hagur hann er. Myndirnar, flest-
ar, eru hrein listaverík og það
dregur heldur efcki úr, að allar
birta þær obkur söguhetjur, sem
oífckur eru fcunnar frá æsku.
Þetta eru sem sé teikningar við
24 ævintýri, gamla kunningja:
Rauðhettu; Ljóta andarungann;
Heimska Hans; Hérann og
Skjaldbökuna og mörg fleiri. Ég
vil vekja athygli yfckar á efnis-
yfirlitinu, það er meistaraverk.
Svo eru og hinar mörgu heil-
síðumyndir, er prýða bókina
með litum sínum.
Það er mjög erfitt að dæma
um boðskap ævintýra, þá dul
ætla ég mér heldur efcki. En
viss er ég um það, að börnin
munu fagna bókinni, og mér er
heldur efcki gruniaust uzn að
þau þurfi oft að sæfcja hana á
náttborð pabba og mömimu. Svo
er um öll sönn ævintýr, þau
flytja lesendum sínum boðskap
eftir þroska þeirra sjálfra. Hlát-
ur vekur það- einkum, er djúpa
alvöru kallar fram í huga ann-
aris. Ævintýrabókinni sinni ætti
því enginn að henda frá sér,
heldur eiga vel geymda og lesa
oft. f ævintýrunum felst vízka
kynslóðanna framsett á aðlað-
andi hátt.
Mér virðist þýðingin góð og
orðval einmitt þannig, að í huga
hafi verið haft að verið væri að
snara bók allrar fjölskyldunnar.
Ég er Bókaútgáfu Æskunnar
mjög þakífclátur fyrir bókina, og
svo mun verða um fleiri.
Að vísu finnst mér það leitt,
að innbrot kápunnar sfculi vera
með enskum texta á mynd. Það
lýtir svo ágætt verk og í fram-
tíðinni ætti slífct etóki að sjást
á nofckurri bók íslenzkri.
L ÞAÐ LEIKUR ENGINN VAFI Á —
að hinn vandláti kaupandi gerir
kröfur um það bezta í sniðum,
efnum og vinnu.
^ Einmitt það er haft í huga, þegar yður eru
boðnar KANTER’S lífstykkjavörur.
Verið vandlát —
biðjið um K A N T E R ’S
— og þér fáið það bezta.
Vinsæl jólagjöf
kveikjari
fyrir dömur og herra,
einnig úrval af borð-
kveikjurum.
MAGNÚS E. BALDVINSSON
Laugavegi 12 — Sími 22804.
Hafnargötu 49 — Keflavík.
BÓKAFORLAGSBOK
Þetta er 2. bókin i þéssum skemmtilega bóka-
flokki. Aðalsöguhetjumar eru þær sömu, ea
hver bók er samt alveg sjálfstæð saga. Land*
nemasynimir Kiddi Barson og Jonni Smith
ásamt vini sínum, indíánanum Valsauga,
lenda óvænt í æsispennandi eltingaleik viff
manninn í indíánaskónum' svarta, sem orðið
hefur þess valdandi að hin litla landnema.
Verð kr. 150.00 nýlenda Danville hefur verið brennd tU ösku.
(án söluskattsX
Sögurnar um VALSAUGA eru skemmtilegar, ósvikn-
ar indíánasögur, sem allir strákar eru mjög hxifnir af.
BÓKAFORLAG ODDS BJORNSSONAR