Morgunblaðið - 12.01.1967, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. JANUAR 1967.
3
.^SST — « .........
Frá framhaldsaðalfundinum í gær. Björn Guðmundsson, útveg smaður í Vestmannaeyjum, í
ræðustóli. — (Ljósm. Mbi.: Ól. K. M.j.
Utvegsmenn ræddu
ákvörðun fiskverðs
Framhaldsaðalfundi LÍIÍJ lauk í gær
FRAMHALDSAÐALFUNDUR
Landssambands ísl. útvegs-
manna var haldinn í Tjamar-
búð í gær. AðaJfundinum var
frestað í byrjun desember sl. tii
að bíða átekta um ákvörðun
fiskverðs, sem vitað var að yfir-
nefnd Verðlagsráðs sjávarútvegs
ins mundi ákveða nú um ára-
mótin.
í fundanbyirjun ,geirði ful'ltrúi
LÍÚ í yfirnefndinni, Kristján
ítagnarsson, í einstökum atrið-
u>m grein fyrir verðlagsákvörð-
uninni, sem hann kvaffet hafa
greitt atkvæði sitt í sam-
ráði við framlkvæmdaráð sam-
Ibandisstjórnar LÍÚ og formenn
ýmissa útvegsmannaféilaga.
Þá gerði formaður samtak-
anna, Sverrir JúMusson, grein
fyrir ýmsum jþýðingarmiklum
málum, sem stjórn og skrifistofa
jltmtakanna hafia unnið að í
fundarlhléinu, en þau mál
eru m.a. hækkun rekstrarláma til
véllbátanna, breyting á Lánstíma
stofnlána, breyting á sjómanna-
'liögunum varðandi 'iaun ejó-
manna í veikdnda- og slysatil-
Kaupmaður dæmdur
í 100 þús. kr. sekt
Seldi ótollafgreidda vöru í verzluninni
FYRIR nokkru er genginn dóm
ur í máli er höfðað var gegn
eiganda verzlunarinnar Krónan
hér í borg, Guðmundar Hagalín
Kristjánssonar, fyrir að hafa
ótollafgreidda vöru til sölu í
búðinni.
Við endurteknar húsleitir í
verzluninni árin 1964 og 1965
fannst þar ýmiskonar matvara
og sælgæti, sem flutt hafði verið
inn í landið ólöglega.
Kaupmaðurinn gerði þá grein
fyrir vörum þessum, að þær
1 hefði hann keypt af ókunniugum
mönnum, er boðið hefðu sér vör-
una. Dómarinn, Ármann Krist-
insson, sakadómari, leit svo á,
að kaupmaðurinn hefði hlotið
að vita að vara þessi væri ólög
lega flutt inn í landið. Var hann
dæmdur í kr. 100.000,00 sekt
til ríkissjóðs, — hin ólöglega
vara gerð upptæk, einnig til
ríkissjóðs — og skal 5 mánaða
varðhald koma í stað sektarinn
ar verði hún eigi greidd innan
fjögurra vikna frá dómsbirtingu.
Dómnum var ekki áfrýjað.
Dularfulla fyrirbrigðið
reyndist vera loftbelgur
í GÆRMORGUN hringdi
maður á ritstjórnarskrifstofu
Mbl. og taldi sig hafa skýr-
inguna á fyrirbæri því, sem
sást yfir austurbænum sl.
laugardagskvöld, og greint
var frá i blaðinu í gær. Hann
kvaðst búa í Bólsstaðahlíð, og
einmitt bafa orðið var við
það þetta laugardagskvöld að
piltar í næsta húsi sendu upp
allstóran loftbelg, og kæmi
gerð hans nokkuð vel heim
við lýsingu sjónarvotta á fyrir
bærinu.
Blaðamaður Mibl. fór á stúf-
ana og tókst að ná tali af ein-
um piltanna. Var hann held-
ur sleginn yfir öllu því um-
tali, sem þessi tómstundaiðja
þeirra hafði haft í för með
sér, en gat þess að þeir hefðu
meira og minna fengizt við
það að búa til lofbbelgi og
senda á loft sl. tvö ár. Meðal
fellum í samræmi við tillögu
lþin.gmannanefndarinnar, sem á
síðasta ári fjallaði um vandamál
íisíkilbáta 45—120 rúmlestir.
Alilmiklar umræður urðu á
fundinum um framangreind mál,
en engar ályktanir voru gerðar.
Að Holkum ávarpaði formaður
fundarmenn nokíkrum or’ðum og
að iþvi Hoknu sleit fundarstjóri,
Jón Árnason, Akranesi, fundin-
Gjöf til Öryrkja-
heimilisins
LIONSiKDÚBBURINN Ægir
samþykkti á fundi, höldnum 10.
þ.m. að gefa tuttugu og fimm
þúsund krónur til byggingar
öryrkj aheimilisins við Hátún.
Er það annar Lionsklúbburinn,
sem gefur fé til byggingarinnar.
Öryrkjabandalagið þakkar
Lions-mönnum kærlega góða
gjöf.
(Frá Öryrkjabandalaginu).
Bíl hvolfdi
á Lambhagabrú
í FYRiRINÓTT var lögreglan
kölluð að Lambhagabrú, þar sem
bíll af Moskvitohgerð lá á hvolfi
í ánni, hafði farið út af brúnni.
Leigubílstjóri hafði komið þar
að og tekið upp manninn, sem
var í bílnum, en komist út úr
honum af sjálfsdóðum og ó-
meiddur. Hann var undir á'hrif-
um áfengis. Er lögreglan kom á
staðinn kvaðst maðurinn hafa
verið í bilnum, en ekki hafa
ekið honum. Gat þó ekki gert
viðhlítandi grein fyrir því hver
bílstjórinn var.
SMSTHM
Úvenju hlýtt á land-
inu um síðustu helgi
FYRIR síðustu helgi og fram á
mánudag voru óvenjulega mikil
hlýindi hér á landi. Asahláku
gerði viða um land, vegir gerð-
ust hættulegir yfirferðar sökum
hálku, og á Akureyri streymdi
leysingavatn í stríðum straum-
um eftir mörgum götum og
komst inn í hús og kjallara og
gerði þar talsverðan usla meðal
húsgagna og annarra verðmæta.
Þá sáust á himni hátt norðan-
lands litfögur ský svo unun var
á að horfa.
Mbl. sneri sér till Kniúts Knúts-
sonar, veðurfræðings, og spurði
hann um orsakir þessa óvenju-
lega janúartíðarfars. Hann sagði
m. a.:
— Hilýindin stafa af mikilli
hæð á hafiinu suðurundan ís-
landi. Glitský Ihafa sézt á norð-
an- og austanverðu landinu. Þau
sjást helzt, þegar hvasst er af
áttum milli súðurs og vesturs.
Er þá oft bjart á norðan- og
austanverðu landina og sjást
slkýin helzt (þar. Þessi ský eru
mjög litsikrúðug, enda er annað
nafn á þeim perdumóðuský. —
Perlumóðurský munu aðallega
vera í 20—40 km hæð. Veður-
stofan hefur fregnir af þvá, að
iþessi ský sáust í fyrradag í
Látravik, Sauðárkróki og á Eg-
ilsstöðum.
Mlbl. er kunn.ugt um það að
ský þessi sáust á sunnudaginn
frá Akureyri, og einnig sáu
menn þar þau á mánudaginn,
fyrir hádegi, en um hádegi gerði
um stund hríðaréfl á Akureyri og
byrgði fyrir sjónina. Siðan hiefur
verið stillt fryrir norðan.
annars hefðu þeir sent einn ;
upp sl. gamlárskvöld, og hefði •
sá sést í íslenzka sjónvarp- ;
inu. :
Pilturinn tjáði okkur enn- ;
fremur að tímar þeir, sem :
sjónarvottar telja sig hafa séð ;
hin furðulegu fyrirbæri, komi :
nákvæmlega heim við þann ;
tíma, er þeir sendu loftbelg- :
inn upp. Eins og fyrr segir ■
búa þeir til þessa loftbelgi :
sjá'lfir. Er belgurinn, ger’ður úr ■
silkipappír, en fyrir neðan ;
hann festa þeir gosull og •
bleyta í vaxi. Kveikja þeir í :
gosullinni og leiða heita loft- ■
ið inn í belginn. Þegar kom- ;
ið er mátulega mikið af létt- j
ara lofti í belginn sleppa þeir j
honum lausum. Geta þessir :
loftbelgir þeirra orðið æði ;
stórir, og var sá, sem sást um- :
rætt laugardagskvöld, í stærra ;
lagi.
„Slökkviliðskórinn“ á æfingu. Frá vinstri: Björn Þorleifsson,
Ólafur Ólafsson, Jón Daníclsson og Jón Jónmundsson, kórstjórinn.
Menntnskólanemar n Ak-
ureyri sýnn Biedermnnn
A.KUREYRI, 11. jan. — Leik-
félag Menntaskólans á Akur-
eyri frumsýnir sjónleikinn
„Biedermann og brennuvargarn-
ir“ eftir Max Frisch föstudaginn
13. janúar kl. 8 e.h. í samkomu-
húsi bæjarins.
Leikstjóri verður Erlingur E.
Halldórsson, en hann hefur auk
leikstjórnarinnar verið leiðbein
andi á framsagnarnámskeiði, sem
að undanförnu hefur verið hald-
ið í M.A.
Leiksýningar nemenda M.A.
hafa alltaf verið vinsælar og vel
sóttar af bæjarbúum og er þess
að vænta að þeir setji sig nú ekki
úr færi að njóta nýstárlegs leik-
rits í meðförum hins unga á'huga
fölks, sem hefur lagt á sig mik-
ið starf til undirbúnings sýning-
arinnar. Formaður Leikfélags
M.A. er Einar Karl Haraldsson.
Hagræðing
Þjóðviljinn segir í gær: „f síð-
ustu viku voru gagnrýnd hér í
blaðinu allmörg atriði úr ára-
mótaboðskap Bjarna Benedikts- t
sonar. í Timanum á sunnudag-
inn var birtist að vanda grein,
sem nefndist „Menn og málefni.“
Þar voru einir tveir dáikar ná-
kvæm endursögn á skrifum Þjóð
viljans — án þess þó að heim-
ildar væri getið — hver einasta
röksemd var þrædd af mikilli
vandvirkni, en orðalagi oftast
hnikað tii og óvíða til bóta.
Þetta er engin nýjung í fari Tim
ans. Þannig hefur hann aflað sér
stefnu, sannfæringar og rök-
semda um margra ára skeið, þótt
næmi hans hafi að visu reynzt
mismunandi mikið — það liðu
til að mynda margir mánuðir
þar til Timinn tók að endur-
prenta röksemdir Þjóðviljans
úr Alúmínmálinu. Mikið er tal-
að um fjárhagsvanda dagblað-
anna mn þessar mundir ©g ekki “
að ástæðulausu. Úr þeim vanda
mætti nokkuð draga með hag-
ræðingu. Því skal enn iirekað
gamait tilboð um að Tíminn fái
daglega til afnota stjómmála-
greinar Þjóðviljans gegn vægrl
þdknun. Þjóðviljinn fengi þá
kærkomnar aukatekjur og Tim-
inn gæti sparað sér fé með því
að fækka liðsafla sinuim svo að
ekki sé minnst á hinn óxnetan-
lega andiega sparnað.“
Þjóðviljinn og
íréttir frá Kína
Þjóðviljinn hefur sl. tvo daga
gert máttvana tilraunir til þess
að draga úr fréttum þeim, sem
borizt hafa um ógnaröldina t
Kína og reynir að láta líta svo
út, sem hér sé í rauninni um
mjög smávægilegar óeirðir að
ræða, sem ekki skipti verulegu
máli. Viðbrögð blaðsins við at-
burðunum í Kína eru nú ná-
kvæmiega þau sömu og þau voru
fyrr á árum, þegar tiðindasamt
var í Sovétríkjunum eða öðrum
kommúnistaríkjum. Reynt er að
draga úr hlutunum, gera frétta-
flutning alþjóðlegra fréttastofn-
ana tortryggilegan með ýmsum
hætti. En að ýmsu leyti er Þjóð-
viljinn betur til þess búinn að
skýra atburðina í Kina en mörg
önnur blöð, þegar af þeirri
ástæðu, að aðalstjórnmáiarit-
stjóri blaðsins hefur dvalizt í
Kína og kynnt sér málefni þess
og rætt við háttsetta kinverska
valdamenn á borð við Lin Stiao-
chi forseta landsins. Þessi mað-
ur hefur skrifað heila bók um
kynni sín af Kína eftir langt
ferðalag um þetta víðlenda land
fyrir tveimur árum, en af ein-
hverjum ástæðum virðist hafa
dregið úr ritgleði hans um kín-
versk málefni eftir að menning-
arbyltingunni var hleypt af
stokkunum. A. m. k. hefur hann
enga ti'lraun gert til þess að
skýra menningarbyltinguna eða
þá atburði, sem að undanförnu
hafa vakið heimsathygli og
benda til þess að mikið óróa-
ástand sé framundan í þessn
fjölmennasta ríki veraldar. Er
nú ekki kominn tími til að þessi
„Kínasérfræðingur" láti til sin
heyra um átök þeirra Maos og
Liu Shao-chi og skýri fyrir þeim
sem ekki hafa átt þess kost a®
ræða þrjár klukkustundir við
hinn síðarnefnda hvað raunveru
lega er á ferðinni í Kína. Telji
Þjóðviljinn að alþjóðlegar frétta
stofnanir fari rangt með það sem
þar gerist ættu að vera hæg
heimatökin að fó „réttar" skýr-
ingar hjá Magnusi Kjartans-
syni.