Morgunblaðið - 12.01.1967, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 1967.
BILALEICAN
FERÐ
SÍMI 34406
Daggrjöld kr. 300,00
og kr. 2,50 á ekinn km.
SENDUM
MAGIMUSAR
SKIPHOLTI21 SÍMAR 21190
eftirlokun simi 40381
siHI 1-44-44
\mm
Hverfisgötu 103.
Sími eftir lokun 31100.
LITLA
bílaleígon
Ingólfsstræti 11.
Hagstætt leigugjald.
Bensín innifalið í leigugjaldi.
Sími 14970
BIIALEIGAN
VAKUR
Sundlaugaveg 12. Simi 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
RAUOARARSTÍG 31 SÍMI 22022
ÖKUKEHNSIA
HÆFNISVOTTORÐ
ÚTVEGA ÖLL GÖGN
VARÐANDI BÍLPRÓF
ÁVALT NÝJAR
VOLKSWAGEN
BIFREIÐAR
35481
ftAGNAR TÓMASSON
HÉRAÐSDÓMSLÖGMAÐUR
Auiturstr/CTi 17 - (Silli a> Valdi)
sími 2-46-45
MAlflutnincur Fasteig n as ala
Almenn lögfrcoistörf
BÍLALEIGAN
Lækjarkinn 6, Hafnarfirði.
Sími 51056.
Ár „Danskurinn í Bæ“
í ritdómi um bók þessa,
segir svo m.a.: .Höfundi hefur
verið óhægt um vik að afla sér
heimilda úr mörgum áttum, svo
sem hann hefur áður gert við
ritun bóka af þessu tagi.“ —
Óhægt um vik ætti honum varla
að hafa verið venju fremur.
Honum hefur bara legið á, að
koma bókinni út á jólamark-
aðinn. Fjarri fer því, að skrá-
setjarinn, Guðmundur G. Haga-
lín, nái hinum létta græsku-
lausa ,tóni“ Adams, í bók þess-
ari, og hin spaugilegu bögu-
mæli hans er þar fá að finna.
Lýsingin á komu Adams til
Gaulverjabæjar minnir á ís-
landslýsingu frá 17. — 18. öld.
Að torfþök væru á bæjarhús-
um í Gaulverjabæ er rangt.
Hús voru þar járnvarin, utan
fjósið sem var með torfþaki.
Kirkjan á staðnum er með
stærri sveitakirkjum. En ef-
laust hefur hún verið rislág í
augum útlendii^gsins! Ekki fer
mikið fyrir háttvísi kvenfólks-
ins á bænum! Þær ryðjast
þarna hver á fætur annarri
inn á manninn, þar sem hann
stendur nakinn á gólfinu! Að
hr. Hagalín skyldi ekki geta
komið manninum í rúmið allan
þennan tíma!
Adam og Brynjólfur gengu
ekki til svefns í litlu herbergi.
— það var stórt —, svokallað
„langaloft". — Voru þar oft
ungmennafélagsfundir og
skemmtanir, áður en hús til
þeirra hluta kom til sögunnar.
— Um hornið á því varð að
að ganga til að komast inn í
herbergi hjónanna, en þar sváfu
systur Brynjúlfs. Þessar kring-
umstæður gefa þeim — í frá-
sögninni — tilefni til að reyna
að vera fyndnir!
Systir Brynjúlfs, sem minnst
er á var ekki 17 ára heldur 14,
— Hún var fædd árið 1910 —,
en Adam kemur á heimilið
1924.
Þá er það jarðarförin, sem
fer fram þegar . Adam er ný-
kominn. Hinn látni hét Jón
Gíslason, bóndi að Eystri-Lofts
stöðum, ekki Jón Jónsson.
Óviðkunnanleg er lýsingin á
sumum húsfreyjum sveitarinn-
ar, er við þessa athöfn voru.
Fatnaðurinn á þeim hékk og
„dinglaði druslulega, líkt og á
fuglahræðu í vindi, þegar þær
dröttuðust áfram“. Hefur nokk-
ur maður leyfi til, að viðhafa
slíkt orðbragð um sveitakonur,
og íslenzka búninginn?
Einar, sem þarna er nefndur,
var ekki Hallsson, heldur Guð-
mundsson. Ekki er annað vitað
en að hann hafi kunnað að
nota vasaklút. —
Oft komást menn í kröggur
í vetrarferð. Frásögn Adams
um hina erfiðu rjómaflutninga
til Reykjavíkur er ljóst dæmi
um það hvílíkt álag á menn
og skepnur slíkar ferðir hafa
verið. Og þær voru margar
farnar, þó ekki væri ætíð á að
skipa ágætis kraftkörlum á borð
við Adam. Sem betur fer
heyrir þessi þáttur, úr lífsbar-
áttusögu gömlu kynslóðarinnar
nú fortíðinni til.
Ólafur í Björk, sem kemur
við sögu í einni slíkri ferð, var
Gíslason, ekki Ólafsson, hálf-
bróðir Guðmundu símstjóra
við Ölfusárbrú, eins og hún
nefndist þá.
Adam rær til fiskjar með Páli
á Baugsstöðum, og segir fjör-
lega frá því. Má segja, að nokk-
ur fengur sé af þeirri frásögn,
því nú er fátt sem minnir á
hina fornu sjósókn þarna við
sandana. Hún heyrir liðinni tíð,
og lifir aðeins í minni eldri
manna.
Ólafur á Brúnastöðum, sem
nefndur er mun eiga að vera
Ólafur á Baugsstöðum Gunn-
arsson.
Að lokum óska ég Adam
Hoffritz og bókinni hans alls
velfarnaðar, — en skrásetjari
mætti gjarnan halda ofurlítið
í, við Skáldfákinn, er hann
ræðst í, að rita slikar endur-
minningar.
Ingibjörg Dagsdóttir".
'Á Ómar og allir hinir
Frá Danmörku er skrif-
að:
„Ég óska þér og öllum hjá
Morgunblaðinu gleðilegs árs og
þakka ykkur öllum fyrir gott
blað á liðnu ári. Þegar maður
er í útlegð eins og ég, kann
maður betur gott að meta en
áður og mér hefur aldrei líkað
Morgunblaðið eins vel og þann
tíma sem ég hefi verið erlend-
is. Nú sér maður vel, þegar
maður hefur erlend blöð til
samanburðar, að Morgunblaðið
er ótrúlega fjölbreytt af ekiki
stærra blaði að vera.
Ég stakk nú ekki niður penna
til að hæla eingöngu Morgun-
blaðinu heldur til að biðja þig
fyrir kveðjur og þakkir til
Ómars Ragnarssonar. Hann
kom fram í sjónvarpsþætti,
sem var útvarpað um öll fjögur
norðurlöndin á gamlárskvöld,
en Finnar stjórnuðu útsend-
ingum. t
Þessi þáttur var vægast sagt
einn sá lélegasti sem hér hefur
sézt og þá er mikið sagt. Ómar
var eini ljósi punkturinn í þess-
ari útsendingu. Hann var sá
eini sem eitthvað líf var í og
sýndi að hann er skemmtikraft-
ur í fremstu röð. Með látbragðs
leik sýndi hann um hvað text-
inn fjallaði, en fæstir munu
hafa skilið hvað hann sagði.
Hann féll sem sagt í þá gryfju
að fara að tala þessa málleysu,
sem einhver hefur fundið upp
á að kalla skandinavisku, en
enginn skilur hér um slóðir og
ókunnugir halda að sé íslenzka.
Það er grátlegt áð heyra,
þegar íslenzkir menn koma hér
fram í útvarpi eða sjónvarpi
með þessa máll'eysu. Ef þeir
hafa ekki vald á því tungumáli,
sem talað er í viðkomandi
landi, eiga þeir að tala sitt eigið
mál, íslenzkuna, og láta aðra
um að túlka. Við eigum ekki
að skammast okkar fyrir málið
okkar og eigum að halda þvl
á lofti þegar við komum fram
opinberlega sem fulltrúar hinn-
ar íslenzku þjóðar. Jafnframt
eigum við að auka og bæta
tungumálakennslu í skólunum
og leggja áherzlu á að kenna
réttan framburð og leggja
minni áherzlu á stilaæfingar og
málfræðistagl. Ef þetta verður
gert þá þurfum við hvorki
túlka éða „skandinavisku" til
að koma fram á Norðurlöndum.
Með beztu kveðju.
Á. J. J.“
Hárgreiðsla
Hárgreiðslusveinn óskast hálfan eða allan daginn.
Uppiýsingar í síma 12781 frá kl. 6—8 í kvöld og
næstu kvöld.
BLAÐBURDARFÓLK ji
1 EFTIRTALIN HVERFl:
VANTAR
Seltjarnarnes —
Skjólbraut
Skerjafjörður —
sunnan flugv.
Ásvallagata
Túngata
Lambastaðahverfi Njálsgata
Nesvegur
Meistaravellir
Seltj. - Melabr.
Vesturgata I
Kjartansgata
Meðalholt
Miðbær
FáJkagata
Snorrabraut
Laugav. - efri
Talið við afgreiðsluna, sími 22480
;RIor0tmí)Iði)ií*