Morgunblaðið - 12.01.1967, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR t2. JANÚAR 1967.
5
f GÆR ræddi Gunnar Gu®-
niundsson, framk væmda-st.jóri
Sinfóníuhljómsveitarinnar við
blaðamenn, vegna tónleika hljóm
sveitarinnar í kvöld. Eru það
áttundu tónleikar og þeir sið-
ustu á fyrra misseri.
í«á vakti Gunnar athygli á því
að tónleikar þeir, sem vera áttu
sunnudaginn 15. þ.m. flytjast til
22. vegna veikinda söngkonunn-
ar, sem þar átti að syngja. Hun
veiktist skyndilega og varð að
afturkalla allar sínar skuldbind
ingar. Þessi söngkona átti einn-
ig að syngja í kvöld. >á er einn-
ig kominn út bæklingur utm hljóð
og hljóðfæri og hefur Þorkell
Sigurbjörnsson tekið hann sam
an.
Stjórnandi tónleikanna í
kvöld er Bohdan Wodiczko, en
einleikari franski píanóleikar-
inn Jean-Paul Sevilla, sem leik-
Síðustu
misseris
- Jean Paul Sevilla
píanókonsertinn eft
ur fjórða píanókonsert Beet-
hovens. Auk þess verður á efnis
skránni Coriolan-forleikurinn
eftir Beethoven og ítalska hljóm
kviðan eftir Mendelssohn. Jean-
Paul Sevilla fæddist í Alsír og
hóf nám í píanóleik fimm ára
að aldri. Níu ára hélt hann sína
fynstu tónleika, og hefur síðan
bætzt mjög á hróður hans. Árið
1952 hlaut hann bæði fyrstu
verðlaun og heiðursverðlaun Tón
listarháskólans í París, og er
það mjög sjaldgæft. Árið 1959
hlaut hann fyrstu verðlaun í
alþjóðlegu Genfarsamkeppninni.
Hann hefur hlotið mjög góða
dóma; og er nú á leið vestur um
haf til hljómleikahalds þar.
Sevilla sagðist vera mjög á-
nægður með sinfóníuhljómsveit-
ina og sérstaklega hljómsveitar-
Gunnar Guðmundsson og Jean
tónleikar
í kvöld
leikur fjórða
r Beethoven
stjórann. -
Gunnar Guðmundsson sagði,
að starfsemi hljómsveitarinnar
hefði verið með mesta móti þetta
fyrra misseri. Haldnir hefði ver-
ið 18 tónleikar, þar af þrennir
utan Reykjavíkur, og hefði orð-
ið að endurtaka þrenna. Hins
vegar hefði það verið mikið á-
fall fyrir hljómsveitina, hve að-
só'kn að tónleikum fyrir fram-
haldsskóla hefur verið dræm.
Um ástæðuna kvaðst Gunnar
ekki vita fullkomlega, en taldi
líkleigast, að orsökin væri sú, að
enginn framhaldsskólanna hefði
viljað gefa frí, sem svaraði ein-
um klukkutíma síðdegis til að
nemendur gætu sótt tónleikana.
Hins vegar hefðu tónleikar
fyrir barnaskólana verið óbland-
ið ánægjuefni; aðsókn mikil og
-Paul Sevilla.
fyrra
þurft að endurtaka þrisvar þá
tvennu tónleika, sem haldnir
voru. >á sagði Gunnar frá því
að út væri kominn bæklingur,
sem fjallaði um hljóð og hljóð-
færi og héti „Hljómsveitin okk-
ar“. Þorkell Sigurbjörnsson hef
úr tekið bæklinginn saman, og
er ætlunin að söngkennarar geti
notfært sér hann til kennslu, en
kennarar hafa kvartað undan
því að hafa ekkert í höndunum
til slíkrar kennslu.
Börn í Reykjavik geta keypt
bækílinginn í Bókaverzlunum
Lárusar Blöndal (Skólavörðu-
stíg og Vesturveri), Sigfúsar Ey-
mundssonar og Bókaverzlun fsa
foldar. Börn utan Reykjavíkur
geta fengið bæklinginn sendan
frá Ríkisútvarpinu. Útsöluverð
bæklin.gsins er aðeins tuttugu og
fimm krónur. Auk hans hefur
Sinfóníuhljómsveitin og Rikis-
útvarpið látið útbúa segulband,
þar sem öll hljóðfæri hljóm-
sveitarinnar eru kynnt, og munu
allir barna- og unglingaskólar
landsins geta fengið eitt eintak
af bandinu endurgjaldslaust til
notkunar við kennslu.
Aðalbjörn Sigfnsson
P. 25. 7. 1898. D. 1. 1. 1967.
Á NÝÁRSDAG lézt á heimili
okkar Aðalbjörn Sigfússon, ný-
kominn ffá að stjórna kirkju-
kórnum í Árbæjarkirkju.
Hann átti við vanheilsu að
stríða um langan tíma, en bar
sinn sjúkdóm af mikilli karl-
mennsku.
Með Aðalbirni er fallinn í val
Inn einn bezti og ötulasti forvíg-
ismaður okkar á sviði félags-
mála. Söngurinn og hljómlistin
voru honum sem heilagt mál.
Hann stjónaði hér karlakór, en
síðar kirkjukór fyrir Árbæjar-
kirkju. Símstöðvarstjóri og póst
maður var hann um áratoil, hjálp
samur og greiðvikinn svo af bar.
Aðaltojörn var sannarlega líí-
ið og sálin í félagsmálum olck-
ar, reiðutoúinn til hjálpar og
$tuðnings þar sem með þurfti.
Einn af stofneníium F.S.Á.,
Framfarafélags Seláss- og Ár-
bæjarhverfis, árið 1954, og vara-
formaður síðasta árið sem hann
íifði.
Undirritaður, sem vann með
honum að ýmsum málum á veg-
wm F.S.Á., finnur gjörla hvað
við höfum misst.
Við fráfall svo frátoærs félaga,
iem hann var oklkur öUum.
Börnunum var hann bezti vinur.
Með síðustu verkum hans var
eð vinna að jólatxé á vegum fé-
lagsins, þar var hann heill og
éskiptur, eins og í öllu sínu
■tarfi.
Við þökkum þér allt samstarf
Ið á liðnu/m árum.
Viissulega gefur það lífinu
gildi að fá að starfa í blíðu og
■tríðu að góðum málum fyrir
*itt byggðarlag, því munum við
sýna minningu Aðalbjarnar
mestan sóma með því að standa
saman í bjartsýnni baráttu fyrir
hverju jákvæðu málefni.
Við vottum börnum og syst-
kinum og öllum öðrum áustvin-
um hans, okkar innilegustu sam
úðarkveðjur, biðjum guð að
blessa miningu hans.
Guðmundur Sigurjónsson.
Kveðja frá söngkór Ártoæjar-
kirkju, Reykjavík.
'Horfinn vinur, — horfinn,
hryggð í barmi svellur,
hnípinn hugurinn.
Heyrum ennþá ómirin
unaðsfagurt hljóma
við messu síðasta sönginn
Oft þú hafðir áður
æft með kórnum sönginn
stjórnað styrkri mund.
Minningar því margar
mætar áfram geymast
um samverunnar sólskinsstund.
Hvers manns vildir vanda
viljasterkur leysa,
allra gleðja geð.
Tlarmar því þig horfinn
hópur vina þinna
og vel þig kveður virðing með,
Þakkir fram við færum
fyrir unnin störfin
mæt á meðal vor.
Ástvinina alla
æðstur Drottinn blessi
og leiði sérhvert lifsins sp>or.
Ó.A.
I HAFNARFIRÐI
2ja herbergjá íbúð á jarðhæð í Kinnahverfi.
Útborgun 250 — 300 þúsund.
3ja herbergja íbúð á II. hæð við Lækjargötu.
Stór lóð. 2 íbuðir í húsinu.
Einbýlishús 5 herbergi, eldhús, bað og köld
geymsla í Kinnahverfi. Bílskúr.
Einbýlishús 4ra hex-bergja við Háabarð.
Fallegt útsýni.
HÖFUM KAUPENDUR
að íbúðum og einbýlshúsum í Hafnarfirði.
Sími 21735
SKIP & FASTEIGNIR
Austurstraeti 18 TII haeð
Eftir lokun.
36329
Sendisveinar óskast
á afgreiðslu blaðsins.
Vinnutími fyrir hádegi.
Landssamband
vantar starfsmann
hálfan daginn
Landssamtök með skriístofu í Reykjavík
vantar starfsmann 3—4 tíma á dag, þarf
að geta annast ensk bréfaviðskipti. Auk
nafns, heimilis, síma og fæðingardags
skal getið uppl. um menntun og fyrri störf
og þær sendar afgr. Mbl. merkt: „8810M.
Raðhús
við sjávarsíðuna
Höfum til sölu óvenju skemmtileg raðhús á tveimur
hæðum á 700 ferm. eignarlóðum ( sjávarlóðir)
á Seltjarnarnesi.
Á 1. hœð eru 4 herb., ytri og innri forstofa, bað,
geymsla, þvottahús, kyndiklefi og innbyggður bíl-
skúr. — Á 2. hæð tvær stofur með kaminu, eldhús,
skáli, gestasnyrting og tvennar óvenju rúmgóðar
svalir. Mjög fagurt útsýni.
Húsin seljast fokheld með frágangur þaki og múr-
húðuð og máluð að utan.
Teikningar og' allar nánari upplýsingar liggja fyrir
á skrifstofunni.
Skipa- og íasteignasalan
Fyrsta sending 1967
Alullarefni, ull + mohair, ull og gcrfiefni.
★
Harry’stweed, tweed-pepita. Wipcord-
kambgarn, flaunel og fleira.
★
Einlit köflótt, frönsk munstur, skozk-
munstur í pils, buxnadragtir og kjóla.
★
Einnig nýir litir af ódýru ullarefnunum
í pils og táningadragtir.
Hringver
AUSTURSTRÆTI.
Efnisprufur til sýnis í Bíiðagerði 10.