Morgunblaðið - 12.01.1967, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 1967.
Utlendingur
sem talar ensku, frönsku, ítölsku,
spænsku og portúgölsku óskar eftir at-
vinnu. Hefur unnið í 2% ár við skrifstofu-
störf. Nánari upplýsingar gefnar í síma
50487 eftir kl. 5.
Verzlunin
opnar aftur
snemma á morgun (fimmtudag)
í nýjum húsakynnum að
Suðurlandsbraut 10
Eins og í Lækjargötu 2 verða sömu gæða-
vörurnar og þjónustan eins og áður.
IMýir ávextir
ávallt ferskir og kaldir.
IMiðursoðnir ávextir
JUICE í flöskum og dósum.
Gosdrykkir kaldir
Sælgæti
daglega nýtt.
Konfektkassar
ávallt í miklu úrvali.
Tóbaksvorur
allar tegundir, ávallt fyrirliggjandi sem
fáanlegar eru í Tóbakseinkasölunni hverju
sinni.
Kexvörur
allar beztu tegundir ásamt
K|eldsen4s kökum
IMýlenduvörur
Hreinlætis- og snyrtivörur
Ronson gaskveikjarar
o. fl. tegundir ásamt tilheyrandi.
Reykjarpípur
glæsilegt úrval allar helztu tegundir.
Tóbaksveski
og allt annað tilhevrandi
FYRIK PÍPUMENN.
HJARTARBIJÐ
Suðurlandsbraut 10 — sími 15329
(áður Lækjargötu 2 — Næg bílastæði).
— Vistgjöld
Framhald af bls. 14.
um vilja ríkisstjórnarinnar til
aðgerða vegna vaxandi dýrtíð-
ar.
En þá var hinsvegar enn ekki
orðið ljóst hvaða leiðir væru
færar á því sviði, hvort hugsan
legt væri t.d. að færa niður
verðlag.
í „frétt“ Þjóðviljans segir að
lokum orðrétt:
„Sjómaðurinn taldi það mik-
inn galla á rekstri Hrafnistu að
þar væri ekki _ nema nokkur
hluti vistmánna sjómenn og sjó
mannskonur, en við allan áróð-
ur fyrir happdrætti DAS væri
einvörðungu slegið á þá strengi
að Hrafnista ætti að vera dvalar
heimili sjómanna. Taldi hann að
oft yrðu sjómenn að bíða lengi
eftir plássi þar, vegna þess að
dvalarheimilið væri fyllt af fólki
sem ekki hefði verið ætlazt til
að þar yrði“.
Erfitt er að sjá hvaða tilgangi
slíkur fréttaflutningur á að .
þjóna, nema um illvilja sé að |
ræða og vísvitandi tilraun til að I
skaða þær nú skertu tekjur sem
sjómannasamtökin hafa af happ
drætti DAS til uppbyggingar
Hrafnistu.
Vegna þessa vill stjórn Hrafn
istu taka eftirfarandi fram: í
reglugerð fyrir Hrafnistu segir
að tilgangur stofnunarinnar sé
að taka til vistar:
a. sjómenn og sjómannskonur,
er sökum elli- eða örorku
þurfa á vist að halda.
b. öðru öldruðu fólki, ef rúm
leyfir.
Fyrst eftir að Hrafnista tó'k
til starfa var ekki hægt að full-
nýta fyririggjandi húsnæði, ef
a-lið hér að framan hefði einum
verið fylgt. En full nýting þess
húsnæðis, sem er fyrir hendi, er
eitt grundvallarskilyrði hag-
kvæms reksturs.
Nú og hin síðari ár er ekki
nema eðlilegt að einhverjir séu
óþreyjufullir eftir vist að Hrafn
istu, því við höfum í langan
tíma haft allt að 300 umsækjend
ur á biðlista, þrátt fyrir stöðug-
ar byggingarframkvæmdir síð-
ustu ára.
Fram til þessa hefur ekki ver-
ið krafizt að gamall sjómaður
Til leigu
í Miðborginni, 3ja herb. íbúð, gegn fæðissölu til
tveggja pilta. — Tilboð er greini fjölskyldustærð
ásamt símanúmeri, leggist inn á afgr. Mbl. fyrir 15.
þ.m., merkt: „íbúð 1967 — 8862“.
Verkamannafélagið
Dagsbrún
Tillögur
uppstillinganefndar og trúnaðarráðs um
stjórn og aðra trúnaðarmenn félagsins
fvrir árið 1967 liggja frammi í skrifstofu
félagsins frá og með 12. janúar.
Öðrum tillögum ber að skila í skrifstofu
Dagsbrúnar fyrir kl. 6 e.h. föstudaginn
13. þ. m. þar sem stjórnarkjör á að fara
fram 21. og 22. þ. m.
KJÖRSTJÓRN DAGSBRÚNAR.
færði sönnur á einhvern lág-
marksstarfsaldur. Hins vegar
hefur alltaf hin síðari ár, er
nýtt húsrými hefur verið tekið
í notkun að Hrafnistu, þess verið
gætt, þegar ekki hefur tekizt
að fullnægja umsóknum, að
auk aldurs umsóknar væri tekið
til greina hve lengi viðkomandi
aðili hefði stundað sjómanns-
störf. Hvort hlút sjómanna hafi
ekki verið haldið, sést bezt á
því, að síðast er könnun fór
fram á innbyrðis skiptingu vist
mánna, reyndust karlar um
! helmingur vistmanna og saman-
| lögð tala þeirra karla er ekki
| höfðu stundað sjó og þeirra
j kvenna sem ekki voru sjómanns
jekkjur aðeins nema 6—7% af
heildarvistmannatölu Hrafnistu.
Og hvaða hópur er þetta?
Méðal þeirra eru ekkjur, sem
áttu syni sína að fyrirvinnu, er
voru sjómenn, en höfðu drukkn
að eða látizt af slysförum á
sjó. Ennfremur ekkjur með 4
—6 syni á lífi, alla starfandi sjó
menn, þótt eiginmaðurinn hafi
ekki gegnt þeim starfa.
í þessum takmarkaða hóp eru
ennfremur þeir sem velunnarar
okkar samtaka hafa beðið fyrir,
I velunnarar sem hafa jafnvel um
I áratuga skeið stutt uppbyggingu
Hrafnistu með háum fjárfram-
lögum og fórnfýsi í sjálfboðaliðs
starfi.
Þá eru þar ennfremur þeir,
sem beðið hefur verið fyrir af
einstaklingum, þ.á.m. aðstand-
endum Þjóðviljans, og Reykja-
víkurborg. í flestum tilfellum
er hér um að ræða algjöra ein-
stæðinga, sem engan eiga að og
hafa oft og tíðum búið við skil-
yrði, sem eru með öllu ómann
sæmandi, svo ekki sé meira sagt.
Nokkrir slíkir einstaklingar
hafa fengið inni á Hrafnistu. Óll
íslenzka þjóðin hefur stuðlað að
uppbyggingu Hrafnistu með vel-
vild sinni og stuðningi við happ-
drætti DAS, gjöfum og fjárfram
lögum.
Stjórn samtaka okkar hefur
haft þá skoðun, að þar á móti
hlyti að koma sjálfsögð þjónusta
við þjóðfélagið. Sú — að hlaupa
undir bagga af takmarkaðri getu
okkar og veita húsaskjól sín síð
ustu æfiár, einstaklingum, sem
hart hafa orðið úti í lífsbar-
áttunni og eiga hvergi höfði sínu
að halla.
Annað væri ekki sæmandi
fyrir þau samtök, sem að þess-
ari starfsemi standa, enda þótt
Þjóðviljinn og „fréttamenn“
hans séu á annarri skoðim.
Fleira mætti um þessa „frétt“
Þjóðviljans segja, en hér skal
staðar numið.
Stjóm Sjómannadags
ráðs og Hrafnistu.
SÚTUNARVERKSTÆÐI
BOGA JÓHAIMIMESSOIMAR
er til sölu. Allar helztu vélar verkstæðisins eru svo
til nýjar. Til greina kemur að selja vélarnar sér-
staklega. Tilboð séu send undirrituðum, sem veitir
nánari upplýsingar (þó ekki í síma).
HORÐUR EINARSSON, IIDL.,
Aðalstræti 9.
KJÖTBUÐ SUÐURVERS TILKYNNIR:
Tökum að okkur veizlur, kalt borð, smurt brauð,
snittur, kokteilsnittur og brauðtertur.
KJÖTBÚÐ SUÐURVERS, horni Stigahlíðar og
Hamralilíðar. — Sími 35645. - Geymið auglýsinguna.