Morgunblaðið - 12.01.1967, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 12.01.1967, Qupperneq 24
Helmingi útbreiddara en nokkurt annað íslenzkt blað FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 1967 Lang stærsta og fjölbreyttasta blað landsins Úr afmælissýningu Leikféiagsins í gærkvöldi. Helga Bachman í hlutverki Höllu. í fanginu heldur hún á Tótu, sem Margrét Pét- ursdóttir leikur. Elzta leikkonan og dyravörður hyllt d afmælissýningu Leikfélagsins Tilraunir með geislun á fiski Sérfræðingar koma frá Vín IÆIKFÉLAG Reykjavíkur hélt í gær upp á 70 ára afmæli sitt með frumsýningu á Fjalla-Eyvindi eftir Jóhann Sigurjónsson. Hófst sýningin kl. 8.30 fyrir fullskip- *iðu húsi og er leiknum lauk kl. 11.30 bárust Leikfélaginu heilla- cskir á þessum tímamótum og gjafir frá mörgum aðilum. Hátíð inni var ekki lokið er blaðið fór í prentun og verður nánar sagt frá henni síðar. 1 tilefni af afmælinu ætluðu Leikfélagsmenn að hylla sérstak- lega tvo gamla starfsmenn fé- lagsins, leikkonuna Guðrúnu Indriðadóttur og Hafliða Bjarna- son, dyravörð. Guðrún var fyrsta Hallan í Fjalla-Eyvindi hjá Leikfélaginu. Hún er elzta núlifandi leikkona félagsins, komin á níræðisaldur. Hafliði Bjarnason, dyravörður, hefur starfað hjá Leikfélaginu í 42 ár og aðeins misst úr 7 sýn- ingar allan þann tíma. f AiPÍRiÉLMiÁiNUÐI kemur tiil fs- landis sérfræðinganefnd frá Kjarnorkustofnuninni í Vínar- (bórig. iÞetta eru vísindamenn, sem ætta að gera hér tilraunir með geislun á fiski, en geislun á matvælum er nú mjög beitt í tilraunaskyni í heiminum, til að SÍLDARBÁTAR.NIR tveir, sem gerðu tilraun með að sigla til Þýzkalands beint af síldarmið- unum fyrir austan með nýja síld, seldu farminn í gær og fyrradag fyrir mjög gott verð. Gísli Árni seldi 156.2 lestir í fyrradag fyrir 84.291.43 mörk, sem er um kr. 5.80 fyrir kg. Og Þorsteinn seldi í gær 122.2 lestir fyrir 68.997.40 mörk og fékk heldur hærra meðalverð fyrir kg. eða kr. 5.88. Skipstjórarnir á þessum síldarskipum eru bræðrasynir, Eggert Gíslason á Gísla Árna og Guðfbjörn Þor- steinsson á Þorsteini. Gæði síldarinnar í bátunum þóttu sérlega mikil, og fékk hún góða dóma í Þýzkalandi, enda veiddu bátarnir hana á einni nóttu um 100 sjómílur út af Gerpi og sigldu með hana á rúm- um 3% sólarhring til Þýzka- lands. Mbl. fékk þessar fréttir stað- festar hjá Marteini Jónassyni frá útgerð Þorsteins og ræddi lícil- lega við hann um slíka síldar- Um 10 millj. fyrir stólþilið BÚIÐ er að taka tilboði brezka fyrirtækisins British Steeling Corporation, sem bauð í stálþilið er gera á í fyrsta áfanga Sundahafnar. Hljóðaði tilboð brezka fyrir- tækisins upp á 514 millj. fob- verð fyrir stálþilið og 1,5—1,7 millj. kr. fyrir annað efni. Mundi það þá kosta í allt um 10 millj. kr. komið hingað með tollum. lengj.a geymekitíma matarins og eyða skaðlegum efnum og rotn- unarefnum, og telja sumir það vera það geymsluform á mat- vættum, sem koma skal^ Nefndin kemur til íslands á vegum sjávarútvegsmálaráðu- neytisins og Rannsóknarstofnun- sölu báta beint af miðunum. Sagði hann að til að geta siglt beint af miðunum með síldar- farm til sölu erlendis þurfi bát- arnir að vera undir það búnir. Skipin þurfi að hafa lestarn- ar hreinar og fínar, hafa nægilegt magn af ís meðferðis til að ísa farminn á leiðinni og vera með salt um borð, sem samsvarar .5% af væntanlegum farmi. Og hiliur þyrftu að vera í stíunum. SÍLDARBÁTURINN Gullfaxi lenti í óskemmtilegu ævintýri skömmu eftir að hann kom aftur austur á miðin eftir áramótin. Var báturinn að kasta fyrstu nótt ina fyrir austan, er þýzkur tog- ari sigldi framhjá. Skipsmenn veittu því enga sérstaka athygli, þangað til hann fór svo nærri að hlerinn í trollinu bakborðs- megin lenti í nót Gullfaxa. Vissu skipverjar ekki fyrri til en bát- urinn snarsnerist um hálfan hring, því hann var með nýja og sterka nót, sem aldrei ætlaði í sundur, eins og Þorleifur Jónas- son, útgerðarmaður bátsins, orð- aði það, er við spurðum hann nánar um þetta. Svo rifnaði nótin, tættist illa, og báturinn losnaði. En við þetta ar sjávanútvegsins og mun hafa samvinnu við dr. Þórð Þoitojarn arson og aðstöðu í Rannsóknar- stofnuninni. Var í fyrstu ætlun- in að visindamennirnir firá Vín- arfborg kæmu sl'. 'haust, en heppi- legra þótti að þeir yrðu hér þeg- ar vertíðin er komin í gang og mest um fisk. Á ráðstefnu, sem Alþjóða kjarnorkustoifnunin hélt í júní í sumar í Karlsxuihe og í Vínar- borg um geisilun á mat, tölldu margir ræðumanna að hægt væri að lengja geymslutíma fisksins að mun „á hillunum’', eins og það var orðað með því að nota geislun. Sumir kváðu tilraunir í sínum heimalöndum hafa gefizt vel, en aðrir töldu áð það sem mest stæði í vegin- um fyrir þessari geymsluaðferð væri breyting á bragði við geist- unina. Síldin f GÆRKVÖLDI er Mbl. hafðl samband við síldarradioið á Norð firði höfðu 3 bátar kastað. Gekk þeim erfiðlega og ekki leit út fyrir veiðiveður í nótt. hafði hann lent yfir konkateininn og þurfti að fá aðstoð annars báts til að losa sig. Var síðan siglt inn til Norðfjarðar, þar sem gert var við nótina, sem var illa farin og varð að því tveggja sólarhringa töf. Nótin var ekki tryggð fyrir þessu, enda sagði Þorleifur að næturnar fengjust ekki tryggðar fyrir slíku. Ekki höfðu skipverj- ar nafnið á þýzka togaranum, höfðu ekki veitt honum svo mikla athygli og hann var kom- inn framhjá, er hlerinn skall I nótinni. Eftir það vissu þeir ekki hvaðan á sig stóð veðrið, meðan báturinn snerist svo snögglega og togarinn hvarf þeim. Skip- stjóri á Gullfaxa er Guðmunduir sonur Þorleifs útgerðarmanns. Ronnsókn d reikningsviðskiptum vegno útOuttrn sjúvorufurða ÚTVEGSBANKI íslands sendi ---------- Síldarbátarnir seldu fyrirkr. 5.80-5.88 kg. Síldarbáturinn tók að snarsnúast Þýzkur togari sigldi i notina nýleg a sakadómaraembættinu skýrslu og bað um athugun á reikningsviðskiptum F r i ð r i k s Jörgensens, útgerðarmanns vegna útfluttra sjávarafurða. Staðfesti FRJÁLS INNFLUTNINGUR AUKINN — en vörur fyrir um 20 millj. teknar af frílista til verndar veiöarfæraiðnaði Ólafur Þorláksson, sakadómari, að hann hefði fengið málið til meðferðar og mundi það rann- sakað. Rannsóknin beinist að því hvernig skil standi til innlendra framleiðenda af viðkomandi út- flutningi. En þar mun vera mest um að ræða fiskimjöl, lýsi og eitthvað af freðfiski. 2 innbrot TJALDI var stolið úr Vöruflutn- ingamiðstöðinni í fyrradag þeg- ar innbrot var framið í húsið, einskis annars var saknað. Einn- ig var stolið peningakassa úr mannlausri íbúð, sem skilin hafði verið eftir ólæst meðan íbúarn- ir brugðu sér eitthvað frá. Lítið var fémætt í kassanum. RÍKISSTJÓRNIN hefur ákveðið að leyfa frjálsan innflutning á nokkrum vörutegundum sem fram að þessu hafa verið háðar innflutnings- og gjaldeyrisleyf- um. Eru þessar vörutegundir óbrennt kaffi, klíð, krossviður, spónlagður trjáviður, holplötur, einfalt gler og rafhreyflar. Þeg- ar þessi breyting tekur gildi er frjáls innflutingur á vörum sem svarar til 86,4% heildarinnflutn- ingsins 1965. Þá á að taka út af frílista veið- arfæri úr gerviefnum fyrir tog- ara og togbáta, en innflutnings- verðmæti þessara vörutegunda hefur numið um 20 millj. kr. árlega. Er þetta gert í þeim tii- gangi að vernda innlendan veið- arfæraiðnað, en Hampiðjan hf í Reykjavík hefur nú aflað sér fullkominna véla til þess að ann- ast framleiðslu á veiðarfærum fyrir togveiðar og mun geta full- nægt eftirspurn. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að leyfa frjálsan innflutning á nokkrum vörutegundum, sem að þessu hafa verið háðar inn- flutningsr og gjaldeyrisleyfum. Vérður nú gefinn frjáls innflutn- ingur á vörum, sem fluttar voru inn fyrir 182,4 millj. kr. cif árið 1965, en það svarar til 2,2% heildarinnflutningsins það ár. Jafnframt verða teknar af frílista vörur, sem fluttar voru inn fyrir í kringum 20 millj. kr. cif. á ár- inu 1965 en það svarar til 0,3% heildarinnflutningsins á því ári. Er þessi breyting tekur gildi er frjáls innflutningur á vörum, sem svarar til 86,4% heildarinnflutn- ingsins 1965. Mikilvægasta vörutegundin, er nú bætist á frílista er óbrennt kaffi en það var flutt inn fyrir 81,2 millj. kr. 1966. Hefur sú vörutegund verið háð innflutn- ings- og gjaldeyrisleyfum vegna viðskipta Islands við Brasilíu. En útflutningur okkar til Brasil- íu hefur dregizt stórlega saman undanfarið og verið mun minni en innflutningur okkar þaðan. Þykir því ekki ástæða til að binda kaftfiviðskiptin átfram ein- göngu við Brasilíu. Aðrar vöru- tegundir sem nú verður leyfður frjáls innflutningur á eru þessar: Klíð, krossviður og spónlagður trjáviður, holplötur, einfalt gler og rafihreyflar. Vörur þær sem teknar verða af frílista eru þessar: Fiskinet úr polyetihylen og polypropylen. Telur ríkisstjórnin nauðsynlegt að takmarka innflutning á þess- um veiðarfærum til þess að vernda íslenzkan veiðarfæraiðn- að. Auk breytinga á frílista eru einnig gerðar nokkrar breyting- ar á inntflutningskvótum. Eru nokkrir kvótar rýmkaðir en kvótar fyrir fiskilínur og kaðla verða minnkaðir. Er þar einnig um að ræða ráðstöfun til vernd- ar íslenzkum veiðarfæraiðnaði. Ný reglugerð vegna breytinga á frílista og auglýsing um hina nýju innflutningskvóta verður birt í næsta Lögbirtingaiblaði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.