Morgunblaðið - 22.01.1967, Blaðsíða 1
32 síður og Lesbók
54. árg. —18. tbl.
SUNNUDAGUR 22. JANUAR 1967
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Breytingar a stjorn-
inni í Suöur Vietnam
Saigon, 21. jan. (AP)
IÁKL.EGT er talið að gerðar
verði breytingar á ríkisstjórninni
í Suður Vietnam þegar Ky mar-
skálkur, forsætisráðherra lands
ins, kemur heim úr heimsókn
sinni til Ástralíu og Nýja Sjá-
lanðs.
Ekki er vitað með vissu hverj
ar breytingar verða gerðar, en
búizt við að forsætisráðherra
geri hvort tveggja að skipa í
laus ráherraembætti og skipta
Brezkir
rithöiundor
mótmælu
London. 21. jan. AP.
NOKKRiR brezkir rithöfund-
ar og sérfræðingar um erlenð
málefni hafa mótmælt þeirri
skoðun, sem þeir segja ríkj-
andi, að meirihluti brezkra
menntamanna sé andvígur
stefnu og stöðu Bandaríkj-
anna í Vietnam. Eru þarna á
meðal nokkrir ungir rithöf-
undar, til dæmis Kingsley
Aims.
Menn þessir hafa skrifað
dagblöðunum brezku bréf,
þar sem segir, að mikið af
þeirri gagnrýni sem fram
komi á stefnu Bandaríkj-
anna sé illgirnisleg. Mikið af
henni eigi rætur að rekja til
vafasamra upplýsinga, sem
haft hafi áhrif á áhrifagjarna
menn, sem ekki hafi til að
bera nægilega gagnrýni.
Aims og félagar hans segj-
ast mæla fyrir munn miklu
víðtækari skoðanahóps en
þeirra, sem standa að því að
endurvekja andbandiarískan
áróður í BretlandL
Meðal annarra, sem skrifa
undir bréfin, eru Robert
Conquest, Edmund Crispin,
Iain Hamilton, Anthony Hart-
ley, Bernard Levin, Simon
Raven, David Rees og Pere-
grine Worsthorne.
um ráðherra I öðrum. Embætti
aðstoðar utanríkisráðherra losn-
aði þegar fráfarandi ráðherra og
einn nánasti ráðgjafi forsætis-
ráðherrans, Bui Dieom, var skip-
aður sendiherra í Bandaríkjun-
um. Er talið að Dinh Trinh Ch-
inh, sem á sæti í ríkisstjórninni,
eða Nguyen Ngoc Linh, yfirmað
ur hinnar opinberu fréttastofu
landsins, verði skipaðir i þetta
embættL
Þá er talið að yfirmaður lög-
reglunnar í landinu, Nguyen
Ngoc Loan hershöfðingi, taki
sæti í ríkisstjórninni, sennilega
sem öryggismálaráðherra. Hefur
hershöfðinginn valdið nokikrum
deilum vegna lögreglustarfanna,
og hlotið gagnrýni opinberra
starfsmanna, aðallega i suður-
héruðum landsins.
Fleiri breytinga mun von, en
ek'ki verður neitt látið uppi um
hverjar þær verða fyrr en Ky
forsætisráðherra keonur heim
hinn 27. þ.m.
Kínverskur drengur horfir á brúðuleiksýningu, sem hann vinnur við í Ungverjahöllinni í Shang-
hai. Er verið að sýna kínverska verkamenn kyrkja Johnson, Bandaríkjaforseta. — Mynd þessa
tók danskur blaðamaður, Jens Bjerre, er hann var á ferð i Kína nú fyrir skömmu.
HAFT EFTIR LIN PIAO AÐ
BORGARASTYRJÖLD GEISI
Sagt að fylgismenn IVIao missi tökin í Kanton
Tókíó, Peking, 21. jan.
— NTB —
Ó ÞÆR fregnir berast nú frá
Kína, að á veggspjöldum
Rauðu varðliðanna í Peking
sé haft eftir Lin Piao, land-
varnarráðherra og öðrum
helzta ráðamanni landsins,
að þar geisi nú borgarastyrj-
öld. Standi þar á veggspjöld-
um: „Það geisar alger borg-
arastyrjöld. Við verðum að
berjast af heilum hug en
Rektor Berkeley
háskóla vísað frá
— efiir ágreining við Ronald
Reagan rikisstjóra Kaliforníu
Berkeley 21. jan. - AP-NTB:
MIKIÐ öngþveiti varð í Berke-
ley háskóla í morgun, þegar það
fréttist að rektor skólans, dr.
Clark Kerr, hefði verið vikið
frá störfum. Hefur að undan-
förnu verið uppi ágreiningur
milli Kerrs og hins nýja ríkis-
stjóra Kaliforniu, kvikmyndaleik
arans Ronalds Reagans.
Ágreiningurinn er fyrst og
fremst út af fjármálum, en stjórn
mál munu eiga þar einhvern
þátt. Reagan er sagður hafa
lýst því yfir í kosningaræðu í
haust ,að Kerr hefði leyft and-
stæðingum sínum í stjórnmálum
að hafa uppi stjórnmálastarfsemi
í skólanum.
Fjármáladeilan á rót að rekja
til þess, að fyrirsjáanlegur er
400 milljón dollara halli á fjár-
lögum Kaliforníu og er það hlut
verk Reagans að finna leiðir til
að bæta þar úr. í því skyni hefur
hann m.a. ákveðið að innleiða
skólagjöld í Berkeley, sem ekki
hefur tíðkazt þar fyrr. Því var
Framtha'ld á bls. 31
jafnframt reyna að forðast að
beita valdi, nema brýn á-
stæða sé til“.
Ó Þá herma fregnir frá Hong
Kong, að fylgismenn Mao
Tse-tungs séu að verða undir
í baráttunni þar. Hafi birzt
þar myndir af Mao, afmynd-
aðar á ýmsan hátt, aðrar hafi
verið rifnar niður og her-
menn og lögregla skeyti því
engu þótt verkamenn herji á
Rauðu varðliðunum.
Ó í frétt þessari segir, að
verkamenn séu nú hættir
að óttast flokksyfirvöldin
eins og þeir áður gerðu, and-
staða gegn Mao fari vaxandi
innan lögreglu og hers og
fylgi hans dvinandi meðal
almennings.
Ferðamenn, sem koma frá
Kanton, segja frá æ fleiri atvik-
um, þar sem myndir af Mao og
veggspjöld með tilvitnunum
í bækur hans hafa verið tekin
niður, verkamenn sýni þreytu
sína á Rauðu varðliðunum og
andstöðu í vaxandi mæli og hafi
komið til harðra átaka þar, sem
varðliðarnir urðu undir.
Haft er eftir konu einni, sem
nýlega kom til Hong Kong, að
Rauðir varðliðar hafi komið í
skrifstofu verksmiðju einnar í
borginni og krafizt þess að fá
skoða hana. Hafi þá þyrpzt að
þeim skrifstofufólk og verka-
menn með hamra, skrúfjárn og
tangir að vopnum og hrakið þá
burt hið skjótasta. Einn maður
hafi verið drepinn í átökunum
og nokkrir meiðzt, en lögregla
og hermenn hafi engu sinnt
hrópum varðliðanna á hjálp.
Annar maður segir frá ungl-
ingasveitum, sem fari eftir Rauðu
varðliðunum og rífi jafnóðum
niður myndir og spjöld, sem þeir
hengi upp. Þá berast frengir
um myndir af Mao sem afbak-
aðar hafi verið með ýmsum
hætti, stundum hafi verið teikn-
að á hann skegg, stundum svart-
ur leppur fyrir auga hans, sér-
staklega skerptar útlínur tann-
anna, og einn kveðst hafa séð
mynd af Mao með hring í nefi.
IVIorð að yfirlögðu ráði
Panmunjom, 21. jan. NTB:
YFIRMAÐUR gæzluliðs S.Þ. í
Kóreu hélt því fram í dag, að
verknaður N-Kóreumanna, er
þeir skutu 200 sprengikúlum úr
strandvirki á S-kórenskan varð-
bát sl. fimmtudag og sökktu
honum með þeim afleiðingum
að 40 menn biðu bana, hafi verið
samvizkulaust morð af yfirlögðu
ráði.
Yfirmaðurinn sagði þetta á
fundi hjá vopnahlésnefndinni í
Kóreu. Sagði hann að verknað-
inn væri á engan hátt hægt að
afsaka með gagnásökunum. Varð
báturinn hafi verið 2 sjómílur
utan við hlutlausa svæðið og að
eins verið að fylgja til hafnar
S-kóreskum fiskibátum.
Chung Kuk-puik hershöfðingi
frá N-Kóreu sagði að varðbátur
inn hefði byrjað skothríðina. —
Hann vísaði á bug beiðni S.Þ.
um rannsókn á atburðinum.
Ekki hefur frétzt um slíkar *
afbakanir á myndum af Mao
í öðrum borgum, enda segja
kunnugir eðlilegt, að Kanton
búar verði fyrstir til slíkra verka
þeir séu örari og uppreisnar-
gjarnari en aðrir Kínverjar og
hafi mjög á móti hinum miklu
áhrifum Norður-Kínverja í suð-
urhluta landsins. Ágangur Rauðu
varðliðanna hafi og farið mjög í
taugarnar á þeim. Þese utan á
Liu shao chi forseti miklu fylgi
Framh. á bls. 2.
„Undarlegir
rekkjunautar44
Washington, 20. jan. (NTB).
EVERETT Dirksen, leiðtogl
republikana í öldungadeild banda
riska þingsins, sagði í ræðu í
gær að bandamenn Bandaríkja-
manna í Evrópu væru „undar-
legir rekk.junautar", hélt því
fram að hrörnun væri hlaupin í
Atlantshafsbandalagið, og vildi
að Bandaríkin gæfu sig meira að
stríðinu í Vietnam.
Mælti Dirksen með meiri ein-
beitni í styrjaldarrekstrinum í
Vietnam, og sagði að undánhald
þar væri óhugsandi.
„Við skulum gera umheimin-
um það ljóst að okkur er alvara"
sagði hann.
Dirkson dró upp skuggalega
mynd af sambandi Banda-
ríkjanna við Vestur-Evrópu, og
gagnrýndi stefnu Bandaríkjanna
gagnvart ríkjunum í Suður-Ame
ríku og Afríku.
„Bandaríkin verða að hafa
meiri gát á eigin styrkleika, og
hugsa minna um þær þjóðir, sem
líta á okkur sem vingjarnlegan,
kátan og viðkvæman jólasvein,
sem má níða eftir þörfuim og
sparka í án ótta við refsingu“.
r-