Morgunblaðið - 22.01.1967, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 1067.
BÍLALEICAN
FERÐ
SÍMI 34406
Daggjöld kr. 300,00
og kr. 2,50 á ekinn km.
SENDUM
IMAGIMÚSAR
skipholti 21 símar21190
eftir lokun simí 40381 _
Hverfisgötu 103.
Sími eftir lokun 31160.
LITLA
biloleigon
Ingólfsstræti 11.
Hagstætt leigugjald.
Bensín innifalið í leigugjaldi.
Sími 14970
BÍLALEIGAIM
VAKUR
Sundlaugaveg 12. Sími 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
RAUOARARSTlG 31 SlMI 22022
SMIM TÍMA ^gr nc fybirhofn
ÖKUKENNSIA
HÆFNISVOTTORÐ
ÚTVEGA ÖLL GÖGN
VARÐANDI BÍLPRÖF
ÁVALT NÝJAR
VOLKSWAGEN
BIFREIÐAR
35481
Eyjólfur K. Sigurjónsson
löggiltur endurskoðandi
Flókagötu 65. — Sími 17903.
Húseigendafélag Reykjavíkur
Skrifstofa á Bergstaðastr. lla.
Sími 15659. Opið kl. 5—7 alla
virka daga nema laugardaga.
-Ár Kostnaður við refa-
og minkadráp o. fl.
,J>éttbýlingTir“ skrifar
(og virðist litill vinur strjál-
býlinga):
„Fyrir nokkrum dögum
heyrði ég veiðistjóra lesa
skýrslur sínar í Rikisútvarpið.
Tekið- var fram, hve mörg gren
og dýr hefðu verið unnin í
hverri sýslu landsins, og síðan
hjó ég eftir því að kostnaður-
inn við alla þessa útgerð greið-
ist úr hreppssjóðum, sýslu-
sjóðum og ríkissjóði.
Hvers vegna ríkissjóði? Því
skyldum við, sem búum til
dæmis í Reykjavík eða á Akur
eyri, vera að greiða kostnað
við eyðingu refa og minka í
fjarlægum sveitum; kostnað,
sem kemur okkur ekki nokk-
urn skapaðan hlut við? Mér
þætti fróðlegt að vita, hvort
ríkissjóður og þar með lands-
lýður allur stendur undir eyð-
ingu meindýra í Reykjavík.
Hér er unnið að eyðingu rottna,
músa, dúfna, skordýra o. s. frv.
allan ársins hring, og þykir
mér ólíklegt, að aðrir íslend-
ingar en Reykvíkingar greiði
kostnaðinn við það. Það er
heldur ekkert athugavert við
það, en hitt er ámælisvert, ef
ég greiði skotmanni kaup, sem
verður tófu að bana norður á
Melrakkasléttu.
— Hræddur er ég um, að
þetta sé bara ein lítil útgáfa
af þeim furðulega og óréttláta
sið, sem háttvirtir alþingis-
menn hafa smám saman verið
að lögleiðíi, að Reykvíkingar
skuli gjalda þess í opinberum
álögum og með öðru móti, að
þeir skuli leyfa sér að eiga hér
heima. Við greiðum niður alls
konar kostnað fyrir fólkúti um
land, t. d. borgum við flutnings-
kostnaðinn á ýmsum vörum
þess, svo sem olíu, með alls
konar jöfnunargjöldum. Þetta
er óhæfa, að í lýðfrjálsu landi
skuli það þolast, að níðst sé
á íbúum landsins eftir bústað
þeirra. Sagan' um refaeyðing-
arkostnaðinn er bara lítið
dæmi, sem bregður ljósi yfir
spillinguna á þessu sviði. Hve-
nær verður hætt að láta Reyk-
víkinga borga fyrir sérþarfir
sveitamanna?
— Þéttbýlingur“.
'Ar Hverjir eru mest
skammaðir?
Velvakandi spjallaði um
daginn við góðkunningja sinn
yfir kaffibolla. Kunninginn
hefur fylgzt með dálkum Vel-
vakanda allt frá upphafi þeirra
og dálkum Víkverja þar áður,
og hann sagðist stundum vera
að velta því fyrir sér, hvaða
aðili eða aðiljar hefðu fengið
flestar aðfinnslur og skammir
og mest nöldur í þessum dálk-
um. Ekki hafði hann tekið sam
an neina skýrslu, en taldi þó,
að Ríkisútvarpið, Pósthúsið,
Strætisvagnar Reykjavíkur og
Mjólkursamsalan mundu taka
þátt í keppni um efsta sæti
ásamt þremur eða fjórum
öðrum opinberum eða hálfopin-
berum þjónustufyrirtækjum al
mennings, eins og t. d. Græn-
metisverzlun landbúnaðarins
eða fyrirrennara hennéu-, ýms-
um sérleyfishöfum o. s. frv.
Þannig hlýtur það náttúru-
lega að vera, að kvartanir um
frammistöðu almennra þjón-
ustufyrirtækja hljóta að verða
mest áberandi í dálkum eins
og þessum. Hér má skjóta því
inn í, að Strætisvagnar Reykja
víkur hafa ekki verið skamm-
aðir neitt að ráði í þessum dálk
um í háa herrans tíð, svo að
Velvakandi minnist, en hins
vegar hafa ýmsar ábendingar
komið hér fram vegna þeirra.
Útvarpið hlýtur að vera eilíf
og óþrotleg uppspretta nöldurs
og kvabbs, þótt ekki verði ann-
að með sanngirni sagt en það
hafi staðið sig allvel, — hvaða
álit sem menn kunna að hafa
á vali erlendra frétta.
Það mun reynsla Víkverja
og Velvakanda Morgunblaðsins,
að mjög er það mismunandi,
hvernig stofnanir, — stjórn-
endur þeirra og starfsmenn —,
bregðast við gagnrýni og að-
finnsium. Sumir virðast miklu
viðkvæmari en aðrir, verða
reiðir og sárir, svara ýmist
engu eða illu einu til, og fyrir
hefur komið, að haft hefur ver-
ið í hótunum um málsókn
vegna „atvinnurógs“ og níðs
um viðkomandi fyrirtæki. Aðrir
svara gagnrýni og fá auðvitað
svarið birt.
'Ár Ostakynning
Samsölunnar
Mjólkursamsalan hefur
marga gusuna hlotið í þessum
dálkum, svo að það er með mik
illi ánægju, sem Velvakandi
birtir eftirfarandi bréf frá hús-
móður, er notcu: stafina „G. J.“
til þess að auðkenna sig. Bréfið
er skrifað sl. mánudag.
„f síðastliðinni viku auglýsti
Mjólkursamsalan fræðslu- og
kynningarkvöld fyrir húsmæð-
ur í tilbúningi mjólkur- og
ostarétta. Ég var svo heppin að
heyra tilkynninguna um þetta
í hádegisfréttum útvarpsins
sama dag, en það mun hafa
farið framhjá mörgum hús-
mæðrum, eftir aðsókn að
dæma. Mér hefir virzt, að hús-
mæður láti ekki á sér standa,
ef þær hafa tækifæri til þess
að auka kunnáttu sína í matar-
gerð. En við, sem þarna vorum
mætt þetta kvöld í vistlegum
húsakynnum Mjólkursamsöl-
unnar,‘nulum þeim mun betur
hinna ljúffengu rétta, sem
fram voru bornir.
Þessa fræðslu annaðist frú
Elísabet Magnúsdóttir, hús-
mæðrakennari, og útbýtti hún
bæklingi með uppskriftum að
m.. 0víslegum réttum úr súr-
mjoik, skyri og ostum. Við
fengum heita ostsúpu, krydd-
aða með basiliku-blöðum, síðan
kaffi og hlaðið borð af réttum
þeim, er kynntir voru í bækl-
ingnum.
Að lokum sýndi frú Elísa-
bet tilbúning á kotelettum í
rjómasósu með rifnum osti og
papriku og súrmjólkur-búðingi
Allt var þetta ókeypis. Það
væri æskilegt, að þetta yrði
endurtekið og auglýst betur,
svo að húsmæður geti notfært
sér þessa ágætu fræðslu í mat-
reiðslu.
Ég vil hér með senda Mjólk-
ursamsölunni þakkir fyrir
þessa myndarlegu framtaks-
semi.
Með þökk fyrir birtinguna.
G. J.“.
ÝÝ Póstmeistari svarar
Heimabúa
Matthías Guðmundsson,
póstmeistari, sendir þetta bréf:
„Nágranni minn í „Heimun-
um“ er ekki alls kostar ánægð-
ur með viðskipti sín við póst-
inn. Varla getur það tailizt
þótt bornar séu fram í blöðum
kvartanir um eitt eða annað,
ekki sízt, þegar opinber stofn-
un á í hlut. Hvernig þetta er
svo gert, fer vitaskuld eftir því,
hver hlut á að máli og hver
smekkur hins sama er í hverju
tilfelli.
f skrifum „Heimabúa", s.L
miðvikudag, koma fram nokkr-
ar kvartanir á störfum póstsins,
og eru sumar þeirra þannig, að
maður gæti haldið, að greinar-
höfundur hefði haldið sig inn-
an dyra síðustu mánuðina og
þar af leiðandi ekki haft að-
stöðu til að sjá með berum
augum það, sem hann er að
ræða um.
Það er misskilningur hjá
höfundi, að krossbönd fáist
ekki lengur afhent í póstúti-
búinu við Langholtsveg. Þau,
sem ekki eru borin heim til
viðtakenda (en það eru krosa-
bönd, sem vegna stærðar eða
lögunar komast ekki í póst-
tösku eða í heimilispóstkassa),
eru ávallt tilkynnt skriflega til
viðtakenda, sem síðar getur
vitjað þeirra eða sent eftir þeim
í útibúið. Undantekning frá
þessu eru eingöngu þau kross-
bönd, sem innihalda tollvöru
eða grunur leikur á að svo sé.
í þeim tilfellum ber starfs-
mönnum póstsins skylda til að
senda þau til tollpóststofunnar
(tollgæzlunnar) til athugunar.
— Þriggja klst. ferðin, sem
„Heimabúi“ lenti í vegna kross
bandsvitjunar í tollpóststofuna,
hlýtur að eiga einhverjar aðrar
skýringar en hann lætur uppL
Og klukkustundarbið eftir af-
greiðslu þekktist ekki í jóla-
ösinni, hvað þá aðra daga, að
sögn deildarstjóra tollpóststof-
unnar.
Þá vil ég benda „Heimabúa“
á það, að póstútibúið við Líuig-
holtsveg er ekki alveg póst-
kassalaust, þótt kassinn sé ekkl
á húsi því sem útibúið er í,
Vegná þess að frEimhliðin er að
mestu úr gleri; hann er nefni-
lega á næsta húsi, Langholts-
apóteki, en á milli þess og úti-
búsins eru um 6 metrar. Úr
þessu verður svo bætt strax,
þegar gangstétt er tilbúin, en
þá mun rísa við hana stór og
mikill póstkassi sem auðvelt
verður r*
Einc.c^ Víc geta þess vegna
„vindlakassanna", sem „Heima-
búi“ talar um að fólki sé ætlað
að láta bréf sín í, að fyrir rúmu
ári voru settir upp nýir póst-
kassar á þessum slóðum þeir
stærstu og beztu, sem settir
hafa verið upp í íbúðahverfi
hér í borg fram að þessu.
Stærð þessara ,vindlakassa“ er
nú ekki nema 35 x 45 centi-
metrar, en það ætti þó tölu-
vert að komast í þá. —
Með kærri kveðju til „Heima
búa“.
M. G.“.
FIRMA
með góðum verzlimarsamböndum, til sölu.
Upplýsingar ekki í síma.
Rannveig Þorsteinsdóttir, hrl.
Laufásvegi 2, sími 13243.
Rýmingarsala
á garni og handprjónuðum peysum.
Seljum næstu daga alls konar garnteg-
undir einnig handprjónaðar módelpeysur
í barna og fullorðinsstærðum á STÓR-
LÆKKUÐU VERÐI að HJARÐARHAGA
24 — gengið inn að vestanverðu.
Opið kl. 2 — 6 mánudaga til föstudaga.