Morgunblaðið - 15.02.1967, Síða 19

Morgunblaðið - 15.02.1967, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1967, 19 Bræðrafél. Kjósarhrepps 75 ára BRÆÐRAFÉLAG Kjósarhrepps varð 75 ára í gær, en félagið var stofnað að Reynivöllum 14. febr. 1892. Aðalhvatamenn að stofnun þess voru séra Þorkell Bjarna- son á Reynivöllum og Eggert bóndi Finnsson á Mosfelli í Kjós, en Eggert var jafnfamt fyrsti formaður félagsins. Félagið &r jafnt opið „kðrlum og kvinnum" eins og segir í lög- um þess, en tilgangur félagsins er eins og nafn þess bendir til og getið er um í fyrstu málsgrein annarrar greinar félagslaganna“, að efla bróðurhug og eindrægnis anda félagsmanna þess, að stunda nytsama fræðslu, sið- prýði og hvers konar menning eftir megni“. Á fyrstu árum félagsins starf- aði það sem málfundafélag og lét sér fátt óviðkomandi um mannleg og samfélagsleg vanda- mál — eins og Oddur Andrés- •on bóndi á Neðra-Hálsi og nú- verandi formaður félagsins komst að orði við blaðamann Mbl. Snemma beitti félagið sér fyrir því, að stofnað yrði bókasafn í hreppnum. Bókasafnið er enn starfrækt, og er nú til húsa í barnaskólanum í Ásgarði. Safnið er ekki ýkja stórt, um 3000 bindi, en I því er margt fágætra bóka. Steini Guðmundsson bóndi á Valdastöðum hefur lengst af ver- ið formaður félagsins eða í tæp- lega 40 ár. Flest öll þau ár var Steini lífið og sálin í starfsemi félagsins, en þegar lögin um al- menningsbókasöfn voru sett fannst mörgum gagnsemihlut- verki félagsins lokið, en þó varð úr, að það starfaði áfram og hefur það sannazt að þrátt fyrir bókasafnslögin, hefur félagið orðið safninu mikill styrkur. Lengi var bókasafnið til húsa á Reynivöllum og gegndi séra Halldór Jónsson þá bókvarðar- stöðu fyrir félagið, en eftir að það var flutt að Ásgarði hefur Eggert Finnsson, bóndi á MeðalfellL Oddur Andrésson bóndi á Jíeðra—HálsL skólastjóri barnaskólans jafn- framt verið bókavörður. Nú gegnir því starfi núverandi skóla stjóri, Hólmfríður Gísladóttir, og er hennar hlutur mjög g Var. Hin slðari ár hefur starfsemi félagsins nær öll beinzt að bóka- safninu og stuðningi við það. Þá hefur félagið einnig gengizt fyrir Krafizt 9-15 ára fangelsisdóms RÉTTARHÖLDUNUM er haldið áfram í Miinchen í máli þriggja fyrrverandi starfsmanna þýzku öryggislögreglunnar í Hollandi á heimsstyrjaldarárunum síðari. Eru þremenningarnir sakaðir um aðild að brottflutningi og seinna Bezt að auglýsa í Morgunblaðinu morðum á tugum þúsunda hol- lenzkra Gyðinga. Saksóknari ríkisins krafðist þess í dag að leiðtogi þremenn- inganna, Wilhelm Harster. fyrr- um yfirmaður SS-sveitanna í Hollandi, yrði dæmdur til 15 ára fangelsisvistar fyrir aðild hans að morðum a.m.k. 82 þúsund Gyðinga. Þá krafðist hann 10 ára fangelsisdóms í máli Wilhelms Zoepfs, fyrrum majórs í SS sveitunum, og níu ára fangelsis í máli Gertrude Slottke, er starf aði hjá Zoepf. Zoepf majór er sakaður um aðild að morðum rúmlega 55 þúsund Gyðinga og Gertrude Slott'ke er sökuð um aðild að 54.982 morðum. Þremenningarnir eru sagðir hafa skipulagt flutninga hol- lenzkra Gyðinga til fangabúða í Þýzkalandi. Meðal þessara Gyð- inga var Anne Frank, sem lét lífið í fangabúðunum, en varð heimsþekkt fyrir dagbók sína. Harster hefur áður afplánað dóm fyrir þessa glæpi sína í Hollandi. Steini Guðmundsson á Valdastöðum. bókmenntakynningum og öðrum menningarlegum skemmtunum. Félagið var undanfari Ung- mennafélagsins „Drengs“, sem greip að miklu leyti inn á verk- svið þess. Annar aðalhvatamað- ur að stofnun félagsins, séra Þor kell Bjarnason sóknarprestur á Reynivöllum kom þangað frá Mosfelli í Mosfellssveit, en þar var hann einnig frumkvöðull í félagsmálum. Eggert Finnsson, sem hafði verið við nám í Noregi í búnaðarskóla kynntist mjög félagslífi meðan á námsdvöl sinni stóð, en þessir tveir menn unnu hvað mest að stofnun Bræðrafé- lags Kjósarhrepps, eins og áður er getið. | SVEINN KRISTINSSON SKRIFAR UM Frönsk mynd. Höfundur handrits: Jean Marcillac Lcikstjóri: Henry Decoin Aðalhlutverk: Eddie „Lemmy“ Constantine. Daphne Dayle o.fl. Ég var nýbúinn að lesa skammargrein um mig hér í blað inu og var í afleitu skapi. Lík- lega hröklast ég úr stöðu minni við lítinn orðstír, eins og Sú- karnó Indónesíuforseti, sagði ég við sjálfan mig. Og get þá ekki huggað mig með því að eiga fimm konur, til að stytta mér stundir við í iðjuleysinu. í örvæntingu renndi ég aug- um gegnum bíóauglýsingarnar. Sé þá, að þeir eru búnir að skipta í Kópavogsbíói. Ný „Lemmy- mynd“ á ferðinni: Carter kláar- ar allt. Þetta er mynd fyrir mann í manndrápsskapi, hugsa ég. Þarna færðu að sjá gnægð af kjafts- höggum, og það er einmitt það, sem þú þarfnast, til að ná aftur fullri sálarró. Svo ég fæ mína einu, en tryggu eiginkonu til að rölta með mér upp í Kópavogs- bíó. — Og ráðið dugði. Sá er munur á Lemmy og James Bond, að Lemmy er ólgandi af lífsfjöri og gleði, á- gætur húmoristi, auk þess miklu karlmannlegri maður og hentar að því leyti betur í hetjuhlut- verk. — Ef maður lifði nú á velgengnistímum opinskárra, íroniskra ádeiluverka, þá væri mjög nærliggjandi að líta á mynd eins og þá ofannefndu sem skop- ádeilu á hina almáttugu leyni- lögreglugarpa. Eða er Lemmy ekki beinlínis að hlæja að því stundum, hve skoplega vel hann sleppur alltaf úr hverri mann- raun? Þá kann ég ekki í bros að lesa, ef svo er ekki. Allavega hafa Lemmymynd- irnar það fram yfir Bondmynd- ir flestar að höfða meir til skop- skyns manna, og kann það að vísu að draga nokkuð á stundum úr hrollvekjandi áhrifum þeirra og spenningi. Spenningur f myndum um báða þessa garpa takmarkast þó ávallt af þeirri vitneskju, að þeir muni sleppa heilir á húfi úr hverjum háska, sem þeir lenda í. Því hefur mér dottið í hug, hvort ekki væri hugsanlegt til tilbreytingar að láta drepa svona menn annað slagið í einstökum myndum. Ég viðurkenni fúslega, að hér er um svolítið kaldrifj- aða hugmynd að ræða, en tel það þó nokkra málsbót, að plan- ið hjá mér er að lífga þá við aftur og nota þá áframhaldandi í sakamálamyndir. — Þeir verða svolítið þreytandi með timanum ódrepandi menn. í ofannefndri mynd eru það útsendarar kínversks njósnara og glæpamanns — líklega fylgis- manns Maos — sem eru að reyna að komast yfir hernaðarlega upp finningu vísindamanns eins í Suður-Frakklandi. Lemmy er frægur einkaspæjari í New York og vísindamaðurinn sendir hon- um beiðni um að koma sér til trausts og halds. Það mátti vægast sagt ekki tæp ara standa, því að vísindamaður inn ec myrtur nóttina eftir að Lemmy kemur á vettvang. Ýms- ir koma til greina sem hugsan- legir morðingjar, þar á meðal tvö barnabörn hans, piltur og stúlka, sem hjá honum bjuggu og standa til arfs eftir hann. Og svo auðvitað glæpahringur Kín- verjans. Það kemur að sjálfsögðu í hlut Lemmy að fletta ofan af morð- ingjanum. Er rétt að svipta ekki væntanlega áhorfendur ánægju og spenningi, með því að ljóstra nokkru upp í því máli. Mynd þessi er allhörð, og er það kostur við léttar myndir af þessu tægi. Áhorfandinn þarfn ast ekki mikillar hugardvalar, því sannast að segja er ekki krafist mikils hugarstarfs af hon um. Og því þá að teygja lopann lengur en rétt nægi til að þráð- urinn hangi saman? Vilja byggja heimili fyrir taugaveikluð börn — á lóð borgarspítalans KVENFÉLAGIÐ Hringurinn og Heimilissjóður taugaveiklaðra barna ætlar að beita sér fyrir byggingu lækninga- og hjúkrun unarheimilis handa taugaveikluð um börnum í Reykjavík og hafa þeir aðilar farið fram á það við borgarráð að athugaðir verði möguleikar á byggingu heimilis- ins á lóð Borgarspítalans. Mbl. ræddi um þessa ráðagerð við formann Hringsins, Sigþrúði Guðjónsdóttur, en Hringkonur hafa nú snúið sér að því að veita liðsinni taugaveikluðum börnum og munar verulega um þær, enda hafa þær lagt 10 millj. í Barnaspítala Hringsins á Landspítalanum. Sigþrúður sagði að bygging heimilisins fyrir taugaveikluð börn væri alveg á byrjunarstigi. Slík mál tækju langan tíma og þróast smám saman. En þörfin væri mikil fyrir þessháttar heimili og sæi maður það enn betur eftir að fara að kynna sér málið. En oft er hægt að bjarga taugaveikluð- um börnurn frá varanlegu heilsu- tjóni, etf þau fá rétta meðíerð nógu snemma. Lækninga- og hjúkrunarheim- ili fyrir taugaveikluð börn er ekki sjúkrahús í venjulegum skilningi. Börnin fara í skóla, leika sér með öðrum börnum og lifa eðlilegu lífi undir eftirliti sérfróðs fólks, en rétt þykir að það sé í tengslum við sjúkra- hús, svo notist af læknum og tækjakosti þess. Er farið fram á að fá lóð á svæði Borgar- sjúkrahússins, en þó nokkuð af- skekkt á lóðinni. Er sem sagt unnið að undir- búningi málsins. íslenzkur lækn- ir, Páll Ásgeirsson, sérfræðingur í taugasjúkdómum, er nú starf- andi við slíkt heimili í Dan- mörku og var ráðgast við hann er hann var hér heima um jól- in. Heimilissjóður taugaveiklaðra barna á orðið um hálfa aðra miíljón í sjóði og Hringurinn töluvert, að því er Sigþrúður sagði. RYMINGARSALA minnst 30°/o afsláttur af öllum vörum aðeins fáa daga Crensásvegi — Nóatúni Aðalstrœti

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.