Morgunblaðið - 15.02.1967, Síða 28

Morgunblaðið - 15.02.1967, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1967. Sögulegt sumarfrí eftir Stephen Ransome Svo sneri hann sér á hæli og bjóst til brottfarar — vildi sýni- lega láta útgöngu sína verða sem áhrifamesta. — Þarna er maður, sem við verðum fyrst og fremst að vara okkur á, sagði ég og horfði á eftir honum með viðbjóði. — Hinn mikli bardagamaður, Miles Kandall, refsivöndur yfirstétt- anna. Kerry, sem hafði reiðzt við þennan klaufalega leikaraskap hans, en var jafnframt hrædd, ætlaði að þjóta á eftir honum. Húri riáði í handlegginn á honúm og stöðvaði hann. — Miles Kendall, þú hefur einkennilegt lag á að láta þér skjóta upp þegar verst gegnir, sagði hún með ákafa. — Það sem ég á við, er að þú ert and- styggilegur snuðrari. Hefurðu lært þetta með langri æfingu, eða ertu fæddur með þessum ósköpum? Hann stillti sig um að reið- ast. Hann leit niður á Kerry úr yfirburðastöðu sinni, og svaraði: Ég átti nú erindi, en þessi ráð- stefna sem ég rakst inn í, var svo forvitnileg, að ég gleymdi erindinu. En það var fallega gert af þér að minna mig á það. Svo setti hann upp kaldrana- legt bros. — Ég er hérna með dálítið, sem hann Brad gæti haft gaman af að sjá. Við tökum þá eftir því, að frakkinn hans gúlpaði út. Hann hafði stungið einhverju undir hann. — Ég fann þetta, sagði hann, og ætlaði að gera okkur forvit- in. — Rétt áðan, þegar ég gekk fram með ánni — já, í óleyfi, að vísu, skal ég játa, eins og all- ir aðrir, sem gariga þennan stíg. .Þá sá ég það liggja inni í runn- unum, þarna handan við kjúkl- ingagarðana. Mér datt í hug, að Brad væri forvitni að sjá það, enda fundið á hans landareign. Með ertandi hægð, stakk hann hendinni undir frakkann og dró hlutinn fram. — Það var forúgur skór. — Það var nú ekki nema ann- ar, sagði Miles lágt, og horfði fast á fölt andlitið á Brad. — Eg gat ekki fundið hinn. Þetta var gönguskór af konu. Ekkert okkar var í augnabl ks vafa um eiganda hans. Það var Evvie. 7. kafli. Sunnudagskvöld kl. 11.10. Þessi eini, forugi skór gerði okkur öllum hverft við, en áhrif- in komu samt ekki fu/llkomlega fyrr en við endurkastið, ef svo mætti kalla það, þegar ég ’as fyrir síðustu skýrsluna mína. Þegar ég hlustaði á hana af segulbandinu, fór um mig hroll- ur, og nú vissi ég, að ekki yrði aftur snúið. Við áttum ekki ann- ars úrkosta en þrælast gegn um það — þangað til yfir lyki, og það kynni að verða eitthvað álíka og að verða undir valtara, sem hafði sloppið út úr höndum stjórnandans. Sjálfur skórinn er nú í vörzlu saksóknarans. — Ég ætla að geyma hann, hafði Walker sagt, rólega, — þangað til eitthvað gierist í málinu. Vitanlega er þetta sönnunargagn, en hvað sannar það? Sannast að segja vildi ekkert okkar fara að játa það í návist Miles, að skórinn væri neitt ann að en venjulegur týndur hlutur. 1 En Miles lét sýnilega ekki sann- færast neitt af þessari rósemi okkar. Hann yppti bara öxlum, afhenti Brad skóginn, og gekk síðan burt með andstyggilegt íbyggnisbros á vör. Ekki gat ég getið mér til um, 'hvaða sönnunargagn hann gat þótzt hafa í höndum. Það ein- kennilega var, að Miles, sem hafði snuðrað þennan skó upp, var s>á eini okkar, sem hafði enga hugmynd um, að Evvid hafði verið með gönguskó á fótum, þegar hún hvarf. Og við hin hefðum svo sem heldur ekki vitað það, hefði ekki Kerry snuðrað það uppL Þegar ég gerði mér þetta Ijóst, 'hækkaði í mér hitinn aftur. Ég , dr. Kerry afsíðis og lét hana vita — hafði hún þá ekki séð það á stokkrjóðu andlitinu á mér — að ég væri henni heldur betur grarnur. — Þessi skór, sem Miles fann, þarf ekki að þýða nokkurn skap- aðan hlut, eða þyrfti ekki, hefðir þú bara látið þetta afskiptalaust. En það var ekki því að heilsa. Þú þurftir að koma með óþarfa spurningar. Þú þurftir að fara að snuðra ótilkvödd í fataskápn um hennar Evvie. Og svo ertu 12 svo ósvífin að kalla Miles snuðr- ara, þegar þú ert helmingi verri sjálf. Augun í Kerry skutu neistum. — Þú þarft nú ekki að fara að springa í loft upp út af þessu. Ella vissi vel um þetta, eða gerði hún það ekki? — Ella hafði ekki nefnt það á nafn. Hún hefði aldrei minnzt á það óspurð, og enginn spurði hana fyrr en þú gerðir það. Líttu nú á, hverju þú hefur rótað upp? Er það til góðs? Heldurðu, að Brad verði þér þakkliátur fyr- ir það? — Ég er nú að reyna að hjálpa af fremsta megni, hvæsti Kerry. — En hvað gerir þú, annað en ónotast? Ég varð að láta þessu ósvarað. Þetta er orðið svo ruglingslegt, að maður botnar ekki upp né nið ur í því. Og á rólegri stundum get ég ekki láð Kerry þetta. Sjálfur er ég líka að reyna að hjálpa, eftir því, sem ég hef vit til, og þess vegna sit ég hér inn an luktra dyra og les þessa skýrslu mína inn á segulbandið. • Þegar eg hafði lokið við sjötta kaflann, hér á undan, bjó ég um segudbandið, ásamt þeim, sem á undan voru komin, og faldi þau undir einhverjum blöðum í læstri skjalatöskunoi minni. Enginn veit, að ég er að semja skýrslw upp til síðustu stundar, jafnharðan því sem atburðirnir gerast. Ég hef ákveðið að segja það engum, ekki einu sinni Kerry eða Brad, vegna þess, að RÁÐNINGASTOFA HLJÓMLISTARMANNA Óðinsgötu 7 — Sími 20255 Opið mdnud.-fimmtud. 2-7, föstud.-laugard. 2-5 Afar ódýr frímerki frá Austurríki Tvö þúsund og átta hundruð falleg mismunandi safnfrímerki og sérfrimerki, raunverulegt verðmæti um 320 mörk, en í auglýsingaskyni aðeins 300,00 íslenzkar krónur gegn póstkröfu, svo lengi, sem birgðir endast. — Póstkort nægir. MARKENZENTRALE, Den.pschergasse 20, 1180 Wien. ALLTAF FJ0LGAR V0LKSWAGEN V0LKSWAGEN 1300 er fimm manna /0\ fjölskyldubill AaA HEKLA hf Blessaður vertu það er allt i lagi, — hún samkjaítar aldrei, — og tekur ekki eftir því ! annáð hvort þeirra kynni að láta eimhver orð falla í óheppileg eyru — en að láta það berast út, væri hrein kórvilla, ekki sízt nú þegar sagan var farin að taka á sig dauðablæ. Nú éru liðnar tuttugu og fjór- ar klukkustundir, næstum upp á mínútu, síðan ókunni maðurinn sýndi Kerry banatilræðið, og hætti ekki fyrr en ekki munaði hársbreidd, að hann dræpi hana. Kannski ihefur Evvie Lang orðið fyrir samskonar árás, þetta kvöld fyrir tveimur vikum. Sé svo, kann að, vera einhver bend- ing um það fyrr í þessari skýrsiu, sem mér hefur sézt yfir. Ég er nýbúinn að hlusta á allt bandið frá upphafi, til þess að leita einhverra slíkra bendinga, og hlustað vandlega á mín eigin orð. Einu tók ég sérstaklega eftir og það var hve oft kjúkl- ingagarðarnir voru þar nefndir á nafn. — Það var þar, sem Kerry varð fyrir árásinni. „Einhvers- staðar þarna við kjúklingagarð- ana“, hafði hún sagt, — „held ég“. Og þar var þar, sem ég heyrði óminn af samta/linu þenn- an morgun — þar sem Brad var að tala við einihvern annan, „úr áttinni frá kjúklingagörðunum", sagði ég sagt. Svo hafði Glenda sagt, að þegar Evvie fór úr vinnustofunni hans Brads, kvöld ið, sem hún hvarf, að hún hafi „gengið framihjá hlöðunni og í áttina að ánni“, en þá hefði hún einmitt farið framthjá kjúklinga- görðunum. Og loks var það þar, sem Miles fann skóinn. Mér datt snögglega í hug að fara að atihuga staðinn nokkru nánar. Hvílík vitleysa að láta sér detta það í hug! Nú var ein- mitt ekkert tungisljós, en aðeins ofurlítil stjörnubirta í hálfskýj- uðum himni, svo að það var rétt svo, að ég gat griilt hænsnahúe- in._ Ég heyrði einhvern ofurlítinn fjaðraþyt og kvak, er ég gekk fram og aftur eftir óreglulegum stígunum. Ég hafði séð, að á dag- inn var þessi staður kvikur af ungamæðrum og hænuungum. Eldri hanarnir eru hafðir inni- lokaðir, og ekki látnir sjá hverir aðra, því að þá mundi samstund- is hefjast bardagi — og það upp á líf og dauða. Fleiri hanar en einn hafa drekkt sér við tilraun- ir sínar til að berjast við annan hana, sem var ekki annað en spegilmynd þeirra sjálfra í vatn- inu. Þessir fallegu fuglar sotfa þarna, ög eru lifandi ímynd morð fýsnarinnar. Og grafreiturinn, þar sem hin- ir sigruðu lágu grafnir á víð og dreif, var þarna skammt frá. Ég sneri mér undan með hálfgerð- um hrolli til þess að komast burt frá þessu öllu. Dauði er dauði, algjör og óafturkallanlegur, jafn vel þótt bara hani eigi í hlut, og þó að það kunni að virðast vitleysislegt, þá gekk ég burt með það á tilfinningunni, að all- ur þessi mikli dauði hefði eitrað jarðveginn og lagt á hann eki- hverja bölvun. Húsið var aldimmt, að undan- teknum lampanum, sem ég hafði skilið eftir logandi í setustof- unni. Þegar ég nálgaðist, sá ég skugga af manm bera fyrir 1 garðdyrunum og stanza úti í garðinum. Þetta var Glenda, með hlýja inniskó á fótum og hvítan ullarslopp þéttvafinn um sig, en í hendinni hélt húm á mjólkux- glasi. Hún var eitthvað viðkunn- anlega heilbrigð útlits og alveg laus við allan álhyggjusvip. Ég starði á hana og spurði: — Finnurðu ekki, innst í hugskot- inu einhvern kvíða út af þessu leiðindamáli, sem við eigum í? — Vitanlega, svaraði hún. En ég læt það bara ekki koma mér út úr jafnvægi, það er allt og sumt. —Já, hún var óvenjuleg mann eskja. Þessi rósemi hennar er eittihvað það bezta, sem Brad á í eigu sinni. í samanburði við hana, verður góðverkafýsnin í henni Kerry einhver versti skuldapóstur, og ég vona bara einlæglega, að hún reyni að hafa hemil á henni framvegiis. — Hvar er Brad? Glenda saup á glasinu. — í vinnustofunni. — Einn? — Nei, ég býst við, að hún Kerry sé þar hjá honum. — Ég vona, að þau tefji þar stundarkorn. Ég hef verið að sitja um að ná í þig í einrúmi, og nú er tækifærið. Hún sneri sér við, hugsi, en gekk svo inn aftur á mjúku skónum, og settist í hornið á stóra legubekknum. — Dugar þér þetta? Ég lokaði dyrunum, settist svo við kaffiborðið og sneri beint að henrii. — Glenda........Það var þessi bölvaði ekkisens skór. Þarna hafa sýnilega orðið átök. — Já, eða þá að Evvie hefur verið að flýja undan einhverj- um, sagði Glenda. — Hvar heldurðu, að hinm skórinn sé? Glenda svaraði lágt: — Senni- lega á hinum fætinum á Evvie. — Já.......En nú ætla ég að segja nokkuð, sem þér kann að finnast harðineskjulegt, ef ekki dónalegt. Ef við göngum út frá því, að Evvie sé dauð — og eink- um þó ef bún hefur verið myrt — vona ég, að hinn skórinn haldi áfram að vera týndur um tkna og eilífð, og Ewie með honum. Ég vona, að ekki finaiist af henni tangur né tötur. — Gætum við lifað í þeirri óvissu, Steve? — Við verðum að lifa með þessu í einni eða annarri mynd, og þetta yrði auðveldast. Glenda virtist ósannfærð. — Þá þyrfti ekki annað en láta eins og ekkert væri, bætti ég við. — Já, einmitt það: hafast ekkert að. iHún hnyklaði brýnnar við þessa tilhugisun. — Og brjóta heilann um það til æviloka? Þessi spurning líktist ekki Glendu. Nú var eins og hún væri farin að stæla Kerry. — Að mínu viti er þarna um tvo móguleika að ræða, sagði ég. Annaðhvort verður málið ein aí óleystu giátunum, eða það veið- ur verra og verra fyrir Brad, eft- ir því, sem stundir líða fram. Glenda svaraði engu, en sötr- aði bara mjólkina sína. I

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.