Morgunblaðið - 19.02.1967, Qupperneq 24
Lang stærsta
og íjölbreyttasta
blað landsins
Helmingi útbreiddara
en nokkurt annað
íslenzkt blað
SUNNUÐAGUR 19. FEBRÚAR 1967
Flytja 40 tonna kísil-
þurrkara í heilu lagi
og spara með />ví 600-800 þús. kr.
KÍSILVERKSMIÐJAN sparar
600—®00 þús. kr. með því að
flytja tvo 40 tonna gufuþurrkara
i heilu lagi á bílum í verksmiðj-
una við Mývatn í sumar. Fóru
menn um síðustu helgi norður
til að athuga hvort þetta vaeri
tiltækilegt og er talið að það
verði hægt, að því er Pétur Pét-
ursson tjáði Mtol.
Brýrnar á hinni venjulegu leið
frá Húsavík að Mývatni eru
taldar of veikbyggðar fyrir slílk-
an þungaflutning, en með því að
fara út Tjörnesið, yfir Jökulsá
á brúnni við Ásbyrgi, upp með
ánni að austan og síðan til baka
yfir brúna neðan við Grímsstaði
og í Námaskarð, er þetta talið
tiltækilegt með nokkrum lagfœr-
ingum á veginum og brúnum og
tilfæringum við flutningana. —
Fóru þeir Gunnar Guðmundsson,
sem rekur þungaflutningaifyrir-
tæki, Erik Eylandis, verkfræð-
ingur og vegaverkstjórinn fyrir
norðan um sl. helgi þessa leið og
gerðu áætlanir um flutninginn,
sem Gunnar mun annast.
Verði hægt að flytja þurrkarana
á þennan hátt, sparast 600—800
þúsund krónur, 'að því er Pétur
sagði. Því annars þar.f að taka
þá í sundur úti og setja þá aftur
saman hér og yrði auk vinnunn-
ar að því mikil tímatötf. Koma
þurrkararnir nú í heilu lagi með
skipi og geta tvö af skipum Eim-
skipafélagsins skipað þeim á
land á Húsavík og á flutninga-
vagna.
Einnig er um að ræða fleiri
þung stykki sem Kísilverksmiðj-
an þartf að fá flutt að verk-
smiðjunni, um 30 tonn að þyngd
og er einnig verið að attouga
hvernig þeim verði komið þang-
að.
Próf. Michael Swann, varakan sfari Edinborgarháskóla sæmir f orseta Islands, Ásgeir Ásgeirss«n,
heiðursdoktorsnafnbót lagadeild ar. Nánari frásögn af athöfninni er á bls. 2.
Líklegast að Kísilgúr-
vegurinn verði um
Reykjahlíð
VEGURINN aS Kísilgúrverk-
smiðjunni við Mývatn er nú
ákveðinn, en ekki er unnt að
skýra í aðalatriðum frá því
hvernig hann verður lagður, því
að eftir er að ganga formlega
frá málum. Gpp hafa komið fjór
*r tilögur um legu vegarins og
mun sú tillaga, þar sem gert er
ráð fyrir að vegurinn iiggi næst
vatninu, líklega verða sú, sem
framkvæmd verður.
Samkvæmt upplýsingum vega
málastjóra Sigurðar Jóhanns-
sonar er byggðahverfið við Mý-
vatn nú skipulagsskylt og sam-
kvæmt því ber Vegagerðinni að
framkvæma fyrirskipanir Skipu-
lags bæja, kauptú/ia og sjávar-
þorpa. Tillögurnar fjórar hafa
verið ræddar mjög og mælti
hrejtpsnefndin með svipaðri til-
lögu og þeirri, sem talið er að
faliizt verði á, en tillagan er
nú til umsagnar hreppsnefndar.
Vegurinn, sem umrædd tillaga
fjallar um liggur rétt við Reykja
og Reynihlíð og yfir hraunið og
hefur lagning vegarins valdið
töluverðum deiium og hefur
Náttúruverndarráð talið að veg-
urinn hafi skaðsamleg áhrif á
fuglalífið við Mývatn.
Lýsi rann úr geymi á Raufarhöfn
Líklega farið 80-100 tonn
RAUFARHÖFN, 18. feb. — Bil-
un hefur komið fram á lýsis-
tanki hjá Síldarverksmiðjum
ríkisins á Raufarhötfn og hafa
runnið niður á að gizka 80-100
tonn. Búið er að stöðva rennsl-
ið að heita má.
Bilunin kom í ljóis í gærkvöldi.
Tankurinn tekur 2000 tonn, og
voru um 800 tonn í honum. Síð-
ast var tekið úr honum lýsi þann
9. þ.m. f gærkvöldi fór að koma
upp úr jörðinni kringum tank-
inn lýsi. Er talið að lekinn sé
í botninum. í honum eru rör og
27 ár eru liðin síðan hann var
byggður, svo þau gætu verið far-
in að láta sig. Kemur ekki í ljós
fyrr en búið er að tæma tankinn
hvar lekinn er.
Nú er búið að taka fyrir lek-
ann að mestu með því að létta
á tankinum og dæla lýsinu yfir
í annan tank.
Er þetta mikið tjón. Þó er ekki
vitað hve mikið aflýsinu næst
upp aftur. Lýsið storknar, en
kostnaðarsamt og erfitt er að ná
því upp aftur og mikið tapast
alveg. — Einar.
Þess má geta að markaðsverð
á lýsi er nú lágt eða Ö2-56 stenl-
ingspund tonnið. Og etf miðað er
við 56 pund er tjónið af 100
tonnunum yfir milljón krónur.
Vélkældir mjólkurgeymar á 120
bæjum á Suðurlandi
UM 120 bælr í Eyjafjallahrepp-
um, Hraungerðis- og Villinga-
holtshreppum hafa nú fengið
vélkælda mjólkurgeyma. Eru
geymarnir losaðir annan hvern
Fulbright öldungardeildarþingmaður
og kona hans gista Island ■ tvo daga
SVO SEM áður hefir verið
tilkynnt, dveljast J. William
Fulbright öldungardeildar-
þingmaður og kona hans hér
á landi 22. og 23 febrúar n.k.
! boði Menntunarstofnunar
Bandaríkjanna á íslandi. Er
þeim boðið hingað í tilefni
10 ára afmælis stofnunarinn-
ar. Afmælisins verður minnzt
með athöín í hátíðasal Há-
skólans miðvikudag 22. febrú
ar n.k. kl. 5.15. Aðalræðuna
við þá athöfn flytur Fulbright
öldungardeildarþingmaður, og
stutt ávörp flytja dr. Gylfi
Þ. Gíslason, menntamálaráð-
herra, James K. Penfield
sendiherra og Armann Snæv-
arr háskólarektor. Aðgangur
er öllum heimill eftir því sem
húsrúm leyfir.
Fimmtudag 23. febrúar kl.
12,15 verður haldin hádegis-
verðarfundur á Hótel Sögu,
þar sem Fulbright öldungar-
deildarþingmaður og kona
hans verða heiðursgestir. Til
J. W. Fulbright öldungadeild-
arþingmaður.
fundarins er boðað af Is-
lenzk-ameríska félaginu og
stjórn Menntunarstofnunar
Bandarikjanna í sameiningu.
Á fundinum mun Fulbright
öldungardeildarþingmaður
flytja ávarp. Aðgangur að há
degisverðarfundinum er öll-
um heimilli, en tilkynna ber
þátttöku í síma 10860 eða
23490, mánudag 20. febrú-
ar.
★
James William Fulbright
fæddist í Sumner í Missouri
9. apríl 1905. Hann stundaði
nám m.a. við Arkansashá-
skóla, Oxfordháskóla og Ge-
orge Washingtonháskóla.
Hann varð öldungadeildar-
þingmaður í janúarmánuði
1945 og er formaður utanrík-
ismálanefndar öldungardeild-
arinnar. Auk þess á hann
sæti í nefnd þeirri, sem fjall
ar um banka- og gjaldeyris-
mál.
Fulbright og kona hans,
Eliztabeth, eru búsett í Fay-
ettville í Arkansas og þau
eiga tvö börn, Elízabeth og
Robert.
dag og kemur tankbíll frá Mjólh-
urbúi Flómanna og losar geym-
ana. Á bílnum eru mælitæki og
nýtist mjólkin betur auk þess
sem tryggara á að vera að mjólk-
in sé góð, að sögn forstöðumanns
mjólkurbúsins Grétars Símonar-
sonar.
Að sögn Grétars eru rúm tvö
ár síðan tillaga um að setja upp
slika geyma kam fram. Ekki hef-
ur verið unnt að hetfja notkun
þeirra fyrr en nú nýlega, þvi
að koma þurtfti upp nægilega
mörgum geymum, sem fullnýtt
gætu tankbíl og því hefur fram-
kvæmd þessi verið nokkuð tíma-
frek. Býst mjólkurbúið við, að í
árslok þessa árs verði bæirnir,
sem nota slíka geyma orðnir 180.
Grétar sagði, að kostir geym-
anna væru augljósir. Unnt væri
að leiða mjólkina í leiðslum í
geymana beint frá mjaltavélum
og kældist mjólkin fljótt og vel.
Bændur losnuðu við hvimleiðan
brúsaþvott og ýmist amstur í
sambandi við þá. Tankbílarnir,
sem vinna að losun geymanna
hjá bændum taka 6000 litra og á
búið þegar tvo slíka. Bjóst Grét-
arar við því að innan skamms
yrði unnt að hafa sama hátt á
*
I landhelgi
VARÐSKIP tók í gær Reykja-
víkurbátana Kam RE 211 og
Kristján RE 250 að meintum ó-
löglegum togveiðum út af Hatfn-
arbergi. Mál þeirra verða tekin
fyrir á mánudag í Reykjavík.
við mjólkurfkitninga frá Skeið-
um og Austur-Landeyjum.
Við teljum þetta, það sem
koma skal, sagði Grétar, en þessi
aðferð var fyrst notuð í Banda-
rílkjunum fyrir stríð. Frumherj-
ar á þessu sviði í Evrópu eru
Svíar. Einnig hafa Bretar og
Norðmenn tekið þessa nýjung 1
þjónustu sína. Þetta á að tryggja
neytendunum betri mjólk og
bændum betri nýtingu, sagði
Grétar að lokum.
Búnaðarþing
BÚNAÐARÞING verður sett á
mánudag kl. 10 í Búnaðarþing-
salnum á annari hæð í Hótel
Sögu. Þingið sækja að venju full
trúar utan af landi, 25 talsins,
stjórn Búnaðarfélagsins og flest-
ir ráðunautar. Við setningu þings
ins flytur Ingólfur Jónss°n, land
búnaðarráðtoerra ávarp.
Stjómarkosning
í IVIúrarafél.
í GÆR og' í dag fer fram stjórn-
arkosning í Múraratfélagi Reykja
víkur. Kosið er í skrifstotfu fé-
lagsins Freyjugötu 27 fré kl. 1
til 10 e.to. í dag og er þó kosn-
ingu lokið. Listi stjórnar- og
trúnaðarráðs er A-listinn og er
hann studdur af lýðræðissinn-
um. A-liistinn er þannig skipaður
Hilmar Guðmundsson, flormaður,
Krktján Haraldsson, varaiformað
ur, Brynjólfur Ámundaeon, rlt-
ari, Helgi S. Karlsison, gjaldkerl
félagssjóðs og Sigurður Jónaa-
son, gjaldkeri styrktarejófts.