Morgunblaðið - 15.04.1967, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR
84. árg. — 85. tbl. LAUGARDAGUR 15. APRÍL 1967 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Stórsigur brezka íhaldsflokksins
— í bœja- og sveitastjórnarkosningunum r Eng/andi — Náði
London úr höndum Verkamannaflokksins í fyrsta sinn frá 1934
— Vann alls 185 fulltrúa um landið allt — Verkamanna-
flokkurinn tapaði samtals 177 fulltrúum
London, 14. apríl,
NTB — AP.
t BREZKI íhaldsflokkur-
inn vann stórkostlegan sigur
í bœja- og sveitastjórnarkosn-
ingunum í Englandi. Mestur
varð sigur flokksins í Stór-
London, þar sem hann hlaut
82 borgarfulltrúa af hundrað
en Verkamannaflokkurinn,
sem hefur haft meirihluta í
borgarstjórn í London frá því
árið 1934, hlaut aðeins 18 full-
trúa kjörna.
Ó íhaldsflokkurinn vann
einnig á víða um landið, náði
mcðal annars meirihluta í
Lancashire, Leicestershire,
Warwickshire, Cheshire og
og Northumherland, en á ölll
um þessum stöðum hafði
Verkamannaflokkurinn áður
meirihluta.
Þegar talið hafði verið í 37
kjördæmum voru úrslitin þessi:
íhaldsfl. hafði fengið 655 full-
trúa — unnið 185 — tapað 2.
Verkamannafl. hafði fengið
535 fulltrúa — unnið 3 — tapað
177.
Frjálsl. fl. hafði fengið 54 full-
trúa — unnið 12 — tapað 10.
Óháðir höfðu fengið 56 full-
trúa — unnið 23 — tapað 48.
Aðrir höfðu fengið 29 fulltrúa
— unnið 16 — tapað 2.
Þessi geysilegi sigur íhalds-
flokksins er, að áliti stjórnmála-
fréttaritara, reiðarslag fyrir
Verkamannaflokkinn, enda þótt
hann skiþti ekki máli fyrir lands
stjórnina eða meirihluta flokks-
ins á þingi. Hinsvegar reyndu
ráðherrar Wilsons í dag að gera
lítið úr ósigrinum og sögðu, að
það væri algengt í brezkum
bæja- og sveitastjórnarkosning-
um, að úrslitin væru stjórnarand
stöðunni í hag. Einnig kæmi nú
fram í kosningunum skammsýn
óánægja kjósenda vegna hinna
hörðu efnahagsráðstafana stjórn
arinnar. Þær væru vissulega óvin
sælar, það hefði stjórnin gert sér
fyllilega ljóst, en hún teldi þær
eigi að síður nauðsynlegar, ef
unnt ætti að vera að koma
Fundi Ameríkuríkja lokið:
efnáhagslífi landsins á réttan
kjöL
Verkalýðsmálaráðherrann,
Ray Gunther, viðurkenndi þó,
að úrslitin væru Verkamanna-
flokknum áfall, en taldi þau
skiljanlegar afleiðingar af óá-
nægju almennings vegna efna-
hagsráðstafana.
Úrslit kosninganna staðfesta
vísbendingar skoðanakannana
og aukakosninga í Bretlandi að
undanförnu. Hafa þær bent til
þess, að kjósendur væru að
missa trú á Verkamannaflokkn-
um og telja margir það nokkuð
snemmt, — aðeins u.þ.b. ári eft-
ir að hann vann greinilegan sig-
ur í þingkosningunum.
Talsmenn íhaldsflokksins segj
ast ekki hafa búizt við svo mikl-
um sigri, og eru að sjálfsögðu
kampakátir í dag.
Efnahagsbarsdalag verði
sfofnað fyrir árið 1985
flok!ksSeilStogi
Við embætti fórseta af Istvan
Dobi —- sem gegnt hefar því
embætti frá því árið 1962 — tek
ur nú Pal Losonczi, áður land-
búnaðarráðherra. Dobi mun
hafa óskað eindregið eftir þvi
að verða leystur frá stö f ’m,
vegna heilsubrests og aidurs.
Hann er nálægt sjötugu.
Við embætti forsætisráðherra
tekur efnahagssérfræðingur að
nafni Jenc Fock, 51 árs að aldri.
Helzta viðfangsefni hans verður
að stjórna nýrri efnahagsáætlun
landsins, sem kemur til fram-
kvæmda í ársbyrjun 1968. Fyrr-
verandi forsætisráðherra, Gyula
Kallai, verður forseti þingsins.
þingsins.
í ungversku stjórninni eru
nítján ráðherrar og var skipt jm
menn í fimm embættum. Utan-
ríkisráð'herra verður eftir sem
áður Janos Peter, sem hefur
gegnt því starfi frá 1961. Þá var
ennfremur skipt um yfirmann
áætlanastofnunar ríkisins og
Framhald á bls. 31.
— Ekvator ekki aðili að áœtlun þar um
Punta del Este, Urugttay,
14. apríl. NTB — AP.
♦LYNDON B. Johnson,
lorseti Bandarikjanna, og lcið
togar átján Mið- og Suður-
Ameríkuríkja undirrituðu í
dag samkomulag, þar sem
þeir skuldbinda sig til að
vinna að því að stofnað verði
Efnahagsbandalag ríkjanna
innan ársins 1985. Ekvador
undirritaði ekki samninginn,
sem talinn er hið sögulegasta
skjal. Lauk þannig þriggja
daga leiðtogafundi Ameríku-
ríkjanna og hélt Johnson, for-
seti, heimleiðis síðdegis í dag.
Ríkin, sem undirrituðu samn-
inginn, auk Bandaríkjanna, voru
eftirfarandi: Argentína, Colom-
bia, Costa Rica, Chile, Dominik-
Framhald á bls. 31.
Bertil Ohlin lætur
af formennsku
Mynd fra Vietnam. Ung stúlka heldur á barnungri systuí
sinni mikið særðri, eftir að þeim hafði naumlega verið
bjargað út úr brennandi húsi þeirra.
Breytingar á ung-
versku stjórn’nni
Stokkhólmi, 14. apríl — NTB
BERTIL Ohlin, prófessor, leið-
togi sænska þjóðarflokksins, til
kynnti á fundi þingflokks Þjóð
arflokksins í dag, að hann mundi
ekki gefa kost á sér aftur í
stöðu leiðtoga ,þegar stjórnar-
kosning fer fram á landsfundi
flokksins í júní nk. Hann bar
fram þá tillögu, að i sinn stað
yrði kjörinn þingmaðurinn Sven
Weden.
— Kadar áfram
Budapest, 14. apríl — NTB-AP
MIKLAR breytingar hafa verið
gerðar á stjórn Ungverjalands.
Janos Kadar er þó eftir sem áð-
ur leiðtogi ungverska kommún-
istaflokksins, en skipaðir hafa
verið nýir menn í embætti for-
seta, forsætisráðherra, og nokk-
urra ráðherra.
við hús Adenauers í Rhöndorf
og nærliggjandi götur lokaðar
fyrir bílaumferð. Sjö læknar
stunda sjúklinginn undir um-
sjón Adolfs Heymers prófessors,
— en hann skoðaði hinn sjúka
ekki í kvöld.
Adenauer hefur börizt stór
blómvöndur frá Johnson Bar.da-
ríkjaforseta, og orðsending, þar
sem hann óskar honum góðs
bata.
Mikið uppþot varð í neðri málstofu brezka þingsins fyrr í vik-
unni, er bandaríska þokkadisin, Jayne Mansfield, birtist á
áhorfendapöllum þingsins í fvlgd með Timothy Kitson, þing-
manni fhaldsflokksins. Hér sést frúin stíga út úr bifreið sinni,
klædd skv. nýjustu tízku. Er ekki að undra þótt þingheimi
hafi brueðið.
Rhöndorf, 14. apríl — NTB-AP
GEORGE Adenauer, elzti son-
ur dr. Konrads Adenauers, fyrr
um kanz'iara skýrði frá því í
kvöld, að föður sínum hrakaði
stöðugt. Áður höfðu læknar hans
tilkyn«t, að ekki hefði orðið
vart neins bata og væri lítil von
til þess, að hann lifði af þessi
veikindi.
Sjúklingurinn hafði sofið vel
í nótt, en líðan hans var óbreytt
í morguru Lögregluvörður er
Adenauer hrakar