Morgunblaðið - 15.04.1967, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 15.04.1967, Blaðsíða 12
12 MOKGUJMBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. APRÍL 1967. Erlendur Jónsson skrifar um BÓKMENNTIR „Ef einhver skarar frammúr" Halldór Laxness: ÍSLENDINGASPJALL, 129 bls. Helgafell. Reyjkjavík, 1967. MIG minnir einhver hafi látið í veðri vaka, að með fslendinga- spjalli sínu beindi Halldór Lax- ness orðum sínum til útlendinga fyrst og fremst. Ekki er ráð- legt að leita uppi rök til að mót- mæla því. En það er nú svo, að stundum talar maður til eins, en ætlast þó til að annar heyri. Það mun Uka vera sannast mála um bók þessa, að þar talar íslendingur um ís- lendinga á þann veg, að íslend- ingar munu sjálfir bezt skilja. Sú var tíðin, að Halldór Lax- ness skoðaði ísland frá sjónar- tióli heimsborgarans. Þá var hann eins og fínu mennirnir í Sölku Völku, sem horfðu á þorp ið í gegnum gluggann á reyksal strandferðaskips og virtist „sem ekkert i heiminum geti verið ðllu ómerkilegra og þýðingar- lausara en svona lítið þorp und- ir svona háum fjöllum." ísland var nú samt ekki svo þýðingarlaust, þegar öllu var á botninn hvolft, því það var not- hæft sem yrkisefni í verðandi heimsbókmenntir. „Sveitamaðurinn er alltaf aumt sfeáld, en hann er það sem er öllum sfcáldum ofar: yrkiis- efnið." Þannig komst Halldór Lax- ness að orði í AlþýðubókinnL Það var nú þá. En hvað nú? Má ekki segja, að nú sé skáldið kom ið af hafi, heim? Þessi mikli heimsborgari er nú tekinn að hrósa sveitamönnum fyrir hlut- deild þeirra 1 íslenzkri menn- ingu. Nóibelsskáldið gerist meira að segja svo alþýðlegt að segja nokfeur viðurkenningarorð um Guðrúnu frá Lundi og Ingi- björgu Sigurðardóttur. Það hillir ekki lengur undir framandlegan heimsborgara, sem pírir augum á plássið gegn- um glugga reyksalar .heldur er Ihér á ferð sveitamaður, sem sjálfur horfir út í heiminn gegn- um sinn eigin baðstofuglugga. fslendingaspjall ber keim af aevisögu. Að sumu leyti er það meiri ævisaga en Skáldatími, persónulegra, nánara. Þó verður það ekki afdráttarlaust flokk- að undir ævisagnir, ekfei bein- línis. Halldór Laxness er maðor orðsins. Hann hefur alltaf skip- að orðinu fremst, aWrei látið það þjóna undir önnur mark- mið. Þvert á móti hefur hann látið aðrar eigindir þjóna undir orðið. Verk hans standa og falla samkvæmt því, hversu hann hagar orðum sínu Bregð- ist honum orðlistin,, (sem sjaW- an kemur fyrir), þá bregzt hon- um einnig málstaðurinn. En standi orðið, þá stendur einnig miálstaðurinn, efnið. Aftur á móti verður þess óvíða vart, að Halldór Laxness leggi sig fram að vera einlægur. Og barnaleg hreinskilni er hon- um víðsfjarri. Að sama skapi er honum öðrum höfundum ósýnna um að skrifa ómengaða sjálfsævisögu, enda hefur hann •kki freistað þess hingað til. Þegar orðið er látið ráða — þá ræður það. Sannleikskrafan ▼erður þá að vikja fyrir hinu fagurfræðilega sjónarmiði, en sú hefur einmitt oft orðið raunin I verkum HalWórs Laxness; orð- itt, málsgreinin, artíllinn hefur mótað efnið. Samt er Laxness harla lagið að bregða skáldleg- um glampa jrfir afmörkuð sögu- ▼við. Honum er tamt að alhæfa. Alhæfing er sjaldan vísindaleg, 6t af fyrir sig. Þó kann hún að leiða okkur skjótar að kjarna ■aálsins en vísindaleg rök og gagnrök. Ég leyfi mér að til- færa hér smádæmi: „Það er varla ofdjúpt tekið í árinni að ísland hafi verið ríkt land fram til siðaskipta," segir Laxness. Svona mundi varfær- inn sagnfræðingur ólíklega kom- ast að orði, enda væri auðVelt að véfengja þessa fullyrðing, ef þvælt væri saman nógu mörg- um og miklum vífilengjum. Engu síður felst í fyrrgreind- um orðum kjami málsins. Þvi aðeins höfðu fslendingar þjóð- að véfengja þessa fullyrðingu, ef þeir þurftu ekki að gera anaa'ð á meðan. Og það þarf nokk.'rn skilding til að framfleyta fjöl- mennum hópi listamanna, bæði nú og þá. Það er gömul saga, að fáir taka mark á því, sem markvert er, fyrr en það er orðið úrelt og marklaust. Sú vax tíðin, að ekki tóku allir mark á orðum HalWórs Laxness. „Áratugum saman,“ segir hann, „var ég alltaðþví bann- helgur á heimilum, í lestrarfélög um og í bókasöfnum víðsvegar um land, útflæmdur hjá mennta- stofnunum og menníngarforkólf- um, og heilar sveitir og sýslur sikpulagðar á móti þessum auma höfundi.“ Ekki þarf að muna nema rösk- an aldarfjórðung aftur í tím- ann til áð votta, að þessi orð eru sönn. Þó segja þau ekki nema hálfan sannleikann. Og því verður ekki komizt hjá að spyrja, hvað knýi höfundinn til að ýfa nú upp það leiðindaþvarg, þar eð hann er nú búinn að vinna svo marga og stóra sigra, en hinir, sem forðum forsmáðu verk hans, hafa ekki í mörg ár gert annað en skammast sín. Nú ÞAU komu til mín eitt kvöldið rétt áður en ég ætlaði að fara af skrifstofunni. Ekki voru þau að biðja um vistpláss fyrir sig eða sína, erindið var allt ann- að. Þau voru áhyggjufull vegna peningamála. Auðvitað er það ekkert nýtt, að fólk hafi áhyggj- ur af peningum, dýrtíðin er mik- 11, verðbólga og ótal margt ann- að amar að, finnst mönnum, en þau voru áhyggjufull, af því að þau áttu svo mikið af pening- um. Þau voru bæði við góða heilsu, barnlaus og áttu fáa að. Þau áttu húseign og höfðu yfir 10 þúsund í leigutekjur á mánuði og unnu svo bæði fyrir um 20 þúsundum á mánuði. Svo bættust við vextir af sparifé og skuWa- bréfum, og nú voru þau stund- um svefnlaus. Var allt þetta að verða verðlaust — þau mundu eftir því, hvernig fór fjrrir Þjóð- verjum í fyrri heimsstyrjöW, þeg ar markið var einskis virði. Og nú sátu þau hinumegin við skrif borðið og voru að spyrja mig ráða — hvað áttu þau að gera. Við ræddum málið töluvert. Hvort betra væri að eiga pen- inga eða húseignir,, hækkar þetta ekki enn, verður krónan ekki enn einu sinni felld, og þau horfðu angistaraugum hvort á annað. Lesandinn veit auðvitað, að þetta er aðeins dæmisaga, sem þó má læra af — ef til vill — og við höWum áfram. Ef hann síra Jakob hefði ein- hvern tímann agt út af textan- um „Likklæðin hafa enga vasa“ þá hefði ég getað bent þeim á þá ræðu, en ræðan hefur enn- þá ekki verið haldin, svo að ég fór að tala um þetta allt nánar við þau. Hvers vegna látið þið ekki eitt hvað af peningum ykkar verða •til góðs á meðan þið eruð sjálf á lífi? Væri ekki gaman fyrir er viðbúið þeir hætti að skamm- ast sín, og er þá illa farið, bvi þeir verðskulda engan veginn svo auðveld málalok. Því hvað sem líður fjandskap heilla sveita og sýslna í garð Halldórs Laxness áður fyrr, má ekki gleyma hinu, að hann hafði sín megin það afl, sem máli skipti — fólkið, sem les bækur og skilur þær. Þeim höfundi, sem hefur þann hóp á sánu bandi, má standa á sama, hvað hinir pípa. Þeir eru alltaf áhrifalausir, þegar til úrslit- anna dregur. Á baráttuárum sínum var Laxness ekki að kvarta, enda hefði það verið ástæðulaust. Þeim mun meiri furðu gegnir, að óánægjan skuli nú — þegar allt á að vera graf- ið og glejrmt — dompast upp úr skáldimx. Virðum t.d. fyrir okk- ur þetta skejrti, sem stefnt er að þeim. sem í blöðin skrifa: „En þó ég,“ segir Laxness, „hafi aldrei slegið í gegn á ís- landi, sem kallað er með ljótri dönskuslettu, og sé nú gleymd- ur jjerðskuldiaðri gleymsku af þeim fáum vinum sem einus’nni vonuðu að ég mundi gera það, þá er þó eitt til sannindamerkis um að ég sé ekki með öllu dauð- ur, og það er sú staðreynd að snildarandar þjóðarinnar, meira að segja hin þriðja snildara.ida- kynslóð í minni ævi, eru enn jafn óðfúsir og nokkru srani að úthúða þessu skáldmenni 1 blöð- unum og lumbra á þvi í víga- hug einsog böldnum krakka hvc- nær sem það dirfist að senda frá sér einn bækling enn.“ Einnig þessari sneið skuiu blöðin kyngja: „Ég veit þess dæmi,“ seglr ykkur að sjá með eigin augum, hversu miklu góðu og gagnlegu þeir geta komið til leiðar, ef þeim er rétt varið? Þið gætuð t.d. stofnað sjóð til eflingar rann sóknum í þágu læknavísinda. Einnig getið þeim hjálpað þeim á Hólmavík, sem nú eru búnir 'árum saman að vinna að því að koma upp kirkju sinni, og vantar nú aðeins nokkur hundr- uð þúsund, til þess að kirkjan verði fullgerð. Okkur á Grund þyrftu þau ekki að hugsa um, en úti um landið er farið að safna peningum til bygginga á elliheimilum, og benti ég þeim á fyrirhugað elliheimii, sem ráð- gert er að reisa á Egilsstöðum, ég held, að þau séu ættuð það- an. Ef ræðan um að líkklæðin hafi enga vasa, hefði verið haW- in, þá væri þetta mál mjög auð- velt, vegna þess að þá vissu þau og reyndar margir fleiri, hvað presturinn hefði sagt. Líklega hefði ræða hans verið eitthvað á þessa leið. Eitt er sameiginlegt með okk- ur öllum — undan einu kemst ekki nokkur maður, hvernig sem hann fer að. Við eigum öll eftir að deyja. Hvenær vitum við reyndar sjaldnast, en Dauð- imn kemur á sínum tíma. Þess vegna er betra að vera viðbú- inn. Því gleymum við reyndar líka og drögum allt á langinn. En samt vitum við svo ósköp Vel, að líkklæðin hafa enga Vasa, við tökum ekkert af þessu með okkur, peningana, húsin og mannvirkin, eða hvað það nú er, sem við eigum — allt er skilið eftir. Þess vegna er rétt að gera nokkrar áætlanir 1 lif- anda lífi um, hvað á að gera við þetta allt eftir okkar dag. Sumir þurfa litlar áhyggjur að hafa i þessum efnum, þeir sem lítið eiga. En hinir, sem enga lenzkt dagblað, að sögubók eft- ir kunnan skáWsagnahöfund fékst ekki ritdæmd í því blaði nema skáldsaga eftir annan höfund, sem hvorki var skáld- sagnahöfundur í augum sjálfs sín né annarra, feingi enn bstri einkunn í sömu greininni.“ Þannig mælir Halldór Laxness að hálfnuðum sjöunda tug sinn- ar ævi. Hann lætur það eitto'/að heita eins og fyrri daginn. En hljómar ekki sem öfug- mæli að segja, að bann hafi „aldrei slegið í gegn á íslaadi?" Hver hefur þá nokkru sinni slegið í gegn á fslandi? Mér er spurn. Hitt væri sönnu nær að segja, að hann væri hættur að slá í gegn nú, og eiga flestir undir því, þeir sem vinna langt ævi- starf, að misjafnt er veraldar- gengi. Þar gilda þau lögmál, sem jafnvel afreksmenn fá ekki við spomað. Og hví 1 ósköpunum nefnir Laxness ekki, skýrt og skorin- ort, grein þá og dagblað, sem hann dylgjar um, „að sögubók eftir kunnan skáldsagnahöfund fékst ekki ritdæmd... nema skáldsaga eftir annan höfund.. feingi enn betri einkunn í sömu eiga að, en eru stórríkir, þeir ættu vissulega að hugsa málið nokkuð og athuga sinn gang. Allt þetta sagði ég þeim og ýmislegt fleira. Fór að tala um mörg mannúðar og líknarmál, sem vantar tilfinnanlega peninga til íramkvæmda. Elliheimili, bamaheimili og ýmislegt fleira. En þau skildu mig illa. Þau höfðu aðeins áhyggjur af pen- ingum sínum, héldu, að þeir myndu verða verðminni á næst- unni. Þau hugsuðu aðeins um sig, hvað yrði um hann Jón, varð- aði þau ekki um. Og nýlega las ég tilkynningu um andlát hans og nú á hún alla peningana, og svefnleysið og á- hyggjurnar aukast hjá henni með auknum peningum. Vesa- lings rika konan. Hún á nóg af veraldar auði, þótt hún yrði hundrað ára, getur hún ekki eytt nema hluta af vöxtunum. Von- andi les hún þessa grein — nei, þetta er dæmisaga — þá les ein- hver annar hana, sem ef til vill skilur, hvað ég er að fara. Lát- ið peninga ykkar gera gagn í lif- anda lífi — ef þið hafið mikið atf þeim, þá látið nokkur þús- und til þess að ljúka kirkjuibygg ingunni í Hólmavík. Þar eru 300 manns — harðduglegt fólk — en kirkjan kostar svo mikið og hef ur verið svo lengi í byggingu. Sendum þeim að sunnan nokkurt fé — við getum það sum enn- þá — vonandi. Hornin eru mörg, sem þarf að líta I, víða vantar fé til þess að hjálpa á einn eða annan hátt og vissulega leggja margir fram mikið fé. En hinir eru þó fleiri, sem hugsa eins og hjónin í dæmisögunni, því mið- ur, en þó heW ég, að þeim fækki — hugsunarhátturinn breytist, þegar við förum að íhuga, að við förum ekki með neitt með okkur í hinztu ferð- ina. En minningin um það, sem við reynum að gera öðrum til hjálpar, hún geymist — stundum. Gísli Sigurbjörnsson greininni"? Og hver er' þessi „kunni“ höfundur ,sem hann ekki netfnir? Hvers vegna má ekki segja mönnum til syndanna, eigi þeir það skilið, í stað þese að púðra ásökunum marklaust út í loftið, þannig að fár sem enginn viti, við hvern er átt? Laxness var á sínum beztu ár- um jatfn harðskeyttur sem hann var stríðinn og meinlegur. Þá hitti ádeila hans undantekning- arlaust í mark, af því henni var fortakslaust beint að markinu sjálfu. Þá var ádeila hans að því skapi skemmtileg, að höf- undurinn var aldrei önugur. Marklaust nöldur fyrirfanns* ekki í nokkru hans orði. Fyrrgreind ummæli um ótil— greint dagblað eru ekki af þvl taginu. Þau fljúga ekki eins og beitt ör, heldur falla þau eine og slyttisleg forsending. Þá finnst mér allt of smá- smugulegt af Laxness að taka nú að atyrða veslingsmann þann, sem fyrrum var yfirrukkari 1 lögsagnarumdæmi hans, enda þó yfirrukkarinn hafi haft — eftir því sem sögur herma — full- mikla skemmtun atf að rukka skáldið. 1 einn stað kemur fyrir því: Nóbelsskáld á ekki að Lát- ast reka minni til knepranna 1 þvílíkum stráki. Og alla vega er sú saga ómerkilegri en svo, að hún eigi erindi við þjóðir, sem hugsa stórt. Nei — óánægja NóbelsskáWs- ins stafar ekki af því and- streymi, sem það varð fyrir áður á tíð, heldur af því tómlæti, sem það þykist verða fyrir nú. En — vel að merkja — beztu verk Halldórs Laxness smækka engan veginn fyrir því, þó hann sé nú „farinn að stirðna í fínu hreyfíngunum", eins og Bjartur í Sumarhúsum orðaði það, þegar hann bjóst til að leiða Rauðs- mýrarfrúna bak við víðirunn. Erlendur Jónsson. Minningorgjöi HINN 6. júlí 1966 stofnaði Magn ús Sigurðsson frá Miklaholti á Snæfellsnesi sjóð til minningar um eiginkonu sína, Ásdísi M. Sigurðardóttur. Stofnfé sjóðsine er kr. 100.00, — eitt hundrað þúsund krónur — en tilgangur að tryggja kirkjuhald að Mikla- holti, viðhalda, bæta og fegr* kirkju staðarins eftir nánari ákvörðun sjóðstjórnar á hverj- um tíma. Sjóðurinn skal vera 1 vörzlu sýslumanns Snæfells- og Hnappadalssýslu og er hann for- maður sjóðsstjórnar. Ásdis Magnea var fædd að Rauðkollsstöðum í Eyjahreppi 18. marz 1884. Hún giftist 25. nóvember 1909 Magnúsi Sigurðs- syni. Hófu þau hjón búskap að Miklaholti vorið 1911. Segir svo í afmælisgrein, er Sigurður Ólason, hrl., reit í Morgunblað- ið á áttræðisafmæli frú Ásdíe- ar: „Bæði voru þau hjón höfð- ingjar í lund og allri reynd, end* verður þeirra og lengi minnzt þar í byggðarlagi. Má í því sam- bandi geta forgöngu þeirra um endurreisn Miklaholtskirkju, sem þá hafði verið niður lögð um skeið, en kirkja hefir verið þar frá í öndverðri kristni á ís- Framh. á bls. 21 skáWið, „um mikilsmetið ís- HEIMSÓKN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.