Morgunblaðið - 15.04.1967, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. APRÍL 1967.
BÍLALEICAN
FERD
SÍMI 34406
Bensín innifalið í leigugjaldi.
SENDUM
MAGIMUSAR
SKIPHOITI 21 SÍMAR 21190
éftiríokun simi 40381 "
1-44-44
mmim
Hverfisgötu 103
Sími eftir lokun 31160.
LITL A
bíloleigon
Ingólfsstræti 11.
Hagstætt leigugjaid.
Bensin innifalið í leigugjaldi.
Sími 14970
BÍLALEIGAIM
VAKUR
Sundlaugaveg 12. Sími 35135.
Eftir tokun 34936 og 36217.
RAUOARÁRSTÍG 31 SÍMI 22022
Fjaðrir fjaðrablóð. hljóðkútar
púströr o.fl varahlutir
í margar gerðir bifreiða
Bílavörubúðin FJÖÐRIN
Laugavegi 168. — Simi 24180.
K R. Knattspyrnudeild
Hópferðab'ilar
allar stærðlr
Simar 37400 og 34307.
LOFTUR hf.
Ingólfsstræti 6.
Pantið tíma í sima 1-47-72.
Bezt að auglýsa
* í Morgunblaðinu
* Vorið
Jæja, ætli vorið sé loks-
ins komið? Ég er að vona það.
Kunningi minn einn var að
taka nagladekkin undan bíln-
um sínum og sagðist alveg viss
um að vorið væri komið og að
ekki frysti aftur. Farfuglarnir
eru líka komnir, en ko na
þeifra hefur að vísu ekki verið
nein trygging gegn vorhretum,
ekki hingað til.
Annars skilst mér að birgar-
yfirvöldin mundu vilja h ætja
alla til >ess að taka nagladehk-
in undan bilum sínum — og
þótt fyrr hefði verið. B|örn
Pálsson er kannski á sama
máli?
★ Lifnar yfir öllu
Það lifnar yfir öll'jn —
og öllu, þegar vorið ke nur.
Þessi vetur hefur verið lang-
ur og drungalegur, úr'tom.i-
mikill og hvassviðrasamur. Það
er kominn tími til að við fá-
um tækifæri til að anda léít-
ara — og ganga einu smm út
án þess að þurfa að brynja
okkur gegn öllu hugsanlegu
háttalagi veðurguðanna. Þegar
við förum út að morgni viturn
við ekki hvert hann rignir eða
snjóar, þegar á daginn líðuv —
og sé veðrið slæmt að morgn-
inum getum við átt von á sól-
skini og blíðu síðdegis. Svona
hefur þetta gengið að undan-
förnu. Eilífir umhleypingar —
aila tíð.
Á bæ einum við innanverðan
Breiðafjörð búa ung hjón ásamt
sex börnum sínum. Á si. fjórum
árum hafa þau verið að byggja
upp öll hús á jörð sinni. Ailir
sem þekkja til slíkra fram-
kvæmda, fara nærri um hvern-
ig fjárhag þeirra muni komið.
Eitt barna þeirra er 9 ára
gömal telpa og hefur hún aldrei
á þessu stutta æfiskeiði gengið
heil til leiks né starfa. ftrek-
uð rannsókn lækna hefur leitt
í Ijós, að litla telpan hefur
þjáðzt og þjáist af meðfæddum
hjartagalla. Æðaþrengsli eru að
og frá hjartanu. Einnig ætla
læknar, að aukaop sé á milli
hólfa vinstra megin í hjartanu.
Sérfraeðingar,. sem litlu telp-
una hafa rannsakað, telja að
eina leiðin til að lækna hana sé
sú, að hún gangi undir læknis-
aðgerð vestur í Bandaríkjunum
Kostnaður við þessa för og
skurðaðgerð hefur verið áætlað-
ur um 300 þúsund krónur.
Hjartavemdarsjóður og aðrir
aðilar leggja fram kr. 80.000.
Um það, sem vantar, er nú
leitað til allra íslendinga um
La Paz, Boliviu,.
• Haft er fyrir satt í La Paz,
að af hálfu hersins sé að hefjast
herferð gegn skæruliðum komm
únista í suðausturhluta landsins.
Segir dagblaðið „Presencia" í
frétt frá Camiri, að þangað séu
komnar deildir úr fótgönguliði
og flughernum og hafi þegar ver
ið hafnar loftárásir á þá staði,
þar sem talið er. að skæruliðar
hafi bækistöðvar sínar.
Mikið væri það dásamlegt að
geta einu sinni gengið út i
góða veðrið og komið aftur
heim án þess að vera annað
hvort skjálfandi af kulda eða
eins og hundur dreginn af
sundL
^ Beðið eftir
vorboðum
1 Surtsey bíða þeir eftir
vorfuglunum, en mér skilst að
bið þeirra gerist löng. Fugla-
lífið sé enn lítið í eyjunni —
og hálfeinmanalegt að dveljast
þar. Við — hér á „meginland-
inu“ bíðum líka eftir fuglun-
um, en sennilega ekki jafn-
ákaft og þeir, sem ekki gera
neitt annað en að bíða. Tíminn
vill þá vera lengi að líða —
ólíkt því sem er hér í marg-
menninu. Við eigum því .yfir-
leitt ekki að venjast að tíminn
sé lengi að líða — hann flýgur
áfram — með amerískum
hraða.
-jfc- Gatnagerð
Þegar hægt verður að
hefja vorverkin höfum við í
nógu að snúast. Ég hef einna
mestan áhuga á að þeir geti
farið að hefjast handa við lag-
færingar á götum og þjóðveg-
um. Vonandi fer að líða að því,
að einmg verði byrjað að end-
urnýja vegina okkar í stórum
stíl — á svipaðan hátt og gert
var á Keflavíkur-leiðinni. Það
að leggja sinn hlut fram til
hjálpar litlu telpunni.
í Dalasýslu hefur Lionsklúbb
ur Búðardals ákveðið að sjá um
fjársöfnun. Félagar hans fara
tveir og tveir saman á hvern
bæ-í sýslunni með söfnunaríista.
Ónefndur bóndi á Skógarströnd
hefur hafið söfnun og leitað bef-
ur verið til stjórnar Breiðfirð-
ingafélagsins í sama skynL
Við, sem höfum verið að
kynna okkur. bvaða fyrirgreiðs!
Ur væru látnar í té og hvaða
leiðir íægju til hjálpar einst.akl
ingum, sem þjást af alvaneg-
um hjartasjúkdómum, höfum
orðið sammála um það, að ef
meira safnast nú en þessi iiíia
telpa þarf á að halda, þá skuii
það fé, sem umtram verður,
renna í sjoð er varið verði til
hjálpar öð'utn börnum og ungl
ingum hvar sem þau eiga heima
á landinu og ha'öin eru svo al-
varlegum hjartasjúkdómum, að
þau verða að leita lækninga er-
lendis.
fslendingar hafa margsýnt að
hjartalag þeirra sé gott og þeir
eru fljótir til að rétta fram
hjálpfúsa hendi, þegar þess er
beðið og þörfin er augljós. Þess
vegna er ennþá knúð með ör-
yggi og bjartsýni á dyr hjartans
sem finnur til með og vill
hjálpa sjúku barni til að öðl-
ast heilbrigða æsku og bjarta
framtíð.
Eggert Ólafsson,
sóknarprestur.
Morgunblaðið veitir fjárfram
lögum til litlu stúlkunnar mót-
töku.
var bóð byrjun, en við megum
ekki láta þar við sitja.
Þegar farið er að ræða þessi
mál enn einu sinni kemst Hafn
arfjarðarvegurinn enn á dag-
skrá. Mikil bót var að mal-
bikuninni á síðasta árþ en
spottinn um Kópavog er hróp-
andi dæmi um það hvernig
endalaus dráttur á framkvæmd
um leiðir að lokum til þess
að siglt er í strand.
Slæm framkoma
Lesandi skrifar:
„Mig langar að vekja máls á
þjófnaði, sem virðist ekki vera
óalgengur hér ; borg, en fólk
sem horfir á, lætur sér fátt
um finnast.
Það sem ég meina er þegar
bílstjórar aka utan í aðra bila
og gera enga tilraun til að láta
eigendur eða vátryggingafé’.ag
sitt vita um skaðann.
Nú fyrir skömmu var ekið
utan í bíl minn á bílastæði í
sjötta skiptið og valdið tjóni,
sem þúsundum króna skipti.
Ég er mjög sár út í þetta, en
get engr vörn við komið.
Nú er álit mitt, að þessi
þjófnaður stafi að nokkru leyti
af bónuskerfi vátrygginga-
félaganna, en paT sem ég tel,
að kerfið hafi fullan rétt á sér,
vil ég þar engu um breyta.
Það er heldur hlálagt að
hugsa sér mann taka við heið-
ursskjali fyrir góðakstuT, sem
ef til vill hefur valdið siíku
tjónL
Þá er að athuga hvaða leiðir
er bezt að fara, til þess að fá
þessa tjónavalda til að til-
kynna tjónin.
Nú sé ég ekki neinn eðlis-
mun á því, hvort maður fer
inn í íbúð mína og stelur þar
nokkrum þúsundum króna eða
hinu, að hann valdi mér tjóm
á bíl mínum, sem nemur sömu
upphæð og gerir ekki vart við.
Mér fyndist ætti að beita
sömu lögum í báðum tilfellum
og auk þess ökuleyfismissir í
eitt ár.
Þessir þrjótar myndu hugsa
sig um tvisvar, ef þeir ættu
von á siíku.
Nú vil ég hvetja alla þá, sem
varir verða við að slík ódæði
séu framin að taka upp .númer
beggja bílanna og tilkynfia þau
lögreglunni.
í flestum tilfellum mhn lög-
reglan geta sannað sö’kina á
hinn seka.
Reykjavík, 12. apríl ‘67.
S.H.J.
-jér Ýsa og exem
„Kæri Velvakandi.
Fyrir mörgum árum varð ég
haldinn af hinum erfiða sjúk-
dómi sem exem nefnist og sem
marga hrjáir. Orsakir þessa
sjúkdóms eru ef til vill marg-
víslegar en að því er mig
áhrærir eru orsakirnar þær, að
ég má ekki borða ýsu, en allan
annan fisk má ég borða án
þess að ég verði nokkurra
óþæginda var. Aftur á móti
reynist mér ýsa svo magnaðar
exem-vaki, að ef bara sma-
stykki af henn: er soðið með
þeim fiski, sem ég neyti, oá
verð ég óðara þess var, en með
an nauðsynlegrar varúðar tr
gætt um þetta er ég alveg !aus
við þennan leiða kvilla. Nú
fyrir skömmu fékk ég hins veg
ar mjög slæmt kast og við rann
sókn á ástæðunum fyrir þessu
kom í ljós, að niðursoðinn fisk-
ur sem ég hafði neytt var ein-
mitt ýsa
Nú er mér forvitni á að vita,
hvort okkar ágætu sérfræðing-
ar hafa athugað að hvaða leytl
efnasamsetning ýsu er frá-
brugðin öðrum fiski. Er um ■'ér
stakt aukaefni að ræða? eða
prósentvís mismunur á efna-
samsetningunni? Ég veit að
ótrúlega margir þj'ást af þess-
um sjúkdómi, og ef til vill gælu
upplýsingar um þetta verið
gagnlegar í baráttunni við
þennan leiða kvilla.
ÁsL“
- ALÞINGI
Framhald af bls. 14
nefnd utanríkismálanefndar, er
stofnuð var eingöngu til að ræða
Natomál án þess að fulltrúar
flokks síns gætu fylgzt með.
Einar sagði, að utanríkismála-
nefnd hefði aldrei verið nein
leyninefnd og framkoma ráðherr
ans fyrrverandi hefði og verið
þannig gagnvart nefndinni, að
Ijóst var að hann leit ekki á
hana sem leyninefnd.
Að lokum sagði Einar, að það
skipti í sjálfu sér minna máli,
hvernig Guðmundur í. hefði hag
að sér gagnvart Alþingi. Aðal-
atriði væri, að núverandi utan-
ríkismálaráðherra tæki upp eðli-
legt samstarf við nefndina.
Þórarinn Þórarinsson sagði að
hann hefði alltaf gengið út frá
því, að nefndin væri opin nefnd
og hefði Gísli Jónsson, er eitt
sinn var formaður nefndarinnar,
einnig litið þannig á. Sömu sögu
væri að segja af Hermanni Jón-
assyni. Guðmundur f. hefði ekki
fært neinar sönnur á mál sitt,
og því væri eðlilegt að rann-
saka hans ásakanir.
Emil Jónsson (A) sagði að
þesar skoðanir Þórarins stönguð
ust á grein, er birt var í Tíman-
um 17 apríl 1959. en þar hefði
þeirri skoðun verið haldið fram,
að má) nefndarinnar væru ekki
kunngerð fyrr en þau kæmu
fram á Alþingi. Væri síðan
kvartað yfir því í greininni, að
birtar hefðu verið tillögur Fram-
sóknarmanna um landhelgismál-
ið í nefndinni.
Þórarinn Þórarinsson stóð að
lokum upp og sagði, að það
væri rétt, að Framsóknarmenn
hefðu talið eðlilegt, að ekki yrði
frá þessum tillögum skýrt fyrr
en náðst hefði eitthvert sam-
komulag innan nefndarinnar. Þó
sagðist Þórarinn geta fullyrt, að
í áðurnefndri grein hefði hvergi
komið fram nein ásökun á nefnd
ina fyrir trúnaðarbrot.
Byggingatæknifræðingur
óskar eftir starfi. Brautskráður í marz 1967 frá
dönskum tækniskóla. Tilboð er greini starfssvið og
launakjör sendist Morgunblaðinu fyrir 20. þ.m.
merkt: „Tæknifræðingur." ,
Hiálparbeiðni