Morgunblaðið - 15.04.1967, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAÚGARDÁGUR 15. APRÍL 1967.
i t u a tcro c
Umrœður um utanríkismálanefnd — Bréf Guðmundar f. Cuðmundssonar:_
Þjóðviljinn birti trásagnir af
fundum nefndarinnar
— á tímum landhelgismálsins — Fulltrúi Alþbl.
taldi trúnaðarsamstarf við fyrrv. utanríkisráð-
herra ekki eftirsóknarvert
I GÆR var felld í Neðri
deild Alþingis tillaga Fram-
sóknarmanna um skipun
rannsóknarnefndar skv. 39.
gr. stjórnarskrárinnar til þess
að rannsaka ásakanir fyrr-
verandi utanríkisráðherra,
Guðmundar í. Guðmundsson-
ar, þess efnis, að nefndar-
menn í utanríkismálanefnd
hefðu framið trúnaðarbrot.
Emil Jónsson, utanríkisráð-
herra, Ias í Alþingi í fyrra-
dag greinargerð frá Guð-
mundi I. Guðmundssyni, um
mál þetta, þar sem hann seg-
ir m.a. að á tímum landhelg-
ismálsins hafi Þjóðviljinn
birt frásagnir af fundum
nefndarinnar og því sem þar
gerðist og ekki ætíð farið
rétt með. Tilnefnir fyrrver-
andi utanríkisráðherra í
bréfi sínu tiltekin tölublöð
Þjóðviljans, þar sem slíkar
frásagnir eru birtar og segir
síðan að skýrasta dæmið um
bin nýju vinnubrögð Alþýðu-
bandalagsins í utanríkismála-
nefnd sé ræða, sem þáver-
andi fulltrúi þess í nefndinni
Finnbogi Rútur Valdemars-
son, hélt í Efri deild Alþingis
28. okt. 1960, þar sem vikið sé
að mörgum fundum nefndar-
innarr og jafnframt hafi full-
trúi Alþbl. lýst því yfir í ræð-
unni að hann væri reiðubú-
inn að gegna þagnarskyldu
þó með tveimur fyrirvörum.
í fyrsta lagi yrði að óska þess
hverju sinni og í öðru lagi ef
fulltrúi Alþbl. liti svo á að í
orðum nefndarmanna eða ráð
herra fælist stefnuyfirlýsing,
gilti engin þagnarskylda.
Jafnframt segir Guðmundur
1. Guðmundsson í bréfi sínu
að fulltrúi Alþbl. í nefndinni
hafi lýst því yfir við sig í við-
tali að hann teldi trúnaðar-
samstarf við ráðherrann ekki
eftirsóknarvert.
Þórarinn Þórarinson (F) sagði
1 upphafi frá aðdraganda að
flutningi tillögunnar, sem hefði
verið ásökun utanríkisráðherra á
hendur utanríkismálanefnd fyrir
að hafa brotið trúnað. Hefði ráð-
herra gert þetta bæði á Alþingi
og I sjónvarpi. Sagði ræðumað-
ur, að þessar ásakanir væru það
alvarlegar, að hann hefði flutt
þessa tillögu til rannsóknar á á-
sökunum ásamt samnefndar-
manni sínum. Þórarinn sagði, að
núv. utanríkisráðherra bæri fyr-
ixrennara sinn í starfi fyrir sig,
en sá hefði talið sig hafa orðið
svo á barðinu fyrir nefn dinni,
að ekki hefði verið ráðlegt að
skýra henní frá trúnaðarmálum.
Þórarinn kvaðst hafa farið í
gegnum allar fundargerðarbæk-
ur utanríkismálanefndar frá
þeim tíma, er brotið átti að hafa
átt sér stað, en þar væri hvergi
«ð finna neitt um, að trúnaðar
hefði verið óskað af hálfu ráð-
herra, eða að trúnaðarmál hefðu
þar verið rædd.
Að lokum rakti Þórarinn sögu
utanríkismálanefndar.
Hér fer á eftir ræða Emils
Jónssonar ásamt bréfi Guð-
mundar í. Guðmundssonar
og frásögn af öðrum umræð-
um:
Tilefni þessarar till. er það,
að ég vitnaði til ummæla fyrir-
rennara ipíns, Guðmundar I.
Guðmundssonar, sem hann við-
hafði á fundi utanríkismálanefnd
ar 4. febr. 1964. Ummælin liggja
fyrir bókuð í fundargerðarbók
utanríkismálanefndar og þau
fara þess vegna ekki á milli mála
og þurfa ekki neinnar rannsókn-
ar við, hvað þá heldur sérstakr-
ar n. Þau þóttu þá ekki meiri
tíðindum sæta en svo, að engum
óskum um að rannsaka þau var
hreyft þá, og málið látið kyrrt
liggja nú í rúm 3 ár.
Hitt liggur líka fyrir hvað
blöðin sögðu þá og hvaða upp-
lýsingar þau höfðu að flytja frá
fundum n. í mörgum tilfellum,
um allra viðkvæmustu utanrikis-
mál sem þá voru á döfinni.
Þessi ummæli liggja líka fyrir,
og þurfa ekki rannsóknar við.
Ég hefi nú pskað eftir því
við Guðmund í. Guðmundsson
ambassador okkar í London og
fyrrv. utanríkisráðh., að hann
gefi mér umsögn um þetta mál
og það hefur hann gert og ég
skal með leyfi hæstv. forseta
leyfa mér að lesa þessa umsögn
upp. Og hún er svohljóðandi:
Á fundi utanríkismálanefnd-
ar 4. febr. 1964, óskaði einn
nefndarmanna, Þórarinn Þórar-
insson eftir upplýsingum um
fiskimálaráðstefnu, sem nýverið
hafði verið haldin í London. Ég
svaraði fyrirspurninni með því
að skýra n. frá öllu því, sem
gerzt hafði á fiskveiðiráðstefn-
unni og opinbert hafði verið
gert. En ég sagði síðan, eins og
segir í fundargerðarbók utanrik-
ismálanefndar. Frekari upplýs-
ingar um þeUa kvaðst ráðh. ekki
geta gefið. f upphafi .ráðstefn-
unnar hafði verið ákveðið að
hún skyldi vera haldin fyrir lok
uðum dyrum og farið með það
sem þar gerðist sem trúnaðar-
mál. Þeim trúnaði kvaðst ráðh.
bregðast, ef hann skýrði utan-
ríkismálanefnd frekar frá því,
seim fram hefði farið á ráðstefn-
unni. Það hefði að vísu verið
venja, áður fyrr, að skýra utan-
ríkismálanefndinni í trúnaði frá
málum sem þessum, en*á tímum
landhelgismálsins hefði stjórnar-
andstaðan tekið upp þau vinnu-
brögð, að birta viðstöðulaust í
blöðum sínum allt það sem' fram
fór í n. og kvaðst ráðh. áður hafa
vakið athygli. á því hjá n. að
slík trúnaðarbrot leiddu til þess
eins, að ekki væri unnt að ræða
trúnaðarmál í n. Þessa afstöðu
sína kvað ráðh. óbreytta og vildi
hann ekki taka áhættuna af því,
að birt yrði í blöðm frásögn af
málum þeim sem fara ætti með
sem trúnaðarmál.“ Skv. fundar-
gerðarbók utanríkismálanefndar
svaraði Þórarinn Þórarinsson
ummælum mínum þannig: Hann
sagðist ekki kannast við að rof-
inn hefði verið sá trúnaður, sem
ætti að gilda um mál, sem utan-
rmn. ræddi, að minnsta kosti
hefði hann og flokkur sá sem
hann væri fyrir ekki gerzt sek-
ur um trúnaðarbrot.
Þórarinn Þórarinsson gerði
ekki nánari grein fyrir því,
hvers konar trúnaður hann teldi
að ætti að gilda um utanríkis-
málan. og hann bar enga ósk
fram um skýringu frá mér við
hvað ég ætti, er ég talaði um
trúnaðarbrot. Aðrir nm. hvorki
andmæltu því að trúnaðarbrot
hefði átt sér stað, né óskuðu
skýringa á ummælum mínum.
Eftir þettá átti ég sæti á Alþ. til
haustsins 1965. Á þeim tíma kom
aldrei fram krafa um, að ég
gerði nánari grein fyrir ummæl-
um mínum á fundi utanrmn. Er
það fyrst nú, eftir að ég er hætt-
ur afskiptum af stjórnmálum,
horfinn úr landi, og hefi ekki
aðstöðu til að taka þátt í umr.
á Alþ., að um er spurt hvað það
hafi verið, sem ég sagði utan-
rmn. fyrir 3 árum. Ég skal að
sjálfsögðu gera nokkra grein fyr
ir málinu, er ég minni á að ég
er í öðru landi og hefi ekki
handbær þau gögn, sem ég hafði
á meðan ég átti sæti á Alþ. og
auk þess, sem ég tek ekki leng-
ur þátt í stjórnmálum og óska
ekki eftir að draga inn i málið
ýms atriði, sem ég áður hafði
gert.
Meðferð mín á utanríkismál-
um hófst árið 1956 í ríkisstj. Her
manns Jónassonar. Fyrsta veiga-
mikla utanríkismálið, sem ég
fjallaði um, var endurskoðun
varnarsamningsins við Banda-
ríkin. Ég samdi um það mál við
Bandaríkjastjórn, í fullkomnu
og nánu samstarfi við forsrh. og
aðhafðist ekkert í málinu nema
með hans samþykki. Það var í
algjoru samráði við forsrh., að
á meðan á samningum stóð, þá
var málið aldrei tekið fyrir í
ríkisstj. og aldrei rætt við með-
ráðherra okkar úr Alþbl., og
þeir vissu því ekki hvað var að
gerast í málinu fyrr en sam-
komulagið var birt á Alþ. Stjórn
arandstaðan var ekkert látin vita
um málið og ekkert samráð var
haft við utanrmn. f framhaldi
af þessu, var svo þeirri reglu
fylgt, að undir forsáfeti Her-
manns Jónassonar voru utanrík-
ismál alls ekki tekin fyrir á ráðu
neytisfundum og ekkert Samráð
haft við ráðh. Alþb. um með-
ferð þeirra og lítið sem ekkert
við stjórnarandstöðuna. Var eng
inn ágreiningur um þetta við
forsrh.
Eftir að ríkisstj. Hermanns
Jónassonar var farin frá, og rn.
Emils Jónssonar hafði verið
myndað, áttum við Emil Jóns-
son tal um nauðsyn þess að taka
upp nýjar vinnuaðferðir í fram-
kvæmd utanrikismála. Við ósk-
uðum þess báðir, að koma á
góðu samstarfi við Sjálfstæðis-
og Framsóknarflokkinn um
þessi mál og eftir því sem tök
væru á, einnig í Alþb., m.a. með
samstarfi utanrmn. Það kom hins
vegar í ljós, að í hita landhelgis-
málsins, hafði orðið sá breyt-
ing á hugmynd manna um þagn-
árskyldu, í sambandi við með-
ferð utanríkismálan. á trúnaðar-
málum, að ég vildi ekki bera á-
byrgð á að skýra n. frá þeim
málum sem ríkisstj. hafði fallizt
á við aðrar þjóðir, að fara með
sem trúnaðarmál.
Sú hafði áður verið venja, að
fara það það sem gerðist í utan-
rmn. sem algjört trúnaðarmál, og
skýra ekki frá því opinberlega,
nema í samráði við n. og ut-
arirmh. M. h. í þeim tilgangi að
tryggja þennan trúnað, er ut-
anrmn. eina n. Alþ., sem hefur
sérstakan embættismann fyrir
ritara, er það ráðuneytisstj. Ut-
anríkisráðun. maður sem er eið-
svarinn um þagnarskyldu í em-
bættisstarfi. Fundargerðabók ut-
anrmn. er ætíð geymd í vörzl-
um rn. og hefur enginn aðgang
að henni, nema utanrrh. og nm.
Á tímum landhelgismálsins
tók Alþb. upp algjörlega nýjar
aðferðir í viðskiptum sínum við
utanrmn. f lok nefndarfundar
birti Þjóðviljinn frásögn af fund
um og því sem þar gerðist, þó
ekki væri ætíð farið rétt með.
Var eftir það Ijóst, að utanríkis-
málanefndarfundir voru ekki
lengur lokaðir trúnaðarfundir,
heldur opinberar samkomur.
Ég hefi ekki hér við hendina,
nema takmarkað af gögnum, í
þessu sambandi. Þó hefi ég hér
Þjóðviljann frá 11. ágúst 1960,
sem segir frá fundi n. daginn
áður. Þjóðviljann frá 23. sept.
sama ár, þar sem ummæli mín
á fundi utanrmn. eru rangfærð.
Þjóðviljann frá 28. okt., þar sem
vitnað er til ummæla í utan-
rmn. og Þjóðviljann frá 29. okt.
sama ár.
Þýðingarmesta dæmið um hin
nýju vinnubrögð í samskiptum
Alþb. við utanríkismálanefnd er
þó ræða, sem fultrúi flokksins I
nefndinni, Finnbogi Rútur Valde
marsson, hélt í Efri deild Al-
þingis 28. okt. 1960 og birt er i
Þjóðviljanum 29. okt. sama ár. í
þessari ræðu er vikið að mörgum
fundum í utanríkismálanefnd og
skýrt er frá því sem þar fór
fram, og ekki ætíð farið rétt
með. Þesar tilvitnanir í fundi
utanríkismálanefndar geta allir
lesið, bæði í Alþingistíðindum
og í Þjóðviljanum. Hirði ég því
ekki að rekja þær hér. En í ræðu
sinni 28. okt. 1960 víkur fulltrjúi
Alþb. í utanríkismálanefnd að
þagnaðarskyldu nefndarmanna.
Hann segist vera reiðubúinn að
gegna þagnarskyldunni, en hefur
þó tvo fyrirvara á. 1 fyrsta lagi:
það verður að óska þess hverju
sinni, um hvert atriði að með
>að sé farið sem trúnaðarmál. Sé
þess ekki óskað, telur fulltrúi
Alþb. í utanríkismálanefnd, að
sé heimilt að skýra opinberlega
frá öllu því sem þar fer fram á
fundum nefndarinnar.
1 öðru lagi, ef fultrúi Alþb. í
utanríkismálanefnd lítur svo á,
að í orðum nefndarmanna eða
utanríkisráðherra á fundi utan-
ríkismálanefndar felist stefnuyf-
irlýsing, þá gildi engin þagna-
skylda. Sjálfur vill hann auð-
vitað meta hvað er stefnuyfirlýs-
ing og hvað ekki og allt sem
hann sjálfur telur fela í sér yfir-
lýsingu um stefnu geti enginn
trúnaður hindrað hann í að birta
opinberlega.
Með þessari ræðu gerðist i
rauninni þrennt. Það fyrsta er
að fulltrúi Alþbl. í utanríkismála
nefnd tekur sjálfur þátt í þeirri
iðju Þjóðviljans að skýra opin-
berlega frá öllu sem fram fer
á fundum utanríkismálanefndar
og þverbrýtur þar með þá
venju, sem gilt hafði um þagna-
skyldu. Sami fultrúi afneitar
þagnaskyldu um atriði nema
hann hafi sérstaklega undir-
gengið fyrirfram að skýra ekki
opinberlega frá málinu, og í
þriðia lagi, hann telur sig ó-
bundinn af þagnaskyldu hvað
sem loforðum líður þar um ef
málið eða það sem um þau er
sagt fela í sér af hans dómi
stefnuyfirlýsingu. Við þessu átti
ég ekki nema eitt svar. Ég benti
þm. á í viðtali, að þessi afstaða
leiddi til þess eins, að ég gæti
ekki skýrt utanríkismálanefnd
frá trúnaðarmálum. Svar hans
var staðfesting á því sem ég
hafði áður frá honum heyrt i
landhelgismálinu, að trúnaðar-
samstarf við mig væri ekkert
eftirsóknarvert.
Ég sé ekki ástæðu til þess hér
að rekja frekar blaðaummæli I
sambandi við störf á fundi utan-
ríkismálanefndar. Þess ætti held
ur ekki að vera þörf. en eftir að
svo var komið að hugmynd
manna um þagnarskyldu nefnd-
armanna í utanríkismálanefnd
voru rofnar og innan nefndar-
innar var til sú skoðun, að það
færi eftir mati nefndarmanna
sjálfra hvort þagnarskylda væri
haldin eða ekki og hótað var að
taka við það mat ekkert tillit til
óska utanríkisráðherra, þá
treysti ég mér ekki til þess að
skýra utanrikismálanefnd frá
málum sem nauðsynlegt var
gagnvart erlendum þjóðum að
fara með sem algert trúnaðar-
mál, eða sem ríkisstjórnin hafði
skuldbundið sig hjá öðrum ríkis-
stjórnum til þess að varðveita
sem trúnaðarmál. Myndi upp-
Ijóstrun slíkra mála valda þjóð-
inni ófyrirsjáanlegu tjóni og á-
litshnekki erlendis". Þetta er um
sögn Guðm. í. Guðmundssonar,
ambasadors, um málið.
Mér er kunnugt um að hann
taldi þvert á móti því sem Þórar-
inn Þórarinson, hv. 5. þm. Reyk-
víkinga, hélt fram hér áðan, að
nefndin væri lokuð nefnd þar
sem ekki ætti að segja frá þvi
sem þar gerðist nema að höfðu
samráði við nefndarmenn og ut-
anríkisráðherra, enda kemur það
greinilega fram i þesari umsögn
hans, að hann telur að á þessu
hafi orðið breyting og hafi ekki
verið sami trúnaður hafður eins
og áður hafði verið í nefndinnL
Hann telur líka, veit ég, að ut-
anríkismálaráðhera sé það I
sjálfsvald sett, hverju hann skýri
utanríkismálanefnd frá og
hverju ekki, það verði að fara
eftir því á hverjum tíma, hvern-
ig hann metur það hjá nefndar-
mönnum að halda trúnað við
nefndina á þann hátt, að skýra
ekki frá málum sem að hans
dómi er skaðlegt að skýra frá.
Hann segir í einkabréfi til mín
í sambandi við þetta, að Þjóð-
viljablöðin sem vitnað er til, gefi
aðeins dæmi. Hann hafði ekki
fleiri blöð, en þau eru hins veg-
ar meira en fullnægjandi grund-
völlur undir mínu mati. Það er
líka einkennilegt verð ég að
segja, að ef þetta er nú talið
það mikið mál, af hv. 5. þm.
Rvíkur, að frá þessu er skýrt
nú opinberlega, að til þess að
finna einhverja bót á fyrir hann
og þá, þurfi að kjósa hér n. skv.
39. gr. stjórnarskrárinnar, sem
ég held að aldrei hafi komið til
mála að skipa í neitt mál, nema
því aðeins að talið væri stórt af-
brot væri að ræða.
En það einkennilega við þessa
þátill. er líka það, að það er
ekki ætlazt til þess að hún
rannsaki trúnaðarbrotið sjálft,
heldur að hún rannsaki einungis
ummæli fyrrverandi utanríkis-
ráðherra um trúnaðarbrot. Það
sýnir það að það er ekki mikil
alvara hér á bak við.
Þetta sem kom fyrir í þessum
tilfellum sem lýst er í skýrslu
eða umsögn fyrrverandi utan-
rikisráðherra er eða var notað á
sínum tíma fyrst og fremst I
pólitískum áróðri og sá pólitíski
áróður mátti sín meira heldur
en trúnaður við nefndina og ég
vil segja trúnaður við Aþingi og
jjóðina, því að þar var allt gert
til þess að affyltja það sem I
nefndinni var sagt og það alveg
sérstaklega í Þjóðviljanum, en
jó var ekki Tíminn þar laus við.
Einar Olgeirsson (K) tók til
máls að lokinni ræðu ráðherra.
Sagði hann, að Guðmundur L
Guðmundsson hefði ætíð álitið
utanríkismál sín einkamál, og
hefði viljað hafa sem minnst
samráð við utanríkismálanefnd
um þau. Hann hefði meira að
segja ekki haft samráð við undir
Framhald á bls. 4