Morgunblaðið - 18.04.1967, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 1967.
BYLTING í GHANA BÆLD
Hershöfðingjarnír, sem stóðu að byltingunni teknir höndum
Kotoka hershöfðingi myrtur í Accra
Accra, 17. apríl, AP-NTB.
B YLTIN G ARTILR AUN
var gerð í Afríkuríkinu
Ghana í gær, en var bæld
niður eftir fjórar klukku-
stundir. Snemma um morg
uninn tilkynnti hópur
foringja undir stjórn
Assassie, hershöfðingja í
fallhlífahernum, að þjóð-
frelsisráðið, sem á sínum
tíma steypti Kwame
Nkrumah forseta af stóli,
hefði verið sett af og hers-
höfðingjaráð tekið völdin í
sínar hendur. Utvarpið í
Accra, höfuðhorg Ghana,
endurtók þessa tilkynn-
ingu í fjórar stundir, en
þá kom skyndilega ný til-
kynning þess efnis, að
hyltingartilraunin hefði
misheppnazt og herfor-
ingjaráðið hefði verið hand
tekið. Það var J. W. K.
Harley, lögreglustjóri, sem
upplýsti þetta, en hann er
varaformaður þjóðfrelsis-
ráðsins. Hann sagði enn-
fremur, að þær deildir
hersins, sem staðið hefðu
að samsærinu hefðu verið
sigraðar og afvopnaðar. —
Formaður þjóðfrelsisráðs-
ins, Ankrah hershöfðingi,
upplýsti skömmu síðar á
blaðamannafundi, að um
lítinn hóp hermanna í
einni deild hersins hefði
verið að ræða. Samkvæmt
fregnum frá Accra ríkti
almennur fögnuður í borg
inni yfir því, að samsærið
skyldi hafa misheppnazt.
Til smábardaga hafði kom
ið fyrir framan ríkisráð-
húsið í Accra og féllu þar
nokkrir byltingarmenn. Þá
var og skotið á kastalann,
þar sem Ankrah hefur að-
setur.
Rúmt ár er nú síðan stjórn
arbylting var gerð í Ghana,
þingið leyst upp og Kwame
Nkrumah forseti settur af. I
tilefni hinnar misheppnuðu
byltingartilraunar, sem gerð
var í þessu róstursama Afr-
íkuríki í gær, þykir blaðinu
rétt, að rifja upp sögu bylt-
ingarinnar, sem gerð var 24.
febrúar í fyrra.
Það var herinn og lögregl-
an undir stjórn E. K. Kotoka,
sem stóðu að byltingunni þá,
en Nkrumah var þá staddur í
Peking til viðræðna við Chou
En-lai. Þegar í stað var kom-
ið á þjóðarráði og stjórnar-
skrá landsins numin úr gildi.
Ástæðan fyrir byltingunni
var sögð sú, að Nkrumah
hefði stjórnað landinu, sem
væri það hans einkaeign.
Þjóðarráðið tilkynnti nokkru
síðar, að allir þeir pólitískir
fangar, sem fangelsaðir voru
í stjórnartíð Nkrumaih yrðu
látnir lausir, en meðal þeirra
var einn fréttamaður þýzka
vikuritsins Der Spiegel. Dag-
inn sem byltingin var gerð
var J. A. Ankrah hershöfð-
ingi, sem Nkrumah hafði sett
frá árið áður, fengið embætti
sitt á ný og er hann nú æðsti
maður landsins.
Þegar Ghana hlaut sjálf-
stæði árið 1960 var Nrumah
kjörinn forseti landsins. í
janúar 1964 bannaði forset-
inn alla stjórnmálaflokka í
landinu nema sinn eiginn og
beitti andstæðinga sína mik-
illi hörku. Nkrumah var af
þeim kallaður einrænn harð-
stjóri, en sjálfan sig lét hann
kalla „Hans Messíasarhátign",
Ankrah hershöfðingi.
„Endurlausnarann" og „Sigur
vegarann“.
Fyrrnefndur fréttamaður
Der Spiegel, sagði við heim-
komuna til Þýzkalands, að
Framhald á bls. 10
AxfA
UTAN ÚR HEIMI
SUMARFAGNAÐUR
STÚDENTAFÉLAGANNA
MIÐVIKUDAGUR 19. apríl kl.
21 gangast Stúdentafélag Reykja-
víkur og Stúdentafélag Háskóla
íslands fyrir sameiginlegum
kvöldfagnaði að Hótel Borg í til-
efni af sumarkomunni. Fjölmargt
verður til skemmtunar m. a. mun
formaður Stúdentafélags Háskóla
íslands flytja stutt ávarp, tveir
nýir skemmtikraftar annast eftir-
hermur, stúdentar úr báðum fé-
Leynivínsolar
hnnjsnmnðir
LÖGREGLAN hafði hendur í
hári tveggja leynivínsála um
helgina. Tveir óeinkennisklæ id
ir lögregluþjónar, sem voru á
etfirlitsferð um borgina aðfara-
nótt sunnudags, urðu varir við
að leigubílstjóri einn seldi far-
þega sínum áfengi. Var leigu-
bílstjórinn handsamaður, og er
verið að rannsaka mál hans. Síð
ar um nóttina gerðu þessir lög-
regluþjónar leit í bifreið anrars
leigubílstjóra, sem grunaður var
um leynivínsölu, og fundu þeir
nokkuð ff smygluðu áfr.ngi í bíl
hans.
lögunum standa fyrir stuttum
skemmtiþætti og dansað verður
til kl. 2. Sérstakar hressingar
verða framreiddar á miðnætti.
Miðar verða seldir að Hótel
Borg frá kl. 2—5 á miðvikudag
og við innganginn, borðpantanir
á sama stað.
Stúdentar eldri sem yngri eru
hvattir til að fjölmenna.
(Frá stjórnum félaganna).
Frost um allt land
Maður iramdi
sjólfsmorð
MADUR framdi sjálfsmorð í
Þingholtsstræti um kl. 17.30 sl.
laugardag.
Maðurinn hafði áður brotizt
inn í Sportvöruverzlun Búa Pet
ersen í Bankastræti, og hafði
þaðan á brott með sér byssu.
Fór hann rakleiðis upp í Þing-
holtsstræti og skaut sig þar.
Fólk, sem sá til mannsins, er
hann kom með byssuna út úr
sportvöruverzluninni, gerðu lög
reglunni aðvart, en þegar hún
kom á vettvang, haföi maðurinn
svipt sig lífL
ÞAÐ voru nokkur viðbrigði að
koma út í gærmorgun eftir hlý-
indi síðustu daga, en þá hafði
brugðið svo við, að verulegt
frost var komið um mestan
hluta landsins.
—-----—- " ——r
SjóSIða tók
út af kafbátl
við Færeyjar
THÓRSHAVN (NTB) og
Keflavíkurflugvelli, 17. apríl.
Tvo sjóliða tók út af banda-
ríska kafbátnum „U.S.S. Pic-
uda“ um 90 sjómílur norðan
Færeyja snemma sunnudags-
morguns í slæmu veðri.
Leit var þegar hafin að
mönnum og tóku þátt í henni
auk kafbátsins bandarískar og
brezkar flugvéiar og tvö dönsk
skip nærstödd. Er leitað hafði
verið í nokkrar klukkustundir
tilkynnti kafbáturinn að fund-
izt hefðu lík sjóliðanna beggja.
Kafbáturinn, sem er 1.526
smálestir, var á æfingu er
slysið varð og var áhöfn hans
85 menn. Nánari grein var
ekki gerð fyrir slysinu og eng-
in deili sögð á sjóliðunum er
drukknuðu þarna.
XJm daginn var lokið við að ryðja Oddsskarð, en þar hafði hlaðið niður miklum
skaflinn öðru megin við vcginn átta metra hár, þar sem hann var hæstur. Á
norður yfir Oddskarð og aftast á miðri myndinni sést í fjailið yar Neskaupstað.
að Oddsskarð hefur lokazt á ný. (Ljósm. Gunnar Wcdholmj.
Eftir hlýindin seinni part síð-
ustu viku brá til snjókomu hér
sunnanlands á laugardagsmorg-
un, og eftir því sem á daginn
leið færðist snjókomusvæðið
norður og norðaustur eftir land-
inu. Lægðin, sem snjókoman
fylgdi hægði á sér með þeim af-
leiðingum. að kalt heimskauts-
loft streymdi um yfir landið að
norðan. Var áberandi hitamun-
ur á ýmsum stöðum á landinu á
sunnudagsmorgun, en þá mæld-
ist tíu stiga frost á norðanverð-
um Vestfjörðum, en átta stiga
hiti í Skaftafellssýslum.
Aðfaranótt mánudagsins náði
kuldasvæðið yfir allt landið og
var frostið víðast hvar um tíu
stig í gærmorgun, ellefu stig á
Akureyri en 9 í Reykjavík. f
gærdag var heldur hlýrra, þá var
víðast fimm til 10 stiga frost, en
lægst þrjú stig.
Sag-sprengjur
á olíuna
L’ORIENT, 17. apríl, NTB. —
Franska sjóliðið hélt áfram um
helgina „olíustríðinu" við strend-
ur Frakklands og úðaði efna-
blöndu á olíúbrákina úr „Torrey
Canyon". í Brest voru reyndar
svonefndar „sag-sprengjur“ í
þeirri von að þær myndu hamla
för olíubrákarinnar að strönd-
inni. Var þessum „sag-sprengj-
um“ dreift í tilraunaskyni yfir
allstóran flöt og ráðgert að dreifa
þeim víðar ef vel reyndust.
Strandlengjan sem nú verður
fyrir barðinu á olíubrákinni er
um 40 km löng og segir franska
lögreglan að nú hafi verið hreins-
aðir um 8000 fermetrar af því
svæði.
Nefnd til þess að
athuga um framboð
— óánœgðra Alþýðubandalagsmanna
SL. sunnudagskvöld var hald
inn í Lindarbæ fundur sá, sem
nokkrir óánægðir Alþýðu-
bandalagsmenn höfðu boðað
til, til þess að ræða sameigin-
leg viðbrögð við aðgerðum
kommúnista á fundi Alþýðu-
bandalagsfélags Reykjavíkur
fyrir rúmri viku. — Fundur
þessi var f jölmennur og meðal
þeirra er sátu hann var Hanní
bal Valdemarsson, formaður
Alþýðubandalagsins.
Á fundinum munu nokkuð
a annað hundrað manns hafa
skráð nöfn sín sem stofnend-
ur nýs stjórnmálafélags
vinstri manna og jafnframt
var frá því skýrt, að fundar-
boðendur hefðu skipað 7
manna nefnd til þess að at-
huga möguleika á sérstöku
framboði þessara aðila í
Reykjavík. Er gert ráð fyrir,
að fljótlega verði haldinn
stofnfundur hins nýja félags
og verður þá væntanlega
skýrt nánar frá framboðshug-
leiðingum þessara aðila. ___
Margar ræður voru haldnar á
fundinum og flestar á einn
veg, m.a. tók til máls Guðrún
Helgadóttir, varaborgarfull-
trúi Alþbl., sú er sagði sig úr
Alþbl.-félaginu á dögunum og
las hún upp grein er hún
kvaðst hafa sent Þjóðviljan-
um 24 klukkustundum áður
til birtingar.
Sumorfugnaðor í Kópavogi
snjó. Reyndist
myndinni sér
Þess skal getið
SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN I
Kópavog! efna til sumarfagnaðar
í Sjálfstæðishúsinu, Kópavogi,
miðvikudaginn 19. þ.m. kL 21.
Nánari upplýsingar á skrifstofu
félaganna í SjálfstæðLshúsinu,
sími 46708.