Morgunblaðið - 18.04.1967, Page 4
4
MOHGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 1967.
BÍLALEIGAN
FERÐ
SÍMI 34406
Bensín innifalið í leigugjaldi.
SENDUM
imagnúsar
SKIPHOITI21 SÍMAR21190
ef*ir lokun slmi 40381
*"•“ 1-44-44
\mium
Hverfisgötn 103.
Simi eftir lokun 31160.
LITLA
bíloleigan
Ingólfsstræti 11.
Hagstætt leigugjald.
Bensín innifalið i leigugjaldi.
Simi 14970
BÍLALEIGAIM
VAKUR
Sundlaugaveg 12. Sími 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
c~.-7 ~ J0UA If/SAfif
RAUOARARSTÍG 31 SfMI 22022
Höfum kaupanda
að vandaðri hæð í tví-
eða þríbýlishúsi i
Reykjavík eða ná-
grenni, minnst 5 herb.
Há útb.
FASTEIGNA-
ÞJÓNUSTAN
A usturstræti 17 (Siíli & Vatdi)
RACHAR TÓMA5SOH HDL.$IMI 24645
SÖLUMAOUR fASTSICNA:
STCfÁN J. RICHTCR SÍMI 16870
KVÓLDSÍMI 30587
^ Mikið um að vera
Það fór sem mig grunaði.
Sumarið kom ekki í síðustu
viku, enn snjóaði hann um 1
helgina — a.m.k. hér í höíuð-
borginni. Og ég geri ekki ráð
fyrir að annars staðar á land-
inu hafi beinlínis verið hita-
beltisloftslag. En við í höfuð-
staðnum þurfum ekki að drep-
ast úr leiðindum, þótt vorið sé
enn ekki komið. Til gamans
taldi és. dansleikjaauglýsing-
arnar 'hér í blaðinu á laugar-
daginn. Þær voru sautján. Þá
auglýstu leikhús Reykjavíkur
og Kóipavogs líka samtals níu
leikrit. Og í sunnudagsblaðinu
voru auglýstar tuttugu og þrjár
kvikmyndir í kvikmyndahús-
um Rpykjavíkur, Kópavogs og
Hafnarfjarðar. Allir ættu að
finna eitthvað við sitt hæfi.
Sennilega er úrvalið of mikið,
skröllin eru of mörg — og bera
þess vitni, að margir eru haldn
ir svonefndri skemmtanasýki.
Ef sá sjúkdómur herjaði okkur
ekki, væri minna um að vera,
minna drukkið og færri íauga-
veiklaðir. En auð'vitað er fólk
sjálfrátt hvernig það ver tíma
sínum og fé. Það væri synd að
segja, að við gerum ekki til-
raun til þess að njóta lífsins
— hver svo sem árangurinn er.
'A' Hótel Saga
Með þessu er ég þó ekki
að fordæma allt, sem heitir
skemmtun. Síður en svo. Það
er sjálfsagt og eðlilegt fyrir
hvern, sem því getur við kom-
ið, að lyfta séi upp við og við
— ekki sízt í skammdeginu. En
geri fólk of mikið af slíku hætt
ir upplyftingin ag vera tilbreyt
ing — og skemmtunin hættir
að vera skemmtileg. Ef hver
svairaði tyrir sig í einlægni yrði
niðurstaðan sú hjá langflestum.
Margir hafa þessa reynslu.
En úr því að farið er að tala
um svör í einlægni getur Vei-
vakandi bætt þvi við, að hon-
um þykir fátt ánægjulegra en
að fara út og borða á kyrrlát-
um stað í hópi góðra vina. Síð-
an góðum veitmgahúsum fjölg
aði hér eru fleiri og fleiri að
komast upp á lagið með þetta.
Um helgina fór ég 1 Grillið
að Hótei Söga því þar hefur
góð þjónusta og góður matur
aldrei brugðist mér. Fleiri
segja svipaða sögu. Hótelstjór-
inn þar og hans fólk eiga mik-
ið hrós skilið fyrir góðan árang
ur. Fólk á því oft' að venjast
á íslandi, að farið sé af stað
með miklum glæsibrag á ýms-
um sviðum framkvæmda, ekki
sízt í þjónustu margs konar. En
glansinn vill æði oft fara fljótt
af hlutunum, það tekst ekki að
halda í horfinu. Þetta hefur
ekki geizt að Sögu — ég endur
tek EKKI í þeirri von að ég
sjái við prentvillupúkanum, ef
hann reynir að pota eitt'hvað S
dálkana mín í dag eins og svo
oft áður.
★ Tryggingar
Mikið hefur verið rætt
um tryggingar og trygginga-
félög á undanförnum árum,
einkum í sambandi við bifreiða
tryggingar. Á sviði trygginga
hefur margt gerzt að undan-
förnu. Harðnandi samkepprvi
hefur hleypt nýju lífi í þessa
starfsemi og er það vel. Einn
er sá háttur í starfi trygginga-
fiélaga, sem lítið hefur verið
sinnt á undanförnum árum hér
á landi. Það eru líftryggingar.
Allur fjcldinn er að vísu í líf-
eyrissjóðum — og auðvitað
eiga allir sinn hluta í hinu lög-
boðna tryggingakerfi. En lítið
hefur verið um að menn
keyptu sér líftryggingu á venju
legum tryggingamarkaðL
Víða erlendis er það talið
sjálfsagt og eðlilegt að fullorð-
ið fólk, einkum heimilisfeður,
líftryggi sig engu síður en að
þeir tryggi eignir sínar gegn
bruna eða öðru tjóni. Þetta er
mál, sem fleiri ættu að hug-
leiða.
Arkitektar
Lesandi í Miðbænum
skrifar:
„Kær, VelvakandL
Mikið böfum við byggt á síð
ustu árum. Það er ánægjulegt
að fylgjast með hinum öra
vexti borgarinnar og sjá hve
myndariega er byggt. Eitt er
þó vert að gagnrýna í sam-
bandi við allai nýbyggingarn-
ar — og það er falutur okkar
ágætu arkitekta. Hin nýju
hverfi eru flatneskja 'hvað
byggingarstíl snertir. Einn ap-
ar eftir öðrum, sjaldan örlar á
ferskum og hressilegum hug-
myndum. Ég veit ekki hvort
menn gera sér almennt grein
fyrir því, að borgin verður æ
sviplausari eftir þvi sem hún
stækkar Ef þessu heldur
áfram verður Reykjavík áður
en langt um líður gersamlega
„karakterlaus“, andlitslaus.
Það er næstum hægt að telja
á fingrunum þau hús, sem sómi
er að og gefa borginni ein-
hvern svip. Lítum á þessa
hörmung, sem er að rísa með-
fram Suðurlandsbrautinni. Að
þetta skuli vera nýtt viðskipta-
hverfi, reist á sjöunda tug ald-
ar. Það er ótrúlegt.
Allir geta tekið myndir, en
maður með ljósmyndavél er
sjaldnast „ljósmyndari“. Ein-
ungis örfáum þeirra, sem ljós-
myndavél eiga, tekst að gera
góðar myndir. Sama virðist
ætla að sannast á arkifcektun-
um okkar. Stéttin í heild kikn-
ar undan nafninu. Við þurfum
nokkra djarfa og fríska menn
í stéttina. Þeir geta breytt borg
inni á einni nóttu, ef svo mætti
segja.“ —
Hættuleg brú
Vegfarandi góður:
„Velvakandi góður!
Mig hefur oft langað til að
koma að nokkrum línum um
umferðarmerki á vegum okkar,
einkum í nágrenni við borg-
ina. Á laugardag fyrir páska
var ég á ferð ásamt fleira fólki
ofan úr Kjós til Reykjavíkur.
Þennan dag var veður ekki
sem bezt, ofsarok og skafihríð.
Þegar við komum að brúnni
á Fossá, sem er rétt innan við
Kiðafell í Kjós, lentum við
utan í neðri brúarstólpanum
og vorum næstur komin í ána.
Stólparmr eru ekki merktir og
ekki eru heldur viðvörunar-
merki í brekkunum beggja
ve'gna brúarinnar. Öll ræsi 1
næsta nágrenni eru vel merkt
og einnig brýr, en þarna hefur
ekkert verið sett Veit ég um
marga bíla sem hafa farið
mjög illa á þessari brú. Mikil
mildi er að aidrei hafa orðið
slys þarna, og vonandi er að
við sleppum við þau. Nú vona
ég að réttir aðilar lesi þessar
línur og eitthvað verði gert til
að bæta úr þessu, því máltæk-
ið segir: Of seint er að byrgja
brunninn, þegar barnið er dott
ið ofan í hann.
— Reiður vegfarandi."
Bílastæðin
Hugulsamur skrifar:
„f dægurmáladálkum dag-
blaðs eins var þess nýlega
minnzt, að bílastæði vantaði til
finnanlega við miðbæinn.
Ég orða þetta nú svona, þar
sem öllum virðist staðreyndin
augljós.
Hitt ei svo annað mál, hvort
fegrunaryfirvöldin fást til að
klippa svolítið af Austuxvelli
til að bjarga málunum við.
Það virðist mjög vafasamt.
Við Vesturgötu 5-b (418
ferm.), sunnan bílastæðanna
við „Aberdeen“ (Vesturg. 5),
eru gamlar skúrbyggingar, eiga
velþekkts útgerðarfyrirtækis.
E.t.v. gæti umferðarnefnd feng
ið svæði þetta leigt, og stækk-
að þannig stæðin á milli Vest-
urgötu og Fisohersunds, austan
Garðastrætis?
Þarna ætti að mega skipu-
leggja bílastæði fyrir rúml. 30
bíla, — með tilheyrandi hag-
ræðingu.
1 það minnsta styttist þá
göngutúrinn verulega i MbL-
húsið.
Orðað hér til vinsamlegrar
athugunar.
— Hugulsamur."
Al LLTÁ SAh *A STAÐ
Öi ryggis ■ F igiei r —
biersispun Sendura gegn kröfu um land allt.
EgiSI ViShjáKmsson hf. Laugavegi 118 — Sími 22240.