Morgunblaðið - 30.05.1967, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 30.05.1967, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, í>RIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1967. 5 jR9| Sgffl X-'■ jföfögg íígggcj ' • ' ■ ■ Þessa dagana et verið að legg.ia síðustu hönd að verki við smíði Boeing-þotu Flugfélags íslands, en hún verður afhent i næsta mánuði. Hefur hún þegar verið máluð með litum félagsins eins og sést á meðfylgandi mynd. það, sem helzt hann varast... í FYRRAVETUR ritaði ég grein í Lesbók Morgunblaðsins, þar sem ég sýndi framá með ljósum rökum, að ekki ætti að rita R í staðarnafninu Bolungavík. NA skeður það, að í greinum mínum í Sjómannadagsblaði Morgun- blaðsins fyllist þetta staðarnafn af R-um. Þessi R eru Morgun-" > blaðs err og ekki á minum snærum. Nú hef ég engin tök á að breyta rithætti Morgunblaðsins né heldur kippa burt R-inu úr koki úrvarpsþulanna, ekki held- ur situr á mér brottfluttum Bol- víkingi að rekast í því, hvernig innbyggjarar staðarins nú rit» nafnið á sinni eigin stassjón. Ég er þvi ekki að ergja mig yfir annarra manna rithætti eða framburði á nafninu. Veröldin er hvort eð er full af R-um, sem ekki eiga að vera þar. Hitt er svo annað mál, og það vona ég að allir sjái, að eðlilegt er að maður sem búinn er að reilna burt eifct err vill ekki fá mörg í staðinn. Ásgei*- Jakobsson. Sinfóníutónleikar SlÐUSTU reglulegir tónleikar Sinfóníuhljómsveitar íslands á þessu sfcarfsári voru haldnir í samkomuhúsi Háskólans síðast- liðið fimmtudagskvöld. Flutt voru tvö verk eftir Mozart: „Eine kleine Nachtmusik" og píanókon- sertinn í B-dúr, nr. 18; ennfrem- ur Konsertsinfónía eftir svtss- neska tónskáldið Frank Martin og tilbrigði eftir þýzkia höfund- inn Boris Blacher um stef eftir Paganini. Stjórnandi var Bohdan Wodiczko og einleifcari kín- verski píanóleikarinn Fou Ts’ong. Það er lítið vafamál, að hin tæra list Mozarts hefði notið sín betur í fámennari strengjasveit en hér var að verki, tónninn orð- ið hreinni og áferðin samfelldari, og hefði ekki komið að sök, þótt átökin, t.d. í „Eine kleine Nacht- musik“, hefðu orðið eitthvað minni. Kínverski píanóleikarinn er vafalaust ágætur liistamaður, þótt ekki tækist honum að blása verulegu líf i í þann fremur sjald- heyrða konsert, sem hér var fluttur. Nákvæmni hans í hljóð- falli er til fyrirmyndar og mótun tónhendinga oft falleg, en ofmik- il pedalnotkun olli því, að sumt af hinu fingerða tónasflúri Moz- arts kom fram eins og í móðu. Síðari verkin tvö á efnis- skránni eru sýnishorn af tónlist þessiarar aldar, þótt hvorugt geti talizt meðal hins merkasta, sem þar er að finna. Frank Martin er elvarlegt tónskáld, sem lengi hef- ur notið virðingar, að minnsta kosti meðal tónlistarmanna. Hann hefur verið alveg óþekktur hér á landi, og var því fengur að fá að kynnast „Konsertsinfóníu“ hans, sem virðist vera ágætt verk og á köflum beinlínis hrífandi. Paganini-tilbrigðin eftir Boris Blacher hafa heyrzt áður hér á sinfóníutónleikum og virtust nú eins og þá léttmeti fyrir alla nema hljóðfæraleikiarana. Væri auðvelt að nefna nokkuð mörg tónverk tuttugustu aldar, sem meiri ástæða væri til að kynna íslenzkum hlustendum. Bæði þœsi erfiðu verk flutti hljóm- sveitin, undir öruggri leiðsögn Bohdans Wodiczkos, með veru- legum glæsibrag, svo að þau munu hafa notið sín eins og efni stóðu tiil. Það orkar ekki tvímælis, að Bohdan Wodiczko hefir unnið hér ágætt starf undanfarin tvö ár. Hann hefir þjálfað lið sitt með nákvæmni og festu, enda munu samtök og samstilling í hljómsveitinni ekki hafa verið betri í annan tíma, þóbt enn Framhaid á bls. 21 Frá íslenzk - ameriska félaginu ÍSLENZK-ameríska félagið mun halda aðalfund í Átthagasalnum á Hótel Sögu þriðjudaginn 30. maí kl. 8.30. Auk venjulegra aðalfundar- starfa mun hinn nýskipaði sendi herra Bandaríkjanna, Karl Rölvaag, flytja ræðu. Sem kunn- ugt er, hefur Rölvaag tekið virk an þátt í stjórnmálum og á ár- unum 1963 — ’67 var hann ríkis- stjóri Minnesota, en hafði áður verið vararíkisstjóri (1955—’63). Er hann þekktur ræðumaður og gefst félögum á fundinum ágætt tækifæri til að kynnast honum og skoðunum hans. Ennfremur verður sýnd kvik- mynd um Minnesota. Félagar eru hvattir til að sækja fundinn og taka með sér gesti. -rc- í mínum hópi er það svo eðlilegt með Marlboro. Marlboro hefir það sém við viljum: Eðliiegan, ófilteraðan keim. Hvar sem glæsileiki, yndisþokki og hæfni mætast, þar er Marlboro! Miull inrn AUs staðar sömu gæðin, sem gert hafa Marlboro leiðandi um allan heim: Amerískt tóbak - Amerisk gæði, úrvals filter. ÍFiIter • Flavor • FIip-Top Box Trlplex 65MLF01

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.