Morgunblaðið - 31.05.1967, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. MAl 1967.
- —r***'—s*>-*<*~ -- ‘ • --^•3»*
Margeir Þórormsson við hina fyrirhuguðu verzlun.
Ætlar að keppa við
kaupfélagsvaldið
Margeir Þórormsson reisir nýja
verzlun á Fáskrúðsfirði
STÖÐVARSTJÓRI Pósts og síma
Erum birgir með
tæki næstu árin
— segir Svanur Sigurðsson, skipstjóri
í Breiðdalsvík
a Fáskrúðsfirði heitir Margeir
Þórormsson. Hann vinnur nú að
því að fullgera húsnæði fyrir
verzlun, sem hann ætlar að reka
í félagi við fleiri. Um verzlunina
hefur verið stofnað hlutafélag og
nefnst það Þór h.f.
Margeir segir okkur, að hús-
næðið sé að gmnnfleti 235 fer-
metrar og þegar lokið verði
byggingu þeiss, er ætlunin, að þar
verði matvöruverzlun, sem að
auki verzli með búsáhöld og yfir-
leitt með sem fjölbreyttast vöru-
úrval.
Framkvæmdir hófust í septem-
ber sl. og segir Margeir, að þeir
félagar hafi hug á að geta opnað
verzlunina í ágúst næstkomandi.
i kjallara, sem er undir húsinu,
er fyrirhugað að hafa málningar-
og byggingavöruverzlun, ásamt
feaffistofu og skrifstofu. Þór h.f.
var stofnað 1. apríl 1965.
Margeir tjáir okkur, að hug-
myndin með stofnun þessa félags
sé sú að keppa við feaupfélagið,
sem verið hafi svo til einrátt í
verzlun í þorpinu. Búið er að ein-
angra götuhæð og lögð hefur ver-
ið raflögn í húsið.
Um samgöngu og póstmál
þorpsins segir Margeir, að í fyrra
sumar hafi verið daglegar ferðir
frá Egilsstöðum til Fáskrúðs-
fjarðar. Verður svo líklega í sum-
ar og má þá teljast gott samband
við nærliggjandi byggðarlög. Bif-
reið fór í fyrrasumar daglega
milli Stöðvarfjarðar og Fásferúðs
fjarðar, fram og til baka.
Vegurinn er ekki nógu góður,
að sögn Margeins, og er þörf á
endurbót á næstunni. Rafmagn er
frá Grímsárvirkjun.
Mikill póstur kemur til Fá-
skrúðsfjarðar yfir sildarveírtíðina
en í þorpinu eru 3 söltunarstöðv-
ar og ein bræðsla. Tvö hrað-
frystihús eru á staðnum og tveir
sáldarbátar eru gerðir út frá Fá-
skrúðsfirði.
SVANUR Sigurðsson, skipstjóri
á Hafdís SU 24 frá Breiðdalsvík
og framkvæmdastjóri útgerðar-
félagsins Braga h.f., er 7. maður
á lista Sjálfstæðisflokksins í
Austurlandskjördæmi. Við hitt-
um Svan á heimili hans í Breið-
dalsvík á dögunum og spjölluð-
um lítillega við hann um stund.
— Bragi h.f. á Hafdísi, sem er
smíðuð í Stálvík, nýtt skip og
glæsilegt. Ég var með Sigurð
Jónsison SU 150, sem Hraðfrysti-
hús Breiðdælinga á, þar tdl í
fyrra, segir Svanur.
— Jú, Breiðdalsvíkurþorp hef-
ur myndazt á síðuistu árum. Fyr-
ir svo sem 10 árum var hér ein-
ungis verzlunarhús og 2 eða
3 býli, en nú telur þorpið 140
íbúa. Atvinnulífið byggist á sjó-
sókn og vinnslu sjávarafurða.
Mér finnst, segir Svanur —
þeissi vík geta átt mikla fram-
tíð fyrir sér. Hér upp af er
góð sveit, nóg landrými. Aðal-
búgreinin er sauðfjárrækt og lít-
ils háttar mjólkurframleiðsla.
Við Heydali eða Eydali, eins og
það er ýmist kallað, er t. d. af-
bragðs flugvallaristæði og flug-
menn, sem komið hafa hingað,
róma mjög aðflugsaðstæður.
— Jú, hér við víkina er á
sumrin rekin síldarsöltunarstöð.
Á síðastliðnu ári var saltað hér
í 5000 tunnur. Hér er einnig
síldarverksimiðja með afkasta-
getu 150 leistir á sólarhring. Einn-
ig er hér rekið hraðfrystihús allt
árið um kring.
— Það hefur verið á döfinni
að koma hér upp mjólkurbúi, en
næg fnamleiðsla í sveitunum hér
upp af er ekki enn. Hinsvegar
var mikili áhugi um tíma á að
reyna flökun síldar, en sú fram-
kvæmd hefur ekki komizt á enn.
Tvö glæsileg atvinnutæki Breiðdælinga, Sigurður Jónsson SU
150 og Hafdís SU 24.
atvinnu
Svanur Sigurðsson,
skipstjóri, Breiðdalsvík. j
— Símaþjónustan hér er frem-
ur léleg. Síminn er aðeins opinn
7 klukkustundir á dag og þjón-
ustan, sem hann veitir mætti
aukast til mikilla muna. Sam-
göngur á sjó eru sæmilegar og á
sumrin er vegasamband við Eg-
ilsstaði. Hinsvegar eru áætlun-
arferðir stopular á milli. Það
var geysilega mikil bót að veg-
inum frá Stöðvarfirði til Breið-
dalsvíkur um Skæiður. Vegurinn
er þó efeki fullgerður og er áætl-
að að koma honum í betra horf.
Með tilkomu vegarins verður
flugvallargerð hér við Breiðdals-
vík mikið kappsmál byggðarlag-
anna hér austur með fjörðum.
— Jú, við Eydali er sjúkra-
flugvöllur, sem komið hefur
margoft að góðum notum og að
honum er mikið öryggi. Hins
vegar er hann oft á vetrum blaut-
ur og erfiður viðureignar.
Framhald á bls. 24
Ný böfn og banki aðal-
áhugamál Hornfirðinga
Viðtal við Arsœl Guðjónsson, formann
hafnarnefndar « Hornafirði
ÁRSÆLL Guðjónsson, útgerðar- i
maður er fulltrúi í hreppsnefn I I
og formaður hafnarnefndar í
Höfn í Hornafirð. Við náðum
tali af Ársæli og spurðum hann
um hafnarframkvæmdir og hann
sagði:
— Höfnin sem slík er dálítið
sérstæð. Mikið vatnsmagn renn-
ur í höfnina frá fljótum hér fyrir
ofan og stærstu skip verða að
sæta sjávarföllum til þess að
komast hér inn. Bátarniir eru ó-
háðir þessu, en þó er ekki unnt
að sigla hér inn, nema menn
eéu kunnugir.
Hafnarframkvæmdimar, sem
nú standa yfir hófusf í fyrravor
og fyrirhugað er að byggja nýja
hafskipabryggju og dýpka höfn-
iina verulega. Viðlegukanturinn
verður 115 metrar og dýptin við
hann um 15 metrar. Á siðast-
liðnu ári var lokið við að koma
niður stálþili og byggðir voru
fyrirhleðslugarðar. Hið fyrirhug-
aða hafnarsvæði var mótað.
f vor var ætlunin að hefjast
aftur handa með dýpkun, en 6-
ráðið er, hvenær verkið hefst.
Framkvæmdir eru áfeaflegia að-
kallandi, því að fiskibátar hafa
tæplega flot á stærstu fjörum
og flutningasfeip, sem koma til
að ferma og afferma tefjast oft
og tíðum vegna sjávarfalla. Kom
ast þau ekki leiðar sinnar á fjör
um. Skipakomur hafa verið góð-
ar.
Vertíðarbátar munu flestir fara
á humarveiðar nú. Síðastliðin
vertíð vair góð miðað við aðrar
verstöðvar. Hæsti báturinn á ver
tíð var Jón Eiríksson með rúm-
lega 900 lestir, en hlutir eru betri
hér en víða-st annars staðar,
vegna góðrair nýtingar. Einn bát-
urinn er með 820 lestir og há-
setahlutur er 106 þúsund krón-
ur í 4% mánuð. Af þesisum affla
eru 190 lestir línufisfeur.
Svo við snúum okkur aftur að
hafnarframkvæmdum, þá er á-
ætlað, að höfnin kosti um 14 til
15 milljóniir. Þegar hún er full-
gerð teljum við, að við séum
sæmilega settir með alla aðstöðu
í höfninni um nánustu framtíð.
Rekistur hafnarinnar er ákaf-
lega erfiður og hún stendur eng-
an veginn undir honum. Nauð-
synlegt er að hafa leiðsögu fyrir
öll skip og má t.d. benda á, að
Herjólfur, sem komið hefur á
hálfs mánaðar fresti, siglir aldrei
hér inn án hafnsögumanns. Þurf
um við því að hafa tvo menn f
því starfi allt árið og er það
dýrt. Einnig höfum við dýran
haifnsögubát. Höfnin hér er lifæð
hinna víðlendu sveita hér fyrir
ofan og því ekkert smámál fyrir
íbúa hér.
Það hefur verið mikið áhuga-
mál Homfirðinga, að Landsbank-
inn setti hér upp útibú. Það er
geysilega mikilvægt að fá pen-
ingastofnun í byggðalagið. Hins
vegar er hér sparisjóður, sem er
nýstofnaður og litils megnugur,
a. m. k. enn, sagði Ársæll að lok-
um.
Frá hafnargerð i Höfn, Hornafirði.