Morgunblaðið - 15.06.1967, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. JÚNÍ 1967.
6 bátar á innleið með afla
Allar verksmiðjur austanlands mega
heita tilbúnar til móttöku
LITLAR fregnir var að fá af
aflabrögðum síldveiðiflotans út
af Anstfjörðum í gær, þegar Mbl.
hafði samband við síldarleitina
á Dalatanga, sem tók til starfa
í gærmorgun. Aðeins sex bátar
höfðu tilkynnt um afla í gær-
morgun, samtals 1135 tonn, og
voru það Ásgeir með 2040 tonn,
Gullberg með 170 tonn, Bára
með 100 tonn, Jörundur III með
200 tonn, Árni Magnússon með
175 tonn og Arnar með 200 tonn.
Bátarnir höfðu fengið aflann
300—330 mílur austnorðaustur af
Langanesi. Ekki tókst Mbl. að
afla upplýsinga um það, hve
margir bátar eru komnir á mið-
in, en fróðir menn töidu ekki
ósennilegt að þeir væru einhvers
staðar milli 70 og 80 talsins.
Mbl. hafði samband við
nokkra löndunarstaði á Aust-
urlandi í gær og spurðist fyrir,
hvernig bræðsla gengi.
Fréttaritari Mbl. á Raufar-
höfn kvað bræðslu þar hafa haf-
izt á mánudagsmorgun, og höfðu
henni þá borizt 5000 tonn. Verk-
smiðjan getur afkastað 5 þúsund
málum á sólarhring. Ekki væri
vitað neitt frekar um, að meiri
síldar væri von, en skipin korr.a
oft án þess að gera boð á undan
sér.
Síldarverksmiðjan á Vopna-
firði tók til starfa aðfaranótt
mánudagsins. Höfðu verksmiðj-
unni þá borizt 1550 tonn og átti
bræðslu að Ijúka nú í nótt. Af-
kastageta verksmiðjunnar er um
5000 mál á sólarhring. Tveir bát-
ar eru gerðir út á síldveiðar frá
Vopnafirði, og eru það Bretting-
ur og Kristján Valgeir. sem báð-
ir eru eign Tanga hf. Hafa þeir
fengið milli 500 og 600 tonn
hvor. Þess má geta til gamans að
Brettingur er eina síldveiðiskip-
ið, sem hefur sjónvarp innan-
borðs, en engar sögur fara af
því, hvort skipverjar horfi mik-
ið á það.
þórðuT Jónsson, verksmiðju-
stjóri í Borganfirði eystra, tjáði
Mbl. að síldarverksmiðjan þar
myndi verða tilbúin til móttöku
nú í vikunni, ef olía fengist, en
skortur væri rfkjandi á henni.
Verksmiðjan þar getur afkastað
milli 1000 og 1200 málum á sól-
arhring. Tvær söltunarstöðvar
eru í Borgarfirði eystra og *ru
þær báðar að mestu tiibúnar
Á Seyðisfirði eru tvær síldar-
verksmiðjur. Síldarverksmiðja
ríkisins hóf bræðslu í fyrradag,
og höfðu þá alls borizt til verk-
smiðjunnar 52000 tónn, en þróar
rými er fyrir um 6000 lestir.
Margháttaðar breytingar hafa
verið gerðar á síldarverksmiðju
SR að undanförnu, sem miða að
auknum afköstum og meiri sjálf-
virkni. Sólarhringsafköst verk-
smiðjunnar í fyrra voru 5 þús
mál. Hin verksmiðjan er Hafsíld
hif. og mun hún taka til starfa
í næstu viku.
Síldarverksmiðjan á Reyðar-
firði er löngu tilbúin til að taka
á móli. Fyrstu vikuna í júní tók
hún á móti 265 tonnum, og er
vinnslu þeirra lokið. Verksmiðj-
an afkastar um 4 þús. málum á
sólarhring. Frá Reyðarfirði eru
gerðir út tveir bátar, sem báðir
hafa hafið veiðar.
Á Eskifirði tók síldarverksmiðj
an til starfa í síðustu viku, og
hefur verið tekið á móti um
1600 tonnum, og bræðslu á því
lokið. Báðar verksmiðjurnar þar
geta brætt 6 þús. mál á sólar-
hring. Hraðfrystihús Eskifjarðar
á báðar verksmiðjurnar, og er
það hin nýnri, sem byrjuð er.
Hin er einnig tilbúin, en skortir
síld. Fimm bátar eru gerðir út á
síld frá Eskifirði og. eru þeir all-
ir byrjaðir. Tveir hafa engan afla
fengið, en Jón Kjartansson hef-
ur fengið 710 tonn, Seley 450 og
Guðrún Þorkelsdóttir 250.
Á Neskaupstað tók síldarverk-
smiðjan til starfa í gær. Um tvö
þúsund tonn biðu bræðslu, en
verksmiðjan afkastar um 6—7
þúsund málum á sólarhring. í
sumar eru níu bátar gerðir út
á síld frá Neskaupstað, og eru
sjö þeirra þegar byrjaðir. Hefur
afli þeirra verið sæmilegur.
Áætlað er að síldarverksmiðj-
an í Breiðdalsvík verði reiðubú-
in til móttöku í næstu viku, en
ýmis varastykki í hana komu
þangað í gær, Afkastageta verk-
smiðjunnar er um 1200 mál á
sólarhring. Engin von er á síld
til Breiðdalsvíkur eins og er.
Enginn sátta-
fundur boðaður
Skortur á nauðsynjum víða á landinu
NÝR sáttafundur hefur ekki
verið boðaður í farmannaverk-
fallinu svonefnda, og situr því
allt við það sama.
Er verkfaliið þegar farið að
segja til sín á nokkrum stöðum
á landinu — t.d. eru olíubirgð-
ir að ganga til þurrðar á nokkr-
um stöðum norðanlands, og viða
á Austfjörðum er fólk algjör-
lega orðið uppiskroppa með
kartöflur og erfitt með ýmsar
aðrar nauðsynjavörur, að því er
fréttaritarar þar tjáðu Mbl.
Boeing-þoían reynist
vel í reynsluflugi
7 starfsmenn F.í. á námskeiðum vestra
BOEING-ÞOTA Flugfélagis Is-
lands fór sitt fyrsta reyniöluflug
6. júní sd., og hefur síðan verið
flogið mörgum sinnum, og reynzt
mjög vel. Afhending þotunnar
feT fram fimmtudaginn 22. júní
og kemur hún hingað tveimur
dögum síðar.
Sjö menn eru nú úti í Banda-
rikjunum á náms'keiðum hjá
Boeing-verksmiðjiunum. Eru það
flugmennirnir Gunnar Fredrik-
sen, Þorsteinn Jónsson, Gunnar
Berg Björnsson og Halldór Haf-
liðason og vélamennirnir, Einar
Sigurvinsson og Sigurður Guð-
mundsson. Þá er þarna og stadd-
ur Jóhannes Snorrason, sem er
nú á framhaldsnámskeiði, en
hann mun sjá um a'lla þjálfun
flugmanna Boeing-þotunnar hér
heima. Þeir Jóhannes og Gunnar
Fredriksen munu sennilega
fljúga flugvélinni hingað heim.
„Fritz Heckert66
strandar
Ósló, 14. júní (NTB) — Aust-
ur - þýzka skemmtiferðaskipið
„Fritz Heckert“ strandaði í morg
un við Helgaland í Karmsundi í
Noregi, en var dregið út á há-
flóði siðdegis og heldur áfram
ferð sinni. Froskmenn sem athug
uðu skipið sáu engar skemmdir.
130 ÞÚS. GÖNGUSEIÐUM
SLEPPT í ÁR NÚ í V0R
Mikill og vaxandi áhugi á laxeldi á Islandi
ENDA þótt laxeldið sé ungt
fyrirbrigði hér á landi, hefur á-
hugi á því vaxið gífurlega
á síðustu árum. Fyrstu sögur af
laxeldi hér á landi eru frá 1944,
og var þar að verki Fiskirækt-
arfélag Hvítár, sem ól aðeins
laxaseiði yfir sumartimann. En
það er ekki fyrr en 1953 að þessi
mál komast á verulegan rökspöl,
en það var þegar Rafmagnsveita
Reykjavíkur kom sér upp lax-
eldisstöð í Elliðaánum.
Siðan þetta gerðist hafa orðið
örar framfarir á þessu sviði.
Veiðimálastjórnin kom sér upp
laxeldistöð í Kollafirði, og þaðan
var fyrstu gönguseiðunum sleppt
1962. Tveimur árum síðar var
gengið írá tjörnum í Kollafirði,
og fengust þá fjórir laxar til
baka. Arið eftir voru laxarnir
orðnir 57, sem gengu upp í
tjarnirnar, og í fyrra 705 .
Fleiri laxeldistöðvar, sem ala
seiði upp . göngustærð, hafa
risið upp á síðustu árum til við-
bótar stöðvunum í Kollafirði og
Elliðaám, og má þar nefna eldi-
stöðvarnar við Keldur og að
Laxalóni, sem Lárvík hf. hefur
að leigu að hluta. Þór Guðjóns-
son, veiðimálastjóri tjáði Mbl. að
alls myndi nú á þessu ári verða
sieppt u.þ.b. 130 þús. gönguseið-
um frá þessum eldistöðvum í
ár víðsvegar á landinu, og er
það tvöfallt meira magn en í
fyrra Árið þar áður var um 30
þús. gönguseiðum sleppt í ár á
landinu.
Laxeldistöðin í Kollafirði mun
senda frá sér 40 þúsund göngu-
seiði á þessu vori, þar af verður
10.500 sleppt í tjarnirnar í Kolla-
firði. Flutningar á laxaseiðum
hafa staðið yfir að undanförnu,
og á enn eftir að sleppa seiðum í
i margar ár.
á afmæli K-hafnar
Fulltrúar Reykjavíkur
Vasi sá, scm Geir Hallgrímsson mun afhenda Kaupmanna
höfn fyrir hönd Reýkjavíkurborgar.
REYKJAVÍKURBORG var boð
ið að eiga fulltrúa við hátíða-
höldin í tilefni af 800 ára af-
mæli Kaupmannahafnar — og
efnt er til daganna 14.-18. júní.
Fjórir fulltrúar Reykjavíkur
eru nú farnir til Kaupmannahafn
ar, og eru þeir, Geir Hallgríms-
son, borgarstjóri og frú, frú Auð
ur Auðuns, forseti borgarstjórn-
ar, Einar Ágústsson, borgaifull-
trúi og frú, og Guðmundur Vig-
fússon borgarráðsmaður.
Við hátiðarhöldin mun borg-
arstjóri afhenda gjöf frá Reykja.
víkurborg. Er það veglegur silf-
urvasi, sem er 45 sentimetrar að
hæð, og er hann handsmíðaður
af Jóhannesi Jóhannessyni.
Þungatakmörkunum af
létt af flestum vegum
— á AusturBandi
ÞJÓÐVEGIR í öllum lands-
hlutum eru nú sem óðast að fær
ast í eðlilegt sumarhorf. Helzt er
það á nokkrum vegum á Austur-
landi, að umferð getur ekki tali't
vera orðin regluleg. Þar hefur
að undanförnu verið mikil aur-
bleyta, en nú síðustu vikurnar
hefur orðið mikil breyting til
batnaðar. Eru flestir vegir orðn-
ir allgóðir, og víðast búið að
aflétta þungatakmörkunum,
nema í uppsveitum og heiðarveg
um.
Ástandið er verst á fjallaveg-
unum yfir Fjarðarheiði og Odd
skarð, en þar er nánast aðeins
fært jeppum. Vegamálaskrifstof
an á ekki von á, að eðlilegt á-
stand geti orðið áþessum vegum
fyrr en í næsta mánuði. Miklir
snjóruðningar eru meðfram veg
unum, og meðan þeir eru að
þiðna má alltaf eiga von á mik-
illi aurbleytu.
Af veginum yfir Möðrudals-
öræfi er það að frétta, að þar
var í gær settuir á 5 tonna há-
marksöxulþungi, en hefur fram
að þessu aðeins verið fært jepp-
um. Er gert ráð fyrir, að mjög
bráðlega verði áistandið þar orð-
ið eðlilegt.
l\lariner-5
á leið til
Venusar
Kennedyhöfða, 14 júnl (NTB)
Bandaríska geimflaugin „Mar-
iner 5” var í dag á leið til reki-
stjörnunnar Venusar, og öll
tæki hennar störfuðu eftir
áætlun. Ekki er talið að frétta
sé að vænta frá flauginni fyrr
en hún nálgast stjörnuna Canop-
us. Ferðin til Venusar tekur
fjóra mánuði og er vegalengdin
339 milljón kílómetrar.
„Mariner 5” vegur 245 kiló
og hefur samfylgd sovézkrar
geimflaugar, sem vegur 1.1 lest
og skotið var tveim dögum á
undan „Mariner 5” Bandaríkja-
menn telja, að Rússar ætli að
koma fyrir visindatækjum á
Venus og að þeir muni senda
annað geimfar til reikistjörnunn
ar bráðlega.