Morgunblaðið - 15.06.1967, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. JÚNÍ 1967.
19
-/
Þegar vindurinn feykir pilsinu upp yfir höfuð.
— Kaupmannahöfn
Framhald af bls. 17
gleði í hvert skipti sem við
sjáum hana. Hún er leikkona
og kvikmyndaleikkona sem
allar þjóðir heims dást að.
Oftast er forssetisráðherrann
í fylgd með henni og alþjóða-
viðskipti okkar eru auðveld
og jákvæð.
Margir bændur hafa orðið
Kaupmannahafnarbúar á síð-
ustu áratugum. Borgin töfr-
ar þá og þeir reyna að koma
sér einis vel fyrir og unnt er
og við hin verðum að þjappa
okkur enn meira saman. Kaup
mannahöfn stækkar með
hverjum deginum. Sporvagn-
arnir verða að fara æ lengri
ferðir. Það er konum okkar
að þakka að hjólreiðar eru
enn við líði. Við skulum
stanza aðeins við, reiðhjólin.
Æskan vinnur sér inn æ meiri
peninga, kaupir sportbíla og
safnar ýstrUj bölvun auðsins.
Þegar drengirnir voru litlir
voru þeir búlduleitir og svo
rjóðir í kinnum að mann
langaði ,til að éta þá. Þegar
maður svo sér þá í dag sér
maður eftir að hafa ekki látið
það eftir sér.
Kaupmannahafnarstúlkurn.
ar eru aftur öðruvísi. Þær
skilja að reiðhjólið er bezti
sýningarstaðurinn fyrir - fal-
lega fótleggi. Þær svífa eins
og gondólar í Feneyjum um
götur borgarinnar eins og
lífgandi gola. Ef við missum
þær missir Kaupmannahöfn
einkenni sitt. Áður en nokk-
ur var farinn að hugsa um
Stuttu tízkuna voru hinar
indælu hjólreiðastúlkur Kaup
mannahafnar fyrirmynd fram
úrstefnunnar og vísuðu veg-
inn þegar hressandi hafgolan
feykti pilsunum upp yfir
höfuð þeirra.
í sunnudagsblöðum okkar
hafa merkir rithöfundar og
teiknarar miðlað þjóðinni af
list sinni. Enginn önnur blöð
geta státað af slíku. Til þess
að koma í veg fyrir blaða-
dauðann hefur komið fram
tillaga um að á hverjum
morgni skiptist meðlimir
okkar ástkæru konungsfjöl-
skyldu á að opna dagblöðin
í sjónvarpinu og lýsa yfir
formlegri opnun þeirra, eins
og gert er á vörusýningum.
Ekkert svar hefur enn borizt
frá Amalienborg.
Við getum treyst á goluna
í Kaupmannahöfn. Einnig frá
vötnanum sem eru eins og
fiskabúr náttúrunnar í miðri
borginni. Hvítir svanir, villi-
endur og alls-kyns fuglar
synda óhræddir meðfram
bökkunum og þiggja brauð
af börnum sem koma þangað
í fylgd með mæðrum sínum.
Gömlu húsin í Nýhöfninni og
Gammel Strand speglast í
tæru vatninu.
Konungurinn situr sjálfur
í ævintýragarði sínum. Garð-
yrkjumenn borgarinnar hugsa
um rósabeðinn, en börnin
skríða milli trjánna. Gamalt
fólk situr og sólar sig í görð-
unum. Skyldi nokkur borg
hugsa jafnvel um gamla
veika og farlama borgara sem
Kaupmannahöfn. Ég hef heyrt
að það eigi að setja á stofn
sérstaka skrifstofu sem á að
fylgjast með því að gamla
fólkið fái það sem því ber af
þjóðfélagstryggingunum, því
að það er margt gamalt fólk,
sem vill heldur líða skort en
kvarta á opinberum skrifstof-
um.
Skemmtigarðurinn okkar
sögulegi er meira en hundrað
árum eldri en Disney land og
miklu ævintýralegri. Ég man
aldrei eftir að hafa hitt þann
mann sem var orðinn of gam-
all til að heimsækja Tívoli.
Meðalaldur _ gesta þar er frá
3—110 ár. í stuttu máli, við
bjóðum alla velkomna í Tívoli
og að kaffiborðinu á Strikinu
og stúlknanna á reiðhjólun-
um til þess að halda afmælið
hátíðlegt.
Terylenebuxur
Hvítar skyrtur
Slaufur
Aðalstræti 9,
Laugavegi 31.
Teg. 693.
Stærðir S, M, L, XL.
Litur skintone.
KANTER’S í
ÚRVALI
Verzlunin
KATARÍNA
Suðurveri við Kringlumýrar-
braut. Sími 81920.
Sparifjáreigendur
Ávaxta sparifé á vinsælan
og öruggan hátt. Uppl.
kl. 11—12f.h. og 8—9e.h.
Margeir J. Magnússon
Miðstræti 3 A.
Simar 22714 og 15385.
FLÖGG
ísL allar stærðir
Borðfánar
Vimplar —
1,50 — 1,75 mtr.
Flaggstangarhúnar
Flagglínur
Flagglínufestlar
VERZLUN
0. ELHGSEN
Fyiir 17. júní
Nýkiomið fjölbreytt úrval af
munstruðum sokkabuxum á
börn og unglinga. Verð frá
79 kr.
Verzlunin
KATARÍNA
Suðurveri við Kringlumýrar-
braut, sími 81920.
Kven- og unglinga-
SÍÐBUXUR
í miklu úrvali. Tízkulitir.
Austurstræti 7. SLmi 17201.
Woðsey nyBonsokkar
STOCKINCS
NÝKOMNIR, MARGAR GERÐIR OG LITIR:
15 DENIR
20 DENIER
30 DENIER
30/ DENIER CREPE
NETSOKKABUXUR KVENNA
TÁNINGASOKKAR FRÁ WOLSEY
ER TÁNINGATÍZKAN í ÁR.
WOLSEY KLÆÐD ER VEL KLÆDD.
PARÍSARBÚÐIN
AUSTURSTR. 8.