Morgunblaðið - 15.06.1967, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. JÚNÍ 1967.
Friðþjófur Óskarsson
— Kveðja —
F. 13. típríl 1916. D. 10. júní 1967.
FRIÐÞJÓFUR Adoli Óskarsson,
hárskerameistari, andaðist laug-
ardaginn 10. þ.m. eftir þunga og
langa sjúkdómslegu í Landa-
kotsspítala, rúmlega 51 árs að
aldri. Útför hans íer fram frá
t
Mágkona mín,
Magdalena Guðjónsdóttir,
hjúkrunarkona,
Víðimel 68,
lézt þann 14. þessa mánaðar.
Sigfús Jónsson.
t
Eiginmaður minn, faðir og
tengdafaðir,
Leopold Jóhannesson,
Hringbraut 88, Rvík,
andaðist að heimili sínu að
kvöldi 13. júní.
Ágústa Jónasdóttir,
börn og tengdabörn.
t
Fósturbróðir minn,
Þorsteinn Stefánsson,
Kiðjabergi,
andaðist þriðjudaginn 13. júní
1967 í sjúkrahúsi Selfoss.
Halldór Gunnlaugsson.
t
Hjartkaer móðir mín, systir
okkar og amma,
Ólína Bjarnadóttir,
sem lézt 8. þ.m. verður jarð-
sungin frá Fríkirkjunni
föstudaginn 16. júní kl. 1,30.
Jarðsett verður í kirkjugarð-
inum við Suðurgötu.
Brynjólfur Magnússon,
Jóhanna Jóhelsdóttir,
Kristjánssína Bjarnadóttir,
Steinunn Bjarnadóttir
og barnabörn.
t
Maðurinn minn, faðir okk-
ar, tengdafaðir, afi og langafi,
Árni Árnason,
fyrrv. formaður,
Gerðum, Garði,
sem andaðist 11. júní, verður
jarðsunginn frá Útskála-
kirkju föstudaginn 16. júní
kl. 2 e.h. Blóm eru vinsam-
lega afþökkuð. Þeim, sem
vildu minnast hins látna er
bent á líknarstofnanir.
Guðrún Þórðardóttir,
Friðrik Árnason,
Ámi Árnason,
Kristín Jónsdóttir,
Björg Árnadóttir.
Jónas Guðmundsson
og barnabörn.
Dómkirkjunni kl. 1.30 í dag.
Friðþjófur eða Frissi, eins og
við æskufélagar hans vorum
vanir að kalla hann, var fædd-
ur í Reykjavík 13. apríl 1916,
sonur Óskars heitins Árnason-
ar rakara og eftirlifandi konu
hans, Guðnýjar Guðjónsdóttur.
Ólst Friðþjófur upp, ásamt 3
systkinum sínum, á heimili for-
eldra sinna, Kirkjutorgi 6, við
hlið þeirrar kirkju, sem honum
og okkur öllum, er slitu barns-
skónum í nágrenni hennar, var
svo kær, Dómkirkjunnar, þaðan
sem hann veróur nú kvaddur
frá í dag.
Með Friðþjófi Óskarssyni er
fallinn í valinn, lang,t um aldur
fram, vinsæll og kunnur Reyk-
víkingur — þekktur ekki ein-
göngu fyrir sniliings handbragð
í iðn sinni, heldur er hér líka
góður drengur kvaddur og sárt
syrgður af öllum, er kynnbast
honum náið. Þótt ef til vill sum-
um fyndist stundum yfirborð
skapgerðar hans hrjúft og ört,
þá vissu þeir er til þekktu að
undir sló hjarta þess manns, er
átti bæði blíða og viðfcvæma
lund.
t
Fósturmóðir okkar,
Ingveldur Finnbogadóttir
frá Sæbóli í Aðalvík,
verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju föstU'daginn 16.
júní kl. 1,30.
Inga Jónsdóttir,
Lárus Þorsteinsson.
t
Hjartkær eiginkona mín,
Ágústa Guðríður
Ágústsdóttir,
Baldursgötu 29,
verður jarðsungin frá Foss-
vogs'kirkju föstudaginn 16.
júní kL 10.30. Atlhöfninni
verður útvarpað.
FJi. vandamanna.
Arinbjöm Þorkelsson.
t
Eyjólfur Jónsson,
bóndi,
Höfða, Vallahrepp,
verður jarðsunginn frá Valla-
neskirkju föstudaginn 16.
þ_m. kl. 2 eftir hádegL
Systkin hins látna.
t
Jarðarför móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
Önnu Halldórsdóttur,
Ásbúðartröð 5, Hafnarfirði,
fer fram frá Hafnarfjarðar-
kirkju föstudaginn 16. júní
klukkan 2 e.h.
Guðmunda Ólafsdóttir
Whittaker,
Halldór G. Ólafsson,
Steinunn Magnúsdóttlr
og barnabörn.
Friðþjófur hóf snemma undir-
búning að því starfi sem átti
eftir að verða ævistarf hans —
rakara- eða hárskerastarfið.
Hann var ekki hærri í loftinu en
svo að setja varð undir hann
skemil þegar hann fyrst bóf að
„sápa inn“ viðskiptavini föðux
síns og mátti hinn ungi rakara-
sveinn hafa sig allan við til að
ná upp í höku og vanga við-
skiptamanna sinna með rak-
kústinn . Er Friðþjófur hafði
lokið rakaranámi undir hand-
leiðslu föður síns, hélt hann ut-
an til Danmerfcur til framhalds-
náms í grein sinni. Er heim kom
vann hann fyrs.t hjá föður sín-
um, en fluttist svo til Húsavík-
ur með konu sinni, frú Kristjönu
Jósefsdóttur, og setti þar upp
eigin rakarastofu. Eftir 2ja ára
starf þar nyrðra fluttust þau
hjónin suður til Reykjavíkur.
Þar starfrækti eða rak svo Frið-
þjófur eigin rakarastofu til
dauðadags við mikla aðsókn og
vinsældir, ekki sízt sem dömu-
hárskerL
Þau hjónin eignuðust þrjú
mannvænleg börn, sem nú eru
uppkomin. Eru það 2 synir, báð-
ir kvæntir; ÓH Pétur, starfsmað
ur hjá Flugfélagi fslands, Óskar
Haukur, sem er lærður hárskeri
og dóttirin Hólmfríður, sem enn
dvelst í föðurhúsum
t
Innilegar þaklkir fyrir auð-
sýnda samúð við andlát konu
minnar,
Guðrúnar Sigurðardóttur.
Bergþór Teitsson.
t
Þökkum auðsýnda samúð og
vináttu við fráfall og útför
Gunnars Stefánssonar,
stórkaupmanns.
Guðriður og Kirby Green.
t
Innilegar þak'kir fyrir auð-
sýnda samúð og vinarhug við
fráfall og jarðarför mannsins
míns og föður okkar,
Sigurjóns Alfreðs
Kristinssonar,
Hraunstíg 2, Hafnarfirði,
Sérstakar þakikir færum við
læknum og starfsfóltki á Hand
lækningadeild Landsspítalans
fyrir góða aðhlynningu við
hinn látna. Einnig þökkum
við önnu Erlendsdóttir fyrir
auðsýnda hjálp okkur til
handa.
Guðrún Guðmundsdóttir,
Jónína Sigurjónsdóttir,
Ingólfur Sigurjónsson,
Þórarinn Sigurjónsson.
Nú ertu horfinn, fjalla-frjálsi siveinn,
og fögnuð vorsins tókstu þér í nesiti.
Þín lund var sterk og bugur þinn var hreinn
í heitri lotning, er þú batzt í festL
er tengdi saman trú á land og þjóð,
og tafrabeima milli dala og fjalla.
Þú undir þér við sögu og lög og ljóð
er ljóssins raddir heyrðir til þín kalla.
Við áttum saman leið um ljúfan dal
og litum saman ána-fagur-bláa.
Við hlýddum oft á straumsins stunda-tal
og störðum hrifnir þar á laxinn fráa,
er ljrfti sér í leik upp foss og streng
og lét sér hvergi bregða hylinn kalda.
Nú kveð ég þig í virðing, vin og dreng!
Þú veizt í dag hvert straumar lífsins halda.
J. V. Hafstein.
Friðþjófi var margt til lista
lagt, þótt eigi færi það hátt, því
hann var nokkuð duhir að eðlis-
fari, enda þótt hann í vina- og
kunningjahópi væri oft hrókur
alls fagnaðar. Meðan ihann starf-
aði á Húsavík var hann virkur
félagi í Karlakór Húsavíkur,
því Friðþjófur var raddmaður
góður og hafði mikið yndi af
söng og hljómlist.
Sú var ein list, er hann lagði
ætíð mikla rækt við og náði
langt í, en það var laxveiðin.
Friðþjófur þótti einstaklega lag-
inn laxveiðimaður og vel að sér
í öllu er að slíkri veiði laut —
hafði lagt stund á hana í um 30
ár. Laxá í Þingeyjarsýslu var
sú laxveiðiá er Friðþjófur hafði
mestar mætur á, ekki sízt vegna
hinnar sérstæðu náttúrufegurð-
ar þess lands sem áin rennur
um, en hann var ekki einungis
góður veiðimaður, hvort heldur
var á fisk eða fugl, heldur var
•hann öllu fremur mikill nátt-
úruskoðari og náttúruunnandi
og kunni vel að meta íslenzka
náttúrufegurð og friðsæld henn-
ar.
Kæri vinur og leikbróðir. Er
leiðir okkar nú skiljasit að sinnL
þá leitar hugur minn aftur til
æskuáranna, er við sem litlir
drengir vorum að leik með félög
um okkar af KirkjutorgL Skóla-
brú og Læfcjargötu. Margs er að
minnast, því mikið var æsku-
fjörið og lífsgleðin f vinaihópn-
um. Síðar er alvara lífsins tók
við og hver okkar varð að þræða
hina krókóttu og hálu braut
mannlegs ófullkomleika, varð-
aða allskyns freistingum og
hætbum, þar sem sumir eiga að
vita en villast þó.
Þú, kæri vinur, fannst leiðina
og komst gulli skírari frá hinni
þyngstu raun. Og nú, er sól þín
er hnigin að kvöldi og mál er að
hvílast um stund, þá fylgja þér
hugheilar ósfcir leikfélaganna á
leið þinni til sólarlanda.
Friðþjófur hafði síðastliðin ár
átt að stríða við mikinn og erf-
iðan sjúkleika er hægt og síg-
andi braut niður líkamlegt þrek
hans, en veikindi sín bar hann
fram til hinztu stundar með að-
•dáanlegri ró og karimennsku og
var öllu fremur umhugað um
velferð eiginkonu sinnar, barna
og annarra ástvina og vina.
Hann æðraðist ekki yfir hlut-
skipti sínu og varð þannig stærst
ur þegar mest á reyndi.
Ég veit að á slíkum stundum
mega orð sín harla lítils og
veita litla huggun. Þó vil ég
votta frú Kristjönu, konu h;\ns
sem staðið hefur svo stynk við
hlið ástfcærs eiginmanns síns
fram til hinztu stundar, mína
innilegustu samúð og hiuttekn-
ingu í sárum söknuði svo og
börnum þeirra, aldraðri móður
hans og systkinum og öðru
venzlafólki. Rómverjinn Cicero
sagði eitt sinn: „Hvað sem það
er, þetta sem Ihugsar skilur, vill
og framkvæmir, þá er það
himneskt og guðlegt og hlýtur
þessvegna dhjákvæmilega að
vera eilíft.“
Kæri vinur, vertu blessaður.
Geir R. Tómasson.
t
Nokkur kveðjuorð frá
móðurbróður hans.
FRIÐÞJÓFUR frændi er dáinn,
horfinn sjónum okkar hér á
jörð. Með honum er genginn
góður drengur, sem öllum vildi
vel en enginn illt. Er gott til
þess að vita, að slíkir menn
finnast nú á tímum, þegar hait-
ur og ofstæki mega sín svo mik-
ils í viðskiptum stétta og þjóða
í milli og hafa kiostað okkar
kynslóð meiri hörmungar en
dæmi eru til í sögu mannkyns-
ins fyrr og síðar.
Friðþjófur frændi var eink-
ar geðþekkur maður. í meðal-
lagi hár og vel vaxinn, bjartur
yfirlitum og fríður sýnum. Hann
var dagfarsprúður og stilltur og
mælti aldrei illa um aðra menn,
Hann hafði mikið yndi af ferða-
lögum úti í náttúru landsins og
þá einnig af veiðiskap öllum.
Hann hafði góða og fallega söng-
rödd og var ástsæll mjög af
Alúðar þaklkir fyrir góðar
gjafir, heimsóknir, heilla-
skeyti, vináittu og hlýhug í
orði og verki á sjötugsafmæli
mínu 3. júní sl.
Lifið heil'I
Magnús Andrésson,
KróktúnL
Hjartans þakfcir fyrir kær-
komnar kveðjur og gjafir í
tilefni af 75 ára afmæli mínu.
E. M. Einarsson,
Rþdovre,
Kaupmannahöfn.
Rakarastofur borgarlnnar
verða lokaðar í dag vegna jarðarfarar Friðþjófs A.
Óskarssonar, hárskerameistara, frá kl. 1—1.
MEISTARAFÉLAG HÁRSKERA.