Morgunblaðið - 15.06.1967, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. JUNÍ 1967.
31
Stöðugar framkvæmdir við
vatnsveitu Vestmannaeyja
Vinna hafin við dreifikerfið innanbœjar
í JÚLÍMÁNUBI eða ágúst næsta
sumar hafa Vestmannaeyingar
fengið nægt vatn, og þar með
er eitt mesta hagsmunamál
þeirra loksins orðið að veruleika.
Sem kunnugt er hafa Eyjamenn
fengið aðgang að vatnsbóii í
Austur-Landeyjum og verður
vatnið ieitt til Vestmannaeyja
eftir vatnslögnum, sem nú er
verið að vinna við. Vatnslögmn
verður alls 36 km., þar af 13M>
km. neðansjávar, og er hún hin
lengsta á Iandinu.
Magnús H. Magnússon, bæj-
arstjóri í Vestmannaeyjum,
skýrði Mbl. svo frá í gær ,að nú
væri verið að vinna af mikluvn
krafti í Landeyjum við þrýsti-
prófanir og frágang á lögninni
til sjávar, en vegalengdin þaðan
til vatnsbólsins er 22% km. Enn
fremur væru hafnar framkvæmd
ir við dreifikerfið innan Vest-
mannaeyjabæjar, og er gert ráð
fyrir að leggja þriðjung þess í
sumar Á miðju næsta ári er svo
áformað að leggja neðansjávar-
leiðsluna. Hún kemur upprúUuð
á kefli í sérstaklega gerðu kapal
skipi, og verður lögð á einum
degi. Leiðslan er úr plasti en
stálvafin að utan. Verður hægt
að leiða vatn til bæjarins í júlí
eða ágúst, eins og fyrr segir, og
verður vatni ekið til þeirra húsa
sem ekiki hafa þá fengið innan-
bæjarlögn.
Kína:
Indverskum sendi-
ráðsmanni vísað burt
SUÐLÆG átt var hér á landi
í gær. Þokuloft og súld var
við S-ströndina, og einnig var
þoka á miðunum austur af
landinu. í innsveitum norðan-
lands var hlýtt, t. d. 18 stig á
Akureyri og Staðarhóli í Aðal
dal.
Horfur eru á að hæðin yfir
Bretlandseyjum færist lítið
úr stað og lægðin verði á svæð
inu yfir vestanverðu Atlants-
hafinu, svo að sunnanáttin og
hlýindin munu haldast enn
um sinn.
Thailenzkir her-
menn til Viefnam
Tókíó, 14. júní — AP
KÍNVERJAR hafa vísað öðrum
sendiráðsritara Indverja úr landi
fyrir njósnir og gert mikið veð-
ur út af réttarhöldum yfir hon-
um, sem þeir segja að séu aðvör
un til bandarísku og brezku
heimsvaldasinnanna, indversku
afturhaldssinnanna og rúss-
nesku endurskoðunarsinnanna.
Kínverjar segja að þessir aðilar
séu sífellt að reyna að grafa und
an hinni mikilfenglegu öreiga-
stjórn alþýðulýðveldisins og
eyðileggja hina dýrlegu menn-
ingarbyltingu þess.
Réttarhöldin fóru fram að við-
stöddum 15000 Kínverjum, en
hinsvegar vantaði sakborning-
inn. Ákærandinn sagði, að á
yfirborðinu væri Krishnan
Raghunath, virðulegur stjórn-
málamaður, en undir niðri væri
hann svívirðilegur njósnari.
Lauk hann máli sínu með því að
vísa honum úr landi, við mikil
fagnaðarlæti viðstaddra. Kín-
versk fréttastofa segir svo frá
því hvernig Raghunath yíirgaf
landið: „Þegar indverski njósn-
arinn kom til flugvallarins í
fylgd með öðrum starfsmönnum
sendiráðs síns gengu kínverskir
öryggisverðir og Rauðir varðlið-
ar til þeirra í þeim tilgangi að
fylgja sakborningnum að vél-
inni. (Þessi niðurlæging hafði
verið ákiveðin í réttarhöldun-
um).
Til þess að komast hjá refs-
Ingu neitúðu Indverjarnir að
framselja njósnarann og kváð-
ust sjálfir mundu fylgja honum.
Þessi framkoma þeirra vakti
mikla reiði hjá hinu kínverska
alþýðufólki, sem þarna var sam
ankomið. En hvöss og myndug
framkoma öryggisvarðanna og
varðliðanna neyddi Indverjana
til að gefa eftir og afhenda sak-
borninginn..
Raghunath neitaði hinsvegar
fylgd öryggisvarðanna og kaus
að ganga sjálf.ur aðra leið en þá,
sem hafði verið valin fyrir hann.
Sýndi hann hinni byltingasinn-
uðu alþýðu Kína ýmiskonar
óvirðingu og var framkoma
hans ögrandi. Þriðji sendiráðs-
ritarinn, Padmanab Vijai, sem
var í fylgd með njósnaranum
sýndi einnig óvirðingu og ögr-
andi framkomu. Þetta reitti
mjög til reiði hina byltingasinn
uðu alþýðu Kina og sýndi hún
það í verki. Kínverska alþýðan
er vopnuð hugsjónum Mao Tse-
Tungs, og hún er ekkert til að
spauga með. Hin byltingasinn-
aða alþýða við flugvöllinn hróp
aði ákveðin: „Ef auðvaldssinn-
ar, heimsvaldasinnar, endur-
skoðunarsinnar eða afturhalds-
sinnar voga sér að hafa í frammi
hótanir við Kínverska alþýðu-
lýðveldið munu þeir ekki lifa
lengi“.
Indverski njósnarinn varð að
gjalti við hina ákveðnu fram-
komu hinnar byltingasinnuðu
alþýðu og var mjög niðurlútur,
meðan hann var leiddur inn í
flugvélina". Krishnan Raghun-
ath sagði fréttamönnum, að þeg-
ar þeir komu til flugvallarins
hafi verið þar um þúsund öskr-
andi Kínverjar, sem hafi haft i
frammi hótanir og ofbeldi. Þriðji
sendiráðsritarinn var yfirlýstur
„óæskileg persóna“ í Kína. Þess
ar aðgerðir hafa vakið reiði í
Indlandi og stjórnarandstaðan
hefur ásakað stjórnina um að
veita sendiráðsmönnum í Kína
ekki nóga vernd. Um 150 manns
fóru í mótmælagöngu til Kín-
verska sendiráðsins en ekki kom
til átaka. Indverska stjórnin í-
hugar refsiaðgerðir.
GRÓÐUR í skrúðgörðum laufg-
ast nú óðum en jafnframt hefja
skordýrin skemmdarstarfsemi
sína. Um leið og brumknappar
trjánna springa út skríða lús og
maðkur úr eggjum sínum og
byrja að nærasit á laufskrúðinu.
Skrúðgarðyrkjumenn eru nú
þegar tilbúnir til að hefja úðun
skrúðgarða gegn þessum skemmd
arvörgUm, en bíða aðeins eftir
hentugu veðrL Þeir hafa skipu-
lagt þessa starfsemi sína þannig,
að allir garðar borgarinnar
verða úðaðir á örfáum dögum.
Heildarkostnaður við þessar
framkvæmdir er áætlaður 92.6
milljónir króna. Hefur verkið
að mesbu leyti staðizt áætlun
fram að þessu, en þó hefur orðið
aukinn kostnaður vegna bilana
við þrýstiprófun.
Þess má geta, að A-Landey-
ingar hafa gerzt meðeigendur í
vatnsveitunni að 1/30 hluta.
Magnús H. Magnússon sagði að
endingu í því sambandi, að það
væri af sem áður var — nú gætu
Vestmannaeyingar selt vatn á
meginlandinu, en yrðu á hinn
bóginn að kaupa steinsteypuefni
úr Hvalfirði, sem þeir hafi fram
að þessu talið sig eiga nóg af.
- ÞÚSUNDIR
Framhald af bls. 1.
vanir að safnast saman við
grátmárinn um hvítasunnuna.
Þá komu þeir gangandi eða ríð-
andi á ösnum. Nú komu þeir
mest á bílum.
Það var enn margt sem minnti
á stríðið, í borginnþ og af og til
heyrðust skotkvellir þegar ísra-
elskir hermenn héldu áfram leit
sinn að jórdönskum leyniskytt-
um. ísraelskir hermenn sprengdu
einnig jarðsprengjur sem voru í
rústunum eftir bardagana í fyrri
viku.
Levi Eshkol, forsætisráðherra
ísraels hefur sagt að „hin sam-
einaða Jerúsalem" muni í fram-
tíðinni vera höfuðborg landsins.
Hann var að tala til ísraelskra
hermanna einhversstaðar á Sinai
skaga og sagði einnig, að þeir
yrðu að fá loforð fyrir frjálsum
skipaferðum um Akabaflóa.
Hann svaraði ekki spurningu
um hversu miklum hluta Sihai-
skagans Ísraelsmenn vildu halda
í viðtali við ísraelska útvarpið
sagði Eshkol, að þegar hann
hefði séð alla eyðilögðu egypsku
skriðdrekana og stríðsvagnana,
hafi sér verið efst í huga að eitt-
hvað yrði að gera til að fyrir-
byggja frekar vopnaviðskipti
milli landanna.
í fréttum sem bárust til Tel
Aviv segir að daglegt líf á Gaza
svæðinu sé að komast í eðlilegt
horf, þótt palestinskar leyni-
skyttur geri enr vart við sig.
Útgöngubannið hefur verið
stytt um tvo tíma og er nú í
gildi 18 tíma á sölarhring.
Rækilega verður sagt frá
þegar úðun garðanna hefst og
byrjað verður í öUum borgar-
hverfum sam/tímis. Úðunarmenn
munu gera vart við sig, en verði
einhverjir útundan eru þeir
beðnir að hafa samband við við-
komandi úðunarmann. Hver úð-
unarmaður hefur sitt ákveðna
borgarhverfi til úðunar og eru
garðeigendur beðnir um að leita
til úðunarmanns síns hverfsis,
en nafn hans og símanúmer mun
verða að finna í næsta garði,
sem úðaður hefur verið.
Bangkok, 14. júní. AP.
TVÖ þúsund manna herdeild frá
Thailandi, Kobra-herdeild drottn
ingarinnar, mun fara til S-Víet-
nam í september næstkomandi
og berjast þar með Bandaríkja-
mönnum.
Minni hópur hermanna fer
óangað þegar 24. júní, undir
stjórn Thanom Kittiikachorns,
Framhald af bls. 1.
í írak hvöttu tveir stjórn
málamenn til þess í dag að
stofnað yrði sambandsríki
Egyptalands, íraks, Sýrlands
og Jórdaníu.
Á aukafundi í öryggisráðinu
studdu aðeins Maili og Indland
tillögu Sovétríkjanna og Búlg-
aríu um að tsrael yrði lýst sem
árásaraðila, en önnur ríki sátu
hjá. f atkvæðagreiðlslunni um
'brottflutning greiddu Nígeríu og
Eþíópía tillögunni atkvæði, en
aðrir fulltrúar í ráðinu sátu hjá.
Til þess að tillöguir hljóti sam-
þykki í ráðinu verða þær að fá
minnst níu atkvæði.
Talið er að Rússar muni nú
leggja á það meiri áherzlu en
áður að Allsherjarþingið verði
'boðað til aukafundar, enda er
ljóst að frekari umræður í Ör-
yggisráðinu beri ekki árangur,
að því er fulltrúi Rússa, Feder-
enko, sagði i umræðum þess.
Áður en umræður ráðsins hóf-
ust lýsti franski fulltrúinn yfir
stuðningi við tillögu Rússa um
brottflutning ísraelsku hersveit-
anna. Brezki fulltrúinn lagði til,
að SÞ skipuðu sáttasemjara er
ræða s-kyldi við alla deiluaðila
og kvað fráleitt að lausn fengist
á deilunni og brottflutningi kom
ið til leiðar með því einu að
samþykkja ályktunartiillögu.
Kosygin til New York
U Thant framkvæmdastjóri
mun nú ganga úr skugga um
hvaða undirtektir tillaga Rússa
um aukafund Allsherjarþingisins
fái, en í London er sagt að Bret-
ar muni ekki leggjast gegn til-
'lögunni. Bretar telja, að SÞ
verði að gegna úrslitahlutverki
í sambandi við lausn deilunnar.
■en styðja hugmyndina um að
fjórveldin vinni í sameinin.gu
•að því að finna lausn fyrir tdl-
stilli SÞ. En sagt er að margt
bendi til þess að Rússar hafi að-
allega áhuga á að endurheimta
•áhrif sín í Austurlöndum nær og
því muni erfitt reynast að fá
þá til samvinnu.
Orðrómur er á kreiki um að
háttsettir sovézkir leiðtogar,
Kosygin forsætisráðherra, Bresjn
ev flokksritari eða Podgorny
forseti, muni sækja fund Alls-
herjarþingisins, svo og aðrir
austur-evróps'kir leiðtogar. Þá er
ekki óhugsandi að Joihnson for-
seti sæki fundinn. Utanrí'kisráð-
herra ísraels, Abba Eban, sagði
í dag að hann teldi ólfklegt að
Rússum og Arbaríkjunum tæk-
ist að fá meirihluta Allsherjar-
sonar forsætisráðherra Thai-
-ands. Kobra-herdeildin mun
hafa með sér eigið stórskotalið
og vera undir stjórn hershötfð-
ingja, sem ekki hefur enn verið
tilnefndur. Hermennirnir eru nú
þjálfaðir í f r umskóg a rba rdö g -
um i Kanchinaburri-héraðinu,
skammt frá hinni frægu brú yfir
Kwai-fljótið.
þingisins til að fordæma ísra-
•el. Hann la.gði áherzlu á beinar
'viðræður milli Araba og ísra-
elsmanna.
í Kaíró sagði Riyad utanríkis-
ráðherra að Súez skurðurinn
yrði áfram lokaður vegna nær-
veru ísraelsku hermannanna,
•sem yrðu að teljast hættuleg
skipasíglingum. Hann sagðL að
æðstu menn Arabalandanna
mundu bráðleg halda fund með
sér til að móta sameiginlega
stefnu gegn ísrael og ríkjum,
sem hafa stutt þá. Hann sagði,
að ekkert mark væri takandi á
yfirlýsingum fsraelsmanna um
að þeir vildu frið.
Yfirmaður egypzika liðsaflan.s
•f Jemen, Tallat Hasisan hers-
höfðingi sagði í dag ,að bráð-
lega yrði gerð ný tilraun til að
koma ísraelsmönnum fyrir katt-
arnef. Hann sagði, að egypzki
herinn væri enn miög öflugur
þótt hann hefði orðið fyrir áfalli.
Forseti ísraels, Atassi, skoraði
í dag á Arabaríkin, að beita
„olíuvopninu" til að hrinda „ár-
ár“ ísraelsmanna. Feisal Saudi-
Arabíukonungur skoraði í dag á
leiðtoga Arabaríkja og vinveittra
þjóða að frelsa hina helgu staði
'í Palestínu úr „klóm zionista".
Atassi forseti skoraði á olíuríkin
fyrir botni Miðiarðarhais að
draga aftur innistæður sínar í
■brezkum bönkum til þess að
veikia stöðu pundsins. Utanrík-
isráðherrar Arabalandanna halda
fund í Kuwait á laugardaginn.
Sýrlendingar lokuðu í dag
bandarísku menningarmiðstöð-
inni og vestur-þýzku Goethe-
stofnuninni í Damaskus. Áreið-
anlegar heimildir í Tripoli
herma, að el'efu olíuskipum
hafi verið neitað um afereiðslu
í höfnum í Líbýu vegna ákvörð-
unar stjórnarinnar um að banna
olíuflutning. Olíuverkamenn í
Líbýu hafa. ákveðið að fara I
vikuverkfall til að mótmæla
svokölluðum stuðningí Breta og
Bandarí'kjamanna við ísraels-
menn.
f Kairó er líf fólks að færast
aftur í eð'ilest horf og virðist
almenningur hafa sætt sig við
hin „alvarlegu hernaðarlegu á-
föll“ Egypta í Sinai auðninni.
Verzlanir, skrifstofur. bankar og
veitingahús hafa verið opnuð á
nvjan ]eik og sandpokar og ann-
að sem minnir á stríðið er smám
saman að hverfa. En á kaffi-
húsum fylgiast menn með út-
varpstfréttum. margir hatfa á-
hyggiur af feðrum eða sonum á
vígstöðvunum og margir eru
gramir í garð ve'»+”rvel',anna
fyrir meintan stuðning þeirra
við ísrael.
Gott útlit með laxveiði
LAXVEIÐI er nú hafin í all- •
flestum veiðiám, eða hefjast
næstu daga. Sem kunnugt er hef j
ur tíðkast á undanförnum árum
að veiði í flestum þekktustu
veiðiánum hefjist 1. júní ,en nú
hafa flest veiðifélög fært þann
tíma aftur til 10. júní, eða þar
um bil.
Fyrstu tölur yfir laxveiði í
ánum gefa góðar vonir um gott
veiðiár, enda þótt enn sé otf
snemmt að spá um slíkt. Júní
er alla jafna lítill veiðimánuður,
en enn sem komið hefur veiði
verið óvenjugóð. Fyrsti veiðihóp
urinn í Norðurá fékk t.d. sjö
laxa fyrstu dagana, en alls hafa
29 laxar komið þar á land. Og
í Laxá í Þingeyjarsýslu hafa
þegar komið 14 vænir laxar
land, síðan á laugardag.
Netaveiði í Hvítá í Borgarfirði
hófst 23. maí, og hafa fengizt
um 10 laxar þar, og eru menn
bjartsýnir á áframhaldið.
Uðunaraðgerðir
— Öryggisráðið