Morgunblaðið - 06.07.1967, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 06.07.1967, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 1967. Svíar hðfðu heppnina með sér og unnu 2 - 0 — Baráttuvilji íslenzka liðsins brást aldrei —- þrátt fyrir mikið mannfaðl. — Gæfan fylgdi Svíum BEZT og sætast er að sigra, en næst bezt aið falla mefð fullri sæmd. Sigurinn féll Svíum í vil i gær í lokaleik afmælismóts KSÍ og þar með sigurinn i keppninni í heild. tslendingar urðu að láta i minni pokann hvað markatölu snerti, en að baráttuhug og sigurvilja gáfu þeir sig aldrei. 2—0 Svíum í vil segir alls ekki sögu leiksins. Enginn klas.samu.nur var á liðunum en heppni — kannski heppni hins sterka — elti Svíana. Bæði mörk þeirra voru ódýr mjög og komu frekar fyrir mistök tslendinga en afreksgetu Svíanna. Og tækifæri sköpuðu íslendingar sem ekki voru síðri en Svíanna. íslenzka landsliðið þarf því ekki að bera höfuðið lágt þrátt fyrir þennan ósigur. Öllu frekar staðefsti þessi leikur, a0 sigrur- inn yfir Norðmönnum var engin tilviljun og að landslið okkar nú er verða bezti landsliðskjarni er við höfum eignazt. Áfram á sömu braut og árangurinn mun koma í Xjós., Mannfall Ekki bætti það úr skák hjá liðinu að eftir 28 mín. leik er Magnús Torfason fyrirliði liðsins borinn út af leikvelli með langan skurð á fæti, sem hann hafði hlotið eftir einn Svíann þá er boltinn var víðs fjarri. Á sömu mínútu ákvað Keynir Karlsson þjálfari að taka Ársæl Kjartansson mið- vörð út af, en hann hafði þá haltrað um stund eftir spark i fót. Seint í síðari hálfleik varð Hermann Gunnarsson miðherji að yfirgefa völlinn eftir árekstur í marktækifæri. Inn á komu varamenn jafn- harðan — Ævar Jónsson frá Akureyri, Sigurður Jónsson Val og Jón Jóhannsson Kefla- vík. En þrátt fyrir ágæta frammistöðu þeirra — eink- um Ævars — var þetta liðinu blóðtaka á örlagastund. Og þó tveir Svíar yfirgæfu völlinn sá minna á því þeir eiga jafn ari liðsmönnum á að skipa. Hver hefði í upphafi getað hugsað sér ísl. liðið án Magn- úsar, Ársæls og Hermanns? Aðstæður til leiks í gærkvöldi voru mjög slæmar. Þétt úða- rigning var allan tímann og völl- urínn haugblautur og tæplega leikhæfur. Öðru fremur kunnu aðstæðurnar að hafa valdið slys- unum. ★ Jafn leikur Leikurinn var frá upphafi til loka jafn og spennandi. Liðin náðu á víxl undirtökunum, en mest bar á baráttu — og bar- áttuvilja áttu íslendiragar nógan. Sviarnir sýndu á köflum — sum- ir hverjir —r- meiri kunnáttu í knattleikni, en á köflum náðu íslendingar gullfallegum leik- köflum, með hraða og skipting- um, sem komu sænsku vörninni í mikinn vanda og skot átti ísl. iiðið slík að vel hefði átt að duga til tveggja marka, ef ekki hefði komið til frábær mark- varzla Ulf Blomberg — og mikil heppni Svíanna. Það er enginn sá muhur á lið- unum að jafntefli hefði ekki verið réttlætanlegt — en sann- gjörnustu úrslitin eftir leik að dæma hefðu að mínum dómi verið 3—2 Svíum í vil. ic Minnisbókin 7. mín. Sigurður Dagsson bjarg aði vel á 7. mín. og sýndi veldi sitt og getu. 11. mín. Gott tækifæri fs'lend- inga. Eyleifur kemst í færi, hitt- ír varnarmann, spyrnir aftur þrumuskoti en hittir í slá. Aftur nær Eyleifur knettinum — en spyrnir framhjá. Fyrsta heppni Svía. 19. mín. Horn á ísland. Skallað er að marki en hitt í þverslá og bjargað er í horn. Þarna voru íslendingar heppnir. 24. mín. Þrumuskot frá Svíum. Sigurður ver eins og meistara ber. 28. mín. Magnús Torfason sendir fram miðjuna — en fær spark í fótinn (kálfa) eftir að knötturinn var floginn. Stór skurður opnast og æð slitnar. Hann er fluttur á brott í sjúkra- Fyrra mark Svíanna — heppnismark úr saklaus ri aukaspyrnu og snerti skotið ísl. varnarmann. bíl. Á sömu stund yfirgefur Ár- sæll Kjartansson völlinn. Örlög leiksins voru e. t. v. ráðin þarna. 34. mín. T. Nordahl leikur inn- fyrir og öllum blöskrar að Sig- urður markvörður stendur kyrr. En í ljós kom að Sigurður lok- aði markinu með staðsetningu sinni og skotið fór framhjá. 40. mín. Elmar „prjónar" í gegnum sænsku miðvörnina og gefur í eyðu. En heldur fast var gefið og markvörður nær af tám tveggja íslendinga. 43. mín. Aukspyrna er dæmd á ísl. liðið út undir miðjum veli. Aðeins fjórir til varnar og sent er til Arvidsson útherja sem spyrnir að marki og eftir að hafa breytt stefnu á varnarmanni síl. lendir knötturinn í netinu. Hreint heppnismark. Skyssa var að gfa Svíum ráðrúm til að taka aukaspymuna svo fljótt senrj raun var á. En reynslan er dýru verði keypt. ★ Örlög ráðin í byrjun síðari hálfleiks áttu íslendingar góð færi, einkum þó á 7. mín er Her- mann átti þrumuskot upp úr hornspyrnu. Aðeins frábær markvarzla — ásamt heppni — bjargaði því að ekki varð mark þar og leikurinn jafn. Og svo kom reiðarslagið á 10. mín. Hornspyrna er á íslendingar fagna of fljótt — og Svíar setja upp örvæntingarsvip of fljótt. Af höfði Svía stefndi knötturiinn í mark í síðari hálfleik — og þversláin bjargaði sjálfsmarki. (Myndiir Sv. Þonm.) ísl. markið. fslendingur nær knettinum á miðjum vítateig, fellur í vætunni og Cron- qvist nær af honum knettin- um, leikur fram og skorar af stuttu færi. Tvö beztu tækifærin eftir þettí áttu íslendingar. Hið fyra á 21. mín er þvaga verður við mark Svía og Hermann berst við varn armenn um háa sendingu að marki Svía. Naumlega var bjarg að en þrír lágu í valnum, Her- mann, miðvörður Svía og mark- vörður Svía. Hermann varð að yfirgefa völl'inn, en hinir tveir voru lítt meiddir. Á 25. mín gefur Elmar hátt að marki Svía. Barátta verður um að skalla knöttinn en sænsk ur leikmaður hoppar hæst og af höfð'i hans virðist knötturinn stefna í sænska markið — en þversláin bjargar. Önnur mikil heppni. Á Liðin Sænska liðið hitti nú jafningja sinn og má þakka gæfunni fyrir sigurinn. Meiri knatttækni hafa þó Svíar og skipulagðari leik — en baráttuhug hafa þeir ekki á við íslendinga í þessum leik. Beztir voru markvörðurinn, Blomberg, Selander, Nordahl og Göran Karlsson. Nokkuð kenndi grófleika í leik Svíanna — og þar höfðu þeir talsverða yfirburði, enda líkamssterkari. fsl. liðið á í heild mikið lof skilið fyrir leikinn. Sigurður stóð sig mjög vel í markinu og verður ekkf sakaður um mörk- in. Jóhannes Atlason og Guðni Kjartansson áttu og báðir mjög góðan leik og þurfti þó Guðni að skipta um stöðu eiftir „mann- fallið" en slíkt er ætíð erfitt. Hann skilaði báðum með prýði. En að öðrum ólöstuðum áttu Eyleifur Hafsteinsson og Þórður Jónsson mestan heiður af frammi stöðu liðsins. Þeir voru ódrep- andi í vörn og byggðu vel upp, alltaf þar sem hættan var og mest þurfti á að halda. Framlínan barðist vel en náði ekki nógu vel saman. Einstakl- Framhald á bls.27. Tugþraut karla og fimmtarþraut kvenna — í kvöld og á morgun ANNAR hluti Meistaramóts Reykjavíkur í frjálsum íþróttum fer fram í dag, fimmtudaginn 6. júlí og á morgun og hefst kl. 8 bæði kvöldin. Verður þá keppt í tugþraut fyrir karla og fimmtarþraut fyr- ir konur, og einnig verður keppt í 10,000 m. hl. og 3000 m. hindr- unarhlaupi. I tiugþrau’tinni eru meðal kepp- erada Valbjöm Þorlálksison K.R. og Ólafur Guðrraundsson K.R. en í dag verður keppt í þessum gxeiniuim tiugþraiutarinnar, 100 m. hl., langstöklki, kúluvarpi, há- stökki og 400 m. hl. Fimmtar- þraut kvenna fer einnig eins og tugþrautin fram á tveimur dög- um, og verður í dag keppt í þessum greinum, 80 m. grindahl. kúluvarpi og langstökki. Á morgun föstudag, verður keppt í þessum greinum tugþraut ar karla, 110 m. grindahl., stang- arstökki, kringlukasti, spjótkasti og 1500 m. hl. og hjá konum •verður keppt í þessum greinum, langstökki og 200 m. hl. í dag verður einnig keppt í 3000 m. hindrunarhlaupi og eru þar meðal þátttakenda, Halldór Guðbjörnsson K.R. og Agnar Levy KR en á morgun verður keppt í 10.000 m. hl. og eru þar aðalmenn sömu hlauparar. Ákveðið hefur verið að hafa gestaþátttöku í einni grein tug- þrautarinnar og er það í kringlu kasti en þar verður hinn efni- legi Erlendur Valdimarsson með al keppenda en hann er nýlega búinn að bæta unglingametið all verulega og er hann óðfluga að nálgast 50 m. markið Ath. að keppnin í kringlukastinu fer fram á föstudeginum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.