Morgunblaðið - 21.07.1967, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JULÍ 1967
17
Kruppeinveldið líður undir lok
fyrirtækið gert að almenningshlutafélagi
Þýzki iðnjöfurinn Alfried Krupp, barón.
eftir Peter Rehak
ESSBN, Þýzkalandi, (Associa-
ted Press) — „Jæja, herra
minn, hvaða áætlanir hafið þér
nú um framtíðina?“ spurði
ungur, amerískuir liðsforingi
foringi háa, 'beinabera fangann,
sem honum hafði verið falið
að gæta í varðstöð sinni í
sprengjutættri borginni Essen
árið 1945.
,,Ég mun endurreisa verk-
smiðjur mníar og hefja aftur
framleiðslu, auðvitað. Þér vitið,
að ég er kaupsýslumaður, ekki
stjórnmálamaður," svaraði Al-
fried Krupp von Bohlen und
Halbach, fimmti stjórnandi
Krupp ættarveldisins, þar sem
voru fallbyssukóngar Evrópu i
meira en heila öld, veldis, sem
séð íhafði Þýzkalandi fyrir nær
öllum hergögnum í tveimur
heimsstyrj öldum.
Sennilega vegna sprengju-
rústanna í kring, bætti Krupp
við, að það yrðu þó „fimmtíu
ár eða meira“ þar til veldi
hans yrði komið á teljandi
rekspöl aftur.
Hann hafði rangt fyrir sér
um tímasetninguna. Þrátt fyrir
heitstrengingar Bandamanna
að leysa upp fyrirtækið, þrátt
fyrir eyðileggingu stríðsins,
fyrirskipanir um eignarnám og
fangelsun Krupps sem stríðs-
glæpamanns, varð fyrirtækið
óðar komið á öldutoppa „efna-
hagsundursins", hins skjóta
fjárhagslega afturbata Vestur-
Þýzkalands eftir heimsstyrjöld-
ina síðari.
Á minna en 20 árum var
Krupp orðið stærsta fyrirtæki
heims í eigu einnar ættar og
níunda stærsta samsteypa
Þýzkalands. Arið 1965 nam
sala fyrirtækisins sem samsvar-
ar 55 milljörðum íslenzkra
króna.
En lánsfjárskortur tuttug-
ustu aldarinnar hefur loks orð-
ið Krupp-veldinu að fótakefli.
Nú á að fara að breyta hinu
156 ára gamla fyrirtæki í al-
menningshlutafélag.
Forfeður Alfrieds Krupps
hefðu getað aflað rekstursfjár
með því að útvega sér fall-
foyssupantanir frá prússneskum
kóngi eða tyrkneskum soldán,
en hann varð að leita til bank-
anna og ríkisstjórnar Vestur-
Þýzkalands, því að hann stjórn-
ar fyrirtæki, sem framleiðir
alla hluti frá vöruflutninga-
bifreiðum og niður í falskar
tennur, — en engin hergögn.
Og bankastjórar nútímans
telja, að fyrirtæki, sem hefur
110 þúsund menn í vinnu, sé
of stórt til að því sé stjórnað af
einum manni.
Þetta er ekki fyrista kreppan
í stormasamri sögu fyrirtækis-
ins. Það þurfti sérstaka milli-
göngu sjálfs keisarans til að
fá bankaforing nokkurn til að
hlaupa undir bagga með fyrir-
tækinu árið 1873, þar sem Al-
fred Krupp hafði ráðizt í of
mikla fjárfestingu í sigurvímu
Þýzkalands eftir sigurinn yfir
Frökkum þremur árum áður.
Og sennilega hefur útlitið
aldr i verið eins svart og árið
1945 þegar brezkur ofursti
kallaði fyrir sig alla forstjóra
fyrirtækisins í fundarherbergi,
bent’ á sprengjurústir verk-
smið.ianna út um gluggann, og
sagðf:
„Þarna úti, herrar mínir,
mun enginn ofn framar spúa
reyk Þar sem áður stóðu stál-
smiðiurnar, verða skrúðgarðar
og tún. Brezka herstjórnin hef-
ur ákveðið að binda enda á
veldi Krupps fyrir fullt og
allt.“
Það er sagt, að sumir elztu
starfsmenn Krupps fari enn
með ræðu ofurstans orðrétt við
hátíðleg tækifæri.
Sem sagt, jafnvel úr rústum
hefur Krupp risið tvíefldur á
ný.
Friedrich Krupp, stofnandi
fyrirtækisins, dó snauður 39
ára að aldri, og arfleiddi 14
ára gamlan son sinn, Alfred,
að óþekktri og skuldum vafðri
málmsteypuverksmiðju. Hann
hafði stofnað fyrirtækið árið
1811 til að framleiða „brezkt
stál og allar vörur úr þeim
málmi“ í von um að hagnast á
hafnlbanni Napóleons á Eng-
land.
Hagur fyrirtækisins var stop-
ull, unz Alfred ramfoaði inn á
mikla velgengnisbraut, er hann
tók að framleiða ósamsett járn-
brautarhjól, enda er vörumerki
fyrirtækisins síðan þrír hringir.
Hann lærði á ferð til Englands,
að framleiðsla góðs stáls bygg-
ist á gæðum hráefna og hand-
verki af engu síðra tagi.
En frægð og fjárhagslegur
frami Krupps hófst einkum
með annarri nýrri hugmynd
Alfreds. Hann fylgdi spámann-
legri uppástungu austurrísks
vopnakaupmanns þess efnis, að
byssuhlaup mætti kannski
framleiða án bronss, og steypti
eitt hlaup úr stáli árið 1843,
eftir sjö ára erfiðar tilraunir.
Ennþá erfiðara reyndist að
selja hugmyndina, Þegar hann
bauð hana prússnesku stjórn-
inni, svaraði hermálaráðherr-
ann: „Núverandi aðferðir við
byssuframleiðslu og gæði skot-
vopna fullnægja öllum sann-
gjörnum kröfum og varla er
hægt að ætlast til nokkurra
endurbóta."
En Alfred þrjózkaðist við oig
hélt áfram að gera tilraunir
með og smíða byssu- og fall-
byssuhlaup. Að lokum árið
1859, barst honum pöntun um
þrjú hundruð fallbyssuhlaup ú*r
stáli fyrir krónprins Prúss-
lands, sem síðar varð Vilhjálm-
ur keisari fyrsti. Það féll í hlut
Vilhjálms þessa og forsætis-
ráðherra hans, Otto von Bis-
mark, að vekja athygli heims-
inis síðar á prússneska stór-
skotaliðinu og Krupp.
Innan fimm ára frá fyrstu
pöntuninni voru Rússar, Holl-
lendingar, Svíar, Austurríkis-
menn, Egyptar, Tyrkir, Argen-
tínumenn og stundum jafnvel
Englendingar farnir að kaupa
fallbyssur frá Krupp. Áður en
Alfred lézt, árið 1887, hafði
fyrirtækið Krupp selt 23 þús-
und stálfallfoyssur til allra
heimshorna. Stundum hafði
Krupp séð báðum aðilum fyr-
ir vopnum í styrjöldum, því að
það var regla ættarveldisins
Krupps að vera hafið yfir
stjórnmál.
Alfred reisti sér annan minn-
isvarða, sem var „Villa Húgel“,
220 herbergja einlbýlishús. Það
var stundum nefnt „húsið á
hæðinni" og þar var valda-
setur Krupp ættariimar til loka
síðan heimsstyrjaldarinnar.
Byggingin, sem minnir að stíl
á Viktoríanska óperuhöll, hófst
1870, sama árið og prússnesku
stálhlaupin unnu frægan sigur
yfir bronshlaupum Napóleons
III. við Sedan.
Af eldhræðslu skipaði Al-
fred svo fyrir, að ekki svo mik-
ið sem ein spýta skyldi notuð
í byggingu hússins eða skreyt-
ingu. Af sömu ástæðu hafði
hann þar engin málverk, bæk-
ur eða gluggatjöld. Hann var
líka hræddur við dragsúg og
teiknaði því sérstaka glugga,
sem ekki var hægt að opna.
Einkaiherbergi hans var byggt
yfir hesthúsið, svo að hann
gæti fundið lyktina af taðinu
og örvað þannig sköpunar-
gáfu sína.
Fyrsta meiri háttar ákvörðun
sonar hans, Fritz, var að skipta
um glugga í húsinu. Hann var
einnig á annarri skoðun um
bækur og málverk. Þegar dótt-
ir hans, Bertha, gaf Essen-borg
húsið fyrir einum og hálfum
áratug, voru þar á annað
hundrað málverk eftir gömlu
meistarana og ógrynni af forn-
munum, sem Alfred hefði þótt
stórlhættulegt áð hafa í húsi
sínu.
Fyrirtækið, sem nú hafði
óskoraða forystu á fallbyssu-
markaði heimsins, hélt áfram
að vaxa undir leiðsögn Fritz.
En þótt hann hefði endurbætt
Villa Húgel, eyddi hann mest-
um tíma sínum fjarri 'reyk-
mekkinum í Essen. Honum
gazt betur að ríkra manna ný-
lendum Suður-Frakklands og
Ítalíu, ekki sizt eynni Capri
fyrir utan Napolí. Það var á
Capri, sem hann lenti í þeirri
ógæfu, er sennilega dró hann
til dauða.
Árið 1902 birtu dagblöðin í
Napólí og öðrum ítölskum
borgum fréttir um þann orð-
róm, að Fritz Krupp hefði
stundað kynvillu. Þýzku blöð-
in íluttu orðrómin áfram, með
„Vorwárts", málgagni sósíal-
demókrata í fararbroddi, en
það blað barðist þó einmitt
um þessar mundir fyrir þeim
málstað, að sett yrðu ný og
frjálslyndari lög um kynvillu.
Það var ekki um annað talað
í Þýzkalandi en þessar fréttir.
Fjórurn dógum síðar lézt Fritz.
Á dánarvottorðinu stóð hjarta-
slag, en fram á þennan dag
hefur verið talið sennilegast,
að hann hafi framið sjálfs-
morð.
í erfðaskrá sinni gerði Fritz
dóttur sína, Berthu, að einka-
erfingja fyrirtækisins, og var
hún því eftirsóttasti ráðahagur
í Þýzkalandi.
Vilhjálmur annar keisari var
sjálfur viðstaddur giftingu
Berthu Krupp og Gústafs von
Bohlen og Hallbach í Villa Hú-
gel. Ein af brúðargjöfum keis-
arans var leyfi til handa Gústaf
að bæta nofninu Krupp við
sín eigin nöfn, kannski vegna
þess að það var orðið tákn
fyrir herveldi Þýzkalands.
Gústaf hafði verið ráðgjafi
rússnesku sendisveitarinnar í
Vatikaninu, þegar hann hitti
erfingjann, og sumir ævisögu-
ritarar og blaðamenn þessa
tíma segja, að keisarinn hafi
sjálfur valið hann handa
Berthu. Brúðkaupið fór fram
árið 1906, er unga fólkið hafði
þekkzt í 3 mánuði.
Sama ár var framleiddur í
skipasmíðastöðvum, sem Fritz
hafði komið upp, fyrsti kaf-
báturinn, hin fyrsta af fjölda-
mörgum hernaðarnýjungum,
sem Þjóðverjar komu fram
með í fyrri heimsstyrjöldinni.
Kafbátnum fylgdi fast á éftir
fallbyssan „Stóra Bertha", sem
hjálpaði Þjóðverjum til að eyði
leggja virkin í Liege, er áður
höfðu verið talin óvinnandi,
og útvegaði þannig Gústaf
,járnkrossinn“ og heiðursdokt-
orsnafnbót frá háskólanum í
Bonn.
„Stóra Bertha“, sem talið er
að sé fyrsta fallbyssan, er heit-
ir í höfuðið á lifandi konu, var
24 feta löng ófreskja, sem vó
98 tonn. Úr henni mátti skjóta
900 kg kúlu um 15 kílómetra
langa leið og um 200 manna
áhöfn þurfti á hana. Tvær járn-
brautir þurfti til að flytja
byssuna og varð að hafa eim-
reiðar á báðum brautum.
Síðari útgáfa af „Stóru
Berthu“, stundum nefnd „Stóri
Gústaf", hélt uppi skothríð á
Farís á síðustu mánuðum
stríðsins úr 110 km fjarlægð.
Skothríð þessi breytti litlu um
úrslit stríðsins, en ýfði til hat-
urs á Þjóðverjum og ættar-
veldinu Krupp sem aldrei fyrr.
Auk hinna nýstárlegu byssa,
kafbáta, herskipa og skotheldra
stálplata, steig gróði fyrirtæk-
isins upp úr öllu valdi með
framleiðslu 14 þúsund tonna af
sprengiefm, níu milljón sprengi
kúlna fyrir stórskotaliðið og j
ógrynnum annarra hergagna
og skotfæra.
Fraimh. á bis. 24