Morgunblaðið - 21.07.1967, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 1967
Anna Bjarnadóttir
frá Odda — Minning
Reykjavíkur og ólst frú Anna
Bjarnadóttir upp hjá þeim og
móðurbróður sínum, Guðmundi
klaeðskera.
Frú Anna gekk í Kvennaskól-
ann í Reykjavík og útskrifaðist
þaðan með góðum vitnisburði.
Eftir það var hún við verzlunar-
störf, þar til hún giftist eftirlif-
andi manni sínum, Erlendi
í>órðarsyni, fyrrverandi presti í
Odda.
í Odda hafa löngum verið
höfuðklerkar, góðir kennimenn
og héraðshöfðingjar. Fyrr á ár-
um, þegar auðvelt var að fá
vinnufólk, var jafnan stór-
búskapur í Odda, enda jörðin
talin kostajörð miðað við fyrri
tíma, og prestarnir oft búhöldar
góðir. Næstur á undan Erlendi í
Odda var séra Skúli Skúlason
frá Breiðabólsstað í Fljótshlíð.
Kona hans var frú Sigríður,
systir Jóns biskups Helgasonar.
Séra Skúli og frú Sigríður nutu
virðingar og trausts í héraðinu.
Þegar séra Skúli hætti prests-
skap, sóttu þekktir og ágætir
prestar um Oddaprestakall.
Meðal þeirra var Þorsteinn
Briem, síðar ráðherra, Ásmund-
t Sonur minn, Sigurður Pálsson frá Hjálmsstöðum, lézt að Borgarsjúkráhúsinu 19. júlí. t Faðir minn, Vigfús Steinarsson frá Keldshólum verður jarðsunginn frá Foss- vogskirkju laugardaginn 22. júlí kl. 10.30.
Rósa Eyjólfsdóttir og aðrir vandamenn. Fyrir hönd aðstandenda, Helga Vigfúsdóttir.
t Móðir okkar, Heiðveig Guðmundsdóttir frá Miðdal, andaðist að Borgarspítalan- um miðvikudaginn 19. þ. m. Böra hinnar látnu. t Útför Helga Guðbrandssonar frá Fossá, sem lézt 15. júlí, fer fram frá Reynivallakirkju laugard. 22. júlí kl. 1 e. h. Björgvin Guðbrandsson, Ágúst Guðbrandsson, Hannes Guðbrandsson, Þorvarður Guðbrandsson.
t Eiginmaður minn og faðir, Kristinn Valdimarsson, lézt í Borgarspítalanum 18. júlL Valgerður Guðmundsdóttir, Valdimar Kristinsson. t Hjartans þakkir fyrir auð- sýnda samúð og hluttekningu við andlát og jarð-arför Þorsteins Magnússonar, trésmiðs. Eraa Lára Tómasdóttir, Björgúlfur Þorsteinsson, og systkinin Drangshlíð.
FRÚ Anna Bjarnadóttir frá
Odda andaðist í sjúkrahúsi í
Reykjavík eftir margra mánaða
legu, 15. þ.m. Hún átti við van-
•heilsu að stríða síðustu árin.
Anna var fædd 6. apríl 1899, for-
eldrar hennar voru Bjarni Gísla-
son, formaður í Reykjavík og
kona hans Guðrún Magnúsdótt-
ir Þorsteinssonar oddvita í Hala-
koti á Álftanesi, og konu hans
Önnu Guðmundsdóttur frá
Eyvindartungu í Laugardal.
Magnús Þorsteinsson og Anna
Guðmundsdót* ir fluttust til
t
Eiginmaður minn,
Björgvin Helgason,
Norðurbraut 1, Hafnarfirði,
andaðist á Bargarspítalanum
20. þ. m.
Þorbjörg Eyjólfsdóttir.
t
Dóttir mín og systir okkar,
Ólöf Jónsdóttir
frá Möðruvöllum í Kjós,
verður jarðsungin frá Hall-
grímskirkju laugardaginn 22.
júlí kl. 10.30 f. h.
Blóm eru vinsamlegast af-
beðiin, en þeim sem vildu
minnast hinnar látnu er bent
á Krabbameinsfélagið og
Hallgrímskirkju.
Margrét Jónsdóttir,
Svanlaug Jónsdóttir,
Jónmundur Jónsson,
Þorgeir Jónsson.
t
Innilegar þakkir fyrir auð-
sýnda samúð og vinarhug, við
fráfall og útför, eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföð-
urs og afa,
Vígmundar Pálssonar,
Efra-HvolL
Ingveldur Árnadóttir,
Ingunn Vígmundsdóttir,
Pálmar Vígmundsson,
Aðalsteinn Vígmundsson
Sigurður Auðunsson,
Ragnheiður Jónasdóttir,
og barnaböm.
ur Guðmundsson biskup, Guð-
brandur Björnsson, prófastur í
Víðivík, Tryggvi H. Kvaran,
síðar prestur að Mælifelli í
Skagafirði, og Erlendur Þórðar-
son, sem lauk guðfraeðinámi
fáum vikum áður en söfnuðix í
Oddaprestakalli kusu sér prest.
Það þótti í mikið ráðizt fyrir ný-
bakaðan kandidat að leggja til
keppni við landskunna, reynda
og ágæta kennimenn, eins og
umsækjendurnir voru yfirleitt.
'En úrslitin urðu þau, að séra
Erlendur fékk meira en helming
greiddra atkvæða og vann sigur
með glæsilegum hætti
Séra Erlendur sýndi það i
starfi og allri framkomu, að
hann var vel að sigrinum kom-
inn.
Það var sumarið 1918 sem
þessar eftirminnilegu prests-
kosningar fóru fram, en 6. júlí
það sumar giftist séra Erlendur
frú Önnu Bjarnadóttur og flutti
austur að Odda.
Frú Anna var falleg og glæsi-
leg kona. Hún var alúðleg í við-
móti og vakti traust hjá þeim
sem henni kynntust. Með ungu
prestshjónunum var sem kæmi
t
Móðir okkar,
Sigurlína Á. Gísladóttir
frá Hofsósi,
andaðist í Landakotsspítala
hinn 19. þ. m.
Börnin.
t
Innilegar þakkir fyrir auð-
sýnda samúð við andlát og
útför mannsins míns, föður
og tengdaföður,
Stefáns Guðmundssonar.
Guð blessi ykkuT öll.
Amþrúður Hallsdóttir
böra og tengdaböm.
t
Þökkum af alhug auðsýnda
samúð og vinarhug við andlát
og útför eiginmanns míns,
sonar, föður, stjúpföður,
tengdaföður, bróður og afa,
Guðbjartar S. B.
Kristjánssonar,
Ásgarði 127.
Andrea Helgadóttir,
Jóhanna Guðbrandsdóttir,
Jóhanna Guðbjartsdóttir,
Páll Guðbjartsson,
Bjarki Guðbjartsson,
Jón Örn Guðbjartsson,
Kristján Guðbjartsson,
Þóranna Þórarinsdóttir,
Ingiberg Guðbjartsson,
Jóhanna Þórisdóttir,
Helga Jósepsdóttir,
Guðmundur Jóhannesson,
Jón Kristjánsson,
Ragnheiður Kristjánsdóttir
og barnabörn.
nýr tími og nýtt viðhorf. Með
þeim kom nýr andi og aukið
frjálslyndi, miðað við það sem
áður var ríkjandi. Það bil sem
oft hafði verið á milli embættis-
manna og almennings vixtist nú
verða lítið, vegna látlausrar og
vingjarnlegxar framkomu þess-
ara hjóna, sem litu á safnaðar-
fólk eins og jafningja sína. Vin-
sældir frú Ónnu og séra Erlend-
ar urðu miklar og varanlegar
austur þar. Þau nutu og ekki síð-
■ur virðingar og trausts en fyrir-
rennarar þeirra í Odda höfðu
gert.
Frú Anna var höfðingleg og
virðuleg í framkomu. Hún flutti
roeð sér birtu og hlýju 'hvar sem
hún fór. Hún lagði ávallt gott
til mála, og hafði bætandi áhrif
á umhverfið. Húsmóðurstörfin
fóru henni vel úx hendi. Ung og
lítið reynd, settizt hún í sæti frú
Sigríðar í Odda. Vissulega var
það sæti vandfyllt, en frú Anna
skipaði það með mikilli prýði og
glæsibrag. Frú Anna mat það
mikils, að Björg, systir séra Er-
lendar, var tvö fyrstu árin í
Odda og veitti þá aðstoð sem
óskað var eftir og með þurfti,
með sínum alkunna myndiar-
skap. Séra Erlendur var prestur
Kiuiíer's
Teg: 834
Stærðir: 32—42
Skálar: A—B og C
Litir: Hvítt, svart og
skintone
KANTER’S VÖRUR
í ÚRVALI
Hafnarstræti 19
Sími 1-92-52
í Odda í 28 ár. Allan þann tíma
héldu þau hjónin uppi þeirri
reisn og þeim myndarbrag, sem
þessum fræga sögustað sómdi.
Frú Anna átti mörg áhugamál.
Hún var söngelsk og lék á hljóð-
færi. Hún hafði áhuga fyrir mál-
efnum kirkjunnar, bindindismál
um og öðrum félagsmálum, sem
til heilla horfa.
Þau frú Anna og séra Erlend-
ur eignuðust tvær dætur. Eldri
dóttirin, Anna, er gift Daníel
Ágústínussyni, fulltrúa á Akra-
nesi, og Jakobína, sú yngri, er
gift Árna Jónssyni, bifreiða-
stjóra á Hellu. Barnabörn þeirra
frú Önnu og séra Erlendar eru
fjögur, og barnabarnabörn tvö.
Auk dætranna ólust upp að veru
legu leyti tvö ungmenni í Odda
hjá þeim hjónum, þau eru frú
Sigríður, systir frú Önnu og
Gunnar Pétursson, loftskeyta-
maður. Þessi ungmenni nutu
sömu hlýju og góðsemi hjá frú
Önnu og séra Erlendi, eins og
þau væru þeirra eigin börn.
Hafa þau Sigríður og Gimnar
ávallt metið það hvers þau nu‘u
á uppvaxtarárunum í Odda.
Árið 1946, eftir að dæturnar
voru giftar og fluttar í burtu,
hætti héra Erlendur prestsskap
og flutti til Reykjavíkur.
Hann fékk starf hjá ríkisstofn
un og hefur fram á síðustu ár
unnið þar af sinni alkunnu
skyldurækni og vandvirkni.
Hugur frú Önnu var oft aust-
ur í Odda, eftir að hún hafði
flutt þaðan. Tryggðin við Odda-
stað og Rangárþing var fölskva-
laus og varanleg.
í dag kl. hálf ellefu mun fara
fram minningarathöfn um frú
Önnu í Dómkirkjunni, en hún
verður jarðsungin frá Odda-
kirkju kl. 2 í dag, og jarðsett í
Oddakirkjugarði.
Ekki er að efa að fjöldi manna
mun koma að Odda í dag til þess
að votta hinni látnu sæmdar-
konu virðingu og þökk. Minning
in um frú Önnu Bjarnadóttur
mun lengi geymast. Mörgum
mun koma hún í hug, þegar
glæsilegrar og góðrar konu ar
getið.
I.J.
Bílaskipti-
Bílasala
BÍLL DAGSINS:
Taunus 17 M, árg. 1965.
Verð 185 þús., útb. 60
þús., eftirstöðvar, 5 þús.
á mánuði.
Taunus 12 M, árg. ’64
Corwair, árg. ’62.
Simca, árg. ’63.
Chevrolet, árg. ’58.
Zephyr, árg. ’62, ’63, ’66.
Benz 190, árg. ’64.
Plymouth, árg. ’64.
American, árg. ’64, ’66.
Volvo Amazon, árg. ’62,
’63, ’64.
Plymouth Valiant station,
árg. ’66.
Classic, árg. ’63, ’64, ’65.
Volga, árg. 58.
Zodiac, árg. ’59.
Peugeot, árg. ’65.
Bronco, árg. ’66.
Verð og greiðsluskilmálar
við allra hæfi.
övi Chrysler- 3KULLH.F. Hringbraut 121
umboðið sími 106 00
Mínar innilegustu þakkir til
Orlofsnefndar kvenna og til
allra þeirra sem minntust mín
á fimmtíu ára afmæli mínu
með gjöfum, blómum og
heillaskeytum.
Klara Kristjánsðóttir,
Vestmannaeyjum.