Morgunblaðið - 29.07.1967, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. JÚLf 1967
UÆT T I R LJ fVI DÖMSMAL
Vaneindir á kaup-
samningi am f asteign
ÞANN 31. maí sl. var kveðinn
opp í Hæstarétti dómur í máli,
sem Þórmundur Hjálmtýsson,
Kópavogi, höfðaði gegn Pétri
Kr. Árnasyni og Óskari Þórðar-
syni, báðum í Rvik. Mál þetta
reis út af vanefndum á kaup-
samningi, sem aðilar höfðu gert
um fasteign.
Málavextir eru sem hér grein
ir:
Með kaupsamningi dags. 27.
janúar 1957 seldu hinir stefndu
(þ.e. Pétur og Óskar) stefnanda
(þ.e. Þórmundi) húseignina nr.
44 A við Nýbýlaveg í Kópavogi,
en húseign þessi er nú nr. 7 við
Þverbrekku. Kaupverðið var kr.
170.000.00 og skyldi greiða kr.
50.000.00 út í hönd og svo með
útgáfu tveggja skuldabréfa,
hvoru að fjárhæð kr. 60.000.00,
tryggðum með 2. veðrétti í hinni
seldu húseign. í kaupsamning-
um var tekið fram, að húsið
væri selt „ásamt lóðarréttindum“.
Þá var og tekið fram, að afsal
skyldi kaupandi fá 31. október
1959.
Stefndi flutti í húsið að kaup-
samningi gerðum og hófst handa
um að endurbæta húsið. Þegar
leið fram á árið 1959 fór stefn-
andi að ganga eftir afsali fyrir
húsinu, en ekki voru stefnendur
reiðubúnir að láta afsalið af
hendi og um svipað leyti frétti
stefnandi, að ekki myndi allt
með felldu um lóðarréttindi fyr-
ir húsinu. Hætti hann þá að
vinna við breytingarnar og hugð
ist láta frekari aðgerðir bíða,
þar til hann hefði fengið afsal
með fuHkomnum lóðarréttind-
um.
Þegar afsalið var ókomið í
júní 1960 fór stefnandi í mál við
stefndu og varð niðurstaða þess
máls sú, að hinir stefndu voru
dæmdir til að útvega og láta
stefnanda í té lóðarsamning um
leigulóð hússins nr. 7 við Þver-
brekku í Kópavogi, er gilti í 50
ár frá útgáfudegi.
Dómur í því máli var kveðinn
upp 31. maí 1963. í því máli lá
fyrir bréf frá bæjarstjóranum Geldingarholti, 27. júlí.
I Kópavogi, dags. 7. des. 1960, þar f SUMAR hefur frú Rósmarý
skuldabréfum þeim, sem hann
gaf út, þegar hann kejrpti húsið
og því kröfðust stefndu uppboðs
á húsin-u. Við uppboðið kom
ekkert boð í húsið nema frá hin-
um stefndu, sem fengu það sér
lagt út sem ófullnægðum veð-
höfum fyrir kr. 20.000.
Stefnandi, Þórmundur Hjálm-
arsson, fór nú í mál það, sem
hér var dæmt. Hann gerði þær
kröfur, sem dómur var lagður á
fyrir báðum réttum, að hinir
steíndu, þ.e. Pétur Kr. Árnason
og Óskar Þórðarson, yrðu dæmd
ir til að greiða sér kr. 56.000.00,
sem hann greiddi upp í kaup-
verðið auk vaxta svo og að skila
skuldabréfunum, sem stefndu
tóku upp í kaupverð hússins.
Ennfremur krafðist hann skaða-
bóta vegna tapaðs hagnaðar af
húseigninni, kr. 96.370.00 svo og
bóta að fjárhæð kr. 246,150.00,
sem væri andvirði breytinga og
umbóta, sem hann hefði gert á
húseigninni frá því hann keypti
hana árið 1957 fram á árið 1959,
eæ hann hætti slíkum umbótum.
Þá krafðist stefnandi málskostn-
aðar.
Hinir stefndu kröfðust sýknu
og reistu kröfur sínar m.a. á
því, að er sala hússins fór fram
hefði stefnanda verið um það
kunnugt, að eigi hefði verið sam
ið endanlega um lóðarréttindi
hússins.
Niðurstaða málsins í héraði
varð sú, að hinir stefndu voru
dæmdir til að greiða stefnanda
kr. 209.347.00 ásamt vöxtum og
málskostnaði svo og að skila
þeim tveimur skuldabréfum, sem
Síðasta nám.
skeið reiðskól-
ans að
Geldingaholti
sem sagt var, að húsið „fái að
standa á lóðinni í 10 ár, enda
verði húsið fjarlægt bæjarsjóði
og kostnaðarlausu". Af þessari
yfinlýsingu var það ljóst, að
einu lóðarréttindi, sem stefnandi
gæti hugsanlega fengið, væri
leyfi til að láta húsið standa til
6/9 1970, en þá bæri honum að
jafna það við jörðu á sinn kostn
að og án bóta. Stefndu gátu því
eigi fullnægt ákvæðum dómsins
i hinu fyrra máli.
Þá er þess enn að geta, að
stefnandi stóð ekki í skilum með
greiðslu afborgana og vaxta af
Þorleifsdóttir rekið reiðskóla að
heimili sínu í Vestra-Geldingar-
holti. Er þetta þriðja sumarið
sem hún rekur reiðskóla hér.
Hefur þessi starfsemi gengið
ágætlega, og virðast börnin hafa
mikla ánægju af veru sinni hjá
Rósmarý. í sumar hafa verið 4
námskeið, hálfan mánuð í senn.
Fjórða og síðasta námskeiðið
stendur frá 1.-15. ágúst og er
fyrir telpur, og enn er laust rúm
fyrir þrjár. Upplýsingar eru
gefnar í síma 37470 eða að
Vestra-Geldingarholti í síma um
Ása.
stefnandi hafði gefið út, er hann
keypti húsið.
í forsendum að dómi Hæsta-
réttar segir, að þar sem stefndu
hefðu eigi fullnægt héraðsdóm-
inum frá 31. maí 1963, ætti stefn
andi bótakröfu á hendur
stefndu, sem fullnægja hefði
mátt, sbr. 11. gr. laga nr.
19/1867. Að svo vöxnu máli hafi
það verið ábyrgðarhluti af hendi
hinna stefndu að stofna til upp-
boðssölu á nefndu húsi lóðarrétt
indalitlu, áður en þeir gerðu
stefnanda skil samkvæmt dóm-
inum frá 31. maí 1963. Afleið-
ingin hefði og orðið sú, að
ekkert viðhlítandi boð hefði feng
ist í húsið, Síðan segir orðrétt
í dómsforsendunum: „Þykir sam
kvæmt 113. gr. laga nr. 85/1936
rétt að dæma málið á þessum
grundvelli, þrátt fyrir kröíu-
gerð (sbefnanda), þar sem efnda-
sjónarmið og riftimar eru höfð
uppi samtímis. Samkvæmt þeim
göngnum, sem fyrir liggja, telj-
ast skaðabætur, sem (stefndu)
ber að greiða, hæfilega ákveðn-
ar kr. 280.000.00 ásarnt vöxtum
frá útgáfudegi stefnu í máli
þessu, 30. september 1964. Krafa
(stefnanda) um afhendingu
skuldabréfanna er eigi til greina
tekin, enda var húseignin lögð
(stefndum út sem ófullnægðum
veðhöfum samkvæmt skuldabréf
unum við uppboðið. Fjárnám,
sem (stefnandi) lét framkvæma
hinn 29. júní 1966 í eignarhlut
(stefnda) Óskars Þórðarsonar, 1.
hæð í húsinu nr. 31 við Safa-
mýri, skýtur eigi loku fyrir að
dæma (stefnanda) þá fjárhæð,
er að ofan greinir“.
Þá var og kveðið á um það í
dómnum, að stefnandi ætti að
fá úr hendi hinna stefndu kr.
60.000.00 í málskostnað.
Ný „Manila-
rdðstefna“
Washington, 27. júlí. NTB.
SUÐUR-Vietnam og þau lönd
sem hafa sent herlið til Suður-
Vietnam munu efna til nýrrar
ráðstefnu í október í líkingu við
Manilaráðstefnuna í október í
fyrra. Ráðstefnan verður haldin
í Bangkok eða Seoul, að því er
talsmaður Hvíta hússins skýrði
frá í kvöld.
U Thant, framkvæmdastjóri
SÞ, neitaði því í dag að senda
fuiltrúa til Suður-Vietnam til að
fylgjast með kosningunum sem
þar eiga að fara fram í septem-
ber á þeirri forsendu að til þess
yrði hann að fá heimild samtak-
anna. Talið er, að U Thant hafi
átt við Öryggisráðið.
Jarðhræringar í Venezuela.
Maracaibo 27. júlí — AP —
Tveir snarpir jarðskjálfta-
kippir fundust í Venezuela í
dag og bárust fregnir um þá
frá fjölda bæja 'í fylkjunum
Merida og Trujillo. Engin
slys urðu á mönnum svo vit
að sé og ekki spjöll á mann-
virkjum en fólk skelfdist
margt.
Páll páfi og Aþenagoras, patriarki grísk-kaþólsku kirkjunnar,
takast í hendur við komu hins fyrrnefnda til Istanbuls. Tveggja
daga heimsókn páfa til Tyrklands lauk í fyrrakvöld.
540 talstöðvar í bílum
BÍLUM með talstöðvar fjölgar
jafnt og þétt hér á Iandi, eftir
því sem Bjarni Gíslason, stöðv-
arstjóri loftskeytastöðvarinnar í
Gufunesi, tjáði Morgunblaðinu í
gær. Þeir eru nú orðnir 540 og
fjölgaði þeim um 10 í síðustu
viku einni. Landssíminn fram-
leiðir iangmestan hluta talstöðv
anna, en eftirspurnin er svo mik
il, að alltaf er nokkur hópur á
biðlista.
f loftskeytastöðinni er einn
maður á vakt allan sólarhring-
*inn til þess að annast afgreiðslu
bíltalstöðvanotenda. Langmest
er um að hringt sé til stöðv-
arinnar og hún beðin um að
koma orðsendingum eða skila-
boðum til bíla. Þá er nokkuð
um símtöl, en unnt er að fá
samband milli talstöðvar og
hvaða síma sem er. í þriðja lagi
eru svo venjuleg símskeyti.
Námaslys í S-Afríku.
Jóhannesarborg, 27. júlí AP
A.m.k. þrír námamenn fór-
ust og tíu slösuðust er spreng
ing varð í gullnámu í Carlt-
onville, um 56 km. suðvest-
an Jóhannesarborgar í gær.
Þrjátíu námamenn eru enn
innilokaðir í námunni, en
góðar horfur eru taldar á
því að takizt að bjarga
þeim. í þessari sömu námu
fórust 50 námamenn í slysi
þar varð sl. þriðjudag og
49 særðust.
JAMES BOND
---k —
IAN FLEMING
James Bond
IV IAN FLEMIN6
BRAWING VIJOHN McLUSKY
f IATER... / íf TELEPMOME MESSAGE FROM
..——' \ A UD nni OCIklOFD CID
MR. GOUDFIMGER. SIR.
WOUILD YOtl DINE WITM
HIM ÁT THE GRAWGE,
Þetta var það, sem Bond hafði beðið
eftir. Sigurbrosið hvarf af vörum Gold-
fingers.
— Auðvitað Iékum við eftir settum
reglum. Þú skiptir um kúlu, svo þú tapar
leiknum og öilu saman.
Á leiðinni til hótelsins hugleiddi Bond
málið . . .
— Þetta er í annað sinn, sem hann bíð-
ur lægri hlut. Og í annað sinn, sem ég
hef 10.000 dollara af honum. Þú átt næsta
leik, Goldfinger.
Seinna . . .
— Símaskilaboð frá herra Goldfinger.
Viljið þér snæða miðdegisverð með hon-
um að Grange við Reculver, um hálfsjö-
leytið i kvöld?
— Segið, að ég þiggi boðið með þökk-
um.
Loftskeytastöðin afgreiðir
venjulega 100—400 sambönd
daglega við talstöðvábíla, en
annríkið er jafnan mest síðari
hluta sumars.
Framhaid af bis. 20
komin og gift og 'hefur mikil
samheldni ríkt milli þeirra og
foreldrana þótt þau hafi farið
úr föðurhúsum.
Albert Bjarnason var ákveð-
inn í skoðunum og hreinlyndur.
Hann lét álit sitt á mönnum og
málefnum umbúðalaust í ljós,
hvort sem líkaði betur eða verr.
Hið ytra virtist hann oft hrjúf-
ur í viðmóti, en inni fyrir hjarta.
Hann hafði stórbrotna skapgerð,
en hið innra var hann viðkvæm-
ur í lund og mátti aldrei aumt
sjá enda var hjálpsemi hans og
frú Lísibetar, konu hans, einkum
við þá, sem halloka fóru í lífinu
og bágt áttu, viðbrugðið.
Albert heitinn var tvímæla-
laust einn af þeim, sem með löng
um vinnudegi og mikilli athafna
semi ásamt trú sinni á framtíð-
ina, átti stórvirkan þát í, að
byggja upp fæðingabæ sinn úr
fámennu fiskiþorpi í það, sem
hann nú er.
Með Albert Bjamasyni er geng
inn góður drengur og gegn borg-
ari. Er meðborgurum hans og
vinum mikil eftirsjá að slíkum
manni.
Ég og fjölskylda mín sendum
frú Lísibetu, börnum þeirra
hjóna og tengdabörnum og fjöl-
skyldu þeirra allri innilegustu
samúðarkveðjur við fráfall þessa
góða vinar míns og mæta manns.
Alfreð Gíslason.
Þjóðverjor hætt
komnir
■ ■
í Olpunum
Bolzano, 27. júlí. NTB.
23 ÞÝZKIR fjallgöngumenn urða
fyrir skriðu er þeir reyndu að
klifa fjallstindinn Weisskigel í
Ölpunum nálægt landamærum
Austurríkis og ítalíu i morgun.
Fyrstu fréttir hermdu, að 17
þeirra hefðu sennilega farizt, en
í kvöld var tilkynnt að öllum
hefði verið bjargað. Tveir fjall-
göngumannanna slösuðust alvar-
lega, en tveir aðrir lítilsháttar.