Morgunblaðið - 29.07.1967, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARÐAGUR 29. JÚLÍ 1967
27
23 þús. íslendingar fóru utan '66
Þriðju Ferðamálaráðstefnunni lokið
Schröder fer ekki
til Bandaríkjanna
NÝLOKDE) er nú þriðju ráð-
stefnu Ferðamálaráðs og hefur
fundargerð ráðstefnunnar verið
gefin út. Fyrsta ráðstefna Ferða-
málaráðs var haldin á Fingvöll-
um 1965, önnur ráðstefnan á Ak-
ureyri ári síðar, en sú þriðja, sem
er nýlokið, var haldin í Reykja-
vík. Ferðamálaráð var stofnað
1964 og hefur Lúðvík Hjálmtýs-
son verið formaður þess frá upp
hafi. Þessa síðustu ráðstefnu
sóttu um 90 manns, en til ráð-
stefnunnar voru boðaðir allir
þeir sem hagsmuna eiga að gæta
af ferðalögum og áhuga hafa á
slíku.
í Ferðamálaráð er kosið á
þriggja ára fresti og hefur kosn-
ing í annað sinn nú nýfarið
fram. Tjáði Lúðvík Hjálmtýsson
fréttamönnum í gær, að kosning
hefði verið lítið breytt frá því,
sem áður var og að í ráðinu yrðu
því næstu þrjú árin mikið til
sömu menn og hefðu verið sl.
þrjú ár. Átta aðilar tilnefna
menn í Ferðamálaráð: Eimskipa
félag íslands, fulltr. Sigurlaugur
Þorgilsson; Loftleiðir, fulltrúi
fulltr Ágúst Hafberg; Ferðafélag
íslands, fulltr. Lárus Ottesen;
Flugfélag íslands, fulltr. Birgir
Þorgilsson; Loftleiðir, fulltrúi
Sigurður Magnússon; Ferðaskrif-
stofa ríkisins, fulltr. Þorleifur
Þórðarson; Samband veitinga-
— Segja íyrir
um eldgos
Framhald aif bl)s. 28
mun, en árangurinn er yfirfærð-
ur á filmu, sem hægt er að fram-
kalla á venjulegan hátt. Mynd-
irnar verða ekki í réttum hlut-
föllum, eins og við venjulega
myndatöku — en þó þannig, að
ljóst má greifta landslagið. Hita-
mismunurinn kemur fram sem
mismunandi dökkir litir á film-
unni. Einn bandarísku vísinda-
mannanna, dr. Jules Friedman,
segir að þeir hafi eitt sinn flogið
yfir Surtsey skömmu eftir gos —
og þá hafi hitinn verið svo mik-
ill, að hann fór.yfir það svið, sem
infrarauðu mælingarnar náðu til,
svo að ekki kom fram á mynd-
inni annað en hvítur blettur.
Átta dögum síðar gerðu vís-
indamennimir mælinga.r á Surts-
ey af jörðu. Mælingarnar og
myndatökurnar úr geimnum
annaðist veðurhnötturinn banda
ríski Nimbus II, sem fór yfir
eyna í fyrsta sinn daginn eftir
gosið og síðan sjö sinnum — og
tók myndir í hvert sikipti.
Jón Jónsson gat þess, að vís-
indamennirnir hefðu m. a. flogið
að nóttu til yfir Eyjafjörð, öskju,
Kvertofjöll, Mývatnssvæði og
Þeistareykjasvæðið, sem þá hafði
nýlega breytt sér. Á myndum,
sem þarna voru teknar, komu
hitasvæðin mjög vel fram og
hitamismunurinn — mátti til
dæmis sjá þar hvern einasta læk,
sem rennur í Eyjafjörð.
f fréttinni frá Washington seg
ir, að visindamenn geri sér vonir
um, að þessar þrívíðu athuganir
— og ný og fullkomnari tæki,
sem geta spannað allt rafsegul-
sviðið — muni gera það fært að
segja með fullri vissu fyrir um
eldgos. Það geti komið mörgum
þjóðum að miklu gagni — m.a.
fslendingum, sem lifi í óþægi-
legum skugga eldfjallanna Heklu
og Kötlu, sem séu því hættulegri
en Surtsey sem þa.u eru í land-
inu sjálfu. Þess er og getið, að
áður hatfi svipaðar tilraunir ver-
ið gerðar við Kileauea-eldfjallið
á Hawaii og stöðugt sé fylgzt
með því — en þessar athuganir
á íslandi hafi verið nýr áfangi
í eldfjallarannsóknum.
Jón Jónsson, jarðfræðingur,
gat þess að lokum, að bandarísku
vísindamennirnir hefðu verið
einhverjir samvinnuþýðustu
menn, sem hann hefði átt skipti
við — og þeir væru boðnir og
búnir að láta íslendingum í té
allan árangur rannsókna sinna.
og gistihúsaeigenda, fúlltr. Pétur
Daníelsson; Félag íslenzkra ferða
skriifstofa, fulltr. Geir Zoega. Vara
formaður Ferðamálaráðs er Al-
bert Guðmundsson, ræðismaður.
Eru formaður og varaformaður
skipaðir af samgöngumálaráð-
herra.
Lúðvik Hjálmtýsson tjáði
fréttamönnum, að Ferðamálaráð
héldi fundi vikulega, þar sem
ferðamál væru rædd á breiðum
grundvelli. Gerir ráðið m.a. tillög
ur til ráðstöfunar um lánveit-
ingu úr Ferðamálasjóði. Ferða-
málaráð fékk við stofnun þess
1964, 20 miUj. kr. frá ríkinu til
lánveitinga til 15 ára auk 1 mlllj.
á ári og óendurtoræft. Nýlega var
samþykkt með lögum að hækka
þessa uppihæð um helming,
þannig að í framtíðinni verður
lántökuheimild til handa sjóðn-
um 40 millj. Hefur Ferðamálaráð
mælt með láni til 28 aðila frá
upphafi. Úr sjóðnum hafa verið
lánaðar 22 millj. kr., þar af 3,3
í Reykjavík, en 18,7 út á land.
Hefur þetta lán farið í fram-
kvæmdir við hótelrekstur, m.a.
til byggingar á hinu nýja og
— Vopnaviðskipti
Framhald af bls. 1
stöðu“ gegn leiðsögu Mao Tze-
tungs. Menn líta svo á, að sjálfs-
gagnrýni Liu Shao-chis, forseta,
á dögunum, — sem yfirvöldin í
Peking segja „svikna“ — hafi
verfð merki til stuðningsmanna
hanns um að láta til skarar
skríða á ný í Wuhan.
1 vikunni 9.—15. júlí fóru
tveir helztu leiðtogar menning-
arbyltingarinnar til borgarinnar
Wuhan, sem er við Jangtse, til
þess að segja stuðningsmönnum
Maos þar og miðstjóm menning-
arbyltingarinnar fyrir verkum.
Menn þessir voru Hsiet Fuchin,
aðstoðarforsætisráðherra, sem
jafnframt fjallar um opinber ör-
yggismál innanlands og Wang
Li, leiðtogí byltingarráðsins í
Peking og varaformaður menn-
ingarbyltingarnefndar hersins.
Blaðíð Wehn Hui Pao í Shanghai
segir um þetta: „Fáeinir flokks-
menn, sem gengið hafa inn á
braut kapítalismans, gerðust svo
vitfirrtir að voga að hvetja
íhaldssöm samtök til þess að yf-
irheyra með óiöglegum hætti,
slá, slást gegn og móðga félagana
Hsiet Fuchin og Wang Li. Þetta
var hið alvarlegasta pólitíska
misferli."
Fréttaritarar í Peking telja, að
blaðið eigi þarna við aðgerðir
yfirmanns hersins á Wuhan-
svæðinu, Chen Tzaods og hins
pólitíska samstarfsmanns hans,
Wang Jenchung — þess hins
sama, er synti ásamt Mao yfir
Jangtsefljót í júlí í fyrra, svo
sem frægt varð.
Menn eru yfirleitt þeirrar
skoðunar, að átökin í Wuhan
hafi náð svo langt, að herdeild-
ir frá báðum hinna stríðandi
aðila eigist þar við.
Stuðningsmenn Maos hafa lýst
því yfir, að þeir vilji gjarna
fara að fyrirmælum Maos um að
berjast „með skynsemi og for-
tölum en ekki nauðung og vald-
beitingu" — „en“, segja bylt-
ingarmenn í Shanghai — „við
munum ekki taka okkur penna
í hönd, þegar misindismenn
grípa til vopna, til þess að kúga
byltingaralþýðuna. Við munum
líka taka okkur vopn í hönd og
berjast unz þeir leggja niður
vopnin“.
Hugsanlegt er, að Lin Piao
hafi ætlað sem aðvörun ræðu,
er hann hélt fyrir nokkrum dög-
um — en þar sagði hann m. a.,
að riflunum, fallbyssunum, her-
skipunum og flugvélunum, sem
„við höfum fengið hjá okkar
mikla leiðtoga Mao“ yrði beitt til
þess að berja niður alla óvini,
bæði heima og erlendis „— svo
að við megum þar með tryggja
hið volduga alþýðueinveldi
vort“, eins og þar sagði.
glæsilega htóteli í Höfn í Horna-
firði, til stæktounarinnar á hótel-
inu í Reynihlíð við Mývatn og
Varðborg á Akureyri. Tjáði Lúð
vík fréttamönnum, að þess mætti
vænta, að hótelbyggingar færu
að rísa víðar um landið, m.a.
væri búið að gera teikningu á
hóteli á Húsavík og Seyðisfirði.
Hafa ráðinu borizt umsóknir um
lánveitingu frá 80 aðilum og ef
fullnægja ætti þeirri eftirspurn
þyrfti lánveitingin að nema 100
þús.
Ferðamálaráð hefur ferðazt
um landið og kynnt sér hótel-
rektsur. Sl. tvö ár fór það um
Norður- og Austurland, en í sum
ar mun það fara um Vestur-
land.
í fundargerð Ferðamálaráð-
stefnunnar segir að á sl. ári hafi
nær 44 þúsund ferðamenn kom-
ið til landsins, en rúmlega 23
þús. íslendingar farið utan. Ættu
þessar tölur að lofa góðu hvað
hagstæðan gjaldeyrisjöfnuð snert
ir. En því er nú á annan veg
farið. Samkvæmt skýrslum
gjaldeyriseftirlits bantoanna eru
tekjur af heimsóknum erlendra
ferðamanna skráðar 94.5 milljón
ir en veittur gjaldeyrir fslend-
ingum til utanferða 320 milljón-
ir. Á árunum 1950—65 jókst
ferðamannastraumurinn til fs-
lands um 558,9%. Á árinu 1965
—6 varð aukningin 20,28%.
Steinkista frá
brons- og
Járnöld
Kristianstad, 28. júlí. NTB.
Steinkista frá brons- eða járn-
öld hefur fundizt við fornleifa-
rannsóknir í Gudahagen í Næ-
sum, um 5 km norðaustur af
Kristianstad. f kistunni lá beina-
grind af óvenju stórvöxnum
karlmanni. Kistan er mjög sterk-
leg, kölkuð að innan. í Guda-
hagen hafa fundizt ýmsir aðrir
merkir munir.
RISIN er deila milli Félags raf-
virkjameistara og Framkvæmda-
nefndar byggingaráætlunar út af
meðferð á tilboðum í raflagnir í
íbúðir í Breiðholtshverfi og hafa
rafvirkjameistarar í bréfi til
nefndarinnar krafist skýringa á
þeim ummælum Jóns Þorsteins-
sonar, formanns Framkvæmda-
nefndar byggingaráætlunar, í
einu dagblaðanna, að öll tilboð
í raflögn íbúða í Breiðholtshverfi
hafi verið of há.
Telur félagið að í ummælum
formanns nefndarinnar felist al-
varleg ákæra á hendur þeim
rafverktökum, er tilboð gerðu í
fyrrgreindar raflagnir, og nauð-
syn að fá öruggar sannanir, ef
um ósæmileg auðgunaráform
hefur verið að ræða. Segir enn-
fremur í bréfinu, að ef nefndin
hafi etoki undir höndum gögn, er
sanni þetta óumdeilanlega, sé
krafist, að hún skýri frá því
opinberlega í blöðum og útvarpi,
en að öðrum kosti verði óskað
eftir opinberri rannsókn á máls-
meðferð allri, svo að hægt verði
að fá úr því skorið hvort full-
yrðingar nefndarinnar fái stað-
izt.
Morgunblaðið hefir leitað uah-
sagnar formanns Framikvæmda-
nefndar byggingaráætlunar og
formanns Félags löggiltra raf-
virkjameistara. Fara ummæli
þeirra hér á etfir:
Árni Brynjólfsison, formaður
F.L.R.R. sagði: — Þegax sjö verk
takar hafa lagt í mikinn fcostn-
að við samningu og útreikninga
tilboðanna, sem ég álít að hafi
verið gerðir af samvizkusemi og
vandvirkni, finnst okkur varla
fært á því, að Framkvæmdainefnd
Bonn, 28. júlí — AP
GERHARD Schröder, landvarna
ráðherra V-Þýzkalands, hefur
hætt við fyrirhugaða för sina
til Bandaríkjanna, að því er til-
kynnt var í Bonn í dag.
Ætlunin var, að Schröder færi
til Bath í Maine 11. ágúst til
þess að vera þar við, er hleypt
væri af stokkunum skipi, sem
þar er verið að byggja fyrir
vestur-þýzka flotann og búið
verður flugskeytum. Karl Car-
stens ,þriðji hæst setti maður
landvarnaráðuneytisins, fer í
stað Schröders.
Búizt hafði verið við, að
Merkur
beinafund-
ur Svia
Trelleborg, 28. júlí. NTB.
Menn, sem vinna að vegalagn-
ingu skammt frá Trelleborg, hafa
komið niður á f jórar beinagrind-
ur manna, sem væntanlega hafa
komið frá Jerúsalem, að því er
fornleifafræðingar sænskir segja.
Telja þeir þennan fund styðja
þá tilgátu, að á suðurströnd Sví-
þjóðar hafi verið tiltölulega stór
byggð tveimur öldum áður en
tímatal byggðar hefst í Svíþjóð.
Beinagrindurnar eru sennilega af
karlmönnum. Þær lágu þétt sam-
an og hafa varðveizt vel.
Snjor a
Jökuldals-
heiði
ÖKUMAÐUR, sem fór í gær frá
Egilsstöðuim til Húsavítour, skýrði
Mbl. svo frá í gærtovöldi, að
vegurinn á leiðinni hefði verið
mjög blautur, en þó sæmilega
fær. Talsverður snjóskafl hefði
myndazt á JötouldáLs'heiði á háls
inum austan við Sænautarvatn.
in afgreiði öll tilboðin þannig,
að öll séu þau of há, án þess að
fyrir liggi noktorir útreikningar
að svo sé. Þess vegna er þetta
bréf til nefndarinnar tiltoomið.
Jón Þorsteinsson, formaður
Framkvæmdanefndar byggingar
áætlunar, sagði að bréfi félags
rafvirkjameistara hefði verið
svarað í gær. Væri þar í fyrsta
lagi mótmælt, að nofctour ákæra
uim ósæmilega auðgunarstaxf-
semi fælist í því að hafna öl'l-
um tilboðunum. Það væri ákaf-
lega eðHlegt og heilbrigt, að til-
boð væru mismunandi há, því að
verktakar hefðu að sjálfsögðu
mismunandi getu og aðstöðu til
að vinna slík verk. Þarna hefði
verið um sjö mismunandi verð
að ræða, en nefndin leyfði sér að
hafa áttuindu sitooðunina. Því
hefði ölluim tilboðunum verið
hafnað, og væri slíkt ekki eins-
dæmi. Jón sagði, að á hinn bóg-
inn hefði nefndin talið eðlileg-
ast, þegar etoki þótti fært að taka
neinu tilboðanna að leita samn-
inga við lægstbjóðanda, og væru
þeir vel á veg komnir.
Jón sagði ennfremur, að í svar
bréfinu hefði nefndin boðað
stjórn félags rafvirkjameistara
til fundar við sig í næstu vitou
til að skýra málið. Ef deila þessi
leysist ekki með þeirn hætti kvað
Jón nefndina reiðubúna til að
láta opinbera rannsókn fara
fram og taka þátt í kostnaði sem
af henni hlytisit.
Að endingu sagði Jón, að fróð-
legt væri að heyra álit stjórnar
F.L.R.R. á tilboðúnum — hvort
hún teldi þau öll eiga rétt á
sér, eða hvort aðeins hluiti
þeirra væri of hár.
Schröder færi einnig til Washing
ton til þes að ræða við ráða-
menn þar. Nú segir landvarna-
ráðuneytið í Bonn, að han ætli
að nota næstu vikur til þess að
ræða við Kurt Kiesinger, kanzl-
ara, um fjárveitingar til land-
varna á næstu fjórum árum.
Kiesinger fer síðan til Washing-
ton 15. ágúst og ræðir við John-
son, forseta Bandaríkjanna og
fleiri ráðamenn.
— Kynþáttaóeirðir
Framhald af bls. 1
um nú en sjö til viðbótar í ó-
eirðum í öðrum borgum
Bandaríkjanna á sama tíma.
Johnson forseti hefur boð-
að sérstakan bænadag á
sunnudag og verður beðið í
kirkjum Bandaríkjanna fyrir
„reglu og sáttfýsi“ með mönn
um. Forsetixm mun halda
fund á morgun, laugardag,
með nefnd þeirri er skipuð
hefur verið til að kanna or-
sakir og úrbót óeirða sem
þeirra er geisað hafa í Banda
ríkjunum undanfama viku.
Enda þótt nú hilH undir lbto
kynþáttaóeirðanna, að því er
menn vona og þeim virðist sem
næst lokið í Detroit, berast enn
fregnir um uppþot víða aðv m.a.
frá höfuðborg New York-ríkia,
Albany, frá Philadelpthia, þar
sem borgarstjórinn, James Tate,
hefur lýst yfir neyðaráistanidi, og
frá höfuðborg KaliÆorníuríkis,
Sacramento. f Ohicago gera yfir-
völd nú ráðstafanir tH þess að
bæla niður allar óeirðir þegair í
byrjun og Richard Daley, bongar
stjóri, hefur kunngert að tafar-
laust verði gripið tH sfcotvopna,
ef lög og réttur séu í veði. í Al-
bany fóru ungir blöktoumenn um
götur og rændu verzlanir áður
en vopnað lögreglulið kom þar
að og í Sacramento var kveitot i
á yfir 20 stöðum aðfaranóitt föstu
dags. Þá berast einnig fregnir
um ókyrrð frá Springfield í
Ohio og Waterbury í Connecti-
cut. í Detroit var borgarstjórinn,
Jerome Cavanagh, á ferð í bif-
reið sinni og kom þá allt í einu
þar sem dundi á bifreiðinni skot-
hríð úr báðum áttum og voru
leyniskyttur öðru megin bifreið-
arinnar en lögreglulið hinum
megin. Borgarstjórann sakaði
ekki.
George Romney, ríkisstjóri i
Michigan, sagði í dag að enn
væri of snemmt að segja að lokið
værd að fullu óeirðun.um í Det-
roit en kvað ástæðu til að ætla
að lögreglumenn og aðstoðarlið
þeirra hefðu þar nú öll tögl og
hagldir. Romney sagði tjón á
mannvirkjum I borginni metið á
5Q0 milljóndr dollara.
Fréttir frá Washington herma
að mikH ókyrrð ríki þar með
blökkumönnum, sem eru 60%
borgarbúa, og segja kunnugir að
ekki þurfi þar mikinn neista til
að úr verði mikið bál. Yfirvöld í
borginni og leiðtogar hófsamari
rnanna innan réttindabaráttu-
hreyfingar blökkumanna leggja
nú mikla áherzlu á að höfuðborg
Bandaríkjanna verði forðað frá
þeim örlögum að verða næsti
vettvangur kynþáttaóeirðanna,
sem farið hafa eins og eldur í
sinu um gjörvöll Bandaríkin síð-
ustu vikurnar.
George Wallace, fyrrverandi
ríkisstjóri í Alabama og maður
kunnur fyrir aðstoilnaðarstefnu
sína í kynþáttamálum, átti að
flytja ræðu í Washington í dag,
en hætti við það er ljóst þótti að
koma haris til Washington myndi
ef til viU auka spennu þá sem
nú ríkir í borginni. Wallace er
enn talinn ríkisstjóri í Alabama
í raun og veru, þótt svo eigi að
heila að það sé eiginkona hans,
Lurleen, sem tH þess var kjörin
við síðustu ríkisstjórakosningar,
er maður hennar mátti ekki
bjóða sig fram á ný.
DEILT UM TILBOÐ