Morgunblaðið - 01.08.1967, Side 2

Morgunblaðið - 01.08.1967, Side 2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 1967 Vopnakdngurinn Krupp lótinn Essen, V-Þýzkalandi, 31. júlí, AP-NTB ÞÝZKI iðnjöfurinn Alfried Krupp, barón, lézt að heimili sínu í Essen, aðfaranótt mánu- dags, 59 ára gamail. Krupp var fimmti stjórnandi Krupp-ættar- veldisins svokallaða, en það er risavaxin iðnaðarsamsteypa, sem m.a. sá Þjóðverjum fyrir vopn- um og hergögnum í báðum heims styrjöldunum. Krupp var einn af auðugustu mönnum heims. Hann var dæmdur í 12 ára fangelsi eftir heimsstyrjöldina síðari fyr ir stríðsglæpi, en var leystur úr haldi eftir þrjú ár. Honum voru fengnar aftur eignir sínar og byggði hann upp stærstu iðnað- arsamsteypu V-Þýzkalands, sem framleiðir allt frá vöruflutninga bílum niður í gervitennur — alit nema hergögn. Krupp fæddist 13. ágúst 1907 í Essen. Hann var tvígiftur og tví- skilinn og á einn son. Hann starf aði fyrst í stað í verksmiðju föð- ur síns. Síðar nam hann verk- fræði við Tækniháskólann í Aachen. Er Hitler komst til valda, og eftirspurnin eftir vopn um og hergöngnum jókst mjög, margfölduðust tekjur Krupp- fjölskyldunnar. Eftir að Krupp losnaði úr fangelsi hóf hann rekstur fyrirtækis síns að nýju, og á tæpum tveimur áratugum var það orðið stærsta iðnaðar- fyrirtæki heims, í eigu einnar ættar. Sala fyrirtækisins nam 55 milljörðum ísl. króna árið 1965 og hjá því störfuðu 110.000 manns. Á síðari árum hefur Alfried Krupp nokkuð hallað undan fæti sökum lánsfjárskorts og er Alfried Krupp lézt var í bígerð, að gera fyrirtækið að almenningshluta- félagi. Pólýfónkórinn fær frábæra dóma Namur, Belgíu. (Frá Frey- steini Jóhannssyni). SÖNGMÓTIÐ „Evrópa syngur“, hið þriðja í röðinni, hófst í borg- inni Namur í Belgíu sl. laugar- dag. Forseti „Sambands ungra kóra í Evrópu“, setti mótið með ávarpi, en síðan hófst það með því að Pólýfónkórinn flutti stutt- an konsert. Kórinn hefur fengið mjög góða dóma í hérlendum blöðum, m.a. birti eitt þeirra stóra forsíðumynd af honum og inni í biaðinu er heilsíðu frásögn og umsögn um söng hans. Þar segir m.a. að söngur kórsins hafi verið mjög fágaður og góður og veki mikla athygli fyrir góðar raddir og mikil og rík blæbrigði. „Stehmand“, einn þekktasti tónlistargagnrýnandi Belgíu, skrifar í stórblaðið ,,Lesoir“: „Pólýfónkórinn frá Reyk j avik undir stjórn Ingólfs Guðbrands- sonar vakti mikla atíhygli fyrir góðan söng, fullkamnun og fáguð blæbrigði. Hér eir sýnislhorn bæði af fjölrödduðum söng frá mið- öldum og nútimanum seim vissu- loga er mjög erfiður í flutningi“. Stebmand loggur mikla á- herzlu á það, hvað kórnum hafi tekizt vel að útfæra þau vork, sem hann sönig. íslenzkum þjóð- lögum, sem kórinn hefur flutt, hefur vorið tekið mjöig vel, og vakið mikla hrifningu. Ég hef hitt margt söngfólk á götuim úti, 43 millj. jafnað niður í Keflavík Keflavik, 28. júli — LOKIÐ er álagningu útsvara í Keflavík og var skráin lögð fram 27. júlí. Skráin liggur frammi á bæjar- skrifstofunum og verzluninui Járn og skip. Lagt var á 1541 einstakling og námu tekju- og eignaútsvör þeirra samtals kr. 36.377.227,00 og aðstöðugjöld á 232 einstakl- inga samtals kr. 1.830.400,00. Utsvör voru lögð á 52 félóg samtals 1.674.345,00. Aðstöðu- gjald var lagt á 75 félög samtals kr. 3.433.300,00. Lagt var á eftir lögboðnum út- Kalkútta, 30. júlí, AP. TRYLLTUR múgur kveikti í verzlunum og vöruhúsum s 1. sunnuidag í borginni. Siliguri 402 km. norður af Kalkútta. T/eir menn voru stungnir til bana i óeirðunum. Útgöngubanni h/fur verið komið á í Siliguri svarsstiga og síðan voru öll út- svör lækkuð um 10%. Hæstti útsvör fyrirtækja: Sónax s.f. 160.000,00 Bræðslufélag Keflav. 134.600,00 Keflavík h.f. 91.400,00 Félagshúis h,f. 89.900,00 Hæstu aðstöðugjöld fyrir- tækja: Kaupfélag Suðurn. 541.400,00 Keflavík h.f. 273.Q00,00 Jökull h.f. 200.000,00 Hraðfrystilhúis K.v. 192.900,00 Hæstu útsvör einstaklinga: Sævar Brynjóisson, skipstjóri 231.600,00 Örn Erlingsson, skipstjóri 219.300,00 Jón K. Jóhannsson, sjúkrahúsJæknir 169.400,90 Halldór Brynjólfsson, skipstjóri 168.500.00 Valdimar Jónsson, sikipstjóri 165.600,00 LÆGÐIN milli íslands og Bretlandseyja var nærri kyrr stæð í gær og var tekin að grynnast. Regnsvæðið, sem hringaði sig að nokkru leyti umhverfis hana, var skammt undan SA-landi, en þar var þó sólskin og góðviðri. Á annesjum á NA-landi var þó þokusúld og kuldi, 3—4° á Raufarhöfn, en kl. 15 var kominn 18° hiti á Hellu. sem hefur látið í ljósi hrifningu sína. Það eru 19 lönd, sem taka þátt í þessu móti, alls um 3000 manns. Hér enu kórar frá allri Evrópu og líka Bandaríkjunum og Kanada, og segja má að þessa dagana sé Namur syngjandi bortg. Veðrið er dásamlegt og það er gaman að fara hér um götumar. Margt fólkið getur ekki talað saman, en sönginn á það sam- eiginlegan og það er allsstaðar syngjandi, á götum, kaffilhúsum, hva.r sem maður fer. Núna á föstudaginn heldur Pólýfónkór- inn sjáifstæða tónleika, og á sunnudaginn flytur hann lofca- verk mótsins ásamt nokknum öðr um kórum. Öllum íslendingunum líður vel og biðja að heilsa heim. Gífurlegt tjón um borð í Forrestal Talið að 190 manns hafi íarizt af flugmóðurskipinu í Tonkinflóa Subic Bay, 31. júlí, NTB-AP. BANDABÍSKA flugmóður- skipið Forrestal kom í dag til Subic Bay á Filippseyjum, en geysilegur eldsvoði varð um borð í skipinu á laugardags- morgun, þar sem það var á Tonkin-flóa, tilbúið til árása á N-Víetnam. Á þilfari skips- ins voru 53 líkkistur sveipað- ar fánum, er það kom til Fil- ippseyja, en annað skip hafði flutt 76 lík til Danang í S- Víetnam. Óttast er að alls hafi 190 manns farizt af 4.300 manna áhöfn skipsins. Eldar loguðu enn í skipinu og unn- ið var kappsamlega að björg- unarstörfum, er skipið hélt inn til Subic Bay. Forrestal er 76.000 lestir að stærð, þriðja sfærsta flugmóður- skip Bandaríkjiainna. Elduninn fcom upp, eir eldsnieytisgeymir datt úr Skyhawk-þotu, sem var að hefja sig á loft til árása. Á sfcipinu voru 85 fliugvélar. Af þeim eyðilögðust 25 þotur, en 31 sfcemmdist meira eða minna. — Tjónið er metið á 2.7 milljarða ísl. kr. Áhöfnin hóf þegar slökkvi- og björgunarstörf,, er eldurinn fcom upp, oig lagði sig í lífslhættu við að reyna að bjarga særðum fé- lögum siínum. Skammt var liðið á slökfcvistarfið, er 750 og 1000 punda sprengjur um borð í skip- inu byrjiuðiu að springa vegna hitans. Talið er að 112 af áhöfninni hafi stofckið fyrir borð til að bjarga lífi sínu ag limum, en flestir þeirra munu hafa drukknað. Skipherra Forrestal, Jahn K. Beling, tjáði fréttamönnum í dag, að hætta hefði verið'á, að skipið syfcki, en hann áleit, að ekki myndi líða langur tími þar til það yrði geirt sjóhæft á ný. Skemmdir urðu hvorki í vélar- rúmi skipsins né á siglingaútíbún aði þess í eldsvoðanum. Þetta er mesta tjón, sem banda ríkis sjóiherinn hefur beðið á friðartímum síðan orrustuskipið Maine spra,fck í loft upp í Hav- ana á Kúfbu, árið 1898. Þá fór- ust 229 manns. Morræna æskulýðsmótið verður sett á morgun EINS og skýrt hefur verið frá hér í blaðinu hefst norrænt æskulýðsár í dag, er lýkur næsta sumar. Fyrsti viðburður æskulýðsársins er norrænt æsfcu Biffreiðin var í fullkomnu lagi — Umsögn bifreiðarstjórans röng ÞAÐ er nú komið í ljós, að áætl- unarbifreið sú, sem ók út af í Hafnarfirði sl. laugardag og olli nokkrum skemmdum, reyndist vera í fullkomnu lagi og um- sögn bifreiðastjórans, sem ók henni og taldi að stýri og heml- ar hefðu biiað, fær ekki staðizt. Morgunblaðið hafði samband við Gest Ólafsson, forstöðumann Bifreiðaeftirlits ríkisins, og tjáði hann blaðinu, að ítarleg skoðun hefði farið fram á bifreið inni eftir að óhappið varð, og hefði komið í ljós, að allur ör- yggisbúnaður bifreiðarinnar hefði verið í fullkomnu lagi, einnig eftir óhappið. Er eitt dagbiaðanna skýrði frá fréttinni um ' þetta slys, sagði það, að vagnakostur Landleiða h.f. væri lélegur og miklar kvart anir hefðu borizt út af rekstri fyrirtækisins á Hafnarfjarðar- leiðinni. í tilefni af þessu snéri Morg- unblaðið sér til Vilhjálms Heið- dal, forstöðumanns umferðadeild ar póststjórnarinnar, og spurði hann um þetta mál. Sagði hann að aðeins einu sinni hefði borizt skrifleg kvörtun um rekstur Landleiða, hefði það verið í vetur. Hins vegar hefðu af og til borizt munnlegar kvartanir og þá fyrst og fremst um það að vagnar væru ekki á réttum tíma. Sagði Vilhjálmur, að póst- stjórnin hefði alloft látið rann- saka þetta mál, og stundum jafn vel fylgst með bílunum 2 daga í röð og aldrei hefðu komið fram nein misferli, þegar slík skoðun hefði verið gerð, þótt fylgst hefði verið með öllum ferðum þessa daga. Morgunblaðið hafði einnig samband við Ágúst Hafberg, for stjóra Landleiða, og spurði hann um kvörtun þá, sem Vilhjálmur Heiðdal gat um að borizt hefði sl. vetur og orðróm, sem stund- um að undanförnu hefði skotið upp kollinum um að misfellur væru í rekstri vagnanna. Sagði Ágúst, að í vetur, er sérlefið rann út og nýtt leyfi skyldi veita til 5 ára, hefðu undirskriftalist- ar verið bornir í hús í Hafnar- firði og safnað 83 undirskriftum sem sendar hefðu verið póst- stjórninni, þar sem kvartað var yfir starfsemi Landleiða, en um sama leyti hefðu nýir menn sótt um sérleyfi á þessari leið og blandaðist víst engum hugur um að samband væri á milli þessa tvenns. Eimir enn nokkuð eftir af þessum aðgerðum, þótt lítið hafi verið um kvartanir að und- anförnu. Hélzt er kvartað um það, að vagnarnir haldi ekki vel áætlunartíma, og sagði Ágúst, að því miður kæmi það fyrir, að vagnar tefðust vegna umferðar eða slæmrar færðar að vetrarlagi, en við það gæti enginn ráðið. — Auðvitað reynum við að halda vögnum okkar eins vel við og nokkur kostur er, sagði Ágúst Hafberg, og þá auðvitað fyrst og fremst öllum öryggis- útbúnaði. Hins vegar vildi ég gjarnan, að aðbúnaður við far- þega væri betri, en unnt er í elztu bílunum. En það gæti hvorki verið í hag fyrirtækis ins né þjóðhagslega eðlilegt að endurnýja nú vagnakost vegna hægri handar aksturs, en þá koma nýir bílar, og vona ég að farþegar okkar skilja, að ekki sé unnt að kaupa nýja bíla fyrr en breytingin yfir í hægri handar akstur verður gerð. lýðemót, sem haldið er hér á landi nú í byrjun þessa mánað- ar. — Fyrstu erlendu fulltrúarnir komu í gær, an það voru fulltrú- ar frá Færeyjum. Hinir varu væntanlegir í dag, en mótið stendur frá deginum í dag og til 8. ágúst. Á morgun verður farið í kynnisferð um Reykjavík og snæddur hádegisverður í boði borgarstjórnar. Klukkan tvö eft- ir hádegi fer fram mótssetnimg í Háskólabíói. Þar setur Jón E. Ragnarsson æskulýðsmótið á ís- landi, en ávörp flytja, Sigurður Bjarnason, alþm. frá Vigur, dr. Bjarni Benediktsson, forsætisráð herra, og fulltrúar frá hinum Norðurlöndunum. Rógur um íslund í Politiken Höfundur er Ólafur Cunnarsson í POLITIKEN sl. laugardag er þriggja dálka „frétt“ um yfir- vofandi kreppuástand á íslandi. Frétt þessi er höfð etftir Ólafi Gunniarssyni og segir þar, að erf- iðir tímar fari nú í hönd á ís- landi, fjánhagsvandræðd endur- speglist í sífjölgandi nauðungar- uppboðsauglýsingum húsa og bíla. Þá segir ennfremur, að erfið- leikarnir séu áberandi á vinnu- markaðnum, æ fleini séu at- vinnulausir og erfitt sé að út- vega kennara. — íbúðabygg- ingum fækki og margix verði að afisala sér lóðum, sem þeim hafi verið útihlutað, vegna þess, að þeir hafi ekki efni á að byggja, Minnkandi umsvif í atihafnallf- inu hafi ömurlegar afleiðingar. Nauðungarlækkun launa sé al- menn. Þannig hafi íslenzkir verkfræðingar í mörgum tilvik- um lækkað í laumuín frá kr. 40.000 í kr. 20.000 á mánuði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.