Morgunblaðið - 10.08.1967, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 10.08.1967, Blaðsíða 5
MÖRGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 1967 5 Winnipeg. í KANADA og þá einkum í Manitoba-fylki heyrir maður oft haft á orði að menn af íslenzkum settum séu góðir borgarar og framámenn á miörgum sviðum. Er ,þá oftast neifndur meðal þeirra fyrstu dr. P. H. T. Thorlakson, sem er frægur skurðlæknir, vís- indamaður og framkvæmda- maður um heilbrigðismál og rekur mjög vel metna vís- inda- og heilbrigðisstofnun í Winnipeg. Það var þó annað svið, sem ég hafði í huga, þar sem Kanadamenn af ís- lenzku bergi brotnir standa mjög framarlega og það er á stjórnmálasviðinu. Tveir sena torar eru í efri deild Kanada þings í Ottawa, þeir Gunnar Solmundur Þorvaldson og William E. Benidickson, einn af 14 þingmönnum Manitoba fylkis í neðri deild sambands þingsins er Eric Stefánson, og á þingi Manitobafylkis í Winnipeg sitja nú 5 þing- menn af íslenzkum ættum, þar af er einn menntamála- ráðherra. Þrír eru frá stjórn- arflokknum, „Progressive Conservative" (Framsóknar- íhaldsmönnum), George John son, menntamiálaraðherra, Oscar Björnson og Henry Einarsson, og í stjórnarand- stöðu, sr. Philip Péturson fyr- Þingmenn í Kanada af íslenzkum ættum með forseta íslands: George Johnson, menntamálaráð herra, G. S. Þorvaldsson, Eric Stcfanson, Ásgeir Ásgeirsson, forseti, sr. Philip Pétursson og Elmar Guttormsson. Á myndina vantar af vestur-íslenzkum þingmönnum, Oscar Björnsson, Henry Einarson og WiUiam Benidickson. 5 V-íslenzkir þingmenn í Manitoba Og 1 þingmaður og 2 senatorar á Ottawaþingi ir Nýja-demókrata og Elmian Guttormsson fyrir Liberala- flokkinn. Hafa aldrei verið svo margir þingmenn af ísl. ættum í einu á Manitoba- þingi. Þessa þingmenn hittd for- seti íslands, Ásgeir Ásgeirs- son, er hann var í heimsókn í Winnipeg. Senatorarnir komu á íslendingadaginn á Gimli, Eric Stefánsson var þar í forsæti, sr. Philip Pét- ursson er forseti Þjóðræknis- félagsins og menntamálaráð- herrann, George Johnson, var með forsetanum alla dagana, sem hann var þar, og kom fram fyrir hönd forsætisráð- herra við opinberar athafn- ir. Skildu menn vel, þegar sagt var að stjórnin hefði vel gert er hún lét sinn vinsæl- asta ráðherra fylgja forsetan- um. Og hann, sem orð hefur fyrir að vera mjöig starfsam- ur, lét öll önnur stönf víkja þessa daga. Að síðustu hittu allir þingmennirnir, sem við gátu komið, forsetann í morg unkaffi og náði fréttamaður Mbl. þá mynd af þeim og gat aðeins spjallað við þá. Er rétt að kynna þá oftur lítið lesendum Mbl. George Johnson er læknir að menntun, var m.a. lækn- ir á Gimli áður fyrr. Hann er ungur maður, og talar ís- lenzku ágætlega. Foreldrar hans voru Laufey og Jonas Johnson, en hann var fram- kvæmdastjóri hjá stór'fyrir- tækinu Etons. Afar og ömm- ur ráðherrans voru öll ís- lenzk, afar hans frá Hólum í Hjaltadal, synir Jóns Bene- diktssonar, sem kom með þá til Vesturheims árið 1861. Kona hans er Doris, dóttir Ágústar Blöndals, sem var kunnur læknir á Lundi og í Winnipeg, og lifir móðir henn ar enn á Gimli, elskuleg ís- lenzk kona. Þau hjónin eiga 6 börn. Ein dóttirin var á ís- landi hjá vinkonu sinni og segir móðir hennar að hún sé ákveðin í að fara þangað aft- ur strax og hún hefur lokið námi. Önnur aif dætrunum var fylgdarkona Fjallkonunn ar á íslendingadaginn. Þegar hinn mikli atbafna- maður, Juba borgarstjóri í Winnipeg, ræddi við forseta íslands ,sagði hann m.a. er íslendingá í Vestur-heimi bar á góma: — Hver haldið þér að eigi mestum vinsældum að fagna af ráðherrunum hér? George Johnson auðvitað! Þegar andslæðingarnir þurftu að finna eitthvað að honum, fundu þeir ekki annað en að alltaf logaði Ijós hjá honum fram yfir miðnætti á sikrif- stofunni. Er það nú eitthvað til að finna að? George John- son hefur unnið stórvirki og hann hefur vissulega haft á sinni könnu flókin mál, menntamálin. Og þetta gerir hann svo vel, alltaf jafn ljúf- ur og elskulegur. Þetta sagði borgarstjórinn í óspurðum fréttum. Og við íslendingarn ir sáum vissulega, hve eðli- lega elskulegur ráðherrann ávalt er og hve t.d. ganua fólkið á Gimli virtist dá hann. Sagt er að George Jobnson sinni störfum siínum með hug- arfari trúboðans. Hann hef- ur verið ráðherra síðan 1958 og haft mikil áhrif á löggjöf um sjúkramál og sjúkrabús- mál Manitoba-fylkis, ný sj úkra íryggingalög endurhæf ingarstöðvar fyrir sjúka o.ifl. Annar þingmaður stjórnar- flokksins er Osear Björnsson. Hefur hann verið á þingi síð- an 1968 fyrir Lac du Bonnet. Hann er líklega sá þingmaður inn í Winnipeg, sem hefur fæsta af íslenzkum ættum í kjördæmi sínu, en þar eru mest Ukraínumenn og Frakk ar. Foreldrar hans voru 'báð- ir fæddir á íslandi. Faðir hans kom vestur ungur maður, en móðir hans sem barn. Hún missti báða foreldra sína í Stórubólu, sem hjó svo djúpt skarð í nýlendu íslendinga. Henry Einarsson var kos- inn á þing í fyrra í Argyle- fykli. Hann er bóndi. Hann gat ekki komið því við að sitja morgunverðarboðið með forsetanum, en hafði verið í miðdegisverði íslenzkra frí- múrara fyrir hann. Elman Guttormsson er þing maður í St. George, en þar eru Lundar og líklega íslenzk asta kjördæmið af þeim öll- um. Elman er sonur Vigfúsar Guttormssonar, sem var bróð ir Guttorms J. Guttormsson- ar skálds, og búa iforeldrar hans á Lundar. Hann hefur verið blaðamaður hjá Fri Press í 20 ár og á þingi í 11 ár fyrir Liberala-flokkinn. Ekki má gleyma sr. Philip Pétursyni, forseta Þjóðrækn- isfélags íslendinga í Vestur- heimi, sem flestir íslendingar kannast við. Hann hefur set- ið á þingi fyrir Nýja Demo- krata, sem eru annar stjórnar andstöðuflokkurinn. Sr. Philip var prestur í Unitara- kirkjunni í Winnipeg þar til fyrir 3 árum og stundar prestsstörf ásamt þing- mennsku, ferðast oft norður í fslendingabyggðirnar, ef jarða þarf á íslenzku. En is- lenzku talar hann að minnsta kosti jafnvel og þeir sem aldrei hafa farið frá íslandi. Faðir hans var bóndi og síð- ar kaupmaður í Foamlak’e og flutti til Winnipeg, þar sem Philip ólst upp. Sr. Philip og kona hans, Þórey Sigurgríms- dóttir, eru bæði ákaflega elskuleg og hjálpleg og naut blaðamaður Mbl. þess í rík- um mæli á þessu ferðalagi til Winnipeg. Þannig eru nú fimm þing- menn af íslenzkum ættum á fylkisþinginu í Winnipeg, þrír af 31 í stjórnarliðinu og 2 af 2i6 í stjórnarandstöðunni. — Við erum kannski á önd- verðum meiði í þingsalnum, en við erum beztu vinir ' í kaffistofunni, sögðu þeir. Er þetta mjög há hundraðstala miðað við þingmenn af öðr- um þjóðarbrotum í Manitoba. Einn af 14 Winnipeg-þing- mönnum á Kanadaþingi í Ottawa er Eric Stefánsson og hefur hann verið það síðan 1958. Hann er fæddur í Winnipeg, sonur Kristjáns Steifánssonar frá Þistilfirði og Rannveigar Hallson, sem ætt uð var af Norðurlandi, og sjálfur býr 'hann á Gimli. Hann var áður verzlunarmað ur, mikið í tryggingamálum og bóndi. Hann er framámað ur í málefnum Vestur-íslend- inga, leysir af hendi mikið starf fyrir íslendingadaginn og er forseti forstöðunefndar innar. Eric á sæti í neðri deild Kanadaþings, en í senatinu, sem í er skipað ævilangt, sitja þeir Gunnar Solmundur (eða Solly, eins og fiestir ís- lendingarnir virðast kalla hann) Þorvaldson, sem er fyr ir Manitoba-fylki og William fyrir Ontario-fylki. Héldu E. Benidickson, sem situr þar þessir senatorar mikla veizlu í Ottawa, er Vestur-íslending ar afhentu afmælisgjölf sína á 100 ára afmæli Kanada í vor, töfluna með áletruðum kafla úr sögunum um Vinlandsferð- ir. Það var vissulega gaman að kynnast öllum þessum. mönn- um af íslenzkum ættum Vesturheimi. — E. Pá. Heimsmeistaramót unglinga í skák Gufmundur Sigurjónsson teflir ú leimsme'sSuramóti unglingu Jerúsalem, 9. ágúst — AP — HEIMSMEISTARAMÓT ungl- inga í skák átti að hefjast hér í dag, þrátt fyrir það að sýni- legt var, að Sovétríkin og önn- ur Austur-Evrópuríki hefðu hætt við þátttöku í mótinu. Áður hafði verið skýrt frá því, að búizt væri við, að Sov- étríkin og Rúmenía myndu taka þátt í mótinu, en nokkrum klukkustundum áður en mótið skyldi hefjast, höfðu hvorug til kynnt þátttöku sína. Áður höfðu Júgóslavía og Ungverja- land tilkynnt, að þau myndu ekki taka þátt í mótinu. Kommúnistaríki, að undan- skilinni Rúmeníu, hafa slitið stjórnmálasambandi við ísrael vegna styrjaldar fyrir botni Miðjarðarhafsins. Átján þjóðir, þar á meðal ís- rael, munu taka þátt í heims- meistaramóti unglinga, en þetta skákmót er haldið á tveggja ára fresti og verða þátttakendur að vera yngri en 20 ára. Það er Alþjóðaskáksambandið, sem stendur fyrir þessum mótum. Sigurvegari í heimsmeistara- móti unglinga 1965 var Bojan Kuraijca frá Júgóslavíu. Guðmundur Sigurjónsson EINS og frá er skýrt annars síaðar í blaðinu í dag, hófst í •fær heimsmeistaramót unglinga i skák í ísrael. Einn íslending- ur, Guðmundur Sigurjónsson, 'ekur þátt í þessu móti af hálfu slcnzkra skákmanna, en einung » einum skákmanni undir 20 ára aldri frá hverri þjóð er heim iluð þátttaka í mótinu. Mót þetta stendur yfir frá 9. -28. ágúst og hefst með for- keppni. Samkv. frásögn Guð- ] mundar Arasonar forseta Skák- iambands íslands er tilhögun bessa móts venjulega þannig, að eppendum er skipt í sex manna ðla, er keppa um sæti í A. B. og C. riðli. Tveir efstu menn hverjum riðli fara i A riðil, n síðan tveir í hvorn hinn rið- nn. Sá, sem verður efstur í riðili, hlýtur nafnbótina msmeistari unglinga í skák. Guðmundur Sigurjónsson hélt utan á mánudaginn var. Guð- mundur hefur að undanförnu sýnt ágæta frammistöðu í skáfe, m.a. keppti hann fyrir Norður- lönd á fyrsta borði í lands- keppni unglinga milli Norður- landanna og Sovétríkjanna f fyrrasumar og sigraði þar ungl- ingameistara Sovétríkjanna, Gulko 1%—y2 og vakti sti frammistaða hans mikla atihygli. Fór sú keppni fram í Stokk- hólmi. Guðmundur tefldi á 2. borði ísl'enzku sveitarinnar I heimsmeistarakeppni stúdenta f skák, sem fram fór fyrir skömmu í Tékkóslóvakíu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.