Morgunblaðið - 10.08.1967, Blaðsíða 15
MORGTJ NBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 1067
15
ÞRfR STAÐIR ÚR LÍFI
V;7
«' «• ff-
Haraldskveðja
Haraldur Ólafsson Hákonarsonar
heill þér á frónskri grund,
kominn austatn um álana breiðu
á íslenzkra vina fund.
Vér mælum til þín á máli Snorra
og munum þann dýra arf
er formæður vorar fluttu úi Sogni
og færðu vestur um Hvarf.
'?f§|'
Vér fögnum þér ei sem framandi manni
af f jöldans breiðu slóð,
þú kemur sem frændi, úr fornum garði,
er f jarlægar götur tróð.
Á páskum í Sikilsdal, Islandi í ágúst,
ekkert á milli ber.
Austmaður, vestur lágu leiðir,
það landnám er einnig hér.
,fj
Stofninn er einn og söm var sagan
í sókn og vöm um skeið,
þú gengur um Reykholt og Gunnarshólmi
er grænn á þinni leið,
í Sturlungareit þú stendur hljóður,
þar stækkar allt háttalag.
„Út vil ég“ mælti áður Snorri,
þau orð gilda líka í dag.
Hart var oss eitt sinn Haraldsnafnið,
en hraustlega á móti galt
Egill á Borg, það er ógleymd saga
og ekkert við gjaldi falt
af því sem geymt er af fornum fræðum,
því fagnar hin norska þjóð
með oss, að enn heldur Völuspá velli
og virt eru Sólarljóð.
"'ff
t':
mr-
Velkominn Haraldur Ólafs arfi,
Ingólfs borg heilsar þér,
ungur og snjall á háum herðum
heiður Noregs þú þer.
Landvættir allar leið þér greiði,
leggi á plóginn hönd.
Island og Noreg ennþá tengja
ættar- og sagna-bönd.
ÁRNI G. EYLANDS.
Haralds ríkisarfa
Efsta mynd: Stórbýlið Skaug-
um (í Skógum) í Asker, skammt
frá Osló, er bújörð Ólafs Noregs-
konungs og þar dvaldist hann
löngum með fjölskyldu sinni áð-
ur en hann tók við konungdómi.
f Skógum er Haraldur ríkisarfi
fæddur og á þar mörg æskuspor.
Miðmynd: Hátt til fjalla, norð-
ur í Jötunheimum, vestan Guð-
brandsdals, er afréttardalurinn
Sikilsdalur í um 1000 metra hæð
yfir sjó. Þar er Prinsehytta (sem
raunar er þrjú bjálkahús um eitt
húsahlað). Þar dveljast þeir Ólaf
ur konungur og Haraldur ríkis-
arfi alla jafna á páskum þegar
Oslóbúar streyma til fjalla í
páskaleyfi. Hvergi í Noregi nær
fagur og mikill gróður eins hátt
til fjalla eins í Sikilsdal. Yfir
dalinn gnæfir fjallið Sikilsdals-
hyrna, 1544 metra hátt. í Sikils-
dal sótti Nordahl Grieg efnið i
hið fræga kvæði sitt „Sikill“,
sem Magnús Ásgeirsson þýddi á
íslenzku.
Neðsta mynd: Lærdalselva,
Leirdalsáin í Sogni, er frægasta
laxveiðiá í Noregi og þar hafa
margir þjóðkunnir menn rennt
fyrir lax, svo sem Vilhjáhnur
Prússakeisari og brezku stjórn-
málajöfrarnir Gladstone og
Churchill. Hin síðari ár hefur
Haraldur ríkisarfi sótt þangað
ár hvert til laxveiða og einnig
gengið þar á hjartaveiðar, en í
skógunum i Leirdal er töluverð-
ur stofn af hjörtum, svo sem víð-
ar á þessum slóðum.
Dagskrá heimsoknar
Haralds ríkisarfa
Fimmtudagur 10. ágúst
Kl. 17.30: Komutími, Keflavík-
.urflugvöllur.
KL 18.00: Komlð á Reykjavík-
urflugvöLl.
Kl. 20.00: Kvöldverðiur fonseta ís
Lan-dis á Ressastöðum.
(KLæðnaðuir hátíðarbúning
iur ag h'eiðursmerki).
Föstudagur 11. ágúst
Kl. 11.00: Atihöfn í Fossvogs-
kirkjuganði.
Kl. 12.30: Hádegisverður í boði
utanríkisráðherra, að Hótsi
Sögu (Áttflragaisal).
Kl. 16.00: Hjeiimsóikn í Háskóla
íslands, Þjóðminljasafn o>g
ListaS'afn íslands.
Framhald á tols. 11.