Morgunblaðið - 10.08.1967, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 10.08.1967, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. AGÚST 1967 13 UTANLANDSFERDIR I AG T 0G SEPT Sumorauki ú Mullorku 16. úgúst — 7. september Síðasta hópferð L & L til Mall- orka í sumar hefst 16. ágúst og stendur til 7. september. Þátt- takendur geta valið um hvort þeir dvelja allan tímann á hinni dásamlegu baðströnd Porto Colom, eða skipta tímanum í tvennt; vikudvöl á baðströnd og vikudvöl um borð í skemmti- ferðaskipinu TSS HERMES. Hótelið Hótelið sem stendur þátttakend- um til boða heitir Cala Marsal og er eitt staersta og nýtízku- legasta hótelið á Mallorka. Bygg ingu þess lauk í fyrravor og er þar að finna öll þau þægindi, sem kröfuhörðustu gestir óska eftir: öll herbergi með stórum svölum. baði, W.C., útvarpi og síma. I hótelinu eru áuk þess glæsilegir veitinga- og danssal- ir, bar, verzlanir, hárgreiðslu- stofa og sundlaug. Sigling á Miðjarðarhafi Skemmtiferðaskipið TSS HERMES tekur um 500 farþega, og munu íslendingarn- ir blandast fólki um borð af ýmsum þjóðernum. Skipið sigl- ir til Marokko, Gibraltar og Alicante. í Marokko er höfð lengst viðdvöl og borgirnar Tangier og Casablanca skoðað- ar, auk þess sem þátttakendum gefst kostur á að taka þátt í ferðum inn í landið. Á með- fylgjandi korti sést hvernig sigl- ingaleiðin er í höfuðdráttum. Skipið býður upp á öll hin sömu þægindi og er að finna í landi, þ.e. sólþilfar, sundlaug, hárgreiðslustofu, verzlun, veit- inga- og danssali. Amsterdam — Frankfurt A leiðinni til og frá Mallorka er jtomið við í Amsterdam og Frankfurt, þar sem nægur tími gefst til verzlunar- og skoðunar- xerða. Fararstjórar og farmiðapöntun Fararstjórar verða Hermann Ragnar Stefánsson og Örn Er- lendsson. Þar sem örfá sæti eru enn laus er nauðsynlegt að panta far sem fyrst. Allar nán- ari upplýsingar um verð gef- ur skrifstofan. „SÍÐASTA SKIP SUÐUR## Aðalferð sumarsins er með hinu nýja og stórglæsilega vestur-þýzka skemmtiferðaskipi Regina Maris „Suður um höfin“, en lagt er af stað í þá ferð 23. september og komið heim aftur 17. október. Regina Maris leggur af stað til íslands frá Hamborg þann 17. septem- ber, og enda fjórar scptemberferðir um borð í skipinu, þannig að þátt- takendur í þeim ferðum, sem nánar er getið um hér á eftir, sigla heim með viðkomu í Kaupmannahöfn og Bergen með þessum glæsilega far- kost. Eftirtaldar hópferðir enda um borð í Regina Maris í Hamborg: 1. AMSTERDAM — SPÁNN — REGINA MARIS: 16 daga ferð frá 7. sept. — 22. sept. Verð frá kr. 13.890. 2. RÍNARLÖND — AMSTERDAM — PARÍS — REGINA MARIS: 17 daga ferð frá 6. til 22. september. Verð frá kr. 13.885. 3. AMSTERDAM — SPÁNN (COSTA DEL SOL) — REGINA MARIS: 24ra daga ferð frá 30. ágúst til 22. sept. Verð frá kr. 16.475.— I þessari ferð er þátttakendum boðið að gista í einu glæsilegasta hótel- inu á Spáni — Appartamntos Reysol í borginni Torremolinos. Hver þátttakandi hefur um umráða dagstofu, svefnherbergi, baðherbergi, svalir, sjónvarp, og útvarp. Restaurant hótelsins þykir einn sá bezti í borginni og hótelið hefur eigin sundlaug. 4. AMSTERDAM — PARÍS — FENEYJAR — REGINA MARIS: 17 daga ferð frá 6. sept til 22. sept. Verð frá kr. 19.690. TAKIÐ VEL EFTIR Hér að framan hefur verið stiklað á stóru varðandi komandi ferðir. Okkur vœri ánœgja að veita frekari upplýsingar um einstakar ferðir á skrifstofunni, en þar er hœgt að fá nákvœmar leiðarlýsingar. Ennfremur bjóðumst við til að senda starfsfólk okkar á fundi hjá minni eða stœrri hópum í sambandi við ferðir með Regina Maris, og vœri á slíkum fundum hœgt að gefa nákvœmar upplýsingar um verð, og greiðsluskilmála, auk þess sem við getum sýnt litskuggamyndir frá skip- inu sjálfu og helztu viðkomustöðum. Við vonumst til að heyra frá vœntanlegum þátttakend- um sem fyrst. LOiMD & LEIÐIR Aðalstræti 8,sími 2 4313 Mið-Evrópuferð til 7 lcndo 16. ágúst til 30. ágúst. Mið-Evrópuferðirnar hafa ætíð notið mikilla vinsælda. Næsta ferð hefst 16. ágúst og stendur til 30. ágúst. Flogið er héðan til Amsterdam, síðan ekið til Hollands, Belgíu og áfram til Luxemburg. Áfram er haldið til Frakklands og ekið um eitt feg- ursta svæði landsins sem eru Vogesafjöllin. Næsti áfangastað- ur er Sviss, þar sem komið er við í Basel, Luzern og fleiri merkum og fallegum stöðum. Ekin er stutt dagleið um Alp- ana til smáríkisins Lichtenstein og þaðan liggur leiðin aftur. norður á bóginn um Fússen, Heidelberg og Rínarlönd. Flög- ið er aftur heim frá Amster- dam. Eins og sjá má af þessari stuttu upptalningu, sem hvergi er tæmandi, er hér um mjög viðburðarríka og skemmtilega ferð að ræða. Fararstjóri er Svavar Lárusson og nær upp- pantað í ferðina. Verð er frá kr. 13.825. Athyglisverð írlcndsferð 19. ágúst til 27. ágúst. Hér er um að ræða skemmtilega og ódýra ferð til írlands, sem íslendingar hafa haft mikla ánægju af að heimsækja vegna fornra og nýrra tengsla. Ferð- in hefst 19. ágúst og stendur til 27. ágúst. Helztu afangastadir Flogið er til Glasgow með þotu FÍ og þaðan með Air Lingus til Dublin. Frá Dublin er ekið til staða eins og Arklow, Gorey, Enniscorthy, Wexford og Waterford sem er skemmti- leg, gömul borg. Áfram er haldið til Cork, næststærstu borgar írlands, og þaðan til Killarney um fegursta hérað landsins sem heitir Kerry. Næsti áfangastaður er Limerick, sem stendur við mynni árinn- ar Shannon, og er ein af stærri borgum írlands. Þaðan er aftur haldið til Dublin og dvalið þar einn og hálfan dag. Frá Dublin er aftur flogið til Glasgow, og síðan heim með þotunni. Ódýr ferð Þessi fróðlega og skemmtilegC ferð kostar aðeins kr. 8.930, el ef einhverjir kjósa að fljúga til London frá Dublin leggst auka- gjald á þá ferð. Fararstjórar eru frú Vaidís Blöndal og Þorsteinn Magnús- son, kennari.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.