Morgunblaðið - 16.09.1967, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. SEPT. 19W
SLYS VIÐ BURFELL:
Hverkamennhætt
komnir í bílveltu
Fjórir þeirra fluttir í sjúkrahús
Allt tilbúið til síldarsöltunar
í f lestum síldarbæjum eystra
FJÓRIR menn slösuðust og sjö
aðrir hlutu minni háttar meiðsli,
þegrar sendiferðabifreið með
opnum palli valt í hlíðinni fyrir
ofan Búrfell. Voru mennimir á
leið i kaffi, þegar slysið varð.
Tveir þeirra voru fluttir í sjúkra
húsið á Selfossi og tveir til
Reykjavíkur, þar sem þeir voru
lagðir inn í Landakotsspítala.
Þá var ökumaðurinn og fluttur
til Reykjavíkur.
Slysið varð um klukkan hálf
tíu í gærmorgun. Voru menn-
imir á leið í kaffi úr vinnu sinni
í grjótnáminu í Sámsstaðarmúla.
í krappri beygju missti öku-
maðurinn vald á bifreiðinni með
þeim afleiðingum, að hún fór út
af og valt fimmtán metra niður
hlíðina. Fór bifreiðin aUs tvær
og hálfa veltu. Um tíu metra
hæðarmismunur er á þeim stöð-
um, þar sem bifreiðin fór út af
og þar sem hún stöðvaðist, og
hlíðin stórgrýtt urð.
Að sögn bifreiðastjórans var
hann nýlagður af stað og ók
enn í fyrsta gír, þegar að beygj
unni kom. Hugðist hann þá
draga úr hraðanum og steig á
hemlana en við það snerist bif-
reiðin til hægri og steyptist út
af veginum. Á opna pallinum
MENNINGAR- og friðarsamtök
íslenzkra kvenna hefja vetrar-
starf sitt með listkynningu í
Breiðfirðingabúð sunnudaginn
17. september og sýna þar verk
sin nokkrir af beztu listamönn-
um landsins.
Listkynningar sem þessi eru
nýr þáttur í starfsemi samtak-
anna, en á síðasta starfsári geng-
ust þau fyrir tveim listkynning-
um, var sú fyrri í Breiðfirðinga-
búð í september 1966 en hin síð-
ari var í Lindarbæ í maí 1967,
en þar voru kynnt verk Jakob-
ínu Sigurðardóttur skáldkonu.
Þessi þáttur í starfi MFÍK er
tilraun til að vekja athygli al-
mennings á verkum okkar beztu
listamanna, og vonum við að
geta haldið áfram á þessari
braut. Vegna fjárskorts, en
Menningar- og friðarsamtök is-
lenzkra kvenna njóta ekki ríkis-
styrks, eru þessar fyrstu til-
raunir okkar frumstæðar. Við
verðum að sjá þessari starfsemi
farborða með kaffisölu, en það
sníður henni óneitanlega þröng-
an stakk. Listkynningar þessar
hafa þó fengið góða dóma hjá al-
menningi og við vonutn að í
framtíðinni getum við fært
þessa viðleitni út til fleiri list-
greina og haft hana í öðru
formi. Samvinna við það lista-
fólk sem hefur látið verk sín -il
sýningar hjá okkur er al-
veg sérstaklega ánægjuleg, vilj-
um við færa því öllu okkar beztu
þakkir fyrir skilnmg á þessari
fátæklegu viðleitni okkar. Al-
veg sérstaklega þökkum við hin
um ágætu listamönnum sem
hafa aðstoðað okkur með réiðum
og dáð við að undirbúa þessa
listkynningu, en það eru: Sverrir
Haraldsson, listmálari, Ólöf
Pálsdóttir, myndhöggvari, Vig-
dís Kristjánsdóttir, listmálari og
Eyboirg Guðmundsdóttir, list-
málarL Aðstoð og skilningur
þessa ágæta listafólks er þessari
starfsemi ómetanleg og væri hún
raunar lítt framkvæmanleg án
hennar.
í lok þessa mánaðar munum
við halda fund um uppeldis- og
6kólamál, en þar flytja erindi
voru níu menn en einn sat inni
hjá bílstjóranum.
Bílstjóranum tókst að skorða
sig og fylgdi hann bifreiðinni
alla leið. Þegar hann steig út
úr henni, sá hann, að allir menn-
irnir voru staðnir á fætur, nema
tveir, sem virtust vera illa
meiddir. Lét hann þegar sækja
sjúkrabifreið þá, sem ávaUt er
til taks við Búrfell og flutti hún
mennina tvo og bílstjórann til
Selfoss og þaðan til Reykjavík-
ur.
Sjúkrabifreið frá Selfossi
sótti hina mennina og voru
tveir þeirra lagðir inn í Sjúkra-
húsið, en gert var að meiðslum
hinna sex.
Að sögn lögreglunnar í
Reykjavík þótti ástæða til að
færa ökumanninn í blóðtöku,
þar sem hann hafði verið á dans
leik kvöldið áður og neytt þá
víns. Samkvæmt upplýsingum,
sem Mbl. fékk í gær voru allir
menmrnir, sem lagðir voru inn
í sjúkrahús við góða líðan. Hafði
einn rifbeinsbrotnað, annar
kvartaði yfir eymslum 1 hálsi.
þriðji hafði meiðzt á hné, öxl
og ökla og fjórði hlotið liðhlaup
og úlnliðsbrot.
Margrét Margeirsdóttir, félags-
ráðgjafi og Rannveig Löve kenn
ari. Þá munum við í vetur halda
fund um aðstöðu kvenna til
starfs og menntunar, ennfremur
munum við taka fyrir frelsistoar-
áttu Kúrda og kynþáttavandamál
ið í Bandaríkjunum, og enn-
fremur Vietnam-styrjöldina, en
samtök okkar.eru, sem kunnugt
er, þátttakendur í Víetnam-
nefnd þeirri er stofnuð var með
þátttöku margra félagasamtaka
hér á sl. vetri.
Eftirtaldir listamenn sýna verk
sín í Breiðfirðingabúð á vegum
samtakanna n.k. sunnudag, kl.
14,30:
LÖGREGLAN lenti í átökum í
fyrrinótt um borð í dönsku skipi
þegar skipsverjar á því reyndu
að hindra lögreglumenn í því
að sækja þangað 5 íslenzkar
stúlkur á aldrinum 15—24 ára,
sem voru þar í trássi við lögin.
Skipsverjar sem voru þrír að
tölu og alldrukknir, voru fljót-
lega yfirbugaðir.
Lögreglan fékk tilkynningu um
það kl. tvö um nóttina, að
íslenzkar stúlkur væru staddar
í óleyfi um borð í danska skip-
inu. Lögreglan fór þegar á vett-
vang, og fundu þeir 24 ára
stúlku fáklædda í herbergi
kokksins. Þegar hann sá, að lög
reglan myndi svifta hann stúlk-
unni brást hann hinn versti við,
FLESTIR síldarlöndunarstaðir
norðanlands og austan eru nú til-
búnir undir að taka á móti salt-
síld — fari svo að síldin láti aft-
ur sjá sig á Austurlandsmiðum.
Kom það fram í samtölum er
Mbl. átti við fréttaritara sína á
þessum stöðum, að fólk er yfir-
leitt mjög bjartsýnt á að svo
fari.
Helztu vandkvæðin við sildar-
móttökuna eru talin vera, að ekki
sé til nægilegt húsrými til að
geyma síldina á meðan hún er að
verkast. Er talið að síld verkist
ekki nema að hún sé í 4—8 gráðu
hita fyrstu 2—4 vikurnar. og
þyrfti því að geyma hana inni,
þegar frost tekur að gera nú í
haust. Ekki álíta menn þetta þó
aðkallandi vandamál nú fyrst um
sinn.
Fréttaritari Mbl. á Raufarhöfn
upplýsti að þar væri allt tilbúið
til a'ð taka á móti síldinni ef hún
bærist. Aðstæður væru ágætar.
Væri búið að byggja yfir fimm
söltunarstöðvar og færibönd og
flokkunarvélar í þeim öllum. Gat
Aukafundur hjá
L. í. IJ. og S. H.
ÁKVEÐIÐ hefur verið að halda
aukafund hjá Landssambandi
íslenzkra útvegsmanna þann 29.
september næstkomandi og hjá
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
nokkrum dögum síðar. Er efnt
til þessara funda til að ræða
afkomu útgerðarinnar og fisk-
vinnslunnar.
Fyrsti snjórinn
í Esjunni
í GÆRMORGUN sáu menn, að
snjór hafði failið á efstu eggjar
Esjunnar um nóttina, og skart-
aði hún gráum kolli. Hitastigið
í Reykjavík var 5 til 6 stig
snemma í gærmorgun og undir
hádegfð kastaði éljum. í gærdag
var um níu stiga hiti í Reykja-
vík og gekk á með snörpum
skúrum.
og réðst gegn lögreglumönnun-
um. Fékk hann fljótlega til liðs
við sig tvo skipsverja aðra, og
urðu nokkur átök milli lögregl-
unnar og þeirra. Voru þrír lög-
regluþjónar kvaddir út til við-
‘bótar, og fóru þeir með skip-
verjanna í fangageymsluna við
Síðumúla, þar sem þeir urðu að
dúsa um nóttina.
Við leit í skipinu fann lögregl-
an fjórar stúlkur til viðbótar.
Var sú yngsta 15 ára að aldri,
tvær 16 ára og ein 18 ára.
Stúlkurnar voru fluttar á lög-
reglustöðina, og foreldrar þeirra
látnir sækja þær yngstu þang-
að, en hinar vóru afhentar kven
lögreglunni.
hann þess, að nú væri verið að
gera tilraun þar með eina algjör-
lega sjálfvirka söltunarstöð, þ. e.
síldinni væri skilað fullverkaðri
án þess að mannshöndin kæmi
þar nærri. Geymslurými taldi
hann nægilegt til að byrja með
a. m. k.
Á Vopnafirði er geymslurýmið
hins vegar a’ðalvandamálið, en
verið er að preyfa fyrir sér í
þeim efnum. Á Seyðisfirði eru
flestir búnir að byggja yfir sölt-
unarstöffvar sínar, en affalvanda-
málið þar er einnig skortur á
geymslurými meðan síldin er að
verkast, auk þess sem búast má
Einkaskeyti til Mbl.
Hamborg, 15. septemiber
BJARNI Benediktsson forsætis-
'ráðiherra fór meff flugvél frá
Hamborg í dag, og lauk þar meff
•fjögurra daga opinberri heim-
isókn hang í Vestur-Þýzkalandi,
þar sem hann hefur meðal ann-
ars rætt viff vesturþýzka leiff-
toga í Bonn og skoffaff Berlinar-
múrinn.
Fulltrúar borgarstjórnarinnar í
Hamtoorg og aðalræðismaður ís-
lands í Hamborg. Ernst Dreyer
'Eimbecke, kvöddu forsætisráð-
herra og konu hans, frú Sigríði
‘Björnsdóttur, á flugvellinum. Áð
ur en forsætisráðherra steig upp
í flugvélina er flutti hjónin og
fylgdarlið þeirra til London, lét
hann í ljós þakklæti fyrir „á-
nægjulega dvöl“. Hann sagði, að
toeimsóknin hefði verið ánægju-
leg í hvívetna.
Á síðasta degi heimsóknarinn-
Á MORGUN (sunnudag) eru
liðin 50 ár frá stofnun Verzl-
unarráðs íslands. Stofnendur
ráðsins voru 156, en meðlimir
þess eru nú nær 600.
Verzlunarráð íslands er fé-
lagsskapur kaupsýslumanna og
fyrirtækja sem reka sem aðal-
atvinnu verzlun, iðnað, trygg-
ingastarfsemi, bankaviðskiptL
siglingar, flugsamgöngur og at-
vinnugreinar sem skyldar eru
áðurtöldum.
Verzlunarráð mun minnast af-
AÐALFUNDUR Norræna fé-
lagsins var haldinn 14. þ.m. Sig-
urður Bjarnason ritstjóri, for-
maður félagsins setti fundinn og
stjórnaði honum, en fundarrit-
ari var Sveinn Ásgeirsson hag-
fræðingur. Einar Pálsson fram-
kvæmdastjóri félagsins gerði
grein fyrir störfum þess á s.l.
starfsári. Frú Arnheiður Jóns-
dóttir gjaldkeri félagsins gerði
grein fyrir reikningum þess. Þá
fór fram stjórnarkosning. Sig-
urður Bjamason ritstjóri var
endurkjörinn formaður félags-
ins. Aðrir í aðalstjórn eru Vil-
hjálmur Þ. Gíslason útvarps-
stjóri, Páll ísólfsson tónskáld,
við að erfitt verði að fá fólk
til vinnu, þegar skólarnir eru
hafnir.
I Neskaupstað er öll aðstaða
til söltunar á haustsíldinni mjög
gó'ð, og eru allar söltunarstöðv-
arnar nema ein yfirbyggðar, eða
alls sex að tölu. Eru helztu vand-
kvæðin þar talin vera að fá fólk
til verkunar á síldinni.
Sömu sögu er að segja frá
Reyðarfirði og Eskifirði, Byggt
hefur verið yfir þrjár söltunar-
stöðvar á Reyðarfirði og fimm
á Eskifirði, og flestir hafa nokkra
aðstöðu til að geyma síldina á
me'ðan hún er að verkast.
ar fór forsætisráðherra í sigl-
ingu um höfnina í Hamborg, sem
er hin stærsta í Vestur-Þýzka-
landi. Síðan héldu forsetahjónin
tij Seewald skammt frá Ham-
toorg og skoðuðu safn, sem er
tileinkað minningu „járnkanzl-
arans“, Otto von Bismarcks.
Á fyrsta degi heimsóknarinnar
átti Bjarni Benediktsson for-
sætisráðiherra ítarlegar viðræð-
ur við Kurt Georg Kiesinger
kanzlara um alþjóðleg vandamál.
Eitt helzta umræðuefni þeirra
var þó viðskiptasamband íslend
inga við Vestur-Þýzkialand og
önnur aðildarríki Efnalhagsbanda
lagsins. Kiesinger kanzlari sagði
er hann tók á móti forsætisráð-
herra, að viðræður þeirra mundu
treysta vináttutengsl Vestur-
Þjóðverja og íslendinga og lagði
áherzlu á margþætt tengsl land-
anna á sviðum menningar- og
stjórnmála.
mælisins með hátíðahöldum,
sem hefjast í dag. Á morgun kl.
16 mun stjóm V. í. taka á móti
gestum í hátíðasal Verzlunar-
skóla íslands. Til þátttöku í há-
tíðahöldunum hefur Verzlunar-
ráð íslands boðið fonmönnum
og framkvæmdastjórum Verzl-
unaráða Norðurlanda.
Fyrsti formaður Verzlunarráðs
íslands var Garðar Gíslason, en
núverandi formaður er Kristján
G. Gíslason.
frú Arnheiður Jónsdóttir, Thor-
ólf Smith blaðamaður, Sveinn
Ásgeirsson hagfræðingur og
Lúðvíg Hjálmtýsson fram-
kvæmdastjórL er var kjörinn í
stað Sigurðar Magnússonar
fulltrúa er baðst undan endur-
kosningu.
f varastjórn voru kjörnir
Bárður Daníelsson verkfræð-
ingur, Gils Guðmundsson al-
þingsmaður, frú Valborg Sigurð-
ardóttir, Páll Líndal borgarlög-
maður, og Hans Þórðarson stór-
kaupmaður. Endurskoðendur
voru kjörnir Þór Vilhjálmsson
borgardómari og Óli J. Ólason
kaupmaður.
Listkynning Menningnr- og
friðnisnmtnkn kvennn
Framh. af biLs. 32
Lögreglan sótti 5 stúlk
ur út í danskt skip
— Drukknir skipverjar réðust gegn
lögreglunni til að hindra hana
í að taka stúlkurnar á brott
V-Þýzkalandsheimsókn
forsætisráðherra lokið
Fór frá Hamborg til Lundúna í gœr
FIMMTÍU ÁRA:
Verzlunarráð Islands
Aðalfundur
Norræna félagsins