Morgunblaðið - 04.10.1967, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. OKT. 190T
DAHLGAARD BREGST
REIDUR VID BROTTVÍSUN
- segir ráðamenn í Danmörku ekki
hata málfrelsi
HINN brottrekni verzlun-
ar- og markaðsmálaráð-
herra Danmerkur, Tyge
Dahlgaard, sagði í yfirlýs-
ingu, sem birt var í Kaup-
mannahafnarblaðinu Berl-
ingske Tidende í gær, að
menn í ábyrgðarstöðum,
sem nákunnugir væru
þjóðfélagsvandamálunum
hefðu ekki málfrelsi í land
inu. Dahlgaard segir, að á
síðari árum hafi utanríkis-
stefna Danmerkur verið
gerð að nokkurs konar inn
anríkisstefnu, þar sem of
mikið tillit væri tekið til
ungmennasamtaka. Dahl-
gaard segir ennfremur, að
það væri miklum erfiðleik
um bundið fyrir dönsku
stjórnina, að hafa frum-
kvæði í alþjóðlegum mót-
mælaherferðum gegn her-
stjórnareinræði, kynþátta-
mismunun og styrjöldum í
fjarlægum löndum. „Við
verðum sem fullorðið fólk,
að gera okkur grein fyrir
hæverskri stöðu okkar í
heimspólitíkinni", segir
Dahlgaard, „og láta ekki
viðkvæmnismál og hug-
sjónastefnu ungs fólks
hafa úrslitaáhrif á afstöðu
okkar gagnvart umheim-
inum“.
f yfirlýsinigunni sagði DaW-
gaard, að það væri sér hryggð
anefni, að forsætisráðherrann,
Jens Otto Krag, hefði, að því
er virtist, ekki gert sér naegi-
lega grein fyrir takmörkun-
um danskrar utanrikisstefniU'.
Sú stjórn, sem nú sæti að
völdum í DanmörkiU væri þó,
að sínu álliti, sú bezta fáan-
lega, og virðing sín fyrir
Krag hefði í engu breýtzt.
Sem kunnugt er vísaði Krag
Daihlgaard úr embeetti fyrir
ummæli, sem Krag taldi að
gætu steapað óvissu um
danska utanríkisstefnu.
Brottvísunin kom sama dag
og opiniberlega átti að víkka
út starfssvið Daihlgaards
þannig, að hann hetfði um-
sjón með utanríkisviðskiptun-
um. Bftixmaðuir hans er Ove 1
Hansen, fyrrv. borgarstjóri í
Baiilerup. Dahlgaard hefur nú
um það að velja, að 'hefja að
nýju störf í utaruríkisráðiu-
neytinu, en þaðan var 'hiann í
onlofi, eða draga sig í hlé. Til
steamms tíma var hann for-
maður fyrir dönsku 6endi-
netfndinni hjá Efn aihagstoanda-
ilaginu, en sú staða er ekki
laus sem stendur.
Eftir ummæli Dahigaards á
fumdi með iháskólastúdentum í
KaU'pman'naihöfn kröifðust
þrjú ungmennasamtök, æsiku-
'lýðsfélag sósíaildemókrata,
DSU og „Frit For.um“, að
hann segði af sér ,/yrir ó-
heyrilega árás á aimenna
stefniu stjórnarininar og J. O.
Kra,g sérstaklega". Dahlgaard
sagði, að ásökunin, um að
FramJhald á bls. 24
Sjðmannasambandið
æskir greiðslufrests
- á sköttum tyrir sjómenn
MEÐ bréfi dags. 25. sept. sL,
fór stjórn Sjómannasambands
íslands þess á leit við ríkis-
stjórnina að sjómenn fengju
greiðslufrest til næsta árs á
hluta af þeim sköttum er greiða
ber á yfirstandandi ári.
í bréfinu segir:
„Það skal tekið fram, að
, wmt s "4 - &
í' ' - 1
■
p*
í' / 'r'-' -
'WmSKRm wmmmm
stjórn sambandsins fer ekki
fram á eftirgjöf skatta fyrir sjó
menn, heldiur það, að skattarn-
ir verði ekki eins harkalega
innheimtir og raur. hefir orðið
á og þá sérstaklega á yfirstand-
andi ári.
Eins og vitað er, hafa undan-
farin ár verið hagstæð fyrir
fiskimenn okkar svo og útgerð
og þjóðina í heild.
Margir sjómenn ihafa haft
mjög góðar aflatekjur, enda
víða um land orðið með hæstu
skattgreiðendum og greitt
skatta sína til ríkis og sveitar-
félaga skilvíslega af hendi, þótt
erfitt hafi orðið á stundum,
vegna mjög mismunandi tekna
frá ári til árs, þó ekki hafi orð-
ið til vandræða fyrr en nú.
Sl. vetrarvertíð varð mjög
tekjulítil fyrir marga sjómenn,
sem höfðu þó haft góðar tekj-
ur á sl. ári og kom því skatt-
taka hins opinbera mjög harka
lega við marga, sem fengu um-
samda kauptryggingu aðeins
greidda með kvittun fyrir
greiðslu upp í skatt þessa árs,
og gátu því ekki lagt neitt af
mörkum til framfærslu fjöl-
skyldu sinnar, nema þá með því
að fá lán. Meirihluti fiskknanna
okkar hefir lengi búið við litl-
ar tekjur ef frá eru talin þrjú
sL ár, sem orðið hafa tekjudrjúg
og því ekkert óeðlilegt að tekj-
ur góðæranna hafi verið notað-
ar af þeim, svo sem öðrum at-
vinnustéttum til þess að byggja
eða kaupa sér íbúð og því ekki
lagt til hliðar frekar en aðrir
til tekjuminni og erfiðari ára, ef
koma skyldu.
Með hliðsjón af því, sem að
framan segir, vill stjórn Sjó-
mannasambandsins eindregið
fara þess á leit, að sjómönnum
og þá alveg sérstaklega fiski-
mönnum verði gefinn kostur á,
að fá greiðslufrest á einhverjum
hluta skattanna til næsta árs.
Stjórn sambandsins leyfir sér
að vænta þess, að hæstvirt rík-
isstjórn verði við þessum til-
mælum og þá jafnframt, að hún
Framhald á bls. 31
Rangæingar
AÐALFUNDUR Sjáilfstæðis-
félágs Rangæinga verður hald-
inn að Hellu laugardaginn 7.
október og hefst kl. 2 e.'h. Ing-
ólfur Jónsson, landbúnaðarráð-
herrei, mætir á fundinum.
Dovíð d Arnbjargarlæk ldtinn
SL. sunin.udag lézt að Grund í
Skornaidail, borgfirzki bænda-
höfðinginn og atorkumaðurinn
Davíð Þorsteinsson frá Arnbjarg
arlæk. Hann var nýorðinn ní-
ræður, eða hinn 22. sept. si.
Ákveðið er, að útför Davíðs
fari fr«m frá Norðuritunigu nk.
laiuigárdag.
Kona Davíðs, Guðrún Erlend.s-
dóttir frá Sturlu-Reykjum, lifir
mann sinn.
Þessa menka manns verður nán
ar minnzt hér í blaðinu síðar.
Fær ekki vegabréfs-
áritun til Sovétríkjanna
Kaupmannahöfn, 3. október AP
BANDARÍSKU sjónvarpsstjörn-
imni Susan Oliver var tilkynnt
í dag, að Rússar kærðu sig ekki
um, að hún færi tii lands þeirra
og hætti hún því þegar í stað
við áform sitt um að fljúga ein
í eins hreyfils flugvél til
Moskvu.
Talsmaður fyrir ungfrú Oliv-
er sagði, að hin 28 ára gamla
sjónvarpsstjarna myndi fljúga
til Dusseldorf á miðvikudag og
síðan halda heim. „Okkur var
tilkynnt síðdegis í dag frá banda
ríska sendiráðinu, að Rússar
hefðu sagt nei við vegabréfsá-
ritun handa Súsan“, sagði taU-
maður fréttamönnum. „Engin
skýring var gefin og við höfum
ekki hugmynd um. hvers vegna
Rússar tóku þessa afstöðu."
Ákvörðun hinna sovézku yf-
irvalda var gerð kunn, skömmu
eftir að ungfrú Oliver hafði
rætt við sovézka embættismenn
í hálfa klukkustund, þar sem
hún reyndi ákaft að fá leyfi til
þess að ljúka síðasta áfanga
flugferðar sinnar frá New York
til Moskvu, en hún flaug ein-
sömul allan tímann og hugðist
slá hvorki meira né minna en
10 heimsmet.
Greinileg fæ!;kun um-
ferðarslysa í Svíþjóð
Jákvœð áhrif af hœgri handar breytingunni
Stokkhólmi, 2. okt. NTB.
GREINILEG fækkun wnferðar-
slysa og aukin þekking á um-
ferðarreglunum á meðal flests
fólks eru jákvæðustu áhrifin af
breytingunni yfir í hægri hand-
ar akstur í Sviþjóð.
Á þriðjiudag var méniuður lið-
inn frá því að brieytingin átti
sér stað, en í september urðu 43
banaslys í 'Umferðiinnd ag það er
lægsta tala, síðan yfirileitt var
farið að færa- skýrslur tim þetta
efni. — Venjulega h-efur fjöldi
banaslysa verið milli 75 og 100.
Þassi jákvæðu áhriif eru skýrð
á þann ihátt, að skírsikotað er tii
hinnar mikilu upplýsingaiherferð-
ar um hægri uimferðina og hinna
lágu hraðatakmarka. Fyrir uta.n
þéttbýli ih'efur hámarksihraðinn
verið urn 70 km á klst. og í borg-
um og á þéttbygigðum svæðium
40 km á klst.
Fyrst eftir nokkrar vikur mu.n
stjórain að.líkindum taka afstöðu
til þess að hækka hraðatakmörk-
in upp í 80 km á klist. — Hæigri
umferðar nefndin er því fylgj-
andi, að háma'rkshraðinn í þétt-
býli verði áfraim 40 km á telst.
um skeið.
Farþegunum á Regina Maris:
Líöur vel í sumri og sól
MÖRGUM leikur forvitni á að
vita hvemig fólkinu líður um
borð í Reginu Maris, og Morgun-
blaðið hafði því samband við
Stein Lárusson, fararstjóra, rétt
eftir að skipið kom til Ítalíu.
Hann sagði:
„Þetta hefur verið dásamleg
ferð. Við vorum dálítið óhepp-
in með veður fyrsta daginn, og
skollans sjóveikin gerði dálítið
vart við siig, en það lagaðist allt
áður en við komum til Dublin.
Þaðan héldum við svo til Tangier
og komum þangað tíu tímum
á undan áætlun, svo að farþeg-
um gáfst þarna óvænt tækifæri
til að sjá næturlífið í allri sinni
dýrð. Við erum. nýkomin til Sik-
ileyjar, en getum því miður ekki
stoppað nema í fimm klukku-
tíma, áður en við leggjum af stað
ti’l Napólí. Þar verður höfð lengri
viðdvöl og við munuim skoða
Pompei og fara til Kaprí. Veðrið
er dásamlegt, eins og þið getið
ímyndað ykkur, glampandi sól-
skin oig heiður himinn. Farþeg-
arnir 200 eru allir glaðir og við
góða heilsu, hjúkrunarlið skips-
ins hefur átt mjög náðuga daga,
því að sem betur fer, hefur eng-
um orðið misdægurt. Og við
biðjum öll kærlega að heilsa
heim“.
Um kl. 20.30 í gærkvöldi var
fólksbifreið ekið vestur Hring-
braut. — Maður var á leið suð-
ur Hringbraut og varð hann fyr-
ir vinstri hlið bifreiðarinnar.
Slysið varð við vestri útkeyrslu
bílastæðisins við Þjóðminjasafn
ið. Maðurinn féll á götuna og
fékk áverka á höfuð. Var hann
fluttur í Slysavarðstofuna og
var þar er síðast fréttist. Meiðsli
hans virtust ekki mjög alvarieg.