Morgunblaðið - 18.10.1967, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 18.10.1967, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. OKT. 1967 IMAGNÚSAR skipholti21 5Ímar21190 eftir lokun simi 40381 »“ H4-44 VFGfílF/m Hverftsgöto 183. Sími eftir (oknn 31160. LITLA BÍLALEIGAN Ingólfsstræti 1L Hagstætt leigugjald. Sími 14970 Eftir lokun 14970 eða 81748 Sigurður Jónsson BÍLALEIGAIM - VAKUR - Sundlaugaveg 12. Sími 35135. Eftir lokun 34936 og 36217. * . : - •BUJKÁM/GJUI . Ifiíiúuyjœi? 1 RAUOARARSTIG 31 SlMI 2202» flest til raflagna: Rafmagnsvörur Heimilstæki Dtnrft- og sjónvarpstæki Rafmagnsvörubúftin sf Suðurlandsbraut 12. Sími 81670 (næg bílastæði). GÚSTAF A. SVEINSSON hæstaréttarlögmaður Laufásvegi 8, sími 11171 Þér gerið góð kaup þegar þér kaupið LOEWE OPTA SJÓNVARPSTÆKI hjá Roísýn hf. Njálsgötu 22 - Sími 21766 Fánalögin brotin? „A ustur bæ i ng u r“ skrifar: „Velvakandi: Nú í haust var ritað í einu blaðanna um notkun islenzka fánans, og þá eigi að þarf- lausu. Rætt var um það, hvort kaup menn ýmissa verzlana megi hafa hornfána uppi utan á verzlunum sínum allan sólar- hringinn, eða hvort hér væri um brot á fánalógunum að raeða. Það er skýrt tekið fram í fánalögunum, að fána skult niður taka eigi síðar en kl. 20. Séu hornfánar hafðlr uppi eff'r kl. 20, er því um skýlaust brot að ræða. Nú er það í verkahring lög- reglunnar að sjá um, að fána- lögin séu eigi brotin, og vænti ég þess, að því megi treysta. Sagt er, að kaupmenn segi, að hornfánar séu ekki fánar, h-eldur veifur, en eigum við að þola slíka svívirðirtgu og van- virðingu á íslenzka fánanum, að hann sé látinn hanga uppi allan sólarhringinn? Það er sama, hvort fáninn er stór eða lítill; hann á aáltaf að takast niður kl. 20. Fáninn er heig- asta tákn þjóðarinnar, og von- andi gefur lögreglan út úr- skurð í þessu máli, sem tekur af allan vafa, og leyfi ég mér hér með að fara fram á, að slíkur úrskurður verði birtur opinberlega hið bráðasta. Austnrbæingur", Landspróf og fyllirí Maður, sem kýs að nefna sig „Hall Steinsson" (en heit- ir það ekki í rauninni), skrif- ar Velvaikanda og bendir á, að tímarit Sambandsins, Samvinn an, sé nýkomið út og fjaJli um islenzk skólamáL „Þegar andan er skilið erindi Andra ísaks- sonar“, segir irHallur“, „eru þessar skólamálagreinar höf- undum sínum til lítils sóma, þekkingarleysið, glamrið og yf irborðsmennskan sitja þar hvar vetna í fyrirrúmL Þó er grein Matthíasar Jo- hannessen, ritstjóra Morgun- bflaðsins, sýnu verst allra þess ara greina, og í raun réttri ósamboðin manni með gáfur og þekkingu Matthíasar. Hér verð ur aðeins drepið á tvö atriði eða þrjú. Og til að gera langt mál stutt, vil ég segja ritstjór- anum þetta: Landspróf hefur aldrei frá því fyrsta verið svo þungt eða erfitt á nokkurn hátt, að meðalgreind börn eða þar yfir gætu ekki lokið því á sómasamlegan háti. Það er að segja, ef þau hafa vinnufrið á heimilum sínum fyrir fylliríi og veizluhöldum foreldra sinna eða gefa sér tíma til að lesa og vinna önnur sín verkefni fyrir samkvaemislífi, dansleikj.um, bíóferðum, útivist eða sjón- varpsglápi, sem sagt, ef þau stunda nám sitt af sæmilegri alúð. Þessar fullyrðingar þarf ekki að rökstyðja frekar, sönn- un þeirra liggur augljóst fyrir, öll þau hundruð eða þúsundir af meðallagsfólki, sem tekið hefur landspróf með ágætum þessi síðastliðnu 22 ár. •fr Bezta próf í heimi Landsprófið og skólakerf ið fram að því er nefnilega mjög gott, án efa það bezta í víðri veröld. Nú eru skólar með svokölluðum landspróís- deiidum víðsvegar um allt land. Þar geta nemendur þreyt.t inntökupróf í menrxtaskóla og fleiri skóla heima hjá sér und- ir handleiðslu sinna eigin kenn ara. Heldur nokkur maður að það yrði hentugra, ódýrara, eða minna taugastrið, ef allir þess- ir þúsund nemendur, sem ár- lega ganga undir landspróf, ættu að flykkjast að mennta- skólunium og taka þar inntöku- próf í ókunnum skólum hjá ókunnugum ken.nurum. Sammála Matthíasi um eitt atriði Um eitt atriði í grein Matthíasar Johannessen er ég honum sammála, enda er hann þar orðirtn á móti sjálfum sér, og allt farið að stangast á ann- ars horn. En það sem ég er Matthíasi sammála um, er að þyngja beri námið í barnaskól um og fyrsta og öðrum bekk gagnfræðaskólans til miikilla muna, þó þetta nám sé að vísu mjög misjafnlega þungt í hin- um ýmsu skólum. En verður þetta auðveldara fyrir þá, „sem ef tii vill eru dálítið sein- þroska", en það eru einmitt þeir, sem ritstjórinn virðist bera mest fyrir brjósti? Annað er það að útilokað er með öllu, að nám í barna- og unglingaskólum verði þyngt hjá öllum nemendum, aðeins þeim beztu, kannski helmingn um. Með öðrum orðum, ef far- ið væri að tillögu aMtthiasar mundi úrviruisla þeirra, sem kæmu til með að komast í menntaskóla og til æðra náms byrja miklu fyrr en nú.. Er það hagkvæmara fyrir þá, „sem ef til vill eru dálítið sein- þroska“. Og mundi það koma til með að fjölga þeim, sem ljúka stúdentsprófi. í grein sinni reynir Matthías að gera lítið úr þeim, sem stunda náim sitt af alúð og ná góðum prófum, og spyr: „Hvað mundu margir dúxar úr menntaskóla skara fram úr, þegar út í lífið kemur?“ Ég hef hvorki aðstöðu né löngun til að svara þessari spurningu, en vil samt benda honum á, að langflestir prófessorar við Há- skólann eru gamlir dúxar úr skóla, Háskólaraktorinn marg- faidur dúx frá öllum skóla- stigum. Að því svo ógleymdu að forsætisráðherrann, utanrik isráðherrann og menntamála- ráðherrann munu allir vera gamlir dúxar úr skóla, og gott ef ekki fjármálaráðherranÍK lika. •fa Hvað segja bændur? Hef þetta ekki lengra, veit að einhverjir skóiamenn munu taka til athugunar allar þessar greinar í Samvinnunni. Sem betur fer er ekkert fram- kvæmdarvald í höndum á slík- um mönnum. í skólamálum þurfum við að flýta okkur hægt og fara að öllu með gát, byltingar á einu sviði né öðru hafa aldrei verið til góðs. Bændurnir í landinu hafa frá því fyrsta verið kjölfestan I samvinnufélögunum, nú árar illa hjá bændum, undanfarna vetur mikil snjóalög, innigjöf á sauðburði, kal í búnum. Ég veit ekki hvað miklu þeir eiga að kosta til að gefa út þvætt- ing eíns og þetta síðasta herti Samvinnunnar er“. „Hallur Steinsson". Enn um skepnu- haldið í Vestur- bænum Borgari skrifar: „Kæri Velvakandi: Ég vil þakka meindýraeyði borgarinnar fyrir skjót svör við bréfi mínu um skepnuhald ið á „Víðimýri" við Kappla- sikjólsveg. Mig langar þó til þess að gera nokkrar athuga- semdir við bréf hans. 1. Gott er að heyra, að sauð fjárhald hafi verið bannað þarna frá oig með 1. okt. sl., en sama dag og bréf meindýra- eyðis er birt, 13. okt., eru kind urnar þarna enn. Hvað veldur því, að ekki er farið eftir bann inu? 2. Þótt barnaheimilin þarna við hliðina séu sögð ekiki hafa orðið fyrir neinum óþægindum, er samt ófært að hafa húsdýra- hald, sem dregur að sér rottur, dúfur og flugur, fast upp við barnaheimilin. Það hljóta yfir- vðld og heilbrigðiseftirlit að sjá í hendi sér. 3. Meindýraeyðir viðurkenn- ir, að rottu hafi orðið vart í heilsubrunninum i Sundlaug Vesturbæjar, og eins segir hann, að tvisvar til þrisvar á ári finnist rottur á „Víðimýri**. Ég get frætt hann á því, að fó>lk hér um slóðir sér rottur og dúfur éta með öncbunum og gæsunum, næstum því í hvert skipti sem það lít-ur yfir girð- inguna á matartíma alifugl- anna. 4. Meindýraeyðir segir að- eins þrjár ástæður „fyrir þvL að rottu verður öðru hverju vart í þessu hverfi“, en nefnir ekki aðalástæðuna, þ.e. skepnu haldið á „Víðimýri“. Hvað Veid ur þeirri „gleymsku"? (Hann er þó nýbúinn að viðurkenna rottuganginn þar). Hann segir, að kvartað hafi verið undan rottugarngi í sorpgeymslum óg „ástæðan er sú, að börn og fullorðnir hafa tekið ristar úr niðurföllum í sorpklefum,' og er þá ekki að sökum að spyrja“. Meindýraeyðir hlýtur þó að vita, að rottur hafa fundizt í sorpklefum, þar sem ekkert niðurfall er, og að ristar yfir niðurföllum fyrir utan sorp- klefana eru soðnar og steyptar fastar, svo að þær eru óhagg- anlegar. Hvaðan komu þá rott- urnar? Þá segir hann: „íbúarn ir hafa ekki komið lóðum sín- um í stand, og er því aukin hætta á hirðuleysi, sem valdið getur rottugangi". Þetta á við um einn húsagarð í nágrenn- ingu, sem er á bak við fjöl- býlishús og raðhús, en íbúarn- ir þar hafa dregið það um fjöl mörg ár að ganga frá lóðinni, þó að nágrannar þeirra hafi getað gengið frá sínum lóðum sikömmu eftir bygg.ingu (eða um leið, eins og gert hefiur ver ið í sumar á sumum stöðum). Þessi slóðaskapur er því óaf- sakanlegri, þar sem hægt hef- ur verið að malbika stórfínt bílaplan á sama tíma. íbúarnir virðast sem sagt elska bilana sína meira en börnin sín, og ná grannarnir hafa ekki við að halda börnum sínum frá forar vilpunum á þessari su/bbulóð. Þessi eina lóð er samt ekki or- sök þess, að rotta, dúfur og filugur hafa lagt undir sig þetta fjölmenna íbúðarhúsahverfi, heldiur er þar um að kenna margumræddu skepnuihaldi á „Víðimýri". Hversu lengi ætlar t.d. borg arlæknir að þola það, að þarna sé rekiinn búskapur með kind- um, gæsum og öndum innan um íbúðahverfið? Það er ekki nóg að banna sauðfjárhaldið, heldur verður að leggja anda- og gæsabúskapinn niiður tafar- laust. Eða má kanmske bver sem er fara að hafa endur, gæs ir o.g hænsni í kjallaranum hjá sér eða í skúrum úti á lóð? Bú- um við inni í miðri borg eða úti í sveit? Allir, sem í sveit hafa verið, vita, hve örðugt er að halda xottum frá alifuglum, því að þeim þykir fóður fugl- anna gott og auðvelt að ná í það. Hér bætast dúfiurnar við, og ennfremur má oft sjá villi- endur af Reykjavíkurtjörn setj ast þarna til borðs með heima- fuglunum. Um þetta mál ætti að vexa óþarfi að hafa fleiri orð, en fróólegt væri að vita, hvort t.d. borgarlæknir leggur blessun sina yfir þennan fjölskrúðuga dýragarð. Borgari“. Barngóð kona óskast nú þegar til að gæta ungbams frá kl. 9—5. Tilboð leggist inn á afgr. Mbl. fyrir laugardag merkt: „Ungbam — 5928“. / Aukavinna Lagtækur maður getur fengið aukavinnu um 60 klst. á mánuði. Uppl. í dag og á morgun kl. 4—7. Ekki í síma. GLIT H.F., Óðinsgötu 13.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.